Pressan - 27.08.1992, Side 30

Pressan - 27.08.1992, Side 30
30 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 27. ÁGÚST 1992 smáa letrið Nú er streðið við að skera niður fjárlögin byrjað, eins og þeir sem fylgjast með fréttum hafa vafalaust tekið eftir. Ekki svo að skilja að fréttir af ráðherrum með hnífinn á lofti séu allsráðandi, heldur má ekki kveikja svo á fréttum að þar sé ekki kominn einhver ríkisstarfsmaður- inn, sem lýsir því hve starf hans og stofnunar sinnar sé afar mikilvægt, en því miður hái mannaskortur og peningaleysi velvilja hans í garð þjóðarinnar mikið. Það er engin hætta á að þessi söngur hljóðni í bráð. En hvernig er hægt að spara? Vitaskuld með því að lesa smáa letrið, það er að segja smáa letrið í fjárlögum síðasta árs. Það er eng- inn vandi að finna alls kyns rugl á fjárlögum, sem vel má missa sín. Til hvers erum við skattborgarar að borga 29,6 m.kr. fyrir alþjóðasam- starf þingmanna? Eða af hverju skyldi 2 milljónum vera varið til kynningar á glímu í skólum? Eða borga litlar 10,3 m.kr. til yfirstjórnar hjá embætti söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar? Eða 18,7 m.kr. til Félags- málaskóla alþýðu, sem rekinn er af ASÍ, en það apparat er ekki beinlínis á leiðinni í gjaldþrot. Eða hvers vegna í ósköpununum erum við að borga 41,3 m.kr. í héraðsbúnaðar- sambönd? Blóðmjólka bændur meðborgara sína virkilega ekki nóg? Og hvers vegna eru 12,6 m.kr. settar í minja- og byggðasöfn, þegar slíkt ætti Ijóslega að vera í verka- hring sveitarfélaga? Eða hvers vegna er 99 m.kr. hent í Sinfón- íuna? Reykvíski menningaraðall- inn er greinilega svo fínn að hann verður að hafa heila Sinfóníuhljóm- sveit á sínum snærum, en hann er líka of fínn til þess að borga fyrir það. Og vissu menn að söfnunar- ástríða hrjáir Austfirðinga svo að þar er starfrækt sérstök Safnastofnun Austurlands, sem skattgreiðendur gjalda 5,8 m.kr. fyrir. Og svo fram- vegis. Og svo framvegis. En þetta er allt saman tittlingaskítur og dugir engan veginn til í alvöruniður- skurð. Síðustu fjárlög voru upp á 110 milljarða og með rúmlega 4 milljarða króna halla. Við leggjum Lánasjóðinn niður, fyrst þetta er hvort eð er komið inn á gafl hjá bönkunum, og spörum 2,2 millj- arða. öll framlög til lista og safna detta út líka og við spörum aðra 2 milljarða. Sendiráðum fækkum við um helming og hættum allri þróun- araðstoð þar til við komumst sjálf úr þróunarheiminum og spörum 428 m.kr. Öll framlög til búnaðar- mála verða látin sigla sinn sjó. Bændur hafa bara verið á íslandi í 1118 ár og kominn tími til að þeir standi á eigin fótum. Þar sparast 4,8 milljarðar. Rannsókna- og eftir- litsstofnanir sjávarútvegsins geta sægreifarnir borgað fyrir og við spörum 356 m.kr. Við aðskiljum ríki og kirkju og spörum hálfan milljarð þar. Tryggingagreiðslur skerum við niður um 25% og spörum 6,5 milljarða. Við skerum greiðslur til siglingamála niður um milljarð. Og loks lættum við öllum niðurgreiðsl- um cg spörum 4,7 milljarða. Loks seljurn við ríkisfyrirtæki fyrir 1,5 mill- jarð og meira ef vill. Þannig höfum við a.m.k. sparað 24 milljarða á einu bretti. Síðan verður flatur 10% niðurskurður á öll önnur útgjöld, því það er alltaf hægt að lækka út- gjöldin um 10%, og sitjum því alls eftir með ríkisútgjöld upp á 77 milljarða og getum þess vegna lækkað skatta um 28 