Pressan - 27.08.1992, Síða 6

Pressan - 27.08.1992, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. ÁGÚST 1992 Setti brandarann á ritaskrá Eyjólfur Konráð Jónsson, fyrrverandi formaður utanríkismálanefndar Gullgrafarinn semflokkurinn hafnaði Eyjólfur Konráð Jónsson er á útleið úr íslenskri pólitík. Það kemur engum á óvart, en útgang- an var kannski aðeins öðru vísi en menn áttu von á. Eftir að hafa ver- ið á þingi í 18 ár fékk hann loksins eitthvað til að fást við í fyrra þegar formennska í utanríkismálanefnd féll honum í skaut. En áður en Ey- kon hafði svo mikið sem sagt „Hatton-Rockair kom EES og ör- lög hans voru ráðin. Davíð gaf og Davíð tók og eina sem Eykon get- „Þráttfyrir að Sjálfstœðisflokk- urinn hafi verið að hafna Eykoni síðustu tuttugu árin hefur höfn- unin aldrei verið eins afdráttarlaus og nú. “ ur sagt er að Jón Baldvin hafi stað- ið á bak við allt saman. Eykon er þekktur fyrir að hafa sínar eigin skoðanir. Það var allt í lagi þangað til þær fóru að skipta máli. Það er nefnilega ekki pláss fyrir marga kletta í hafinu þegar sjálfstæði þjóðarinnar er annars vegar. Þeir Davíð og Jón Baldvin ætla greinilega ekld að láta næstu mánuði snúast um prívatskoðanir Eykons í EES-málinu. Aftökuna tók skjótt af eins og þegar Eykon skaut hrútinn forð- um. Aðeins sex í aftökusveitinni strækuðu — það er ljóst að vinum Eyjólfs hefur fækkað. Og þegar vinimir eru horfnir er lítið eftir í pólitíkinni. Það er eiginlega sorglegt hvað pólitík er grimmur leikur því flest- ir eru sammála um hrekkleysi Ey- kons. Hann er frumherji með gull- hjarta eins og sönnum gullgrafara sæmir. En hann gaf sig í leikinn og þá þýðir ekld að gráta leikreglurn- ar eftir á. Og nú spyrja menn: Hvað verð- ur um Eykon? Hann er ekki þann- ig maður að hann gangi í grátkór hinna tapsáru þótt vissulega svíði undan fyrst um sinn. Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokk- urinn hafi verið að hafna Eykoni síðustu 20 árin hefur höfnunin aldrei verið eins afdráttarlaus og nú. Eykon er eldhugi með ffjáls- hyggjuívafi sem hefúr hlotið lítinn hljómgrunn innan flokksins. Hann hefur verið þekktari fyrir prinsippskoðanir en hentistefn- una sem ríkir á Alþingi frá degi til dags. Það er því grátlegt að sá sem helst hefur vitnað í skoðanir Ey- kons er hentistefnupólitíkus núm- er eitt á Islandi, ðlafur Ragnar Grímsson. En Eykon hefur líka komist að málamiðlun við prinsipp sín, eins og sést hefur í gulllaxævintýrum hans. Að lokum mun hann sættast við örlög sín. As Björn Þ. Guðmundsson, laga- prófessor við Háskóla íslands, hefur á undanförum misserum vakið nokkra athygli fyrir orð sín í garð ríkisstjórnarinnar. Bæði hef- ur Björn ritað heldur spaugsamar greinar um þá er nú sitja í stjórn- arráðinu og í viðtali í fréttatíma Stöðvar 2 nú fyrir skömmu hjó hann enn í sama knérunn. Eink- um hafa þó skeyti hans beinst að ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. í tengslum við fýrirhugaðan niður- skurð á fjárveitingum til Háskóla Islands brá prófessorinn fyrir sig fjöðurstafnum og skrifaði stutta grein í Fréttabréf Háskóla fslands er hann nefnir „Nýja