Pressan - 27.02.1992, Síða 41

Pressan - 27.02.1992, Síða 41
FIMMTUDAGUR PKESSAN 27. FEBRÚAR 1992 41 „Þær eru ekkert allt of vel teknar; menn eru haldandi hver utan um annan, veifandi glösum eða flöskum og eru að taka lagið,“segir Birgir Andrésson mynd- listarmaður um partímyndirnar sem hann leitar. í LEIT AÐ PARTÍMYNDUM Birgir Andrésson myndlist- armaður er á höttunum eftir partímyndum frá hinum al- menna borgara og liefur í hyggju að nota þœr við list- sköpun sína. Birgir biður því fólk að opna albúmin sín og finna liina dœmigerðu gleði- mynd. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Birgir notar safn mynda í verkum sínum, því hann hélt sýningu á Kjarvals- stöðum á síðasta ári þar sem hann sýndi 60 mynda seríu af gömlum flökkurum. „Þetta var gríðarlega löng og mikil sería uppi á vegg, þar sem hver ljósmynd var 50x60. Eg gaf út bók í leiðinni sem var ákveðinn lykill að ser- íunni. Þetta var fyrsta söfnun- arserían sem ég legg af stað með. Margir af þeim hlutum sem ég er að pæla í eru ná- tengdir annars vegar ekki beint söfnunarnáttúru, heldur ákveðnu safni sem tilheyrir ákveðinni menningu sem til- heyrir einhverju ákveðnu sam- félagi. Yfirskriftin er „ná- lægð“.“ Nú ertu i leit að efni í nýja seríu, partímyndum? „Jú, ef við flettum fjöl- skyldualbúmum hjá fólki, sem er svona svolítið létt og skemmtilegt, þá sjáum við þessar partímyndir. Þær eru ekkert allt of vel teknar; menn eru haldandi hver utan um annan, veifandi glösum eða flöskum og eru að taka lagið. Þetta er nátengt okkur í tíman- um og tilheyrir að mínu mati ákveðnum kúltúr.“ Um leið og þú fjallar um fólk ertu þá ekki að höfða til húmors þess? „Jú og einhverrar ákveðinn- ar gleði. Við vitum að menn eru aldrei eins frjóir og sköp- unarglaðir og um leið og þeir detta í það, þannig að það er Ifka einhver ákveðinn sköpun- arkraftur sem ég er að fjalla um.“ Er það manneðlið eða jafn- vel óeðlið sem heillar? „Hvorugt. f sjálfu sér er ekk- ert eðli sem heillar. Bara að þetta skuli vera, því þetta er að mörgu leyti einstakt. Þetta er allt undir þeim formerkjum sem ég kalla nálægð. Þessi svokallaða nálægð, sem við lifum í dags daglega en þurf- um kannski örlítið að fara út úr til að geta séð hana í sam- hengi.“ Hvernig hefur söfnunin gengið? „Hún hefur í sjálfu sér ekk- ert gengið, því hugmyndin er svo ný. Eg sækist ekki eftir þeirri kreðsu sem ég lifi og hrærist í, kúnstnerum og því liði. Astæðan er einfaldlega sú að þeir standa mér kannski of nærri og sýna um leið annars konar kúltúr og fyllerí." Þannig að sukk listamanna er öðruvísi en annarra? „Að mörgu leyti. Þú sæir það um leið og við byggjum til tvær seríur; annars vegar af ósköp venjulegu fólki og hins vegar ljósmyndir úr partíum hjá myndlistarmönnum. Þú myndir setja spurningarmerki einhvers staðar þarna á milli.“ Þetta gœti jafnvel orðið byrjun á öðrum og nýjum verk- efnum? „Já, já, ég er líka með mörg svona verkefni í gangi. Eg vinn nefnilega ekki eins og málari eða skúlptúristi, ég er ekki að móta eina ákveðna hugmynd daginn út og daginn inn.