Pressan


Pressan - 03.11.1988, Qupperneq 9

Pressan - 03.11.1988, Qupperneq 9
Fimmtudagur 3. nóvember 1988' Eimskipafélag Islands 9 Halldór H. Jóns- son, fjölskylda og fyrirtæki eiga yfir 30 milljónir í hlutabréfum í Eim- skip. Markaðsverð bréfanna er yfir 100 milljónir króna. Sjóvá er stærsti einstaki eignar- aðilinn með um 44 milljónir. Hörður Sigur- gestsson forstjóri á 5,2 milljónir. Á meðan bréfin voru seld á nafn- verði náðu ákveðnir einstakl- ingar, fjölskyldur og fyrirtæki þeirra að tryggja völd sín í Eimskipafé- laginu. Á síðustu áratugum hefur nokkrum einstaklingum, fjölskyldum og fyrirtækjum þeirra tekist að tryggja sér yfirburðastöðu í almenningshlutafélaginu Eimskipa- félagi íslands. Valdátakan hefur farið hljóðlega fram, nánast í kyrrþey, án fjölmiðlaskarkala og afskipta óbreyttra félagsmanna. í dag eru litlar líkur á því að bylting verði í stjórn félagsins. Umgjörð aðalfunda og sala hlutabréfa eru með þeim hætti, að hallarbylting er nánast óframkvæmanleg. Völdin voru raunar tryggð áður höfðu til, hlut í fyrirtækinu á nafn- en hinn svokallaði frjálsi hluta- virði. Einhver myndi kalla þetta bréfamarkaður varð til á íslandi. Þá grófa eignatöku, þótt eðlilega skýr- keyptu þeir aðilar, sem aðstöðu ingin kunni að vera sinnuleysi og hirðuleysi þeirra sem átt hafa bréf í félaginu eða fengið í arf. Móður- skipið í íslensku atvinnulífi er komið í hendur fárra manna, sem sáu hlutabréf í öðru ljósi en al- menningur gerði fyrir nokkrum árum. Hlutabréfin í félaginu voru fyrir mörgum einungis fallegur pappír, í sumum tilfellum til stofu- skrauts, — í ramma á vegg. RÍKIÐ SELUR Það var raunar ekki fyrr en í fjár- málaráðherratíð Alberts Guð- mundssonar, þegar ákveðið var að selja hlut ríkisins í Eimskip, að fleiri fóru að átta sig á raunvirði hlutabréfanna. Ríkið átti um 5% hlutdeild í Eimskipafélaginu. Að mati fjármálaspekúlanta voru hlutabréf ríkisins mun meira virði en nafnverð sagði til um. Eftir um- deilt útboð og eftirmála þess var Sjóvá seldur eignarhluti ríkisins. í dag er fyrirtækið stærsti einstaki eignaraðilinn að Eimskipafélaginu með 8,1% eignaraðild, en heildar- hlutafé skipafélagsins í dag er 540 milljónir króna að nafnvirði. SJÓVÁ Á STÆRSTAN HLUT Sveinn Björnsson, síðar forseti, var bæði i forsvari fyrir stofnun Eimskipafélagsins og Sjóvátrygg- ingafélagsins. Benedikt Sveinsson, stjórnarformaður Sjóvár í dag, segir tengslin mikil frá upphafi þótt viðskiptalega séu þau ekki mjög mikil nú. Sjóvá á hlutabréf sem nema 44 milljónum í Eimskip og KRISTJÁN ÞORVALDSSON

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.