Pressan - 27.08.1992, Blaðsíða 35

Pressan - 27.08.1992, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. ÁGÚST 1992 35 mjög þakklátur þegar fólk kemur til mín og þakkar fyrir ágætan leik.“ Hann hefur nýlokið við að leika í fmnskri sjónvarpsmynd sem er samnorrænt verkefni og flokkast sem „road movie“. „Hún krafðist annarra vinnubragða og í myndinni leik ég kærulausan náunga sem er sama "m allt og ekki un leiðingar g e r ð a sinna." spanna allan skalann klykkir hann út með því að leika viðkvæma, kokkálaða sál úr hugarheimi Tsjekovs á fjölum Borgarleikhúss- ins í vetur. Geri aðrir betur. Asta Henriksdóttir Aunio ballettdansari „Hæ, hæ, þetta er Asta. Eins og er ég upptekin og kemst ekki í símann. En þú sem ert að reyna að ná í mig lætur mig vita hver þú ert, hvar ég næ í ig og klukkan hvað og ég mun hafa samband eins fljótt og ég get. Talaðu bara á eftir bíbinu — það er smábið. Takk fyrir að hringja og hafðu það gott. Ókei, bæ bæ.“ Og til a ð ER HVORKI HOMMI NÉ HEVÍ ROKKARI Ari Matthfasson virðist vera að- alleikarinn í bænum í dag ef marka má vinsældir hans. „Þetta er fyrst og fremst heppni,“ segir Ari. „Bæði Júlli og Óskar tóku áhættu með því að taka ungan leikara því þeir vita ekki hvað þeir fá.“ Ari leikur jafnmargar ólíkar persónur og hlutverkin eru mörg. „Ég er hvorki í Veggfóðri né í Sód- ómu sú týpa sem stendur mér nærri og ég er því hvorki hommi né heví rokkari. Það var á vissan hátt erfitt að leika þessar týpur en aðallega fannst mér það skrítið. Svolítið óþægilegt. Mér fannst til dæmis mjög erfitt að þurfa að kyssa annan mann, í raun það langerfiðasta, og sem leikari þurfti ég að stíga yfir ákveðinn þröskuld í sjálfum mér.“ Ari segist hafa orð- ið var við undarlegt augnaráð undanfarið frá fólki sem kann ekki að gera greinarmun milli raunveruleika og leiklistarinnar. „Ég var í sundi um daginn og þar horfði á mig maður með þessu „ég veit hvernig þú ert“-glotti, en ég verð að viðurkenna að ég er svolítið viðkvæmur fyrir þessu.“ Síðasta kjaftasagan er sú að homminn í Veggfóðri sé giftur og eigi tvö börn. „Ég er hins vegar FEGURSTU KVEIMANDL.it ÍSLANDS AÐ DÓMI Heiðars JÓNSSONAR SNYRTIS Llnda Pétursdóttir alheimsdrottning og fýrirsæta, vegna fagurrar beinabyggingar. Allir andlitshlutar hennar eru fullkomnir; Guðrún Bjamadóttir fegurðardrottning og fyrirsæta, vegna sérstaklega fagurrar efri varar. Hún er einhver fegursta kona sem ísland hefur alið; Guðrún Valgarðsdóttir (Gúa) fegurðardrottning og fyrirsæta, vegna þess að hún er eins og skafm í höggmynd, með fílabeinsandlit. Gúa er alls ekki smáfríð en hefur sterka and- litsdrætti. Hún hefur karakter í andiitinu; Heiðrún Anna Bjömsdóttir, sem varð númer tvö í síðustu Ungfrú Islands-keppni, hefur sindrandi andlit, fullt af gáska og fjöri. Hún er svar íslands við Marilyn Monroe; Andrea Brabin fyrirsæta vegna þess að hún lítur út eins og hún stingi aldrei hendi ofan í kalt vatn þótt hún sé í raun og veru engin pempía. Hún hefur klassískt, háaðlað andlit; Helga Bachmann leikkona er eins og Gúa; alls ekki smáfríð en af- skaplega fögur kona. Það er engin önnur Hedda Gabler