Pressan - 18.06.1992, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 17.JÚNÍ 1992
15
Brotnar rúður á
Vesturgötu 17
sýna líklega
beiskju neyt-
enda sem hafa
verið sviknir
um langþráð
sumarfrí. Á
spýturnar sem
nú eru í staðinn
fyrir glugga-
rúður er búið
að skrifa: Svik
og prettir hf.
Húsið er að
hluta í eigu
Guðna.
ins. Þær ferðir voru óhemjudýrar
vegna þess að sætanýting í svo
stómm þotum var mjög léleg.
Sem dæmi um hvemig staðan
hefur verið orðin má nefna að
flugtíminn með breiðþotu Atl-
anta kostar 7.000 dollara og ferð-
in út og heim aftur tekur átta
tíma. Þetta gerir 56.000 dollara
eða um 3.300.000 krónur. í þess-
um ferðum flutti Guðni út 200
farþega og 100 heim. Ef miðað
er við að farið haft kostað 15.000
krónur fram og til baka hefur
hann haft um 2.200.000 krónur í
tekjur af fluginu. Þá er eftir að
reikna allan kostnað Flugferða-
Sólarflugs af viðkomandi flugi,
svo sem auglýsinga- og sölu-
kostnað.
SENDISTERLING-VÉLINA
í LOFTIÐ ÁN LEYFIS
A þessum tíma reyndi Guðni
ýmislegt til að koma farþegum
sínum út og fékk meðal annars
Sterling-flugfélagið danska úl að
fljúga fýrir sig. Það gat þó ein-
göngu sinnt flugi til Kaup-
mannahafnar því félaginu var
ekki heimilt að fljúga til þriðja
lands.
Guðna hafði hins vegar láðst
að fá tilskilin leyfi fyrir flugi
Sterling og fór að fara um menn í
ráðuneytinu þegar þeir áttuðu sig
á því að hann var kominn með
vélina í loftið. Samkvæmt heim-
ildum PRESSUNNAR var hann
kallaður inn á teppið í ráðuneyt-
inu þá og varð það samtal úl þess
að hann leitaði aftur til Atlants-
flugs.
Samstarf tókst aftur við Atl-
antsflug 27. maí efúr að forráða-
menn fýrirtækjanna voru nánast
skikkaðir af ráðuneytinu til að
taka saman á ný. Til marks um
ósættið á milli þeirra má nefna
að hvorki Guðni né Halldór hjá
Aúantsflugi mættu á sáttafúnd-
inn heldur sendu staðgengla.
Þá varð ljóst að Guðni var
gjörsamlega búinn að skipta um
rekstraráætlun. Hann var nánast
búinn að skera sig niður í það
sama og í fyrra, með öðrum orð-
um tvær vélar til Kaupmanna-
hafnar og eina úl London. Þetta
samstarf stóð ekki lengi og varð
aldrei sá risi sem menn gerðu ráð
fyrir. I stað þess að flytja um
20.000 farþega á árinu fyrir
Flugferðir-Sólarflug flutti Atl-
antsflug aðeins um 500 farþega.
GERÐU FLUGLEIÐIR
SAMNING VBÐ GUÐNA UM
AÐHÆTTA?
Seint um kvöldið miðviku-
daginn 10. júm' var þessu sam-
starfi endanlega lokið. Það var
Guðni sem hafði frumkvæði að
því unt leið og hann úlkynnti að
hann hefði hafið samstarf við
Flugleiðir. Menn hafa mikið velt
því fyrir sér hvað Guðna og
Flugleiðamönnum gekk úl með
þessum samningi. Hvorum
tveggja átti að vera ljóst að líf
ferðaskrifstofunnar yrði varla
framlengt.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR var þetta hluú af
samkomulagi um að Guðni
myndi hætta ferðaskrifstofú-
rekstri. Flugleiðamenn voru þar
að auki úlbúnir að taka áhætfu
með Guðna vegna þess að þeir
settu farþega hans í Vínarferð-
imar sem voru hálftómar hvort
eð er. Virtust Flugleiðamenn
auðveldlega geta bætt við sig
100 farþegum á hvetja vél. Fyrir
vikið urðu sumar ferðir hjá far-
þegum Flugferða-Sólarflugs
næsta skringilegar. Þurftu far-
þegar að ferðast um alla Evrópu
En nánar um Flugferðir hf.
