Pressan - 27.02.1992, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. FEBRÚAR 1992
BÝÐUR FLUG TIL
OG FRÁ ÍSLANDI
FYRIR 99 PUND
Guðni Þórðarson ferða-
frömuður, .e. fyrirtæki hans
Iceland air tours Itd., auglýs-
ir í enskum dagblöðum flug-
erðir til íslands og til baka
fyrir verð sem er allt frá 99
pundum eða liðlega 10 þús-
und krónum.
Guðni opnaði þessa ferða-
skrifstofu í London á síðasta
ári og býður íslandsferðimar
frá London og Glasgow. Auk
ódýrra flugferða býður Guðni
upp á milligöngu Om „Saf-
ari“-ferðir, hestaferðir,
gönguferðir og Grænlands-
ferðir.
UPPSTILLING-
ARNEFND
HJA HSÍ
Á framkvæmdastjómar-
fundi HSÍ um síðustu helgi
var kosin uppstillingamefnd
fyrir aðalfund HSÍ sem hald-
inn verður 22. til 24 maí.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er enn á ný
ætlunin að fá inn nýjan mann
í formannsembættið í staðinn
fyrir Jón Hjaltalín Magnús-
son, en nefndin á að koma
með tillögu um nýja stjóm. í
nefndinni em Þorgeir Ingi
Njálsson, Þorgeir Haralds-
son, Arnþrúður Karlsdóttir,
Guðmundur Friðrik Sigurðs-
son og Guðjón E. Friðriks-
son.
HÚS STÁL-
SMIÐJUNNAR
BOÐIN UPP
VEGNA19
MILLJÚNA
SKULDA?
Stálsmiðjan hf. á í erfið-
leikum með að greiða 19
milljóna króna skuldir og
hafa fasteignimar Mýrargata
2, Mýrargata 5, Brunnstígur
9, 10 og 12 og Austurbakki
við Bakkastíg verið auglýstar
til uppboðs í apríl.
Sá sem krefst uppboðanna
er Steingrímur Eiríksson hér-
aðsdómslögmaður, en Skúli
Jónsson, forstjóri Stálsmiðj-
unnar, vildi ekki upplýsa hver
handhafi skuldarinnar væri.
Þess má geta að Stálsmiðjan
var áður hluthafi í Sameinuð-
um verktökum, en seldi bréf
sín þar. Eignarhluturinn hefði
tryggt Stálsmiðjunni liðlega
11 milljóna króna úthlutun
þegar Sameinaðir deildu út
900 milljónunum nýverið.
Nú virðist flest benda til að ekki komi út fleiri tölublöð af fréttatímaritinu Þjóðlífi,
sem komið hefur út um tíu ára skeið. Ekki er búið að taka ákvörðun um afdrif fyrir-
tækisins en ritstjóri tímaritsins, Óskar Guðmundsson, telur það gjaldþrota.
Stjórnarformaður Þjóðlífs, Kristinn Karlsson, tekur í sama streng en segir hins
Óskar Guðmundsson
ritstjóri: Tímaritið á í
„óformlegum nauðar-
samningum".
PERSÓNULEGAR
ÁBYRGÐIR
Bæði Óskar og Kristinn
staðfestu að sumir stjómar-
manna væru í nokkrum per-
sónulegum ábyrgðum vegna
skulda fyrirtækisins. Þeir vildu
þó ekki segja hve miklar þær
ábyrgðir væru né hvers eðlis.
Útgáfa tímaritsins var orðin
nokkuð stopul á síðasta ári þótt
tækist að koma út tíu tölublöð-
um _ síðasta blaðið kom út í
desember. Þá var það nokkur
áiitshnekkir fyrir tímaritið á
síðasta ári hvemig staðið var
að innheimtuaðgerðum gagn-
vart áskrifendum og sagði
Kristinn að það hefði vissulega
skaðað útgáfuna. Eftir því sem
komist verður næst munu
skuldir vera nokkrar við Prent-
smiðju G. Ben ( Kópavogi,
sem prentað hefur Þjóðlíf.
Sverrir Hauksson, fram-
kvæmdastjóri prentsmiðjunn-
ar, sagðist ekkert vilja láta hafa
eftir sér um viðskiptin við
Þjóðlíf.
_ Það kom fram í máli þeirra
Óskars og Kristins að þeir
byndu vonir við að tækist að
selja útgáfuna. Þeir treystu sér
þó ekki til að segja hverjum,
enda eru engar formlegar við-
ræður í gangi um slfkt.
Sigurður Már Jónsson
vegar að enn sé leítað möguleika á að bjarga því frá þroti með sölu.
Þessa dagana er allra leiða
leitað til að bjarga tímaritinu
Þjóðlffi undan gjaldþrotaskipt-
um. Engin starfsemi fer nú
fram á ritstjóm tímaritsins,
enda síminn lokaður. Að sögn
Óskars Guðmundssonar, rit-
stjóra og eins af eigendum
blaðsins, er ekki enn útséð um
afdrif þess, þótt það sé f raun
gjaldþrota. Sagði Óskar að fyr-
irtækið hefði verið í „óform-
legum nauðarsamningum'‘
undanfarið við kröfuhafa. Að-
spurður sagðist hann ekki geta
útilokað að farið yrði fram á
formlega greiðslustöðvun inn-
an skamms.
Hvorki Óskar né Kristinn
Karlsson, stjómarformaður
fyrirtækisins, vildu tjá sig um
heildarskuldir Þjóðlífs,
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR eru þær á
milll 40 og 50 milljónir króna.
Þegar sú tala var borin undir
Kristin sagði hann aðeins að
skuldir væru miklar.