til. Magnús og Jóhann gefa út plötu Magnús og Jóhann eru komnir aftur og er plata með tónlist þeirra að koma útnúí byrjun september. „Við byrj- uðum að spila saman 7972 og gáfum þá útplötu. Vorum svo saman í Change, en hljómsveitin hætti 1976.SÍÖ- an höfum við spilað saman en aldrei gert það á sama hátt og þá, þvi við unnum mikið í öðru með," segir Jó- hann Helgason tónlistar- maður. Það eru því nærri tuttugu ár siðan plata kom síðast út með þeim félögum. „Þessari plötu mun svipa tilplötunnarsem kom út fyr- ir tveimur áratugum. Við er- um með kassagítar, Hamm- ond-orgel, bassa og slag- verk. Við tókum þetta eigin- lega uppjive", söng og alltí einu." Jóhann segir sam- vinnuna leggjast vel í þá fé- laga og þeir hyggjast fylgja útgáfunni eftir með tón- leikahaldi. Fyrsti konsertinn verðurá Púlsinum. Hvernig fannst þér á tónleikunum með Gömmunum? Linda Gísladóttir tónlistarmaður „Ég skemmti mér alveg ágætlega og fannst þeir virkilega góðir. Það var bara synd hvað fáir komu og ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því hvað þetta er góð tónlist." Grétar örvarsson tónlistarmaður „Því miður var ég ekki alla tónleikana en það sem ég heyrði leist mér ágætlega á, von- ast til að heyra meira í þeim og að þeir sendi meira frá sér.“ Gunnar Benjamínsson upprennandi tónlistarmaður „Þeir vom mjög góðir og vel þéttir.“ Áttu sand af seðl- um, ertu nógu glúr- inn að semja við búðareigendur og afgreiðslufólk? Ef svo er geturðu fjár- fest í leðurgalla frá toppi til táar, því í ár er það leður og aftur leður og einu sinni enn leður sem er í tísku. Mörgum þyk- ir það noldcuð ein- kennilegt á tímum dýrafriðunar að leðrið skuli aftur vera að ná tökum á fólki, en það er nú samt svo, og þeir sem ætla sér að vera inni f v e t u r verða að fjárfesta í skinni. Það er allt á m i 1 1 i himins og jarðar til úr leðri; síð og stutt vesti, missíðir jakkar, stutt- buxur, síðbuxur, húfur, hanskar, pils, að ekki sé talað um skó, sem einnig verða allir að vera úr leðri í stíl. Sumir halda því ffam að þessi tíska sé sprottin upp úr svokall- aðri hommatísku þar sem leðrið hefur ríkt um árabil. Tískan nú sé merki um að almenningur sé aftur að taka homma í sátt eftir að al- menningsálitið fór niður á við í kjölfar umfjöllunar um hinn skæða eyðnisjúkdóm. Hvað sem því líður er það leðrið sem blífur og fæst nú í flestum betri verslunum lands- ins. Mesta úrvalið um þessar mundir er í versluninni 17, en fleiri verslanir eru að fá vænar sendingar á næst- unni. Vemharður Linnet djassgeggjari „Mér fannst æðislega gaman og það þurfti engum að koma á óvart þótt Stefán S. Stefáns og Stebbi Thor gætu spunnið eins og englar. En menn mega ekki gleyma því að Þórir Baldurs er með fremstu djasspíanist- um þótt sumir haldi að hann hafi bara spilað með Boney M. og Donnu Summer. Þeir sem ekki mættu, en þeir voru alltof fáir, geta bætt sér upp missinn og keypt sér geisladiskinn Af Niðafjöllum, sem er alveg meiriháttar." 6 I O B O R G I N Batman snýr aftur ★★★ Augn- konfekt og pottþétt skemmtun, þrátt fyrir þunnan söguþráð. Danny DeVito er stórkostlegur og Michelle Pfeiffer hrífandi. