Pressan - 05.12.1991, Blaðsíða 45

Pressan - 05.12.1991, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991 45 Æ V I S Ö G U R 5 jÍ Á L D zj í SVIPTIVINDUM Æviminningar Sigurðar Helgasonar eftir STEINAR J. LÚÐVÍKSSON. Sigurður Helgason hóf afskipti af flugmálum á Isiandi þegar hann kom inn í stjóm Loftleiða á frægum byltingarfundi árið 1953. I tæp fjörutíu ár eða fram til aðalfundar Flugleiða 1991 var Sigurður í fylkingarbijósti. Hann var um árabil forstjóri Loftleiða í Bandaríkjunum en eftir sameiningu Loftleiða og Flugfélags Islands 1973 varð hann einn þriggja forstjóra félagsins. Hann var forstjóri og síðar stjómarformaður Flugleiða um árabil. Þar blésu oft kaldir vindar um Sigurð Helgason enda var hann þekktur fyrir að taka ákvarðanir og standa eða falla með þeim. í SÖNGVARANS JÓREYK Æviminningar Sigurðar Olafssonar eftir RAGNHEIÐI DAVÍÐSDÓTTUR. f bókinni segir Sigurður frá litríku lífshlaupi sínu. Hann var mjög fjölhæfur söngvari og á 50 ára söngferli sínum söng hann í kómm, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og í ópemm, auk þess sem hann söng inn á margar hljómplötur sem njóta enn gífurlegra vinsælda. En Sigurður var ekki síður kunnur sem hestamaður þar sem skeiðið var sérgrein hans. í bókinni endur- speglast geislandi lífsgleði og þróttur Sigurðar sem áður kom fram á skeiðvöllunum og í söng hans. „HEITIRÐU ÓMAR ?!!" Minningabók eftir ÓMAR RAGNARSSON fréttamann. í bókinni rekur Ómar endurminningar sínar frá bemskuámnum. Hann bregður upp ógleymanlegri mynd af Reykjavík eftirstríðsáranna og af lífsbaráttu alþýðufólks á þeim ámm. Hann segir frá prakkarastrikum í sveitinni og kristilega þenkjandi ungum mönnum í Kaldárseli. Hann segir frá fyrstu ástinni í lífi sínu sem kviknaði við harmrænar kringumstæður. Einlægni og frásagnargleði einkenna þessa bók ÓMARS RAGNARSSONAR, rétt eins og persónuna sjálfa. STAÐIÐ í STRÖNGU Æviminningar Erlendar Einarssonar eftir KJARTAN STEFÁNSSON. Erlendur Einarsson var um langt árabil forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga. Undir hans stjóm reis veldi samvinnu- hreyfingarinnar á íslandi hæst og hún varð stórveldi í íslensku samfélagi. Flest var þar slétt og fellt á yfirborðinu en eins og oft gerist í miklum atvinnurekstri og umsvifum kraumaði undir niðri. Og nokkmm sinnum sauð reyndar upp úr. Erlendur Qallar um afskipti sín af málum samvinnuhreyfmgarinnar sem hófust þegar hann var innanbúðarmaður í Kaupfélaginu í Vík í Mýrdal. Hann rekur feril sinn hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess og segir frá átökum sem urðu við lok starfsferils hans þar. FLÓTTAMAÐURINN Ein kunnasta saga bandaríska spennusagna- höfundarins STEPHEN KING í íslenskri þýðingu Karls Birgissonar. Sagan gerist í stórborg í Bandaríkjunum í náinni ffamtíð. Kerfið hefur sigrað einstaklinginn og í gegnum íjölmiðla og þó einkum sjónvarpið er auðvelt að æsa lýðinn til óhæfuverka. Aðalsöguhetja bókarinnar, Ben Richards, er sendur nauðugur til leiks þar sem lífið sjálft er að veði. STEPHEN KING bregst aldeilis ekki íjölmörgum aðdáendum sínum með þessari óvenjulegu sögu. ÍTÆTLUM Danska stúlkan SYNN0VE S0E sló rækilega í gegn með þessari bók sem nefnist FARS á fmmmálinu. Bókin hefur orðið metsölubók á hinum Norðurlöndunum og kemur nú út í íslenskri þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar. SYNN0VE S0E leynir því ekki að í bókinni er hún að lýsa sinni eigin æsku og hvemig hún varð hálfgerð leikbrúða karlmannanna í lífi hennar. Sagan er óvenjulega trúverðug og nær að snerta strengi í bijóstum lesendanna. Þess vegna hafa lesendumir í senn verið hrifnir og hneykslaðir. DAUÐADÚKKAN RUTH RENDELLer löngu heimsfræg fyrir spennusögur sínar en gerðar hafa verið kvikmyndir eftir mörgum þeirra og þær m.a. sýndar í sjónvarpinu á íslandi. í skáldsögunni DAUÐADÚKKAN grípur aðalsöguhetjan, Peter Yeárman, til örþrifaráðs þegar hann álítur að hann verði alltaf lágvaxnari en aðrir menn. Hann hrindir af stað ógnvekjandi atburðarás sem erfitt reynist að stöðva. Afleiðingarnar bitna ekki eingöngu á honum sjálfum. Jónína Leósdóttir þýddi bókina. BARNA OG UNGLINGABÆKUR MITTERÞITT Unglingasaga eftir ÞORGRÍM ÞRÁINSSON. Þetta er þriðja unglingabók Þorgríms en báðar fyrri bækur hans fengu mjög góðar móttökur. Ekki einungis að þær yrðu metsölubækur heldur hlaut bókin, sem út kom í fyrra, TÁR, BROS OG TAKKASKÓR, verðlaun sem besta íslenska unglingabókin 1990. MITTER ÞITT er sjálfstætt framhald fyrri bókanna. Þetta er saga um dugmikla stráka og stelpur sem grípa til sinna ráða þegar einn úr hópnum er sakaður um þjófnað og auðvitað kemur knattspyman einnig við sögu því það er keppikefli strákanna að komast í drengjalandsliðið. EGILLOG GARPUR Barnabók eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR. Þetta er saga um sex ára strák, sem heitir Egill. Hann er að byrja í skóla og búinn að læra umferðarreglumar. Egill fær kettling í afmælisgjöf en kisi er ekki eins vel að sér í umferðarreglunum og eigandinn og lendir í slysi. Þetta er lærdómsrík saga um hættur umferðarinnar. Umferðarráð mælir með bókinni og segir hana sameina vel skemmtun og fróðleik. Teikningamar í mkinni em eftir ungan myndlistarmann TCEÁKT l<rT A DTA MCCíYKT FRODI Ármúli 18-108 Reykjavík - Sími: 812300 NÝR DAGUR.. SÍA

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.