Pressan - 26.03.1992, Síða 40
40
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. MARS 1992
Skoðanakönnun Skáfs fyrir PRESSUNA
Fólk ber almennt meira traust
til svokallaðra „aðila vinnu-
markaðarins", það er forsvars-
manna félaga launþega og at-
vinnurekenda, en ráðherra ríkis-
stjómarinnar. En þótt aðilamir
svokölluðu njóti trausts umfram
ráðherra er það ekki mikið. Þátt-
takendur í skoðanakönnun sem
Skáís gerði fyrir PRESSUNA
gáfu þeim 5,3 í einkunn að með-
altali. Ráðherramir fengu hins
vegar4,8.
Og eins og hjá ráðherrunum er
misjafn sauður í mörgu fé hjá að-
ilunum. Sumir njóta nokkuð
mikils trausts; eins og Asmundur
Stefánsson og Ogmundur Jónas-
son, sem fengu 6,1 í einkunn.
Aðrir eiga síður upp á pallborð-
ið; eins og Páll Halldórsson,
Magnús L. Sveinsson, Kristján
Ragnarsson og Svanhildur
Kaaber. Þau fengu öll slæmar
einkunnir.
Forkólfar atvinnuveganna
með hærri einkunnir en
verkalýðsfrömuðir
PRESSAN bað þátttakendur í
könnuninni að gefa þremur for-
svarsmönnum atvinnurekenda
einkunnir og sjö forystumönnum
úr verkalýðshreyfingunni. Ef
meðaltal þessara hópa er skoðað
kemur í ljós að fólk treystir tals-
mönnum atvinnurekenda betur
en helstu málsvömm launafólks.
Atvinnurekendur fengu 5,53 í
meðaleinkunn. Verkalýðsfröm-
uðimir fengu hins vegar 5,27.
Einar Oddur Kristjánsson,
formaður VSÍ og maðurinn
sem Þorsteinn Pálsson kallaði
á til bjargar þjóðinni á síðustu
dögum ríkisstjórnar sinnar árið
1988, fékk hæstu einkunn tals-
manna atvinnurekenda. Með-
aleinkunn hans var 6,0.
Það verður líklega að teljast
mikið traust. Til samanburðar
má geta þess að sá sem fékk
hæsta einkunn í sambærilegri
könnun á áliti fólks á ráðherr-
unum fékk 5,9 í einkunn. Það
var Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra og var hún
langhæst ráðherranna.
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, fékk
örlitlu lakari einkunn en Einar
Oddur, félagi hans úr Garða-
strætinu. Fólk gaf Þórami 5,9 í
einkunn, sem jafngildir hæstu
ráðherraeinkunn.
Þriðji fulltrúi atvinurekenda
sem spurt var um álit á dró
meðaltal þeirra hins vegar nið-
ur. Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
útvegsmanna, fékk aðeins 4,7 í
einkunn og féll því á prófinu.
Ef aftur er leitað saman-
burðar hjá ráðherrunum, þá
fengu sex þeirra hærri einkunn
en Kristján. Aðeins Olafur C.
Einarsson, Jón Baldvin
Hannibalsson, Sighvatur
Björgvinsson og Halldór Blön-
dal fengu verri útreið.
Fjórir verkalýðsforingjar
vörðustfalli...
Af sjö talsmönnum launþega
sem spurt var um álit á náðu fjór-
ir hærri einkunn en 5,0.
Efstir og jafnir vom þeir As-
mundur Stefánsson, forseti ASI,
og Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB. Kannski fer vel á
því, þar sem Asmundur og Ög-
mundur em æðstu foiystumenn
tvennra stærstu samtaka launa-
fólks. Þeir fengu báðir 6,1 í ein-
kunn og höfðu því nauman sigur
á sjálfum formanni VSI.
Hinir tveir sem stóðust prófið
em núverandi og fyrrverandi for-
menn Verkamannasambandsins.
Bjtírn Grétar Sveinsson fékk 5,7
í einkunn en forveri hans, Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, hlaut hins
vegar lakari útkomu eða 5,2.
Gvendur jaki rétt skreið því, eins
og sagt er í skólum.
Ef hann vill leita sér huggunar
getur hann fundið hana í áður-
nefndri ráðherrakönnun, því þar
fengu aðeins tveir ráðherrar, Jó-
hanna og Þorsteinn, hærri ein-
kunnir.