“ Þú safnar þesswn myndum með þeim formerkjum að þú megir nota þœr að vild? „Já, ég mun láta taka ljós- myndir af myndunum í svart/hvítu, stækka þær síðan upp í 60x50 eða jafnvel stærra. Síðan læt ég innramma mynd- irnar og hengi á vegg. Partí- myndirnar á að senda til mfn, Birgis Andréssonar, Vestur- götu 20. Ef upp kemur sú staða að ég fæ myndir þar sem ein- hverjir eru að stríða einstak- lingum á myndinni verð ég að fá tryggingu fyrir þvf að allir sem birtast á viðkomandi mynd séu búnir að gefa sam- þykki sitt. Eg hef enga ánægju af því að vera að fíflast í fólki. Eg endursendi myndirnar eftir notkun." Þetta er sem sagt innramm- aður realismi. „Þetta er náttúrlega ekkert annað en realismi." Anna Har. Hamar 'Jitjjnr íblcitðltnf þjóödögur Sjómaður frá Skagaströnd átti til að segja ótrúlegustu sögur frá heimabyggð sinni. Eitt sinn, þegar hann var á vertíð fjarri heimabyggð, sagði hann að æskufélagi sinn hefði verið með alira minnsta tippi sem hann hefði nokkru sinni séð. Lýsing hans á tippinu var á þessa leið: „Það var svo lítið á honum tippið að þegar það lafði var hola inn en það var slétt þegar honum stóð.” (Úr öfgalygarasögum) Sami sjómaður sagði að á Skagaströnd kepptust menn hver við annan að brugga vín. Hann sagði það gert vegna nísku Skagstrendinga. Þeir væru svo nískir að þeir keyptu ekki einu sinni bland. Þegar hann var spurður með hverju þeir veiktu bruggið var svarið á þessa leið: „Þeir míga í flöskurnar og glösin.” (Úr öfgalygarasögum) R I M S í R A M S „Lengi má manninn reyna“ GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Svefnhjólið er hér ein til umrœðu og það þarf beinlínis að lesa þetta eins og femínisti les Jónas til að fá annað út en að Svefnhjólið sé hér tekin alveg sérstaklega sem dœmi um ávirðingar íslenskra skáldsagna seinni ára Fyrir hálfum mánuði skrif- aði ég um bókmenntagagn- rýni Arna Blandons og lét liggja að því að fúkyrða- flaumur hans um bækur væri ef til vill innblásinn af þeirri stefnuskrá að vera gagnrýn- inn fyrst en athugull svo, hér væri kannski um að ræða háifgerða úrkynjun á „stjórn- arandstöðuhlutverki” gagn- rýnandans á bókaþinginu; hann sæist einfaldlega ekki fyrir, væri vanstilltari en góðu hófi gegndi í þeirri trú að sá væri skarpastur sem mestan brúkaði rnunn. Meinsemdin, datt mér sisvona í hug, kynni að vera þetta viðhorf sem víða lætur kræla á sér: að bók- menntasköpunin í landinu væri umfram allt eitthvað sem þarf að afhjúpa - fremur en til dæmis rýna í. Einna fráleitust var árás Árna á Matthías Við- ar Sæmundsson og bók hans nýútkomna, Myndir á sandi, og um leið og mér varð hugs- að til þess rifjaðist það upp fyrir mér að Matthías væri sjálfur ekki öldungis frír af ógrunduðum sleggjudómum, sem virkuðu á mig á sínum tíma eins og krónísk stjórnar- andstaða. Hann kallaði Gyrði Elíasson fótanuddtæki handa smáborgurum, sagði ég og bætti við: án þess að sýna okkur fram á nuddeðli Gyrð- is. Gyrðir skrifaði of vel, of góður stílisti, of margir hrifn- ir af þessu, um að gera að af- hjúpa þann skandal. Onei, segir MVS í svari til mín í