Það er fyrirtæki sem var sett á
stofn í Borgamesi árið 1977 og
var skráð hlutafé þá 10 milljónir
í „gömlum“ krónum.
Þetta fyrirtæki keypti Guðni
árið 1981 þóttúlkynningumþað
bærist ekki Hlutafélagaskrá fyrr
en 1990. Stjóm félagsins skipa
Guðni, kona hans og sonur.
Hlutafé er það sama og í upp-
hafi, 100.000 nýkrónur. Aldrei
hefúr borist nein úlkynning um
breytingu þar á úl Hlutafélaga-
skrár þannig að aðeins 100.000
króna hlutafé lá á bak við ferða-
skrifstofuveldi Guðna. Nú heíúr
hann tilkynnt að ekkert sé upp úr
gjaldþroú að hafa og sagði hann
í samtali við DV að fyrirtækið
ætti ekkert nema „borð og
stóla“. Þess má geta að sam-
kvæmt lögum frá 1990 er lág-
markshlutafé 400.000 krónur en
eldri félög vom hins vegar und-
anskilin þessari reglu.
HÆSTIRÉTTUR DÆMDI
GUÐNA BÆTUR EFTIR
ENDALOK SUNNU
Margir hafa orðið úl að undr-
ast linkind samgönguráðuneytis-
ins í málefnum Flugferða-Sólar-
flugs en skýringar á því kunna að
liggja í fyrri afskiptum af Guðna.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar
ífá 15. júní 1978 var fjánnála- og
samgönguráðuneytinu gert að
greiða Ferðaskrifstofúnni Sunnu
hf. skaðabætur vegna ólögmæú'-
ar svipúngar á leyfi til flugrekstr-
ar. Áður hafði Guðni unnið mál-
ið í undirrétti. Skaðabætumar
vom reyndar ekki nema brot af
því sem Guðni fór fram á en þó
nokkrar milljónir að núvirði.
Þessi ólögmæta svipúng átú sér
reyndar stað löngu áður en hin
frægu endalok urðu á ferðaskrif-
stofustarfsemi Sunnu þegar
fjöldi fólks var fluttur heim á
kostnað ríkisins. Ingólfur Jóns-
son var þá samgönguráðherra og
Olafur Steinar Valdimarsson,
núverandi ráðuneytis-
stjóri, skrifstofustjóri.
Þeir vom báðir kallaðir
í yfirheyrslur út af mál-
inu á sínum tíma.
Samkvæmt heimild-
um PRESSUNNAR
vom þær skoðanir viðr-
aðar í ráðuneyúnu strax
. í maíbyijun að rétt væri
að taka leyfið af ferða-
Mun meiri óvissa ríkir um
heimferð farþega nú. Líklega er
enn fjöldi fólks sem veit ekki
hvað bíður þess þegar það ætlar
að leggja af stað heim. Strax á
föstudag komu þó farþegar til
landsins sem þurfti að greiða
fyrir af tryggingafénu og má
leiða líkur að því að þeir hafi
verið komnir upp í flugvél á
meðan enn var verið að taka við
greiðslum af fólki sem ætlaði að
ferðast með skrifstofunni.
Greiðslumóttakan í lokin hefur
nú verið kærð af ráðuneyúnu og
sagði Guðni í samtali við
PRESSUNA í gær að hann fagn-
aði fyrirhugaðri rannsókn!
