Pressan - 03.11.1988, Síða 28

Pressan - 03.11.1988, Síða 28
28 Fimmtudagur 3. nóvember 1988 / M dagbókin henn dúllu Kœra dagi Ef ég væri læknir rannsaka muninn á því hvernig karlar og konur finna til. Pabbi og mammaeru nefnilega bæði búin að vera með gubbupestina, sem er að ganga, og það var ekkert sambæri- legt að fylgjast með þeim, maður. Mamma veiktist l'yrst og þá rak hún pabba fram í sól'a svo hann smitað- ist ekki (en það var náttúrulega ol' seint). Síðan lá hún stynjandi og alveg í keng og þaut svo fyrirvara- laust fram á klósett og var þar lengi lengi í einu. Svona gekk þetta í marga klukkutíma og við krakk- arnir bara sáum um okkur og létum eins og ekkert væri. Maður er nú líka í góðri æfingu að redda sér, þó mamma haldi að luin sé eitthvað ómissandi. Manneskjan er alla lið- langa daga á fundum og ráðstefn- um, ef hún er ekki í vinnunni. (Næst cr það t.d. kvennalistalands- fundurinn eða hvað það heitir.' Hann er m.a.s. haldinn lengst uppi í sveit svo fjölskyldurnar gcti alveg örugglega ekki lengið neina þjón- ustu í heila helgi...) Jæja, svo veiktist pabbi sem sagt og þá byrjaði aldeilis ballið. Hann vcinaði eins og kelling, sem er að eignast fjórbura, og spriklaði i rúminu eins og kolkrabbi. Og löngu áður en hann þurlti að hendast Iram að kasta upp var hann búinn að tilkynna það með öskrum, sem heyrðust örugglega út um allt hverf- ið. Hann var lika voða duglegur að skipa okkur öllum fyrir, þó hann væri að gefa upp öndina samkvæmt þessum nákvæmu lýsingum á stingjum og ólgu og ölíu því. Við vorum á eilífum þeytingi eltir vatnsglösum, meiri koddum, rök- um þvottapokum og svoleiðis, á milli þess sem við fundum nýjar og nýjar útvarpsstöðvar lyrir hann að hlusta á. Pað var sko fimm manna verk að sjá um hann! Um leið og pabba lor soldið að skána var hann kominn í símann til ömmu á Einimelnum og farinn að gefa henni vísindalega nákvæma skýrslu um hvern einasta sting með tilheyrandi stunum og volæði. Það var cins og hann hefði næstum ver- ið dáinn úr sprungnum botlanga eða eitthvað... En hann minntist ekki einu orði á að mamma hefði líka verið með þctta og lifað það þokkalega vel af. „Svona eru þessir kallar bara, Dúlla mínþ sagði rnamnia, þegar ég spurði hana af hverju hún kýldi hann ekki í klessu fyrir að vera með þessa historiu út af smágubbupest. (Hún röflaði líka um einhvern „þröskuld", sem væri miklu hærri hjá konum en körlum út af því að þær væru alltaf á túr og að eignast börn. Ég skildi það eiginlega ekki alveg.) Guð, mér er orðið svo flökurt... B/ess i hvelli. Dúlla. LARSEN DANSKI LEÐURROKKARINN MÆTTUR Hann er alvinsælasti tónlist- armaður Danmerkur, feikna kjaftstór og ekki er fínleikanum aðöðru leyti fyrirað fara i andlit- inu á hohum. Hann gæti hafa alist upp i Ódáðahrauni, en það gerði hann svo sannarlega ekki. Kim Larsen er danskur i húð og hár og ólst upp hjá einstæðri móður sinni. Kim Larsen kom til landsins í gær og heldur tónleika á Hótel Islandi dagana 3., 4., 5., 6., 8., 9., 10. og 11. nóvember. Sérstakir grunnskólatónleikar verða í dag og hefjast klukkan 16.00. Hann er borinn í þennan heim 23. október árið 1945 og því er Kim Melius Flyvholm Larsen ný- lega orðinn 43 ára. í uppvextin- um heillaðist strákurinn fljót- lega af rokktónlist og varö fyrir áhrifum frá köppum eins og Elvis Presley, Little Richard og Jerry Lee Lewis. Á unglingsár- um var hann byrjaður aö þenja sig og gitarinn af fullum krafti, en tónlistarferil hóf Kim Larsen ekki af fullri alvöru fyrr en árið ; 1969 þegar hann ákvað