Pressan - 16.01.1992, Side 33
FIMMTUDAGUR PRESSAN 16. JANÚAR 1992
LIFIÐ ÓDÝRT
33
KotasæIa á hvolfi
Ef kotasælan skemmist allt-
af í ísskápnum hjá þér er ráð
að setja dósina á hvolf í ís-
skápinn. Þetta er ekkert grín;
sé hún geymd á hvolfi endist
hún helmingi lengur.
Þíðið Fisk í Mjólk
Sumum finnst frystur fiskur
vondur og fussa og sveia ef
svoleiðis nokkuð óæti er á
borð borið fyrir þá. En frystur
fiskur getur bragðast sem
nýr. Ráðið er að þíða fiskinn í
mjólk og þá finnur enginn
muninn.
FRysTÍð hvÍTUuk
Hvítlaukur vill oft skemm-
ast hjá fólki því svo lítið er
notað af honum í einu. En
hvítlauk má frysta og þegar
að notkun kemur á að afhýða
hann og skera frosinn.
LiFið ódýRTÍ
^oFt var (>örF en nú er
NAuðsyN
SeTTU SokkAbuXURNAR í fRySTÍNN, TANNkREM Á
VEqqÍNAf VAxlÍTAÖU bílÍNN, boRÖAÖU LíFur oq
VERsLaÖU í koUpORTÍNU
í lok síðasta árs skaut orðið
bölmóður upp kollinum í um-
ræðunni hér á landi. Um
ágæti orðsins sjálfs sýndist
sitt hverjum en einhver fjöl-
miðlamaður hafði fyrir því að
fletta upp á orðinu í orðabók
Menningarsjóðs og komst að
því að orðið er til og telst full-
brúkleg íslenska.
Ráðamenn og aðrir keppt-
ust við að tala illa um bölmóð
þennan og kveða hann í kút-
inn. Menn töldu íslendinga
búa við það mikil lífsgæði og
hafa úr það miklu að spila að
óþarfi væri að leggjast í kör
og sjá ekkert nema svart-
nætti framundan. Þjóðin er í
öldudal, sögðu menn. En jafn
kraftmikil og dugleg þjóð á
ekki í vandræðum með að
rífa sig upp úr honum. Þetta
er semsagt tímabundið
ástand og öll él birtir upp um
síðir, að því er okkur er sagt.
En hvort sem ástandið heit-
ir böl eða lægð eða eitthvað
allt annað er ljóst að margir
þurfa að draga saman seglin.
Svoleiðis nokkuð er stundum
kallað „nauðsyn á samdrætti
í neyslu". Á máli venjuiegs
fólks að spara. Nú þarf að
spara.
En hvar á að spara? Hvar
getur fólk sparað þegar
kreppa ríkir og kjararýrnun
er staðreynd sem blasir við?
Flest heimili í landinu búá
við fasta útgjaldaliði sem
breytast ekkert þótt kaup-
mátturinn rýrni. Það þarf
áfram að borga af lánum og
gluggabréfin streyma inn
með sömu upphæðunum
hvort sem kaupið er minna
eða meira.
Á endanum er niðurstaðan
aðeins ein. Það er eingöngu
hægt að spara þá hluti sem
gera lífið þess virði að lifa því.
Að minnsta kosti finnst mörg-
um það einmitt vera þeir
hlutir sem helst er hægt að
minnka útgjöld til: Flottir og
dýrir bílar, stór og glæsileg
hús, utanlandsferðir,
skemmtanir, ferðir á veitinga-
staði, fínn matur og drykkur.
Þetta er munaður og munað
er hægt að neita sér um. Eða
hvað?
Mörgum þykir eflaust til lít-
ils barist ef ekki er hægt að
veita sér einhvern munað
stöku sinnum. Eitt ráðið er að
spara og leggja fyrir í dálítinn
tíma og svo, þegar komin er
smáupphæð í budduna, fara
þá út og eyða því öllu í tóma
vitleysu. Og njóta þess út í
ystu æsar.
PRESSAN fór á stúfana og
skoðaði hvernig lifa á ódýrt
og hvernig hægt er að spara
örlítið hér og dálítið þar.
SaFameírí sítrónur
Sítrónur gefa miklu meiri
safa ef þær eru geymdar í
vatni í lokaðri krukku í ís-
skáp. Hver sítróna jafnast þá
á við margar. Þær gefa einnig
frá sér meiri safa ef þær eru
hitaðar í ofni litla stund fyrir
notkun.
CEyMSÍA Á
kARTÖFluM
Ef þú hefur skrælt of marg-
ar kartöflur fyrir matinn og
einhverjar ganga af er hægt
að setja þær í kalt vatn með
nokkrum dropum af ediki og
geyma þær þannig í 3—4
daga.
Að Láta poppið
poppAST
Ef poppbaunir eru skolaðar
vel upp úr köldu vatni áður
en þær eru settar í pottinn er
nokkuð öruggt að baunirnar
poppast allar. Það hjálpar
einnig til ef baunirnar eru
geymdar í frysti.