námsskrá fyrir lagadeild". Greinin, sem birt er hér að neðan, er sett ffam sem ffemur vargefin tilskipun ffá ráð- herrum sjálfstæðismanna, þar sem þeir mæla fyrir um ýmsar breytingar á námsskrá laganema. Nú er það ef til vill ekki í ffásög- ur færandi þótt annars virðulegur lagaprófessor finni kímni sinni samastað í tímaritum á borð við Fréttabréf Háskóla íslands, en þar birtist greinin fyrr á þessu ári. Hins vegar áttu fáir sem lásu verk- ið á sínum tíma von á að Björn teldi hana til ritverka sinna eins og raun varð á. f skýrslu Lagastofnunar Hf fyrir tímabilið 15. febrúar 1991 til 15. febrúar 1992 er að finna yfirlit yfir rannsóknir starfsmanna hennar. Þegar kemur að því að tíunda rit- störf Björns, sem er einn þessara starfsmanna, er ritverkið „Ný námsskrá fyrir lagadeild" á rita- skrá hans fýrir umrætt tímabil. Þó að ritaskráin sé fremur rýr að vöxtum •— þar eru aðeins nefnd tvö önnur verk, smágrein í Frétta- bréfi Hf og erindi um geimrétt sem flutt var á fúndi Rotaryklúbbs Hafnarfjarðar — hlýtur það að vekja furðu að Björn skuli flokka greinina undir hið virðulega heiti ritstörf. Nú má vel vera að þetta sé enn einn brandarinn frá Birni, en ef svo er ekki er töluverð ástæða til að óttast um ffamtíð fræðaiðkun- ar á íslandi. Hér á eftir fer umrædd grein Bjöms. Ný námsskrá fyrir lagadeild Á þeim gífurlegu samdráttar- og raunar svartnættistímum, sem hófúst með valdatöku ríkisstjóm- ar okkar og standa munu svo lengi sem okkur sýnist, verðið þið að gjöra svo vel og spara, helvítin ykkar. Á grundvelli neyðaráætlunar ríkisstjórnarinnar er yður því send hér með ný námsskrá fyrir lagadeild Háskóla fslands sem yð- ur ber að fara eftir í hvívetna, ella verðið þér einfaldlega reknir, eða a.m.k. sviptir launum (enda raun- ar nóg af þessum lögff æðingum í þjóðfélaginu). Námsskrá Sifjaréttur: Einungis skal lesa um skilnað að borði og sæng en sleppa lögskilnaði. Erfðaréttur: Lesa skal um óskipt bú, en sleppa öllu um búskipti. Persónuréttur: Sleppa í heild sinni. Stjómskipun- arréttur: Sleppa skal kaflanum um ráðherra og ráðherraábyrgð. Ekki skal lesa um mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar fyrst um sinn. Stjórnsýsluréttur: Sleppa, enda engin almenn stjórnsýslulög til. Réttarfar: Nemendur skulu halda sig við eldra lesefúi, engir pening- ar eru til að kosta útlistun á nýju dómstólaskipuninni, enda settum við ekki þau lög. Fjármunaréttur: Kaflann um samninga, einkum slit þeirra, skal lesa lauslega, enda ekki praktískt. Refsiréttur: Lesa skal um tilraun til nauðgunar, en sleppa fullframningu brots. Rétt- arsaga:. Lesa skal efnið fram til 1500, en sleppa því sem á eftir kemur. Kandídatsritgerðir: Þang- að til öðruvísi verður ákveðið skulu þær ekki vera lengri en 31/2 blaðsíða. Próf: Minnka skal ein- kunnaskalann um helming, þann- ig að aðeins verði gefið frá 0-5. Þetta tilkynnist yður hér með til eftirbreytni. F.h. rikisstjómarinnar Davíð Oddsson, cand.jur. Þorsteinn Pdlsson, cand.jur. FriðrikSophusson, cand.jur. ÚlafurG. Einarsson, cand.jur. HcdldórBlöndal stud.jur. Er ofbeldi að aukast í íslensku samfélagí? „Já, samkvæmt