milljarða, sem þýðir að hægt er að fella tekju- og eignaskatt niður og fella alla tolla niður að auki. Það er ekki lélegt cR nmm Fyrir sextán árum hóf Harry Oldfield, breskur líf- og efnafræðingur, rannsóknir sem leiddu af sér þá kenningu að jafna mætti orkuflæði líkamans með rafstraum í gegnum kristalla. Nú þegar nýaldarhreyfmgin á miklu fylgi að fagna hafa ýmis ffæði, indversk og búddísk, ásamt ólíkum lækningaaðferðum og kenningum rutt sér til rúms í hin- um vestræna heimi og njóta vax- andi vinsælda. Bollaleggingar um árur, jurtafæði, reiki, kristalla og annað slíkt eru hluti af daglegu lífi, og fóik leitar sér í auknum mæli aðstoðar til lausnar andleg- um og líkamlegum vanda með annars konar lækningaaðferðum en hinn vestræni heimur hefur státað af. Nú eru seldir steinar í öllum litum og stærðum sem eiga að höfða til ólíkra orkustöðva í líkamanum, virkja sumar og letja aðrar. Eitt af því sem hefur rutt sér til rúms síðasta áratuginn er krist- allameðferð, þar sem kristallar eru notaðir til að leiða rafstraum að ákveðnum líffærum í þeim til- gangi að jafna orkuflæði líkamans eða vinna á kvillum. Þessi aðferð hefúr meðal annars verið notuð á krabbameinssjúklinga, við bak- verkjum og beinbrotum. Þeir sem stunda kristallameðferð segja að hana megi nota við öllum líkam- legum áföllum. Með aðstoð krist- alla og rafstraums sem í gegnum þá er leiddur er líkamanum hjálp- að að læknast, lækningamáttur hans örvaður. í stuttu máli sagt: Líkamanum er hjálpað að hjálpa sér sjálfúr með því að jafna orku- flæði í honum með rafstraumi. Upphafsmaður þessarar kenn- ingar er líf- og eðlisffæðingurinn Harry Oldfield, sem býr í Lundún- um og heldur námskeið í krist- allameðferð. Þessi „tækni“ nýtur vaxandi vinsælda innan þess geira sem kallast á enskri tungu „altem- ative medicine“. Það var fyrir hálfgerða slysni að Harry hóf kristaUarannsóknir. Ár- ið 1976 kenndi hann í gagnffæða- skóla og það var einmitt vísinda- verkefni sem hann lagði fýrir nemendur sína sem vakti áhuga hans á Kirlian-ljósmyndun. Hann hafði þá lesið greinar um fyrir- bærið þegar háspennusvið er not- að til að kalla fram mynd á filmu. Á þessum tíma fengust fáir við þessi fræði, helst í Rússlandi og nokkuð í Bandaríkjunum. Laufblaðið enn heilt Harry náði góðum árangri og þá sérstaklega með svokallaðar „fantom“-lífmyndir. Þær verða best skýrðar með dæminu um laufblað sem var klippt í tvennt. Strax á eftir var annar helmingur- inn myndaður og sáust þá á myndinni útlínur þess hluta lauf- blaðsins sem hafði verið klipptur í burtu. Harry þróaði smám saman aðferðir sínar og varð að lokum þekktur fyrir hönnun sína á Kirli- an-tækjum, undanfara kristalla- tækjanna. Tveir læknar fengu Harry til liðs við sig til að kanna útgeislun eða orkusvið í fingurgómum krabbameinssjúklinga í saman- burði við heilbrigt fólk. Sam- kvæmt niðurstöðum Harrys feng- ust ólíkar niðurstöður hjá þessum sem kallast innkirtlakerfi líkam- ans, það er að segja innkirtlarnir eru á þessum orkupunktum. Reyndar hafa aðrir komist að þessu á þessari öld en nálgast við- fangsefnið frá ýmsum og ólíkum áttum.