Pressan - 05.12.1991, Blaðsíða 50
Hagnaðurinn af sölunni mun renna
i ferðasjóð þing- og starfsmanna,
— segir Friðrik Ólafsson um jóla-
útgáfu Alþingis.
Útgáfa Alþingistíðinda
BJÓÐA UPP Á
UMRÆÐUR UM
ÞINGSKÖP Á
ÞREMUR MYND-
BANDSSPÓLUM í
PAKKA
— tvímælalaust jólagjöfin í
ár, — segir Friörik Ólafsson,
skrifstofustjóri Alþingis
STÖÐ2 OG
BYLGJAN
HÆTTA MEÐ
17:17 OG
19:19
— þaö var ekki orðinn neinn
vinnufriöur fyrir fólki sem
vildi versla í matinn hjá okk-
ur, — segir Páll Magnússon
sjónvarpsstjóri
Að sögn Páls Magnússonar hafa
verslanir með nöfnum á borð
við 10:10, 11:11 og 11:10
gert ómögulegt að reka
17:17 og 19:19.
Arðsemisútreikningar
Þjóðhagsstofnunar
MESTUR
HAGNAÐUR
AF REKSTRI
KIRKJUNNAR
— sóknargjöldin tryggja ótrú-
lega framleiöni á hvern
kirkjugest
Ólafur Skúlason. Undir hans stjórn
hefuF framleiðni kirkjunnar aukist
stórkostlega. Fáir gestir og miklar
tekjur.
49. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 5. DESEMBER 1991 STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR
Viljum halda fjörinu í þinginu,
— segir Orri Baldursson,
áhugamaður um lífleg þing-
störf.
Ahugamenn um Alþingi
KREFJAST
FLEIRI UTAN-
DAGSKRÁR-
UMRÆÐNA
Reykjavík, 4. desember
---j ------
„Eg held að hann Davíð
sé klikkaður að láta sér
detta þetta í hug. Ef ekki
væru þessar utandag-
skrárumræður og umræð-
ur um þingsköp þá mundi
ekki nokkur maður láta
sjá sig í Alþingishúsinu
sagði Orri Baldursson, ný-
kjörinn formaður Áhuga-
manna um Alþingi — sam-
taka um líflegri þingstörf.
„Það getur hver sem er séð
þetta sjálfur. Þegar verið er
að ræða einhver lagafrum-
vörp eða slíkt þá sést ekki
nokkur maður í húsinu. En
um leið og einhver kveður
sér hljóðs utan dagskrár —
sérstaklega ef það er fyrrver-
andi ráðherra — þá fyllast
þingpallarnir," sagði Orri.
Á stofnfundi samtakanna
voru samþykkt harðorð mót-
mæli við framgöngu Davíðs
Oddssonar á undanförnum
dögum.
„Það er nú ekki svo mikið
um ókeypis skemmtun á
þessum krepputímum. Ég
verð að segja að mig hryllir
við því ef Davíð tækist að
hrifsa þetta frá okkur," sagði
Orri.
FOLK VERÐUR
GETULAUST AF LESTRI
MORGUNBLAÐSINS
— segir Hjörtur Jónsson félagsírœdingur, sem hefur gert könnun á getuleysi og
bladalestri
Reykjavík, 5. desember
Að sögn Hjartar Jóns-
sonar félagsfræðings leið-
ir lokaverkefni hans við
Háskóla Islands það í ljós
að lesendum Morgun-
blaðsins er hættara við
getuleysi en lesendum
annarra blaða. Hins vegar
lásu fæstir hinna getu-
lausu Alþýðublaðið.
„Ég kannaði lestrarvenjur
150 manna sem þjást af getu-
leysi," -segir Hjörtur. „Lang-
flestir þeirra, eða 92, lásu
Morgunblaöið, 54 lásu DV, 8
voru áskrifendur að Tíman-
um, 5 keyptu Þjóðviljann en
aðeins einn las Alþýðublaðið
og aðeins endrum og sinn-
Hjörtur Jónsson telur sig hafa
sannaö aö lestur Morgun-
blaösins leiöi til getuleysis.
um. Mér þykir því ljóst að ef
menn vilja nota fyrirbyggj-
andi aðferðir til að koma í
veg fyrir getuleysi eigi þeir að
lesa Alþýðublaðið. Menn
skyldu hins vegar varast
Moggann og lesa hann ein-
ungis til að takmarka barn-
eignir"
Aðspurður um hvort niður-
stöður um lestrarvenjur getu-
leysingjanna endurspegluðu
ekki lestrarvenjur almenn-
ings sagðist Hjörtur ekki til-
búinn til að draga neinar
ályktanir þar að lútandi.
