Pressan - 26.03.1992, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
f W Aldur fer misjafnlegc
ekkert elst frá fæðingu <
• misjafnlega með fólk. Sumir fæðast gamlir. Eins og Steingrímur J. Sigfússon. Hann hefur hins vegar lítið sem
i fæðingu og verður sjálfsagt unglegasti gæinn þegar kemur á elliheimilið. Aðrir eldast hratt. Eins og Ingólfur
Guðbrandsson gerði frameftir ævi. Hann hætti hins vegar skyndilega að eldast og varð ungur á einni nóttu. Aðrir eldast næstum ekki neitt. Eins og Ellert B. Schram. Það háði hon-
um alltaf í pólitíkinni að hann leit út eins og fermingarstrákur. Og hann gerir það enn. Það vantar bara hvíta kyrtilinn og nokkra dropa af svörtum háralit í vangana. Aðrir eru ald-
urslausir. Eins og Guðbergur Bergsson. Það skiptir einhvern veginn engu máli hvað hann er gamall. Hann mætti vera eilífur án þess að nokkur kvartaði yfir því. Með því að þreyta
prófið hér að neðan getur þú fengið úr því skorið hvað þú ert raunverulega gamall eða gömul. Teldu saman hversu margar neðangreindra fullyrðinga eiga við þig.
1.
26.
29.
31.
Þú þekkir ekki lengur gaml-
ar bekkjarsystur þegar þú
mætir þeim á götu.
32.
Þú lest Reykjavíkurbréf
Morgunblaðsins.
33.
Þú ferð að sjá eftir því að
hafa hætt í íþróttum þegar
þú varst fimmtán ára.
34.
Það er Chaplin-mynd í sjón-
varpinu og þú ert sá eini sem
skellihlær.
35.
Þér finnst bara gaman í fjöl-
skylduboðum.
36.
Þú þusar ekki bara yfir því
að hamborgarar séu drasl-
matur, þér finnst þeir í al-
vörunni vondir.
37.
Þú kemur þér upp vínskáp
heima hjá þér og lætur hann
óhreyfðan í mánuð.
38.
Þú segir að skólaárin þín
hafi verið besta tímabil æv-
innar.
39.
Það eina sem þér dettur í
hug að segja við börn er:
„Og hvað ætlar þú nú að
verða þegar þú verður
stór?“
40.
Þú heyrir í Led Zeppelin
og rifjar upp kvöldið góða
þegar þú varst á tónieik-
um með þeim í Laugar-
dalshöllinni.
41.
Þér finnst ekkert skrítið
að kaupa föt hjá Guð-
steini.
42.
Þú ert spenntur fyrir að
komast á Vínartónleika
hjá Sinfóníunni.
43.
Þú ert hættur að
kunna við að
horfa á eftir
stelpum - þótt þig
langi það.
44.
Þú hringir í lögguna og
kvartar undan hávaða í ná-
grönnunum.
45.
Þú uppgötvar að þú sást Ra-
in Man síðast þegar þú fórst
í bíó.
46.
Þú segir að „þetta unga
fólk“ hafi aldrei þurft að
hafa neitt fyrir lífinu.
47.
Þú keyrir niður Laugaveg-
inn og nöfnin á börunum
eru þér allsendis fram-
andi.
48.
Þú ferð á sjó með Ríó
Tríóinu á Hótel íslandi
og skemmtir þér kon-
unglega.
49.
Börn hengja aftan í þig
öskupoka.
50.
Þú kippir þér ekki upp við
það þótt konan þín sé alltaf
að leiðrétta sögurnar þínar.
51.
Þér finnst þú alltaf vera að
fá bréf sem minna þig á að
þú átt stúdentsafmæli.
Þér finnst þú vera minni
maður vegna þess að þú átt
ekki áhugamál og spáir í
hvort eigi betur við þig
hestamennska eða flugu-
hnýtingar.
30.
