Pressan - 27.08.1992, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27.ÁGÚST 1992
ÞETTA
BLAÐ
TEKUR
ÁHÆTTU
... eins og dópistarnir
sen endalaust reyna að
smygla eitri inn í land-
ið, eins og segir frá á
blaðsíðu 14og 15.
... einsog Gunnarog
Jóhann á blaðsíðu 11
sem vilja græða á
strætó og hafa kosið
sig í fyrsta sæti.
... eins og Arnfinnur á
blaðsíðu 29, en hann er
markvörður Hugins í
Fellabæ. Hann þarf að
hafa kjark til að fara í
markið og sækja sína
föstu átta bolta í leik.
... eins og fólkið á biað-
síðu 16 sem þorði að
koma heim til að glíma
við kerfið. — Og þorði
að fara aftur þegar það
tókst ekki.
... eins og Hallvarður
Einvarðsson ríkissak-
sóknari á blaðsíðu 19
sem lagði í að hækka
kaupið sitt um
200.000-kall þrátt fyrir
kreppuna.
... eins og Hilmar örn
Hilmarsson galdra-
meistari á blaðsíðu 30,
en hann læknarfólk
með kristöllum eins og
engir læknarséu til.
Eykon, undan hvaða
rifiumerþettaþá
runmð?
„Ég hef engu við að bæta. Athuga-
semd mín segir allt sem segja
______________þarf"_________________
Eyjólfur Konráð Jónsson dró til baka
þau ummæli sín að aðförin gegn sér
sem formanni utanríkismálanefndar
væri runnin undan rifjum Jóns Baldvins
Hannibalssonar. Eftir að Eykon lét þau
ummæli falla varð hann margs vísari og
bað Jón Baldvin opinberlega afsökunar.
F Y R S T
F R E M S T
THOR VILHJÁLMSSON. Segir frá kynnum af frægum frændum sín-
um. ÁRNI GUNNARSSON. Úr Slysavarnafélaginu á Heilsuhælið.
THOR SKRIFAR UM
THORSARA
Við höfum sagt ffá því áður hér
í PRESSUNNI að Thor Vil-
hjálmsson sendir ffá sér bók fyrir
jólin. Reyndar varð okkur smá-
fótaskortur þegar við fullyrtum að
það væri skáldsaga. Staðreyndin
mun nefnilega vera sú að bókin,
sem Mál og menning gefur út,
byggist á æviminningum Thors
— kannski er ofmælt að þetta sé
sjálfsævisaga, en í öllu falli ein-
hvers konar minningabók.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins segir Thor þarna meðal annars
frá kynnum sínum við ýmsa
frændur síná og fræga lauka
Thorsættarinnar, eins og til dæm-
is Ólaf Thors, Thor Thors og
ættföðurinn Thor Jensen.
ÁRNI Á FARALDSFÆTI
Það er ekki ýkja langt síðan
Árni Gunnarsson krati og fyrr-
um alþingismaður settist í stói
framkvæmdastjóra Slysavarnafé-
lags fslands, enda ekki nema rúmt
ár síðan hann datt út af þingi. En
Árni gerir stuttan stans hjá Slysa-'
varnafélaginu, enda mun sam-
starfið þar hafa gengið upp og of-
an.
En Árni er búinn að finna sér
nýja vinnu, að þessu sinni í heil-
brigðisgeiranum hjá flokksbróður
sínum Sighvati Björgvinssyni.
Hann hefur verið valinn úr hópi
tuttugu og fjögurra umsækjenda
til að gegna starfi forstöðumanns
svokallaðrar Heilsustofnunar
Náttúrulækningafélags fslands í
Hveragerði, þar sem lengstum hét
Heilsuhælið.
í stjórn Heilsustofnunarinnar
sem réð Árna sitja nú Ólafur B.
Thors, Pétur Maack og Regína
Stefnisdóttir fyrir Náttúrulækn-
ingafélagið, Hjörtur Benedikts-
son fyrir starfsmenn og Pétur
Jónsson, fulltrúi heilbrigðisráð-
herra.
HARALDUR BÖ VINNUR
FYRIR NÍGERÍUMENN
Eins og komið hefur ffam hefur
skreiðarkaupandi í Nígeríu, hr.