að hætta kennslustörfum og gerast tón- listarmaður. Þá stofnaði hann hljómsveitina Gasolin ásamt þeim Franz Beckerlee, Wili Jonsson og Soren Berlev. Það er skemmst frá því að segja að á starfsferli sínum varð Gasolin alvinsælasta rokkhljómsveit Danmerkur og Skandinavíu allr- ar. Hún spilaöi í fyrstu hrátt rokk, en smám saman þróaðist tónlist hennar í áttina til hreinn- ar popptónlistar. Gasolin hætti störfum árið 1978, en á starfsferli sveitarinn- ar hafði Kim hljóðritað sína fyrstu sólóplötu. Það var árið 1973 og bar platan nafnið VÆRSGO, eóa Gjöriö svo vel á því ástkæra og ylhýra. Þessi plata var nokkuð frábrugðin Gasolin-rokkinu, því á henni var eingöngu órafmagnaður vísna- söngur. Árið 1977 fór Kim til Atlanta í Bandaríkjunum til að gera aðra sólóplötu, sem átti að vera með enskum textum, og fékk hann til liðs við sig upp- tökustjórann Sonny Limbo. Þessi plata heitir Kim Larsen og Yankee drengene. Þegar hér var komið sögu gekk samstarfið innan Gasolin ekki sem best, því Kim varmikið í mun að halda sólóferli sínum áfram. Þess vegna hætti hljóm- sveitin árið 1978, eins og áður hefur komið fram. Eftir útkomu þriöju sólóplötu Kims Larsen, sem gjarnan er kölluð „nafn- númersplatan“, því hún ber nafn- númeriö hans, 231045-0637, ákvað hann að láta gamlan draum rætast og reyna fyrir sér í Bandaríkjunum. Þar setti hann saman hljómsveitina Jungle- dreams og gerði eina plötu með henni. Ekki gekk þetta sem skyldi og til Danmerkur sneri Kim aftur árið 1982 með sárt ennið. Eftir að hafa skipt um útgáfu- fyrirtæki árið 1983, yfirgefið CBS en gengið til liðs við Medley-útgáfuna, fóru hjólin að snúast aftur hjá Kim Larsen. Platan Midt om natten kom út árið 1984 og hlaut fádæma vin- sældir, hefur selst í um 700.000 eintökum. Hún er mest selda danska platan frá upphafi. Þess másvo getaað Kim lék líkaaðal- hlutverkið í samnefndri mynd og átti þátt í að skrifa handritið. Síðan Midt om natten kom út hefur Kim Larsen gefið út þrjár hljómplötur; Forklædt som voksen, Kim i Sirkus og Yummi Yummi, sem er nýjasta afurð hans og ætti að vera íslending- um kunn. Þessar plötur hafa allar selst í umogyfirhálfri milljóneintaka og erekki séð fyrirendann ásöl- unni. Yummi Yummi hefur að vonum rokselst hér á landi síð- ustu vikurnar og var í öðru sæti vinsældalista Rokkpressunnar i siðustu viku. En nóg um tölur og annað kjaftæði. Kim Larsen og félagar hans í hljómsveitinni Bellami eru komnir til landsins til að spila danskt rokk eins og það gerist best. ROKKPRESSAN T O P P F 1 M M T A N 1.(1) U2 RATTLE AND HUM 2.(6) THE PROCLAIMERS SUNSHINE ON LEITH 3. (2) KIM LARSEN YUMMI YUMMI 4.(3) DIRE STRAITS . MONEY FOR NOTHING (SAFNPLATA) 5. (-) BUSTER UR KVIKMYND 6. (-) UB-40 UB-40 7. (-) STRAX EFTIR PÓLSKIPTIN 8. (4) PET SHOP BOYS INTROSPECTIVE 9. (8) LEONARD COHEN I’M YOUR MAN 10. (-) DURAN DURAN BIG TIME 11. (7) RAP TRAX . ÝMSIR FLYTJENDUR 12. (-) KEITH RICHARDS TALK IS CHEAP 13. (-) GOOD MORNING V1ETNAM ÚR KVIKMYND 14. (-) COCKTAIL ÚR KVIKMYND 15. (13) BUBBI MORTHENS 56 Listinn er byggóur á smásölu úr verslunum Steina hf., Skifunnar og Grammsins. Í BÆJARBÍÓI I.uujjarcl. kl. 16.00 sunnud. kl. 16.00. Kúar sýnigar cl'lir. Midapanlanir í síma 501X4 allan sólarlirin^inn. leiKFGLAG AKURGYRAFI simi 96-24073 I.KIKFÉLAG AKURKYRAR (icslalcikur ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Kiisludaa ki. 20.30 lauaardaa kl. 20.30. Skelltu hvorki skuld á hálku eða myrkur. Það ert foí sem situr við stýrið.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.