Pressan - 18.06.1992, Síða 38
38
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 17.JÚNÍ 1992
Gleðisveitin Júpíters
Við erum allir
þunglyndis-
sjúklingar
Hljómsveitin Júpíters er eitt af
furðum veraldarinnar. Fyrst þeg-
ar ég sá þá á sviði var eins og
heilt sólkerfi ómandi af tónlist
kæmi á móti mér. Þá breyttist ég
auðvitað í stjömu. Júpíters hefur
hitt landsmenn í hjartastað með
spili og söng. Nú er svo komið að
talað er um sérstakan Júpíters-
fatastíl. Ein stúlka sagði við aðra:
Þú ert klædd einsog þú sért að
fara á ball með Júpíters. En loks-
ins, loksins er Júpíters að gefa út
tónlistina sína. Þrír af meðlimum
hljómsveitarinnar fengust í við-
tal, Hörður Bragason, sem leikur
á orgel, Steingrímur Eyfjörð
Guðmundsson gítarleikari og
Einar Jónsson, sem leikur á bás-
únu.
Blm.: Hvernig varð hljóm-
sveitin til?
Hörður: Ja, enginn okkar
var með á þeim tíma en ég hef
heyrt þá sögu að Þorgeir, einn
af þrentur saxófónleikurum
Júpíters, hafi ætlað að halda
námskeið í saxófónleik fyrir
menn sem nenntu ekki í skóla.
Þegar ég sótti um að komast í
hljómsveitina án þess að hafa
heyrt í henni stóð ég í þeirri trú
að hún væri allsherjar saxó-
fónorgía.
Steingrímur: Draumurinn
hjá Þorgeiri var að ná saman
stóru bandi sem ynni einsog
„work-shop“.
H: Þetta var fljótt að hlaða
utaná sig. Við vorum níu þegar
fyrst var spilað undir nafninu
Júpíters.
Einar: Árni Matt hefur
hamrað á því lengi að aðals-
merki Júpíters sé tíðar manna-
breytingar. Á fjórða tug manna
hefur spilað með hljómsveit-
inni en síðasta árið hefur það
verið sama gengið.
Blm.: Hvað eruð þið marg-
ir?
H: Viðmiðunartalan erþrett-
án.
E: Erum við ekki tólf?
H: Við erum fjórtán á plöt-
unni.
S: Við erum ánægðir með að
hafa Sigtrygg. Það er betra en
að hafa Bogomil. Bogomil er
svo mikill egóisti.
H: Það eru allir stjörnur í
Júpíters. Þannig átti það að
vera frá upphafi og ég held að
það hafi tekist.
Blm.: Margar hljómsveitir
líkja samstarfi sfnu við hjóna-
band. H: Júpíters er hjónaband
með leyfi til að halda framhjá.
E: En það eru allir voða kúg-
aðir.
S: Samstarfið gengur lang-
best þegar við spilum mikið.
Menn hafa auðvitað mismun-
andi skoðanir. Stundum verða
til hópar innan hljómsveitar-
innar, þeir eiga það til að leys-
ast upp eða sameinast öðrum.
H: Menn slást en fallast svo
í faðma.
S: Sleikja sárin í hljóði og
búa sig undir næstu orrustu.
H: Auðvitað eru mikil átök.
Annars væri ekki svona gam-
an. Við skemmtum okkur ansi
vel þegar við erum að spila og
á þremur árum hafa valist sam-
an menn sem eiga gott með að
vinna saman.
S: Eitt það skemmtilegasta í
svona stórum hópi er að þá
blómstra menn á mismunandi
tímum. Þá er alltaf eitthvað
sem kemur manni á óvart. Ef
þú miðar við venjulega hljóm-
sveit eru menn nánast læstir
saman. En í svona stóru batteríi
blómstrar kannski lítil grúppa á
tónleikum einsog óvart. Og á
næstu tónleikum blómstra aðr-
ir. Þannig eru áherslur stöðugt
að færast til.
Blm.: Þetta er einsog lífvera.
