Pressan - 05.12.1991, Blaðsíða 43

Pressan - 05.12.1991, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991 43 I KynþokkafyMu konur felands Linda Pétursdóttir er kynþokkafyllsta kona landsins samkvæmt óformlegri skoðanakönnun PRESSUNNAR. íslenskir karlmenn segja sína skoðun á því hvað sé SEXÝ í fari kvenna þokka á íslandi? PRESSAN spurði nokkra karlmenn á öllum aldri um það og einnig var spurt: MARGRÉT ÖRNÓLFSDÖTTIR yngri mönnum þykir hún ögr- andi og eggjandi og spenn- andi týpa og margt margt ann- að. Hvað er kynþokki? Hvað er það sem stjórnar því hvaða konur karlmenn girnast? Er það dulúðuga og hættulega dökkhærða konan með eilít- ið rifnu röddina? Eða hressa, Ijóshærða blaðskellandi stelpan sem brosir svo sætt? Þessu er vandsvarað. Kyn- þokki er órætt hugtak og það sem heillar einn og veldur hjá honum hálfgerðu meðvit- undarleysi þarf ekki að hafa minnstu áhrif á annan. Enda er það svo að oft segir fólk gáttað og yfir sig bit: „Ekki skil ég hvað hann sér eigin- lega við hana." Eitt af fjölmörgu sem ís- lendingar hafa framyfir aðrar þjóðir, að eigin sögn, er að hér er fallegasta kvenfólk í heimi og þótt víðar væri leit- að! Enda er búið að staðfesta þetta svo ekki verður um villst; íslenskar fraukur hafa staðið sig öðrum betur í feg- urðarsamkeppnum og svo eigum við líka fullt af heims- frægum fyrirsætum. Og alls staðar standa menn á önd- inni yfir hinni ólýsanlegu feg- urð íslenskra kvenna, mikið ef menn eru ekki farnir að koma hingað sérferþir frá út- löndum til að skoða okkar blómlegu stúlkur. Nú nú, en hvaða konur hafa þá til að bera mestan kyn- HVAÐ ER SEXÍ? „Linda Pé, ég hef sérstakt dálæti á Lindu," svaraði einn um hæl. „Vigdís Grímsdóttir,“ sagði annar dreyminni röddu og var samstundis horfinn á braut úr þessum heimi og því ekki hægt að spyrja hann frekar. ,Anna Margrét Jónsdóttir, hún er svo kattarleg í framan og hefur æðislega sexí and- lit,“ sagði enn, einn gráðugur á svip. „Það er ekki spurning, það er Súsanna Svavarsdótt- ir. Ég sá hana í sjónvarpinu um daginn og hún er alveg svona gullfalleg með nautna- legan rnunn," var skoðun eins, og maður heyrði það í gegnum símann hvað honum þótti leitt að hafa ekki tekið þetta viðtal upp úr sjónvarp- inu. „Brynja Nordquist er mjög sexí og ég hef alltaf ver- ið skotinn í henni," sagði ung- ur maður. „Unnur Steinsson,“ sagði drengur einn. Og af hverju? var spurt. „Það eru augun maður, það eru augun,“ svar- aði hann ákafur og ég horfði forviða á símtólið í hendi mér, sem var farið að anda þungt. „Linda Péturs er sexí frá a til ö, það er sama hvar ég lít á hana; hún hefur allt sem til þarf,“ sagði maður í kring- um fertugt og ljómaði eins og sex ára strákur sem hefur fengið Nintendo í jólagjöf. „Berta María Waagfjörd er heill bunki af sex appeal," ^ sagði maður um þrítugt og lá ekki á þeirri skoðun sinni að LINDA PÉTURSDÓTTIR kynþokka- fyllsta kona landsáns. Ráðsettir menn gapa og missa út úr sér vindilinn þegar myndir birtast af henni í blöðum og tímarrtum. Kynþokkinn geislar af henni og hún er sexí frá a til ö segja menn. UNNUR STEINSSON augnaráð hermar er ömótstæði- legt. Þessi grænu augu hennar heilla menn upp úr skónum. Og svo er hún að sjálfsögðu ægifögur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.