Pressan - 18.06.1992, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 17.JÚNÍ 1992
UNDIR ÖXINNI
Hafnahreppur á Reykjanesi
Helga Hjörvar, formaður
framkvæmdastjórnar Listahátíðar
Leiðinlegra að
halda Listahátíð í
slæmu veðri
Aðsókn á Listahátíð í ár hefur þótt heldur
slök og stemmningin í kringum hana í
daufara lagi.
- Aðsókn á sýningar á listahátíð hefur verið heldur dræm.
Verður ekki tap á hátíðinni?
„Samkvæmt því sem okkur sýnist fer þetta mjög nálægt áætlun-
um. Það hefur verið mjög góð aðsókn á sum atriðin. Ekki alveg eins
góð á önnur og það vissum við alltaf fyrir. En dreiftngin er mjög
góð.“
- Það hefur ekki verið mikil stemmning í kringum þessa hátíð
og hún kannski farið framhjá mörgum. Er það ekki einmitt
hiuti af því að halda Listahátíð, að skapa stemmningu í kringum
hana í bænum?
„Stemmningin liggur auðvitað í aðsókninni. En það er lika dálítið
leiðinlegra að halda Listahátíð þegar veðrið er slæmt. Þá er ekki
hægt að vera með neitt á götunum, þó höfum við verið það. A laug-
ardaginn var Théatre de I’Unité með götuuppákomuna sína og setn-
ingin var líka úti. En það verður auðvitað öðmvísi stemmning í bæn-
um. Fólk fer meira inn á atburðina og hvert atriði er afmarkaður við-
burður."
- Var fyrirhugað að vera með fleiri atriði utandyra?
„Það hefði hugsanlega verið meira úti á torginu."
- Það hefur ekki verið neitt skipulagt?
„Það átti að skoða það eftir veðrinu."
- Hefur ekki vantað stór og fræg atriði á Listahátíð?
„Það er nú talsvert mikið af slíkum atriðum á hátíðinni. Til dæmis
Maguy Marin-danshópurinn sem var í Borgarleikhúsinu í þessari
viku. Hann er einn af frægari danshópum í heiminum í dag.“
- En veit fólk það sem er ekki dansarar sjálft?
„Það var nú nánast fullt Borgarleikhúsið á sunnudaginn og einnig
á sýningamar hjá frnnska dansflokknum hans Jorma Uotinen. Þann-
ig að það má segja að það hafi verið óvenjugóð aðsókn að dansatrið-
unum, þar sem Islenski dansflokkurinn hefur verið í ládeyðu, og
ekki mikið um danssýningar undanfarin ár.
Bæði Maguy Marin og Jorma sýna heimsdans. Þeir fara um höf-
uðborgir, að minnsta kosti hins vestræna heims, með sýningar og til
að semja.
Svo má auðvitað nefna fleiri þekkt nöfn og atriði á heimsmæli-
kvarða eins og Ninu Simone, Shura Cherkassky, Oijontheater og
rússnesku undrabömin.“
- Má samt ekki standa betur að undirbúningi hátíðarinnar og
fá borgarbúa til að taka meiri þátt í henni?
, J>að má auðvitað alltaf gera betur. En sem dæmi um breiddina þá
er þama talsvert af sígildri tónlist og léttari, allskonar leiksýningar
og mismunadi danssýnigar, að ógleymdum klúbbi Listahátíðar á
Hressó. Okkur hefur virst þetta vel heppnað. Fólk velur kannski eitt
eða tvö atriði til að sjá, og þá skiptir miklu máli að höfðað sé til stórs
hóps fólks.“
- Hvenær fáum við að vita hvemig listahátíð kemur út fjár-
hagslega?
,J>að tekur nú nokkrar vikur að gera upp hátíðina, þannig að ég
þori ekki að segja um það.“
FJÖLSKYLDA
ODDVIIANS í ÖLLUM
FÍLABSÍBIÍBUM
HREPPSINS
Hreppurinn á fjóra verkamannabústaði og í þeim eru sonur oddvitans,
tvær dætur og tengdaforeldrar annarrar dótturinnar.
Talsverður kurr er kominn
upp í Höfnum á Reykjanesi
vegna þess sem kallað er ofríki
Björgvins Liítherssonar, oddvita
Hafnahrepps, og samstarfs-
manna hans í meirihluta hrepps-
nefndar. Er því meðal annars
haldið fram að tilteknir hrepps-
nefndarmenn og sonur oddvit-
ans frafi forgang að viðhalds-
verkefnum fyrir hreppinn og að
fjölskylda oddvitans hafi haft
forgang við leigu eða kaup á fé-
lagslegum íbúðum hreppsins,
sem Húsnæðisnefnd úthlutar.
Björgvin á sæti í nefndinni.
PRESSAN hefur fengið
staðfest að tvær dætur Björg-
vins, Eydís Rebekka og Sólrún
Björk, hafi keypt tvær félags-
legar eignaríbúðir (verka-
mannabústaði) í Djúpavogi 7
og 13. Sonur Björgvins, Sig-
urður Lúther, hefur íbúðina
Seljavog 1 á leigu hjá hreppn-
um. Þá var nýverið auglýst til
leigu íbúð í eigu hreppsins í
Djúpavogi 22. Samvæmt
heimildum blaðsins bárust sex
umsóknir innan tilskilins
frests. Þegar að ákvörðun kom
hafði sjöunda umsóknin bor-
ist, frá tengdaforeldrum Ey-
dísar Björgvinsdóttur. Hús-
næðisnefnd úthlutaði þeim
íbúðinni, þótt þau ættu aðra
fyrir í öðru byggðarlagi.