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg þrátt fyrir augljósa hnökra. Tveir á toppnum 3 lethal Wea- pon 3 ★★ Minni hasar og minna grin en í (yrri myndum en meira af tilraunum til dramatíkur. B I O H O L L I N Atlantis Frumsýnir.g á mynd Lucs Besson sem gerði Big Blue og Sub- way. Neðansjávarmynd án tals. Mikið augnkonfekt. Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru á aldrinum sjö til tólf ára. Vinny frændi My Cousin Vinny ★ ★★ Fyndin grínmynd. Joe Pesci er mun skemmtilegri í þessari mynd en þriðja hluta Lethal Wea- pon. ■ii.tmt.nii Höndin sem vöggunni ruggar The Hand that Rocks the Cradle ★ ★★★ Hörkuspenna og óhugn- aður. Rapsódía í ágúst Rhapsody in Ag- ust'k+'k Kurosawa-mynd með Ri- chard Gere í aðalhlutverki. Hugljúf og heillandi. Ástríðuglæpir Love Crimes ★★ Enn einn erótískur-tryllir. Miðað við framleiðslu Hollywood á myndum um smáskrítna kynlífsóra eru þeir inni í dag; hvað sem allri eyðni líð- ur. Þessi mynd hefur þó hvorki kit- landi óra né titrandi spennu. Hvort tveggja er flatt. Falinn fjársjóður Pay Dirt ★★ Dálítið dellukennt grín og því mið- ur dellukennd spenna einnig. Nokkrir góðir smásprettir leikar- anna ná ekki að halda myndinni á floti. Hún sekkur eins og steinn í lokin. Veröld Waynes Wayne's World ★ ★ í flokki mynda sem gera út á geðveikan húmor. Gallinn er að húmorinn er ekki nógu geðveikur og ofsjaldanfyndinn. LAUGARASBIOl Steiktir grænir tómatar Fried green tomatoes ++* Konumynd; um konur og fyrir konur. Góðir eig- inmenn láta undan og fara með. Ameríkaninn American Me ★★ Þokkalega spennandi án þess þó að.teljast til betri mynda. Hringferð til Palm Springs Round Trip to Heaven ★ Allt að því óbæri- leg leiðindi. Beethoven ★★ Ágaet mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru á aldrinum sjö til tólfára. Stoppaðu eða mamma hleypir af Stop! Or My Mom Will Shoot ★ Sylvester Stallone slær hér út flest- ar af sínum verstu myndum og verður það að teljast afrek. REGNBOGINN Ógnareðli Basic Instinct ★★ Markaðsfræðingarnir fá báðar stjörnurnar. Annað við myndina er ómerkilegt. Léttlynda Rósa ★★★ Ljúf saga um vergjarna stúlku. Kolstakkur ★★★★ Mögnuð mynd; hæg, seiðandi og falleg. Besta myndin í bænum. Lostæti Delicatessen ★★★★ Hugguleg mynd um mannát. Homo Faber ★★★★ Mynd sem allir verða að sjá. STJORNUBIO Náttfarar Sleepwalkers ★★ Það er orðið langt síðan tekist hefur að búa til almennilega mynd eftir sögu Stephens King. Þessi tilraun er með því skárra af afurðum síð- ustu ára. Hún mun gleðja hörð- ustu unnendur hrollvekja. Hnefaleikakappinn Gladiator ★ Smart ofbeldi fyrir þá sem hafa smekk fyrir slíku. Sætir strákar fyrir stelpurnar. Óður til hafsins The Prince of Ti- des ★★★ Nick Nolte heldur myndinni á floti. Börn náttúrunnar ★★★ Rómað- asta íslenska bíómyndin. aam Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg unglingamynd en ef til vill ekki stórkostlegt kvikmynda- verk. Tveir á toppnum 3 Lethal Wea- pon 3 ★★ Söluhæsta myndin vest- anhafs það sem af er sumri. Sannar að ekki fer alltaf saman gæfa og gjörvileiki.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.