“ Hilmar segir að kristallarnir séu í sjálfu sér ekki það sem „læknar“ heldur séu þeir náttúrulegir Kristallarnir eru bornir upp að líkamanum þar sem orkuflæði er stíflað og látnir vera þar í nokkurn tíma. Hér hafa kristallarnir verið lagðir á lungna- svæðið. tveimur hópum. Smám saman tókst Harry að hanna tæki sem gerði honum kleift að „skanna“ mannslíkama og mæla orku á ólíkum stöðum. Hann taldi sig geta mælt og borið saman orku á innleið annars vegar og útleið hins vegar, sem hann las af sveiflusjá. í ffamhaldi af þessu bar Harry fram þá kenningu að hægt væri að greina sýkt líffæri út ffá orkuflæði; að fyrir væri sýkt líffæri ef spenna dytti niður á meðan skannað væri yfir ákveðna parta líkamans. I ff amhaldi af þessu taldi Harry sig hafa fundið sjö orkustöðvar í lík- amanum, sem kom heim og sam- an við austurlenskar kenningar. Harryergóður kaþólskur strákur Hilmar Örn Hilmarsson er einn þeirra íslendinga sem hafa farið á námskeið hjá Harry og á kristalla- tæki það sem þarf til meðferðar- innar. „Harry er góður kaþólskur strákur sem hafði aldrei heyrt um indverska dulspeki, jóga eða ann- að slíkt þegar hann stundaði þess- ar rannsóknir,“ segir Hilmar. „Hann gat mælt orkupunkta á vissum stöðum, en grunnorku- stöðvar í líkamanum eru sjö tals- ins. Þær finnast við mænurót, rétt fyrir neðan nafla, þar sem rifbein- in mætast og kallast sólarplexus, við hjartað, við hálsinn, á enninu og ein við hvirfilinn. Það hefúr komið í ljós að þessar orkustöðvar eru mjög tengdar því magnarar, hafi þá einstöku eigin- leika að geta tekið við raforku. Ef kristallarnir eru kreistir gefa þeir ffá sér raforku. Kristallar eru sem sé magnarar. Umfjöllun í British Medical Journal Harry Oldfield hefur unnið mikið með breskum læknum og var til langs tíma „í uppáhaldi“ innan bresku læknastéttarinnar. Hann komst meira að segja á for- síðu the British Medical Journal þegar hann hannaði greiningar- tæki sín. En viðhorfið til hans fór að breytast þegar Harry hélt því ffam að hann gæti læknað fólk af ýmsum kvillum. En í hveiju er kristallameðferð fólgin? Fyrst er orka sjúklingsins mæld á orkupunktunum sjö með greiningartækinu. Þegar það hef- ur verið gert á að vera Ijóst hvar orkuflæðið er stíflað, sem þá gefur vísbendingu um hvar kvillinn er. Þá eru kristallarnir, sem eru í glasi með saltlausn í, bornir að veika svæðinu og rafstraumi hleypt í þá. „Tækin eru yfirleitt mjög ein- föld,“ segir Hilmar. „Þau hafa on- off-stillingu og tvo aðra takka. Annar hefúr fjórar stillingar fyrir fjórar mismunandi og stighækk- andi tíðnir, A, B, C og D, og hinn tíðnistig frá 0 til 10. Lægsta tíðni er innan við ein sveifla á sekúndu. Galdurinn er að nota mismikinn straum á ólíka hluta líkamans. Til dæmis er alltaf notuð veik tíðni á neðri hluta hans.“ Einstök líffæri hafa ákveðnatíðni Harry hefúr með rannsóknum sínum kortlagt ákveðna og breyti- lega tíðni fyrir einstök líffæri. Hann telur að heilbrigð líffæri hafi ákveðna tíðni sem notuð er sem viðmiðun við mælingar. „Kenn- ingin gengur ekki út á það að kristallarnir sjálfir séu í eðli sínu eitthvað heilagir, heldur er hér um að ræða lögmálið um ómun og end- urómun,“ segir Hilmar. „Galdurinn er að senda ákveðinn straum eða bylgju sem hæfir einu ákveðnu h'f- færi. Reglan er að nota þá tíðni sem berst best um líkam- ann. Þá er notað tæki sem mælir hvernig orkan dreif- ist, en það nemur rafsegul- bylgjur. Kristallarnir eru síðan notaðir til að dæla orkunni inn. Straumurinn getur náð nokkrum tugum þúsunda volta en er í ákveðnu formi þannig að sjúklingurinn finnur