Þér finnst þjóðlegur fróð-
leikur bara nokkuð áliuga-
verður.
Þú ferð í Þjóðleikhúskjallar-
ann og skemmtir þér vel.
2.
Konunni þinni finnst Derr-
ick sætur.
3.
Þér finnst allir í löggunni
vera börn.
4.
Þér finnst allt í lagi að flytja
í Garðabæinn.
5.
Þú ferð að taka þátt í uin-
ræðunum í heita pottinum í
sundlauginni.
6.
Þú ferð að skokka til að
halda þér í formi í stað þess
að eltast við stelpur.
7.
Þú veigrar þér við að fara
niður í bæ eftir myrkur.
8.
Þú ferð að sjá eftir því að
hafa ekki lesið íslcndinga-
sögurnar.
9.
Þú ferð að sofa í sokkum.
10.
Þú horfir á ræðu útvarps-
stjóra á gamlárskvöld.
11.
Þú drepst á fyrsta borði í
Super Mario Bros I.
12.
Þú lest ættfræðisíðuna í DV.
13.
Þér finnst Kathleen Turner
fallegasta leikkona í heimi.
14.
Þú uppgötvar að þú ert
búinn að fara þrisvar í
Borgarleikhúsið síðan
um jól.
15.
Þér finnst lcigubíl-
stjórinn hafa nokkuð "WjSÉ
til síns máls þegar w&lm
hann ræðir þjóðmál-
in.
16.
Þú ferð að velta
því fyrir þér
hvar Egill Jónsson
hafi keypt jakkafötin
sín.
17.
Þú reynir að neyða börnin
þín til að hlusta á 45 snún-
inga plöturnar sem þú
keyptir þegar þú varst ung-
lingur.
18.
Þú veltir því fyrir þér af
hverju Ellert B. Schram eld-
ist svona miklu betur en þú.
19.
Yfirmaður þinn er yngri en
þú.
20.
Þér þykja vinkonur kon-
unnar þinnar ekki lengur
sætar.
21.
Það brakar í hnjánum á
þér þegar þú beygir þig.
22.
Þú mokar burt snjónum
af stéttinni hjá þér fyrir
hádegi á sunnudegi.
23.
Þú ferð að vitna í Einar
Benediktsson.
24.
Þér finnst ágætt að eyða
sumarfríinu í Munaðarnesi.
25.
Þú hlakkar til árshátíðar-
innar hjá fyrirtækinu.
Þér finnst það sem Atli
Heimir Sveinsson segir um
popptónlist eins og talað út
úr þínu hjarta.
27.
Þú horfir á eldhúsdagsum-
ræður Alþingis frá upphafi
til enda.
28.
Konan þín stingur upp á því
að þið kaupið áskrift að leik-
sýningum hjá Þjóðleikhús-
inu.
52.
Þig langar í gallabuxur, en
kaupir flauelsbuxur af því
þér finnst þær betur við
hæfi.
53.
Þér finnst ómögulegt að
missa af veðurfréttunum.
54.
Þú ferð ekki dult með þá
skoðun þína að Björgvin
Halldórsson sé í raun fjári
góður söngvari.
55.
Þú rifjar upp að þegar þú
varst ungur hafi allir krakk-
ar farið í sveit.
56.
Þú byrjar að leggja fyrir til
jólanna í september.
57.
Þú losnar ekki við þann
grun að ýmislegt hafi verið
betra í gamla daga, líka
veðrið.
58.
Þér finnst leiðinlegt að Frið-
rik Olafsson skuli ekki leng-
ur tefla á skákmótum.
59.
Þér finnst allir þessir nýju
bílar vera eins, ólíkt því sem
var í gamla daga þegar bílar
höfðu karakter.
60.
Þér finnst Markús Örn An-
tonsson frekar spennandi
karakter.
61.
Þú hlustar á aldraðan bónda
flytja erindi um daginn og
veginn og ert hjartanlega
sammála honum.