Þá var hann spurður að því
hvað hann ætti við þegar hann
segðist ætla að aðstoða þá sem
hafa orðið fyrir tjóni. „Ég er þá
ekki að tala um að fara að starfa
sem ferðaskrifstofa. Hins vegar
vildi ég aðstoða ef einhverjir
samningar væm í gangi og Iána
farþegalista.“
PERSÓNULEGAR
ÁBYRGÐIR
Guðni hefur láúð hafa eftir sér
í Ijölmiðlum að hann tapi per-
sónulega miklum fjárhæðuin á
gjaldþrotinu. Þegar blaðamaður
spurði hann hvað hann ætti við
með því sagði hann: ,Ég tapa al-
eigunni og lífsstarfinu og meiru
er ekki hægt að tapa.“
Garðastræti 39 þar sem Guðni býr.
Húsið er skráð á Ingólf son hans og
veðsett fyrir tæpar 23 milljónir
króna. Ekki er að sjá þar neinar veð-
setningar fyrir Flugferðir-Sólarflug.
á meðan tíndir vom upp ferða-
langar ffá Flugleiðum og Sólar-
flugi. Hefur til dæmis heyrst
saga af konu sem var 17 tíma að
komast ífá Kaupmannahöfn úl
íslands!
En Flugleiðir flugu aðeins í
einn sólarhring fyrir Guðna.
Föstudaginn 12. júní varð ljóst
að Guðni gat ekki greitt fyrir
ferðimar og varð að leggja inn
leyfi sitt.
HLUTAFÉ AÐEINS 100.000
KRÓNUR
En hvemig fyrirtæki stóð að
rekstrinum? Þrátt fyrir Sólar-
flugsnafnið var fyrirtækið aðeins
skráð sem Flugferðir hf. hjá
Hlutafélagaskrá. Sólarflugsnafn-
ið er því hvergi skráð sem firma-
heiti. Skýringin á því er sú að
Flugferðir-Sólarflug er einkaf-
irma Guðna og hafði það félag
flugrekstrarleyfið.
En Guðni hefur áður byggt
upp mikið veldi í kringum líúð.
Um daginn greindi hann ffá því í
viðtali við DV (laugardaginn 30.
maO að Sunna væri enn úl. Það
er alveg rétt en hins vegar láðist
honum að geta þess að hann
nafnbreytti fyrirtækinu 1987 og
felldi niður „ferðaskrifstofa“ úr
nafni Sunnu. Fyrirtækið er enn
skráð á Vesturgötu 17 þar sem
hann hefúr undanfarið haft alla
sína starfsemi. Sunna hefur hins
vegar ekki flugrekstrarleyfi og
því óvíst hvaða hlutverki fyrir-
tækið gegnir. Það virðist hafa
sloppið við gjaldþrot fyrir utan
að beiðni unt gjaldþrotaskipú á
fyrirtækinu var lögð inn í apríl
1981 en var afturkölluð.
Ferðaskrifstofan Sunna var
hins vegar rekin í nafni Flugfé-
lagsins Air Viking hf. sem lokið
var gjaldþrotaskiptum á 15.
janúar 1979.
skrifstofu Guðna. Aldrei var þó
gripið til þess þar sem mönnum
þótú skorta á lagaheimildir þar
um.
ÓVÍST AÐ TRYGGINGIN
DUGIFYRIR HEIMFERÐ-
UM FARÞEGA
En enn á ný þarf að flytja
Qölda fólks heim eftir lok á starf-
semi ferðaskrifstofu í umsjón
Guðna. Munu þetta vera um 620
manns sem eru strandaglópar. 1
samgönguráðuneyúnu er trygg-
ingaupphæð upp á sex milljónir
króna til að mæta slíkum áfóll-
um.
Þegar Veröld varð gjaldþrota
síðasta vetur varð að grípa til
þessarar úyggingaupphæðar, en
þá voru færri farþegar erlendis
og það mál reyndar einfaldara í
sniðum vegna þess að þeir voru í
hópum. Mun tryggingaupphæð-
in þá hafa enst úl að koma far-
þegunum heim.