ekki fyrir straumnum.11 Kristallameðferðin nær ekki aðeins til líkamlegra kvilla heldur og þeirra andlegu. „Harry hefur fengist við að þróa og finna róandi stillingar. Sem dæmi er ákveðin stilling sem virkar róandi og getur því hjálpað fólki sem er í kvíða- kasti,“ segir Hilmar. Vill ekki vera í hópi skottulækna Kristallameðferðin er vafalaust í hópi kenninga sem teljast um- deilanlegar og þá sérstaklega þeg- ar talað er um lækningamátt. Hilmar segir að enginn sem hefur haft þessi tæki undir höndum hafi nokkru sinni auglýst sig sem lækni og því hafi landlæknisemb- ættið ekki gert neinar athuga- semdir við notkun þess. „Harry er mikið í mun að þetta lendi eldd í flokki með skottulækningum,“ segir Hilmar. „Þetta er það sem menn hafa kallað „compliment- ary medicine“ eða uppbótarlækn- ingar og á náttúrulega aldrei að koma í staðinn fyrir hefðbundnar læknismeðferðir. Menn fylgja þessum fýrirskipunum hans mjög stíft og predika ekki undraverðan lækningamátt tækjanna. Þetta eru þar að auki mjög ung vísindi og aðferð sem er í stöðugri þróun. Það er athyglisvert að með nýrri tækni sem Harry hefur þróað er hægt að fylgjast með áhrifum tækjanna á skermi — þess vegna sjónvarpsskermi — því mögulegt er að mynda orkumunstrin." Erfitt að skýra kristallafræðin Brynjólfur Snorrason er einn fárra íslendinga sem nota krist- allatækið á viðskiptavini sína, en hann rekur nuddstofú á Akureyri. Brynjólfur taldi erfitt að skýra kristallafræðina svo vel væri og enginn misskilningur hlytist af „Það spilar ansi margt inn í þetta. Það má líta á þessa meðferð út ffá svo mörgum sjónarhomum, þar á meðal orkustöðvum, orkubraut- um og áru líkamans. Grunnhug- myndin er sú að hér sé verið að hjálpa líkamanum að hjálpa sér sjálfur, að hjálpa honum við upp- bygginguna," segir Brynjólfur, sem sjálfúr lærði fræðin hjá Harry Oldfield í Lundúnum. Til nánari útskýringar á um- fangi meðferðarinnar segir Brynj- ólfur að grunnurinn nái til ólíkra þátta í umhverfinu og geti jafnvel haft áhrif á dýr og plöntur. Hér sé í raun og veru um lífsstíl að ræða þar sem taka verði tillit til ýmissa umhverfisþátta. „Hér er fyrst og ffemst verið að byggja upp áruna, orkuna og kraftinn í fólki. Það er ekki ráðlegt að tala um lækningar í þessum efnurn." Blaðamenn sitja í örbyJgjuofni „Nútímamaðurinn, og þá sér í lagi þeir sem vinna við tölvur, er að vinna við tíðni sem brýtur nið- ur áruna. Blaðamenn, til dæmis, sitja inni í örbylgjuofni. Því miður hefúr lítil umræða verið um þessi mál á fslandi.“ Brynjólfur segir að kristalla- fræðin sé flókin og þurfi að um- gangast með gát. „Sumt í kristalla- lækningum finnst mér sett heldur glannalega fram, vegna þess að við vissar aðstæður geta kristall- amir virkað akkúrat öfugt við það sem ætlast er tiL“ Til dæmis ættu blaðamenn ekki að treysta á að með því að leggja kristal á tölvuna sína geti þeir unnið gegn niðurbroti árunnar. „Kristall á tölvu gæti hjálpað en gæti líka gert illt verra. Kristallinn getur magnað upp efni neikvætt og þannig orðið til lítils gagns.“ Harry Oldfield hefur komið hingað til lands og haldið nám- skeið í fræðum sínum. íslending- ar hafa einnig sótt út til London á námskeið hans. Kristallatæknin er nú notuð um allan heim sem ein grein uppbótarlækninga.________ Anna H. Hamar

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.