Pressan - 03.11.1988, Page 19

Pressan - 03.11.1988, Page 19
1" Fimmtudagur 3. nóvember 1988. 19 i, KLÁRIR I LOFTIÐ!“ Hannes Jóhannsson framkvæmdastjóri tæknisviðs með valinn mann í hverju rúmi. Myndatökuvélar og hljóðnemar á ferð og ftugi innan um kapla, snúrur og skjái. Allireru á þönum, lóðbyssur á lofti og allt að verða klárt. Við erum stödd í myndverinu, ríki tæknimannanna, síðustu mínútumar fyrir útsendingu Stöðvar2. Þótt lítið fari fyrir tæknimönnunum á skjánum má nefna sem dæmi um mikilvægi þeirra, að frétt sem unnin er af einum fréttamanni, útheimtir störf 20 tæknimanna. Meginhlutverk tæknisviðs Stöðvar 2 er að hafa auga með og gera við hinn margbrotna tæknibúnað, sem fleytir stórgóðri dagskrá Stöðvar 2 inná heimili landsmanna, fylgjast með í framþróun tækninnar, klippa efni og setja texta og tal inná myndir, svo fátt eitt sé talið. Hannes Jóhannsson leiðir starf 58 tæknimanna Stöðvar 2. Hann er rafeindavirki að mennt og hefur aflað sér víðtækrar reynslu á sviði sjónvarps. Starfaði m.a. hjá norska sjónvarpinu og ríkissjónvarpinu. Um árabil vann hann hjá ísmynd, sem síðar varð ísfilm, við að ryðja braut í gerð íslenskra myndbanda. „ Tæknimönnum íslenska myndversins hefurfjöigaö úr20 í 60 á tveimurárum og ersú aukning taiandi dæmi um vaxandi umsvif deildarínnar, sem enn sér ekki fyrír endann á. Áður en ég hófstörfhér hafði ég kynnst bestu tæknimönnum landsins. Hafi ég afrekað einhverju á Stöð 2 erþað að fá þá hingað til starfa “. MÓTTÖKU LOFTNET Tæknimennn Stöðvar 2 sjá um, að hinn margbrotni tæknibúnaður Stöðvar 2 skili dagskránni heilli í höfn, á flókinni leið um öldur Ijósvakans.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.