Pressan - 18.06.1992, Qupperneq 22
22
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 17.JÚNÍ 1992
í SKOÐANAKÖNNUN SKÁÍS FYRIR PRESSUNA VORU ÞÁTTTAKENDUR SPURÐIR HVERJIR VÆRU HELSTU KOSTIRNIR VIÐ AÐ BUA Á ÍS-
LANDI. SVÖRIN VORU MARGBREYTILEG EN ÞÓ ER AUÐSÉÐ AÐ ÁKVEÐNIR ÞÆTTIR ERU FLESTUM OFARLEGA í HUGA ÞEGAR ÞEIR
HUGSA HLÝLEGA TIL LANDSINS OG ÞJÓÐARINNAR.
1. HREINTLOFTOG
HKEINT VATN
Það sem var langoftast nefnt sem helsti kosturinn
við að búa á íslandi var hreinleiki loftsins og tær-
leiki vatnsins. Rúmur þriðjungur þátttakenda, eða
227, nefndi það sem aðalkostinn við landið. Það
naut því aðeins meira fylgis en verðlagið þurfti að
þola af óvinsældum.
Upptalning á kostum íslands hlýtur jafhframt að
gefa til kynna hvaða augum íslendingar líta údönd.
Ef þeir sætta sig við að búa á íslandi vegna hreins
lofts og vatns hlýtur aðalgallinn við útlönd að vera
mengað loft og skítugt vatn.
2. FKIÐ5ÆLD, FKIÐUK
héma.“
Og ef við höldum áfram útúrsnúningi þá er ein-
faldlega vont að búa í útlöndum.
5. MENNINGAKAKFUK-
INN, TUNGAN OG
5ÓNMENNTIKNAK
Ef einhverjum finnst þessi listi orðinn eins og úrval
úr hátíðarræðum helstu ráðamanna þá er ekki allt
búið enn. Menningararfurinn sjálfur, tungan og
bókmenntimar koma nefnilega næst og fá atkvæði
38 þátttakenda. Þar af vildu 17 nefha tunguna og
bækumarsérstaklegaen21 menningararfinn.
6. FKEL51OG
FKJÁL5KÆÐI
Aðeins 37 nefndu ffelsi og frjálsræði í íslensku
samfélagi sem kost við að búa á íslandi. Það er
ekki mikið, sérstaklega í ljósi þess að 94 þátttak-
enda nefndu boð og bönn í þessu sama samfélagi
sem helsta ókostinn við að búa hér.
10. GÓÐ LÍF5AFK0MA
Eflaust undrar einhvem að þrátt fyrir atvinnuleysi,
eilífa kreppu og fyrirsjáanlegan aflabrest skuli þó
níu þátttakenda neffia góða lífsafkomu sem helsta
kost þess að búa á íslandi. Ef efnahagsspár ganga
eftir ætti þessi hópur að hafa þynnst um aldamótin
nema þama séu komnir þessir sem sífellt em að
verða ríkari og ríkari í ræðunum hennar Jóhönnu
Sigurðardóttur.
11. DUGLEGT FÓLK
Og einum færri nefndi dugnað landans sem helsta
kost þess að búa hér. Þetta fólk gæti aldrei lifað og
starfað innan um letingjana í útlöndum.
12. FJAKLÆGD FKÁ
ÖDKUM LÖNDUM
Ef einhverjir þátttakenda em á réttum stað í tilver-
unni em það þeir fimm sem nefhdu fjarlægð ís-
lands ffá öðmm löndum sem helsta kost þess að
búa hér. Það væri einna helst að þetta fólk gæti
orðið hamingjusamara á einhverri Kyrrahafseyja.
U. LÍTIÐ UM FLÁGUR
OG SKORDÝR
Bz 7.77.7.. Hér kemur svarið við vangaveltum
margra um hvers vegna ein fluga í bananafarmi
eða geitungabú í garði Steingríms er stór frétt á ís-
landi. Tveir þátttakenda nefhdu nefhilega það sem
helsta kost þess að búa á íslandi að vera laus við
slíkar plágur.
13. FALLEGT KVEN-
FÓLK
Þótt svörin í könnuninni væm ekki kyngreind má
16. VELFEKDAKKEKFID
Ef marka má yfirlýsingar fyrir krataþingið í Hafh-
arfirði er sá þriggja manna hópur sem nefndi vel-
ferðarkerfið sem helsta kost jress að búa hér á landi
að deyja út.
OG ÖKYGGI
I öðm sæti á listanum yfir kosti landsins lentu frið-
sæld, friður og öryggi. Alls nefhdu 194 þátttak-
enda eitthvað af þessu. Af þeim nefndu 84 öryggið
og hversu lítið væri um glæpi hérlendis.