Nanakalu, krafið Eimskipafélag-
ið um stórfé í skaðabætur vegna
skemmda sem urðu á skreið í
gámum sem skipafélagið hefur
tekið að sér að flytja milli fslands
og Nígeríu.
Við þetta er svo sem ekki miklu
að bæta nema því að lögmaður
Nígeríumannsins er enginn annar
en Haraldur B. Böðvarsson lög-
fræðingur, en hann hefur komið
við sögu hér í PRESSUNNI vegna
viðskipta sem hljóta að teljast í
meira lagi vafasöm. Haraldur er
sonur Böðvars Bragasonar lög-
reglustjóra.
SIGURÐUR VARAFOR-
MAÐUR LISTAHÁTÍÐAR
Það fór eins og við töldum lík-
legt hér í PRESSUNNI á dögunum
að Sigurður Björnsson óperu-
söngvari yrði skipaður í fram-
kvæmdastjórn Listahátíðar. Þang-
að er hann tilnefndur af vini sín-
um og vopnabróður úr stjórn-
málabaráttunni í Garðabæ, Ólafi
G. Einarssyni menntamálaráð-
herra.
Sigurður verður varaformaður
stjórnarinnar, en formaðurinn er
Valgarður Egilsson, fulltrúi
borgarstjóra.
í KAFFITIL SÓLONS
ÍSLANDUS
Eins og vegfarendur um horn
Bankastrætis og Ingólfsstrætis
hafa veitt athygli er loksins lífs-
mark í húsinu þar sem Málarinn
var lengst af til húsa, en húsnæðið
hefur staðið autt og til sölu um
langa hríð. Þar ætla Ríkharður
Hördal í Morkinskinnu og fleiri
að opna kaffihús, þar sem jafn-
framt verður hægt að fá léttar
máltíðir, kaffilíkjöra og annað
þess kyns. Staðurinn á að vera í
rólegri kantinum og tekur 90
manns í sæti. Það segir ef til vill
sitt um þann bóhemastfl, sem að-
standendurnir vonast eftir að
muni svífa þar yfir kaffibollum, að
staðurinn á að heita í höfuðið á
ekki minni lífskúnstner en Sólon
íslandus.
Á annarri hæð stendur hins
vegar til að opna sal fýrir mynd-
listarsýningar og/eða litla tónleika,
HJALTI EIGNAST
MÁLGAGN
Loksins hefur einn sterkasti og um-
deildasti maður landsins eignast
málgagn. Hjalti Úrsus Árnason er
orðinn ritstjóri á eigin málgagni.
Blaðið heitir Afrekslínan og að
sögn Hjalta er ætlunin að það
komi út einu sinni í mánuði. Hann
sagði að þetta væri nokkurs konar
tilraunastarfsemi.
Blaðið verður sérhæft og á helst
að höfða til kraftafólks að erlendri
fyrirmynd. Auk þess ætlar Hjalti að
hafa ýmsar léttar sögur í blaðinu.
Hann byrjaði reyndar með einni
léttri um frægan „athafnamann",
Pálma Gunnarsson, sem hefur vakið
nokkurt umtal. Hjalti segir frásögn-
ina af Pálma komna frá honum
sjálfum, en í samtali við
PRESSUNA sagðist Pálmi
vera lítt hrifinn af þess-
um skrifum og íhugaði
jafnvel meiðyrða-
mál.
Frásögnin af
Pálma er reyndar
mjög skemmtileg
en þarsegir Hjalti
frá því er Pálmi
stýrði stórum
flokki Puerto
Rico-manna
sem sérhæfðu
sig í morðum
og eiturlyfja-
sölu. Það er
hins vegar
enginn leiðari í
blaðinu.
þar sem klassík og djass verða í
hávegum höfð, svo ekki er ósenni-
Iegt að til standi að gera út á list-
elska bæjarbúa öðrum fremur.
Lfldegt má telja að hvergi í veröld-
inni séu jafnmörg kaffihús á fer-
metra, því á horninu gegnt nýja
staðnum er Prikið og Mokka í
mínútufæri uppi á Skólavörðustíg.