S: Já, við erum höfuðskepn-
ur.
Blm.: Hvernig verða lögin
til?
S: Það er allur gangur á því.
Menn mæta á æfingu með stef
og bút úr lagi og svo er spunnið
og djammað út frá því. Stund-
um koma menn með nokkuð
fullmótuð lög. En lögin eru
alltaf að breytast.
E: Lögin blómstra á svipað-
an hátt og hópar innan Júpíters.
H: Flest eru einsog fjölærar
jurtir. Blómstra, leggjast í
dvala og skjóta svo upp kollin-
um, kannski í allt annarri
mynd. Blm.: Eins og þegar
maður sáir gladíólu og upp
sprettur rós?
H: Einmitt. Rúmba sem
leggst í dvala getur breyst í
skottís.
S: Endurholdgun.
E: Tvö lög steypast stundum
saman í eitt sem getur orðið að
fjórum.
H: Við höfum enga stjóm á
þessu. Júpíters er aldingarður í
órækt.
S: Eitthvað svoleiðis.
E: Svo veit maður aldrei
hvemig næsti konsert verður.
H: Við emm dauðuppgefnir
en alsælir eftir tónleika. Svo
eru lög sem við höfum spilað
lengi sem vilja allt í einu láta
syngja sig.
S: En það er hefð í hljóm-
sveitinni að menn mega prófa
allt.
E: Það gerist margt á tón-
leikum, allt hreyfist og breytist
og við erum oft alveg undrandi
á því sem gerist.
Blm.: Hvaða Heiðar er þetta
í laginu „Heiðar dansar“?
H: Það er leyndarmál en við
erum búnir að komast að því að
lagið er Cha-cha-cha.
Blm.: En „Hótel Haförn",
hvaða hótel er það?
S: Það er hótel sem allir hafa
komið á en enginn veit hvar er.
Hótel Haförn er einskonar
minning.
H: Það getur verið á Astral-
planinu, Látrabjargi eða Siglu-
firði.
E: Við höfum ekki sett okk-
ur neinar vinnureglur. Við höf-
um eina reglu og það er að
PUtSSAN/E.ÓI.
mæta á æfingar.
S: Það er refsing við því að
mæta ekki á æfingar.
Blm.: Refsing?
S: Þá fá menn ekki að taka
sóló.
Blm.: Það er voðaleg refs-
ing.
E: Stundum reyna menn þá
að taka sóló á frekjunni en það
borgar sig ekki. Þeir geta þó
fengið uppreisn æru ef þeir
standa sig vel í kúluspili.
Blm.: Á síðustu tónleikum á
Hótel Borg var altalað hvað
„sjóið" hefði tekist vel.
H: Já, okkur tókst að byggja
sviðið þannig að allir sáust.
S: Állir sáu alla. Það var
mjög gott. Það er mikilvægt að
sjá félagana í hljómsveitinni og
að sjá áhorfendur.
Blm.: Manni finnst oft að
þið vitið ekkert af áhorfendum.
H: Við skynjum þá alltaf, en
síðast á Borginni varð maður
meira var við þá. Þetta voru
líka dúndurtónleikar. Og fullt
tungl. Mér finnst Júpíters oft
einsog skrímsli og svo fer það
á flug.
Bim.: Þið eruð oft kallaðir
Gleðisveitin Júpíters.
H: Það er merkilegt vegna
þess að í rauninni eru allir í
hljómsveitinni rosalegir þung-
lyndissjúklingar.
S: En við eigum til spila-
gleði.
H: Það er ekki listin að spila.
Það er nautnin að spila.
Við leyfum okkur að hafa
sterkar tilfinningar og við
vogum okkur að vera róman-
tískir.
E: En það er engin stefna í
gangi. Reglur virka ekki fyrir
okkur.
H: Við erum alltaf að leita
að þeim lögmálum sem hljóm-
sveitin byggir á en höfum ekki
fundið þau enn.