...en þrír þeirra fengu fallein-
kunn
Talsmenn háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna fengu ekki
góða útkomu í þessari könnun.
Spurt var um álit á tveimur for-
0 1-2 3-4 5-6 7-8 9-10
ElNAR ODDUR KRISTJÁNSSON,
FORMAÐUR VSÍ
ystumanna þeirra og féllu báðir.
Páll Halldórsson, formaður
Bandalags háskólamanna hjá
ríkinu, fékk verri skell, eða 4,5 í
einkunn. Það var lægsta einkunn
sem kom út úr þessu prófi og er
Páll fúx dagsins.
Svanhildur Kaaber, formað-
ur Kennarasambands íslands,
hlaut betri einkunn en Páll en
féll samt. Hún fékk 4,8 og var
þannig örlitlu hærri en Krist-
ján Ragnarsson.
Sá þriðji úr verkalýðshreyf-
ingunni sem féll, kemur ekki
úr röðum háskólamenntra rík-
isstarfsmanna heldur úr fjöl-
mennasta verkalýðsfélagi
landsins, Verzlunarmannafé-
lagi Reykjavíkur. Það er
Magnús L. Sveinsson, formað-
ur félagsins. Hann fékk 4,6 í
einkunn og er semífúx.
Ögmundur á flesta aðdáendur
Einu sinni var uppáhalds-
kennisetning Asmundar Stefáns-
sonar á þá leið að meðaltal segði
aldrei mikið. Hann rökstuddi
þetta með því að segja að manni
sem stæði með annan fótinn í ís-
köldu vatni og hinn í sjóðandi
heitu vatni liði ekki að meðaltali
vel, þótt vatnið sem hann stæði í
væri að meðaltali hálfvolgt.
Við skulum því skoða hvað
liggur að baki einkunnunum.
Hversu margir gáfu „aðilum
0 1-2 3-4 5-6 7-8 9-10
GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON,
FORMAÐUR DAGSBRÚNAR
vinnumarkaðarins" hæstu ein-
kunn. Og hversu margir gáfu
þeim lægstu einkunn.
Fyrst skal þess þó getið að Ás-
mundur stóð hvorki í sjóðandi
heitu né ísköldu vatni. Rúm 5
prósent gáfu honum 2 eða minna
í einkunn og rúm 5 prósent 9 eða
10. Hin 90 prósentin gáfu Ás-
mundi hálfvolgar einkunnir.
Það sama er ekki hægt að
segja um Ögmund Jónasson,
þótt hann hafi fengi sömu meða-
leinkunn og Ásmundur. Ög-
mundur fékk flestar fyrstu ein-
kunnir. Tæp 17 prósent þeirra
sem tóku þátt í könnuninni gáfu
honum9eða 10.
Könnunin leiddi því í ljós að
Ögmundur á fleiri trygga aðdá-
endur en aðrir „aðilar".
Einar Oddur og Þórarinn eiga
líka aðdáendur
Næstur Ögmundi kom Einar
Oddur Kristjánsson. Rúm 13
prósent prófdómara gáfu honum
9 eða 10. Félagi hans, Þórarinn
V., var ekki langt undan en hann
fékk hæstu einkunn hjá 12 pró-
sentum þátttakenda.
Síðan kom Svanhildur Kaab-
er, sem fékk hæstu einkunn hjá
rúmlega 9 prósentum þátttak-
enda. Umdeild kona, Svanhild-
ur, því þrátt fyrir mikið af háum
einkunnum var hún einn af fall-
istunum. Samlíking Ásmundar
um fætuma og misheita vatnið á
því ágætlega við hana.
Á eftir Svanhildi kom Guð-
mundur J. Guðmundsson. Hann
á líka trygga aðdáendur og fékk
hæstu einkunn hjá tæplega 9
prósentum prófdómaranna.
Nokkuð langt var í þá næstu.
Ásmundur fékk hæstu einkunn
hjá rúmlega 5 prósentum, eins
og áður sagði, og Magnús L.
fékk hæstu einkunn hjá rúmlega
4 prósentum þátttakenda.
Þeir eru hins vegar fáir sem
eru að springa af ást til þeirra
Páls Halldórssonar, Kristjáns
Ragnarssonar og Bjöms Grétars
Sveinssonar. Aðeins tæp 3 pró-
ÞESSIR STÓÐUST PRÓFIÐ