„Könnun mín snerist um
lestrarvenjur manna sem
þjást af getuleysi. Ég kannaði
ekki lestur annarra hópa. Ef
þú ert tilbúinn til að hætta á
að lesa Moggann skaltu gera
það," sagði Hjörtur.
Medferdarheimili fyrir ríkisforstjóra
BRUÐLIÐ 0« SUKKIÐ
VAR ORÐIÐ SJÚKLEGT
— segir Guðmundur Einarsson, forstjóri Ríkisskips
Suðureyri, 5. desember
„Eg veit að þetta á eftir
að verða erfitt. En okkur
er sagt að við getum öðlast
nýtt líf og það gefur okkur
von og trú á framtíðina,“
sagði Guðmundur Einars-
son, forstjóri Ríkisskips,
en hann er einn af fyrstu
forstjórum ríkisfyrirtækja
sem leggjast inn á nýja
meðferðarstofnun sem á
að draga úr bruðli og sóun
í ríkisrekstri.
„Það er lagt fyrir okkur að
taka aðeins einn dag í einu,"
segir Guðmundur Malmquist,
forstjóri Byggðastofnunar.
„Um leið og viö vöknum för-
um viö með bæn og lofum
sjálfum okkur að bruðla ekk-
ert í dag. Það er auðvelt
hérna á Súganda þar sem viö
erum á slopp og höfum ekk-
ert hefti. Þaö mun fyrst reyna
á árangurinn þegar við hverf-
um aftur til starfa fyrir sunn-
an."
„Það halda margir að
bruðliö í ríkisrekstrinum
komi verst við skattgreiðend-
ur, en það er ekki svo," sagði
Guðmundur Einarsson. „Það
hefur líka farið illa með okk-
ur forstjórana. Smátt og
smátt heíur það heltekið okk-
ur og við höfum ekki fundið
frið fyrr en okkur hefur tekist
að bruðla hér og sóa þar. Við
erum ekki vondir menn.
Þetta ástand er sjúklegt og
bruðlið er sjúkdómur."
Meðferð forstjóranna tekur
um fimm vikur og að henni
lokinni munu þeir hverfa aft-
ur til starfa.
„Þó að þeir skáni ekkert í
meðferðinni hefur okkur að
minnsta kosti tekist að spara
fimm vikna bruðl þessara
manna," sagði Friðrik Soph-
usson fjármálaráðherra, en
vildi ekki tjá sig frekar um
málið.
Steingrímur Hermannsson hlustar á tilkynningar í útvarpinu
á meöan Árni Johnsen er í ræöustól.
Alþingi
KAUPIR 63
VASADISKÓ
MEÐ ÚTVARPI
— vonumst til þess ad þingmenn geti heyrt í for-
sœtisráðherra med þessu móti, — segir Salome
Þorkelsdóttir
Reykjavík, 5. desember
„Þetta er hentug lausn
og ódýr,“ sagði Salome
Þorkelsdóttir, forseti Al-
þingis, aðspurð um kaup
Alþingis á 63 vasadisk-
óum með útvarpi. Að
hennar sögn verður
tækjunum dreift á meðal
þingmanna og er ætlast
til að þeir séu með þau á
þingfundum.
„Ég kunni ekki önnur ráð
til þess að þingmenn gætu
tekið þátt í þingstörfum og
jafnframt fylgst með um-
mælum forsætisráðherra í
útvarpi," sagði Salome.
„Ég hef átt í vandræðum
með að fá þá inn á þing-
fundi. Þeir hafa vanalega
hangið niðri á kaffistofu að
hlusta á Rás 2, Bylgjuna
eða aðrar útvarpsstöðvar
sem hafa birt viðtöl við ráð-
herrann."
„Mér líst helvíti vel á
þetta," sagði Jón Helgason,
þingmaður Suðurlands.
„Ég var að hlusta á nýju
spóluna með Michael Jack-
son áðan á meðan Ólafur Þ.
Þórðarson var í ræðustól.
Það var geðveikislega
fyndið. Það var alveg eins
og Óli væri að syngja."
Nokkuð hefur borið á há-
reysti í þingsalnum eftir að
tækjunum var dreift.
Nokkrir þingmenn eiga
það til að reka upp hljóð
annað slagið þegar þeir
syngja með viðlaginu.
coidata
IO qíq Qfmœli/tilboð
80386-16 örgjörvi
IMbminni
42Mb diskur
1.44Mb 3.5" drif
VGA litaskjár
101 hnappa lyklaborð
Genius mús
Windows 3.0
MS-DOS 4.01
kr. 99.900 sta&greitt
Sumum finnst 10 ára afmælistilboðið okkar lyginni
iíkust, enda jafn ótrúlegt og annað á þessari síðu. Þú
getur komist að hinu sanna í þessu dularfulla
tilboðsmáli. Notaðu tækifærið, líttu við eða hringdu!
••
MICROTOLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976