Eignir em hins vegar ekkl
miklar: Fyrirtækið hefur alla
tíð verið í leiguhúsnæði þannig
að eignir samanstanda fyrst og
fremst af tölvubúnaði og éin-
hverjum skrifstofuáhöldum.
„Viðskiptavild“ nefndu þeir
Óskar og Kristinn einnig, en
verðgildi hennar hlýtur fyrst
og fremst að miðast við áfram-
Ritstjórn Þjóðlífs hefur verið é Hótel V(k, en þar er síminn nú lokaður og starfsemi engin.
þaldandi útgáfu.
FÉLAGSÚTGÁFAN VAR
GJALDÞROTA
Tímaritið Þjóðlíf hefur nú
komið út um tíu ára skeið. í
rhars 1990 varð sú breyting á
útgáfunni að stofnað var félag-
ið Þjóðlíf hf. sem tók við út-
áfunni af Félagsútgáfunni hf.
stjóm félagsins var einkum
fólk af vinstri væng stjómmál-
anna, en auk Kristins eru eftir-
taldir aðilar í stjóm og vara-
stjóm, samkvæmt upplýsing-
um hlutafélagaskrár: Hrannar
Amarsson, varaformaður, Ás-
geir Sigurgestsson, Svanur
Kristjánsson, Jóhann Antons-
son, Margrét S. Bjömsdóttir,
Hallgrímur Guðmundsson.
Halldór Grönvold. Guðmund-
ur Ólafsson og Albert JónsSon.
Nýja félagið yfirtók allan
rekstur og skuldbindingar og
kom inn með nýtt hlutafé.
Nam það 14 milljónum króna.
„Það er spuming hvort þetta
var ekki röng ákvörðun á sfn-
um tíma. Það hefði kannski
verið eðlilegra að kaupa fyrir-
tækið, enda var Félagsútgáfan
nánast gjaldþrota," sagði
Kristinn. Hann sagði að það
hefði verið ljármagnskostnað-
ur vegna eldri skuldbindinga
sem fyrst og fremst reið bagga-
muninn.
D E B E T
„Ámi er afskaplega fjölhæfur, duglegur og at-
orkusamur. Hann er skemmtilegur, ágætur húm-
oristi eins og hann á reyndar kyn til. Lagasmiður
er hann ágætur, en hann samdi öll lög fyrir leik-
hópinn Hugleik," segir Jón Daníelsson, vinur og
sauðamaður á Tannastöðum í HrútaFirði. „Það
besta við Áma er hvað hann er mikill og einlægur
herstöðvaandstæðingur. Hann er mjög heiðarleg-
ur og fastur fyrir í skoðunum og getur yfirleitt sett
hlutina fram á mjög einfaldan og skýran hátt. Það
er ekki verra að hann skuli vera framarlega í
Tófuvinafélaginu," segir Birna Þórðardóttir
blaðamaður. „Ámi er fjölhæfur, skapandi og
skemmtilegur í allri daglegri viðkynningu. Hann
er sérstaklega röskur að koma margra manna
verki af á stuttum tíma,“ segir Gfsli Sigurðsson
bókmenntafræðingur. „Ámi er góður her-
stöðvaandstæðingur, Hann er fjölhæfur og gífur-
lega afkastamikill; hann ef leikskáld. lagahöfund-
ur og textahöfundur _ og hellafræðingur þar fyrir
utan,“ segir Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræð-
ingur. „Ami er skemmtilegur, hress og viðræðu-
góður og mjög traustur vinur þegar á reynir. Hann
er duglegur og sjaldan aðgerðalaus. Það var sagt í
Svarfaðardal, þar sem faðir hans bjó. að heyskap-
urinn færi að ganga á Tjöm þegar Ámi var mætt-
ur í sumarfrí. Undir þessu yfirborði er hins vegar
lífsnautnamaður sem þykir í raun og vem gott að
borða góðan mat, slaka á og hafa það huggulegt,"
segir Þuríður Jóhannsdóttir kennari.
Árni Hjartarson
K R E D I T
„Árni er einn af þeim atorkusömu og dug-
legu og eins og margir aðrir slíkir mætti hann
ef til vill stöku sinnum vanda sig örlítið betur,
þó svo að hann sé ekki hroðvirkur,“ segir Jón
Daníelsson. „Eini lösturinn sem ég minnist er
þegar Arni varð uppvís að spörfuglaáti," segir
Birna Þórðardóttir. „Árni sýnir stjórnvöldum
ekki nægilega virðingu og undirgefni og lætur
þau ekki segja sér fyrir verkum,“ segir Gísli
Sigurðsson. „Arni hefur nú ekki verið talinn
best klæddi maður á íslandi,“ segir Ragnar
Stefánsson. „Þó svo að Árni hliðri sér ekki hjá
að takast á við vanda þegar nauðsvn krefur þá
er gallinn sá að hann vill helst ekki horfast í
augu við að það sé nokkur ástæða til. Hann
þolir illa kvart og veikindi og vill að fólk í
kringum sig sé bratt og til í að takast á við hlut-
ina án þess að vera með neitt væl. Hann er
sjálfur harður af sér og ætlast til þess af sínum
nánustu. En stundum gengur þetta einum of
langt.
Sunnudagsbíltúrinn gerir hann að vísinda-
leiðangri um leið, og ég veit aldrei til þess að
hann hafi farið í sumarfrí til að slappa af,“ seg-
ir Þuríður Jóhannsdóttir.
Árni Hjartarson jarðfræðlngur er formaður Félags náttúrufræðinga, sem nýverið hefur staðið i samningaviðræðum.