Þetta hefur löngum verið talið einn af kostum þess
að búa á íslandi. Yfirleitt hafa útlendingar ekki
staldrað lengi við hérlendis áður en þeir fá að heyra
að íslendingar læsi ekki bflum sínum — hvað svo
sem til er í því. Og það er einnig orðið dálítið leiði-
gjöm klisja að lesa í viðtölum við íslendinga í er-
lendum blöðum að þeir séu sífellt að rekast á for-
setann á gangi niðri í bæ.
Eftir sem áður er þetta ofarlega í huga fólks, því
rétt tæpur þriðjungur nefhir öiyggið og ffiðinn sem
helsta kostinn við landið og það þrátt fyrir reglu-
bundnar fréttir DV af fólskuverkum nágranna
sinna á Hlemmi.
7. LANDKÝMl OG
VÍDÁTTA
Og 28 nefhdu víðáttuna og landrýmið sem helsta
kostinn við að búa á íslandi. Þetta er fólk sem vill
ekki láta þrengja að sér, kannski bændur sem vilja
brjóta undir sig land til ræktunar, ef til vill jeppa-
menn sem vilja aka um vegleysur.
3. HEITT VATN
Nú emm við komin að smærri hópum. 12 þátttak-
enda nefndu heita vatnið og hitaveitumar sem að-
alkost landsins. Fyrir þennan hóp er einfalt að fyll-
ast ættjarðarást. Honum nægir að fara í heitt og
gott bað.
13. LYDKÆDID
Lýðræðið fékk atkvæði frá fjómm þátttakenda.
Það telst ef til vill ekki mikið fyrir þessa fomu stoð
vestrænna samfélaga. Kannski er landlægu virð-
ingarleysi íslendinga við Alþingi og þingmenn um
að kenna.
v 1
ætla að þeir tveir þátttakenda sem nefhdu fallegt
kvenfólk sem aðalkost íslands hafi verið karl-
menn.
19. LITLAK
VEGALENGDIK
Þetta svar verður ekki skilgreint hér, enda erfitt að
ráða í hvað þeir tveir sem nefndu þetta meintu.
20. FNGIN HEK-
5KYLDA
Loks vom það tveir þátttakendur sem mundu eftir
því að hér er engin herskylda.
3. FFGUKD LAND5IN5
173 þátttakenda fannst fegurð landsins helsti kost-
urinn við að búa hér. Það er góður fjórðungur af
þátttakendum. Og ef við höldum áfram að snúa
svömnum á haus hlýtur sami ijórðungur að telja
það höfuðókost annarra landa hversu ljót þau em.
4. EINFALDLEGA GOTT
AD 5ÚA HÉK
71 þátttakandi hafði annaðhvort ekki ímyndunarafl
til að koma orðum að tilfinningum sínum eða var
svo yfirkominn af ást og þakklæti til lands og þjóð-
ar að hann svaraði einfaldlega: „Gott að búa
2. GÓDUK MATUK
Og níu nefhdu góðan mat sem helsta kostinn við
ísland og íslendinga. Ef til vill em þetta góð með-
mæli með íslenskum mat. Ef til vill segir jsetta að-
eins til um hversu vondur maturinn er í útlöndum.
14. FJÖL5KEYTT
VEDUKFAK
Hér kemur aftur hópur sem er á réttum stað. Þrír
þátttakenda nefndu fjölbreytt veður sem helsta
kost þess að búa á íslandi. Þeir 104 sem kvörtuðu
undan veðrinu gætu sitthvað lært af þeim.
15. FÁMENNID
Fámennið er annað sem landinn hefur blendnar til-
finningar til. Sex nefndu það sem galla en þrír sem
kost.
ANNAD
Að lokum skulu talin upp þau atriði sem fengu eitt
atkvæði í könnuninni.
Þrennt mætti ef til vill flokka saman: Einn nefndi
kjaftasögumar í fámenninu sem kost við landið,
annar tilgreindi smáborgaraháttinn og sá þriðji
benti á að hér væru allir númer.
Einn þátttakenda hafði komið auga á að íslending-
ar væm skemmtilegir en annar nefndi íslenska
hestinn sem helsta kostinn við landið.
Einn tilnefndi dagblöðin og annar nefhdi Morgun-
blaðið sérstaklega sem helsta kost þess að búa hér-
lendis.
Loks kom einn með kvikindislegasta svarið, en
hann taldi það helsta kostinn við að búa á íslandi
hvað það væri gaman að fara til útlanda.