62.
Þú skilur ekki nema með
höppum og glöppum hvað
unglingar eru að fara þegar
þeir tala sín á milli.
63.
Þú ferð á völlinn og klifar á
því að þessir ungu fótbolta-
menn jafnist ekkert á við
Ellert B. Schram.
64.
Þú uppgötvar, þér til undr-
unar, að Bob Dylan er orð-
inn fimmtugur.
65.
Þú ferð að sofa í náttfötum -
og vaknar líka í þeim á
morgnana.
66.
Þér finnst mikill fengur að
greinum Guðmundar Guð-
mundarsonar framkvæmda-
stjóra í Morgunblaðinu.
67.
Þú missir alltaf af ellefu-
fréttunum vegna þess að þú
ert löngu sofnaður yfir sjón-
varpinu.
68.
Þér finnst ömurleg tilhugsun
að skólabróðir þinn sem var
tossi skuli vera kominn í
stjórn Eimskipafélagsins.
69.
Þú þérar afgreiðslustúlkur í
búðum og kallar þær „frök-
en“ og finnst ekkert bogið
við það.
70.
Þú flýtir þér að fletta fram-
hjá grein sem fjallar um
hvenær fólk er orðið gamalt.
Teldu saman stigin þín. Þú færð
eitt stig fyrir hverja fullyrðingu
sem átti við þig.
Ef 7 eöa færri fullyröingar eiga
viö þig
Þú ert tvítugur
Ef þér tekst að halda huganum
opnum munt þú lifa þína tíma;
ekki bara þau tíu ár sem þú telst
ungur maður.
Ef 8 til 14 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert þrítugur
Þú ert enn nothæfur í flestum
geirum mannlífsins; að minnsta
kosti stutta stund í senn. Þó ger-
ist það æ oftar aö þér yngra fólk
horfir í gegnum þig þegar þú tal-
ar um það sem þér liggur helst á
hjarta. Það skilur ekki hvað þú
ert að fara.
Ef 15 0121 fullyröing
eiga viö þig
Þú ert lertugur
Þú ert á tímamótum. Allt bendir
til að þú munir halda áfram að
eldast hratt. Leðurbuxur og
sportbíll er það eina sem getur
hægt á þróuninni.
Ef 22 til 28 fullyröinar
eiga vlö þig
Þú ert limmtugur
Það verður ekki aftur snúiö. Héð-
an í frá er réttast að reyna að
bera aldurinn vel; fáðu þér hálf
lesgleraugu eins og Jónas Jón-
asson og safnaðu Sean Conn-
ery-skeggi.
Ef 29 til 35 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert sextugur
Þú kemur fólki ekki lengur á
óvart. Það kann utan að það
sem þú ætlar að fara að segja.
Það er líka hætt aö reikna með
að þú lifir kynlífi.
Ef 36 til 42 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert sjötugur
Ef þú reynir aö hafa samskipti
viö ungt fólk reiknar það með að
eitthvað gruggugt búi að baki.
Ef 43 til 49 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert áttræður
Ef þú ert ekki enn kominn á elli-
heimili skaltu leita eftir vinnu við
öldrunarþjónustu. Þar er líkleg-
ast að þú finnir þína líka.
Ef 50 til 56 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert níræður
Þú ert hættur að ná sambandi
við þér yngra fólk. Jafnvel smá-
börn skilja ekki lengur blíðuhótin
sem þú sýnir þeim.
Ef 57 til 63 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert hundrað ára
Markús Örn ætti að bjóða þér í
Höfða að drekka kaffi meö þeim
sem eru jafnaldra þér í sálinni.
Þú minnir á horfna tíma.
Ef 64 til 70 fullyröingar
eiga viö þig
Þú ert í raun dáinn
Þú tilheyrir ekki lengur þessu lífi.
Það er einungis formsatriði að
moka yfir þig.