Harðnandi samkeppni á kaffi-
markaðnum er þó ekki bundin við
þetta eingöngu, þvf innan
skamms verður opnað kaffihús á
horni Pósthússtrætis og Vallar-
strætis hvar áður fyrr fékkst „allt
frá hatti oní skó, hjá Herradeild
P&Ó,“ en það eru þau Ketill Ax-
elsson, húseigandi með meiru, og
Hulda Goethe, sem að því standa.
HVENÆRER
STEINN ÁRMANN
STEINN ÁRMANN?
Steinn Ármann Stefánsson
komst í fréttir sem „kókaínmað-
urinn“, sem ók á lögreglubflinn á
Vesturlandsvegi á dögunum.
Annar Steinn Ármann — öllu
þekktari — er Steinn Ármann
Magnússon leikari, sem vakið hef-
ur .verulega athygli í hlutverki
„Sveppa“ í myndinni Veggfóðri.
Nokkuð mun hafa verið um að
menn hafi ruglað nöfhunum og
hlutverkunum saman, jafnvel svo
að leikarinn hafi haft ónæði af. En
það er sumsé alveg á tæru að
Steinn Ármann Magnússon leikari
er hvergi viðriðinn kókaínmálið.
HARALDUR B. BÖÐVARSSON. Sýslar fyrí'' óánægða skreiðarkaupmenn. STEINN ÁRMANN MAGNÚSSON.
Ekki sá Steinn Ármann. RlKHARÐUR HÖRDAL. Opnar kaffihús á þétt setnum bletti. SIGURÐUR BJÖRNS-
SON. Ólafur G. setti hann í stjórn Listahátíðar.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Það sem er hœttulegast er að grípa til
skammtímaaðgerða ogdreifafjármunum til
atvinnufyrirtœkja og atvinnuvega sem eru í
varanlegum vandrœðum og lenda þannig í
gildru. “
■■■^■^■■■■■■■■^^^^■^ Friðrik Sophusson peningaplokkari.
Hann sqqii. ekki EÍHmÍtt bað
pmn cmm /p r
JON AÐ BÁKI
\W
00
emu smru cei
„Ég er ánægður með hvernig
Eyjólfur Konráð tekur þessu og er
þakklátur fyrir það.“
Davíð Oddsson sparkari.
Alheimsskyttan
„Mér hefur þótt mikill heiður
að leika fyrir hönd Islands og
aldrei hugsað út í hvernig það er
að leika fýrir hönd heimsins.“
Valdimar Grlmsson vinstrihandarmaður.
HvðrvorverdmiOinn?
„Ég var hreinlega keypt með
demöntum og meiri demöntum."
Anna Erla Hoss bóndadóttir.
DAVHE)
„Éghyggað þessi
aðför gegn mér sé
runnin undan rifjum
Jóns Baldvins og að
Davíð hafi þó axlað
þá byrði
fulIkomIega.“
Eyjólfur Konráð Jónsson
gullleitarmaður.
HEFUR HUIXI
EKKI HORFT
AMYND-
IRIMAR
HAIMS?
„Allen er
sjúkur maður.
Hann erhættu-
legur.“
Maureen O'Sulli-
van amma.
semmann
vantaði!
„Þetta er í íýrsta sinn sem
stjörnuspá er gefin í síma á
fslandi."
Páli Þorsteinsson miðlari.
Síðasta sunnudag var Reykjavíkurborg umkringd maraþon-
hlaupurum af öllum stærðum oq gerðum. Nú hef éq ekkert r
móti ípróttaiðkun, en hafa menn huqleitt hverju við töpuðum á i
pessu? I maraponinu kepptu 120 manns og pað er ekkert út i
hött að astla að hver peirra hafí misst um 4 kqí hlaupinu. 419
voru í hálfmaraponi og við skulum slumpa á að hver peirra hafí
tapað 2 kg. I skemmtiskokkinu hlupu 2.132 og pað er ekkert of-
áætíað að par hafí hver að meðaitali misst 1 kg. Samtals töp-
uðust pví prjú og háift tonn af fólki í hiaupinu. Segi og skrifa
3300 kíló. Meðalmaður er um 75 kiló á pyngd, svo að við höf-
um týnrt ríflega 46 keppendum i hlaupinu! Hefur pjóðin efni á
siíku á ipessum öriagatimum? Gáum að pvi.