Pressan - 26.03.1992, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
Fangelsi á Islandi
GÖMU,
ÖRBJOG
HEILSUSPILLANDI
PRÍSSAN/Jim Smart
Fangarnir á Litla-Hrauni kalla efstu hæð fangelsisins Harlem. Þar dvelja menn mánuðum saman í
fangaklefum sem eru rúmlega fjórir fermetrar og halda hvorki vatni né vindum. Heilbrigðisfulltrúi
segir fangelsið „gamalt og úrelt“. Fangelsismálastjóri hefur sagt „furðulegt“ að klefarnir skuli sam-
þykktir sem mannabústaðir. „Ég hef séð menn brotna niður á skömmum tíma vegna ástandsins
hér,“ sagði fangi á Litla-Hrauni í samtali við PRESSUNA.
BROT Á REGLUGERÐUM
Á LITLA-HRAUNI
Aðbúnaður fanga á íslandi
hefur lengi stangast á við lög og
reglugerðir. Verst er ástandið á
Litla-Hrauni og í Hegningarhús-
inu í Reykjavík en á þessum
stöðum eru að jafnaði vistaðir
rúmlega 70 fangar.
Litla-Hraun, sem byggt var
sem spítali árið 1929, getur eng-
an veginn uppfyllt lagaákvæði
um fangelsi. Nýlega voru þrír
minnstu klefamir teknir úr notk-
un. Þeir voru 3,26 fermetrar að
flatarmáli. í heilbrigðisreglugerð
segir að herbergi sem er minna
en 7 fermetrar eða mjórra en 2,2
metrar teljist ekki íbúðarher-
bergi.
Eftir sem áður eru einungis
10 klefar sem uppfylla ákvæði
reglugerðarinnar en 42 gera það
ekki. Þannig eru til dæmis 11
klefar innan við 5 fermetrar.
HÓTAÐIAÐ LOKA FANG-
ELSJNU
Heilbrigðisfulltrúi Suður-
lands, Matthías Garðarsson,
stóð árum saman í stappi við
fangelsisyfirvöld vegna aðbún-
aðar á Litla- Hrauni. Hann gekk
svo langt að hóta lokun fangels-
isins og talsverðar úrbætur vom
gerðar í kjölfarið. Fangar sem
PRESSAN talaði við bentu hins
vegar á margt sem miður fer:
„Það eru rosaleg þrengsli í eld-
húsinu og matsalnum og þar er
dýralíf sem hvaða dýragarður
sem er gæti verið stoltur af.
Stundum flæðir skolp upp úr
niðurföllum á salemum og allt
fangelsið fyllist af svo ógeðs-
legri skítalykt að manni súmar
fyrir augurn."
Sex fangar starfa við að
steypa hellur og fjórir við að
framleiða númeraplötur á bif-
reiðar. Þá em um þessar mundir
þrettán fangar við nám í skólan-
um sem rekinn er sem útibú ffá
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Aðrir hafa lítið eða ekkert fyrir
stafni. Vinnutími er stuttur
vegna verkefnaskorts og fyrir
vikið eru meðallaun fanganna
2.500 til 3.000 krónur á viku.
Fangelsisyfirvöld hafa þannig
brugðist lögbundnu hlutverki
sínu í atvinnumálum fanga.
Ekki hefur verið bryddað á nýj-
ungum til þess að bæta úr þessu
ástandi.
Raunar hefur sigið mjög á
ógæfuhliðina í atvinnumálunum
síðustu ár. Maður sem var á
Litla-Hrauni árið 1982 sagði að
sér hefði tekist með mikilli
vinnu í hellugerðinni að sjá fyrir
fjölskyldu sinni meðan hann var
í afplánun. „Það var gríðarlega
mikilvægt fyrir sjálfsvirðinguna
að geta séð fyrir fjölskyldunni,
greitt húsaleigu og mat án að-
stoðar. Að auki átti ég nóg eftir
fyrir sjálfan mig.“
Eins og nú háttar til hafa
fangar aðeins vinnu þrjár
klukkustundir á dag að jafnaði,
aðallega „í einhverju fokki“,
eins og einn fangavörður orðaði
það.
„Þú getur reynt að ímynda
þér hvernig mönnum gengur
svo að laga sig að alvöm vinnu
þegar út í þjóðfélagið kernur,"
sagði einn fanginn.
60% OFTAR EN EINU
SINNIÍ FANGELSI
Ekkert er gert til þess að búa
fangana á Litla-Hrauni undir
þátttöku f daglegu lífi utan
múrsins. Stefha yfirvalda hefur
til þessa verið sú, að með fang-
elsisvist eigi að refsa mönnum
en ekki bæta þá, eins og Harald-
ur Johannessén fangelsismála-
stjóri hefur sagt í fjölmiðlum.
Birgir Kjartansson, formaður
fangahjálparinnar Vemdar, segir
að skortur á félagslegri aðstoð
sé án efa ein meginskýringin á
því, hversu margir lenda aftur í
fangelsi. Um það bil 60% fanga
sitja inni oftar en einu sinni.
„Það hefur ekkert verið gert
til þess að takast á við vandamál
síbrotamanna sem flestir eru
fyrir löngu dottnir úr öllu sam-
bandi við samfélagið. Það kost-
ar mikið átak fyrir menn að
losna úr vítahringnum og nánast
óhugsandi að þeir geti það alveg
upp á eigin spýtur," sagði Birg-
ir.
Vemd rekur heimili á Lauga-
teigi fyrir fyrrverandi fanga og
þar er húsnæði fyrir 17 manns.
Samtökin hafa einungis efni á
að greiða einum starfskrafti
laun, en Birgir nefndi til saman-
burðar að á sambærilegu heimili
„GAMALT, URELT OG
ÓHENTUGT“
Fangamir nefhdu fleiri dæmi.
í rigningum flæðir vatn inn í
nokkra klefa og brugðu sumir á
það ráð að strengja plast fyrir
gluggana. í mestu frosthörkun-
um í vetur var verulegur kuldi í
nokkrum klefum. Þá eru raf-
lagnir víða utan á veggjum en
það er ólöglegt vegna eldhættu.
Matthías Garðarsson sagði í
samtali við PRESSUNA að erf-
itt væri að gera frekari úrbætur.
„Húsið er gamalt, úrelt og
óhentugt. Eg efast um að
ástandið bami fyrr en nýtt fang-
elsi verður tekið í notkun."
ATVINNUMÁL í ÓLESTRI
Atvinnumál fanga hafa lengi
verið í ólestri. Lög kveða á um
að fangar skuli fá vinnu við sitt
hæfi innan fangelsisins og laun
eins og tíðkast á almennum
vinnumarkaði. Á Litla-Hrauni
hefur aðeins lítill hluti fanga
raunverulega vinnu og tíma-
kaupið er 70 krónur.
Svipmynd ur „Harlem“. Ofninn hægra
megin á myndinni sýnir hversu mjór
klefinn er.