síðustu Pressu, öðru nær: rimsíramsarinn skrum- skælir orð manna, segir hann og eignar þeim skrýtnar hvat- ir - og klykkir út í sorgfulium áminningartón: „lengi má manninn reyna”. Sjálfur seg- ist hann að vísu hafa „...minnst á áreynslulitla texta er hafa litlu meira gildi en tískufyrirbæri eins og fóta- nuddtæki og skafmiðahapp- drætti” en skáldsaga Gyrðis, Svefnhjólið, hafi ekki rnynd- að „...nægilegt mótvægi við slíkar bókmenntir”. Svo furð- ar hann sig á því að ég skuli ennþá muna hvað hann sagði fyrir 12 mánuðum. Allt í lagi. Lengi skal manninn reyna. Lengi skai manninn reyna. Því ég virðist muna það betur en hann sjálfur hvað hann skrifar, og eins og hann veit er „gleymskan systir lyginn- ar”. Þegar maður flettir upp á blaðsíðu 40 í bókinni Myndir á sandi þar sem téð útvarps- erindi er að finna er ómögu- legt að komast að annarri nið- urstöðu en að MVS sé í síð- ustu Pressu farinn að snúa út úr fyrir sjálfum sér, skrum- skæla orð sín. Honum þykir í bókinni sem textinn hjá Gyrði springi ekki út í almennilegan skáldskap þótt hann sé vel skrifaður, höfundur sé ritfær. Og það sem að mati þessa eins fremsta gagnrýnanda þjóðarinnar kemur í veg fyrir það er með hans orðum: „Eitthvað”. Hann talar um að sögunni hafi verið tekið með kostum og kynjum: „Kannski fellur hún að þörf fólks fyrir innihaldsleysi?/.../ Það þykir við hæfí að ritskoða eða jafna út miklar tilfinningar... hvað- eina er fellt í viðjar hóflegs léttleika/.../ Kannski þjóna skáldsögur eins og Svefnhjól- ið þörf þessarar kynslóðar fyrir obboðlítinn smáborgara- legan hroll...” Og svo fram- vegis. Svefnhjólið er hér ein til umræðu og það þarf bein- línis að lesa þetta eins og fem- ínisti les Jónas til að fá annað út en að Svefnhjólið sé hér tekin alveg sérstaklega sem dœmi um ávirðingar ís- lenskra skáldsagna seinni ára - en ekki slappt mótvægi - sem eru súmmeraðar upp í lokin: „Fantasfan fellur inn í sjálfa sig eða leysist upp í meiningarlausan samsetning orða [og hefur] litlu meira gildi en fótanuddtæki eða skafmiðahappdrætti sé til iengri tíma litið.” Vissulega er þetta ekki per- sónulegt skítkast, en þetta er illa unnin lýsing á Svefnhjól- inu, hún er sífellt tengd við fjarska lítilsigldar þatfir, vörueðlið undirstrikað, látið liggja að því að Gyrðir bæli skáldið í sér til að þjóna markaðnum; og loks talað af yfirlæti sem einhver dyra- vörður framtíðarinnar. En kannski er MVS bara sjónlaus á vefnaðinn í Svefnhjólinu, heyrnarlaus á röddina. kann- ski hefur hann stillt á aðra stöð. Sennilega er hann ein- faldlega ófimur í stökkunum milii þess almenna - sem er allt skarplegt hjá honum eins og öðrum hugmyndasmiðum - og hins sértæka, sem er yfirborðslegt. En mér datt sisvona í hug að ástæðan kynni að liggja í orðunum um að sögunni hefði „verið tekið með kostutn og kynjum”. En vísast skjátlaðist mér. Mea culpa. Ég bið forláts. Þá er bara eftir að skýra hvers vegna hann kallaði Gyrði Elíasson ekki bara fóta- nuddtæki, heldur meira að segja lfka skafmiðahapp- drætti.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.