Guðni sagðist hafa gengist í
persónulega ábyrgð fyrir sex
milljóna tryggingunni en vildi
ekki tiltaka nánar hvað í þeirri
ábyrgð fælist. Samkvæmt veð-
bókarvottorði að heimili hans á
Garðastræú 39 er það hús í eigu
Ingólfs sonar hans og veðsett
upp á tæpar 23 milljónir króna.
Ekki er þar að sjá neina ábyrgð.
Þá virðist eitúivað óljóst hvað
verður gert við fyrirtækið Flug-
ferðir hf„ en Guðni segir það í
höndum lögfræðinga sinna að
ákveða hvort gjaldþrotabeiðni
verður lögð inn. Samkvæmt
hlutafélagalögum ber forráða-
mönnum félaga að fara fram á
gjaldþrot þegar séð er fram á að
fyrirtæki geti ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Sú lýsing
virðist eiga við Flugferðir- Sól-
arflug í dag.
Siguröur Már Jónsson
ÁRNI
Jolinsen er þá loksins bú-
inn að sigla nýjum Heijólfi úl
Iandsins. Vestmanneyingar
gátu svo sannarlega glaðst yf-
ir því, enda fengu þeir nánast
allir að taka á móú honum úti
í Noregi. Þegar heim kom sáu
menn hins vegar að þeir
hefðu betur skilið einhvern
eftir heima til að smíða
bryggjuna því hún var ekki
tilbúin. En Eyjamenn voru
fljóúr að taka gleði sfna aftur
og ákváðu að fara í siglingu
kringum ísland og mun sigl-
ingin standa þar til höfnin
verður tilbúin. Vonandi að
einhver hafi orðið eftir í þetta
sinn til að klára bryggjuna.
Annars er það dálítið leiðin-
legt með Herjólf hvað hann er
stuttur. Það vantar nefnilega á
hann átta og hálfan metra.
Þetta segja Eyjamenn að sé
STEINGRÍMI
J. Sigfússyni, fyrrverandi
samgöngumálaráðherra, að
kenna. Hann hafi ákveðið að
stytta dallinn til að hann
kæmist upp í slippinn hjá
Slippstöðinni á Ákureyri,
sem fyrir tilviljun er í hans
kjördæmi. Fyrir vikið kemst
Herjólfur ekki eins hratt og
menn vonuðu og eyðir þar að
auki miklu meiri olíu en
þyrfti. En málefni kjör-
dæmanna em heilög eins og
allir vita. Annars eiga þeir
Gunnar Þorsteinsson í
Krossinum og
ÓLAFUR
Skúlason í hinni ríkisreknu
kirkju heiður skilinn fyrir að
halda lífi í deilunni um það
hvor hafi farið yfir strikið.
Aðrir deilumeistarar em þeir
Helgi Húlfdanarson (best
menntaði lyfjafræðingur
norðan Alpaljalla) og Sigurð-
urA. Magnússon. Þeir menn-
ingarvitamir þrátta um rithátt
grískra orða fyrir 2000 ámm
og láta eins og það skipti
máli. En skot vikunnar kemur
að vestan, frá
KARVEL
Pálmasyni, sem er búinn
að innrétta kjallara á Bolung-
arvík þar sem hann rammar
inn myndir. Sjálfsagt hefur
hann ekki rammað inn mynd
af Jóni Baldvini Hannibals-
syni ennþá, en Karvel sendir
Jóni nokkrar pillur. Hann er
að nudda honum upp úr
gömluni kosningafrasa (eins
og menn eigi að muna slíkt)
og bendir Jóni á að „karlinn í
brúnni“ fiski ekki. Karvel
virðist gleyma kvótasam-
drættinum, hann verður að
átta sig á að það em bara ekki
eins margir pólitískir þorskar
í sjónum og áður.