Blm.: Kannski verkefni fyrir
eðlisfræðing? Eða veðurfræð-
ing?
H: Tónlistin okkar er einsog
gullgerðarlist. Við erum að
gera tilraunir með að blanda
saman efnum til að fá fram eð-
almálm.
Blm.: Þið eruð líka kallaðir
uppáhaldshljómsveit menning-
arvita?
S: Það var nú í PRESS-
UNNI... en við erum Iíka bún-
ir að prófa tónlistina á menn-
ingarhálfvitunum. En þetta er
góður orðstír, við fáum þá
kannski styrk frá menntamála-
ráðuneytinu.
E: Það er kannski vegna
þess að langflestar hljómsveitir
gera út á unglingana að reynt er
að hólfa okkur af einhversstað-
ar.
S: Við náðum saman þúsund
menningarvitum á Borginni
síðast.
Blm.: Hefur hljómsveitin
ekkert spilað útá landi?
H: Jú, í Keflavík, en sá stað-
ur fór á hausinn. Kvöldið áður
en við spiluðum skemmti fata-
fella sem neitaði að fara úr
nærbuxunum og fólk hefndi
sfn á okkur og það komu ekki
nema fjórir til að hlusta og við
spiluðum að sjálfsögðu fyrir
þá.
E: Við spiluðum líka uppí
Borgarnesi_ og á Englandi á
þorrablóti íslendingafélagsins
og í ýmsum klúbbum.
Blm.: Og voru viðtökumar
eins góðar og heima?
H: Já, tónlistin hafði sömu
áhrif í útlöndum. Við lékum í
útvarpi í pínulitlu stúdíói þar
sem við stóðum á öxlunum
hver á öðrum og síminn þagn-
aði ekki á eftir frá dansandi
húsmæðrum sem vildu vita
hvort tónlistin væri til á plötu.
S: Við förum aftur til Eng-
lands í haust og spilum á Read-
ing- tónlistarhátíðinni. Við er-
um mjög ánægðir með Jakob
Magnússon, hann hefur verið
okkur mikil hjálparhella. En
þegar platan kemur út tekur við
þétt tónleikahald. Við fömm til
Akureyrar og Hveragerðis.
H: Spilum í Tjamarhólman-
um og á svölum Alþingishúss-
ins.
Blm.: Ef ég set upp fána-
stöng í garðinum viljiði þá
spila þar?
H: Þú verður að setja upp
margar fánastangir. Við erum
nefnilega að sauma fána.
Pétur á Kópaskeri: Kemur
þetta út á víníl hjá ykkur strák-
ar?
S: Nei, bara geisladiski. Það
kaupir enginn plötur lengur.
Pétur: Ég vil ekki sjá diska.
Ég vil fá minn vínfi.
S: Við komum bara norður á
Kópasker og spilum fyrir þig
Pétur.
H: Við emm allir sammála
um að hljómurinn á plötum er
bæði skemmtilegri og betri en
á geisladiskum. Ef við eign-
umst fullt af peningum getum
við gefið út á plötu.
S: Við sjáum um útgáfuna
sjálfir. Ef við hefum verið und-
ir þumlinum á útgefanda hefði
getað orðið ógnarstress. Við
höfum tekið okkur þann tíma
sem okkur hentaði og ég held
að þannig séum við sáttari við
útkomuna.
H: Við gerum allt sjálfir.
Það eru tveir hljóðupptöku-
menn í hljómsveitinni. Ég og
Keli kaldi hönnuðum umslag-
ið. Keli hefur líka búið til boli
handa okkur og hann leikstýrir
myndbandinu.
S: Já og ef þig langar ekki í
tónlistina, þá skaltu kaupa
plötuna bara útaf umslaginu.
Þetta er tólf síðna myndabók,
listaverk sem þú getur haft á
náttborðinu.
Blm.: Eru ekki allir að bíða
eftir plötunni ykkar?
H: Jú, við vitum um tíu þús-
und manns...
S: ...sembíða
E: íofvæni...
Elísabet Jökulsdóttir