Ljóst er að ítök Björgvins
og fjölskyldu eru afar mikil í
hreppnum, þar sem búa tæp-
lega 130 manns. Björgvin er
sem fyrr segir oddviti hrepps-
nefndar. Hann situr í bygging-
ar-, gatnagerðar- og skipu-
lagsnefnd, hann er hafnarstjóri
hreppsins, situr í húsaleigu-
nefnd og húsnæðisnefnd.
Bogga Sigfúsdóttir, eiginkona
hans, á sæti í áfengisvarnar-
nefnd, bamavemdamefnd og í
kjörstjórn. Sigurður sonur
hans á sæti í félags-, æsku-
Björgvin Lúthersson
lýðs- og íþróttanefnd, félags-
heimilisnefnd og samgöngu-
nefnd. Þá er eiginkona Sigurð-
ar og tengdadóttir Björgvins,
Hrafnhildur Gísladóttir, eini
starfsmaður hreppsnefndar-
innar, samhliða því að vera
starfsmaður Pósts og síma, þar
sem Björgvin er stöðvarstjóri.
Blaðið hefur fengið staðfest
að félagsmálaráðuneytinu haft
verið skrifað bréf með fyrir-
spurnum um þessi og ýmis
mál sveitarfélagsins önnur.
Þar er meðal annars kvartað
yfir því að ekki fáist aðgangur
að bókhaldi hreppsins og á
það bent að reikningar fyrir
árið 1990 hafi fyrst verið sam-
þykktir í október 1991 og á
sama tíma hafi verið sam-
þykkt fjárhagsáætlun fyrir
1991.
Ýmis önnur deilumál hafa
risið upp í hreppnum. Þar má
nefna úthlutun á verkefnum
viktarvarðar við höfnina til
Grétars Kristjónssonar
hreppsnefndar- og hafnar-
nefndarfulltrúa, hagsmunamál
smábátaeigenda og póstburð í
hreppnum, sem er í höndum
eiginkonu Björgvins.
Útvarpsrekstur Jóhannesar B. Skúlasonar
Fyrrum starfsmenn
Sólarinnar lá ekkert greitt
„Ég byrjaði að vinna á Sól-
inni tveimur, þremur dögum eft-
ir að hún fór í loftið. Það var
sagt við okkur að fyrstu tvo
mánuðina myndi Bjami Óskars-
son, veitingamaður í Berlín,
standa undir launakostnaðinum
en síðan auglýsingasalan. Ég
fékk 5.000 krónur í desember,
3.000 krónur hálfum mánuði
síðar og 10.000 krónur þegar ég
hætti um mánaðamótin apr-
fl/maí. Ég á inni hjá þeim 221
þúsund krónur núna, fyrir utan
vexti,“ segir Karl Lúðvíksson,
fyrrverandi dagskrárgerðarmað-
ur á Sólinni. Karl segir nokkra
fyrrverandi starfsmenn Sólar-
innar nú standa í miklu stappi
við að fá greidd laun er þeir eigi
hjá eigendum stöðvarinnar. „-
Þetta er upphæð að lágmarki
700 til 800 þúsund krónur sem
við eigum inni,“ segir hann.
Stofnandi Sólarinnar er Jó-
hannes B. Skúlason er áður rak
útvarpsstöðina Stjömuna. Þegar
hann hætti þeim rekstri kom upp
svipuð staða; fyrrverandi starfs-
mönnum Stjömunnar gekk illa
að innheimta launin sín og sam-
kvæmt heimildum PRESS-
UNNAR hafa þeir ekki enn
fengið uppgert.
Það er hlutafélagið Sterkur
miðill sem á og rekur Sólina.
Framkvæmdastjóri þess félags
og útvarpsstjóri er Orn Pálma-
son en Jóhannes er údaður dag-
skrárstjóri. Fyrir um það bil
mánuði keypú Höskuldur Pétur
Jónsson húsasmiður meirihluta í
Sterkum miðli, alls 55 prósent.
Jóhannes á enn hlut í stöðinni
og er PRESSAN spurði hann
hvort hann kannaðist við að
fyrrverandi starfsmenn ættu
laun inni hjá fyrirtækinu sagðist
hann ekki kannast við slíkt,
enda hefði hann ekki með
launamál að gera.
Karl segist hafa gengið á rrúlli
allra þessara manna og talað við
þá í tilraunum sínum til að fá
launin greidd. Honum og öðrum
fyrrverandi starfsmönnum hafi
verið lofað öllu fögru en efnd-
imar engar orðið. Næsta skref sé
að fara með málið í lögffæðing.
„Þetta em nýjar fréttir fyrir
mig,“ sagði Örn Pálmason í
samtali við PRESSUNA. Hann
sagðist ekki kannast við að eiga
í deilum við neina starfsmenn,
hvorki fyrrverandi né núverandi,
vegna ógreiddra launa. „Þetta er
ekki gömul stöð og margir
starfsmannanna hafa verið hér
ffá upphafi, það hafa ekki hætt
það margir hjá okkur að þær
gætu átt inni einhvetjar vemleg-
ar upphæðir," sagði Om.
Jóhannes B. Skúlason.
Starfsmenn Stjörnunnar
ásökuðu hann um að svíkja
sig um launagreiðslur og nú
ásaka fyrrverandi starfs-
menn Sólarinnar, sem Jó-
hannes stofnaði, hann um
það sama.