reynslu okkar sem störfum hjá Stígamótum virðist ofbeldi í öllum sínum myndum vera að aukast. Þar á ég meðal annars við ofsóknir, kyn- ferðislegt ofbeldi gagnvart börn- um, konum og ofbeldisverk inni á heimilum. Það vekur athygli að þó að tilkynningum til okkar um ný mál hafi fjölgað jafnt og þétt samfara meiri fræðslu og opnari umræðu um ofbeldi erum við með fjölmörg gömul mál til með- ferðar. Ofbeldi hefur einnig orðið grófara og grimmdarlegra á síð- ustu árum og það færist sífellt í vöxt að líkamleg valdbeiting sé notuð á skipulagðan og fyrirfram ákveðinn hátt.“ „Já, svo virðist sem tíðni of- beldisverknaða og grófleiki þeirra hafi aukist hin síðari ár. Ég vil þó leggja áherslu á orðið „virðist“, því ekki er unnt að svara spurn- ingunni af neinni skynsemi nema styðjast við heildstæða rannsókn á þróun ofbeldisafbrota hér á landi. Slík rannsókn liggur ekki fyrir. I nýlegri skýrslu fangelsis- málanefndar kemur þó fram, að að minnsta kosti er ekki lát á óskilorðsbundnum refsivistar- dómum vegna ofbeldisbrota, um aukningu sýnist heldur vera að ræða. Rétt er þó að geta þess að skýrslan, og þar með haldbærar upplýsingar um ofbeldi, nær að- eins til þeirra ofbeldisverknaða sem leiða til afplánunar dóma. Þess utan eru fjölmörg ofbeldis- verk sem aldrei eru kærð eða lok- ið er á lögreglustigi með dómsátt eða skilorðsbundnum dómum. Þar sýnist mér allt benda til aukn- ingar. Mín tilfinning er sú, að minni „tolerans" sé í þjóðfélaginu nú en áður og margir eru þeirrar skoðunar, að samskipti fólks séu átakameiri og meiri harka ríki. Hins vegar má velta því fyrir sér hver ástæða þess sé. f því sam- bandi má nefna aukna fíknefna- neyslu, kröfuhörku, vonleysi og meira bil á milli þeirra sem meira mega sín og þeirra er minna hafa handa á milli, og svo framvegis." Guðmundur Guðjónsson yfirlögreglu- þjónn „Það er ljóst að til dæmis á síð- ustu árum hefur áfengisneysla aukist og nýir, hættulegir og of- beldisskapandi vímugjafar komið til sögunnar og skal þar helst nefna kókaín og amfetamín. Þetta út af fyrir sig segir að ofbeldi hljóti að hafa aukist, enda hafa margar vísindarannsóknir sýnt fram á mjög sterk tengsl þarna á milli, ekki síst varðandi alvarlegri ofbeldisverldn. Á allra síðustu ár- um hefur dregið úr ofbeldisverk- um á almannafæri, og þá helst í miðborg Reykjavíkur þar sem gjörbreyting hefur orðið til batn- aðar. Þetta segir hins vegar ekki að fólk hafi minni tilhneigingu til ofbeldis, heldur hitt að aukin og skilvirkari löggæsla á mestu hættutímum, þ.e. að kvöld- og næturlagi um helgar, hefúr haldið þessu niðri. Ofbeldisverk í heima- húsum eru aðaláhyggjuefnið, bæði vegna þess að þar eru lang- flest alvarlegustu ofbeldisverkin framin og eins, að þarna hefur lögreglan oft minnsta möguleika til fyrirbyggjandi aðgerða. Hér hefúr orðið aukning á.“ „Það veit ég ekki með vissu, því að spurningin krefst í raun viðamMlar þekkingar á tíðni og eðli ofbeldis og ofbeldisglæpa hér á landi. Hins vegar virðist mér sem afbrotum þar sem ofbeldi, oft tilhæfúlausu, er beitt fari fjölg- andi. Án ítarlegrar rannsóknar er erfitt að segja til um hvort ofbeldi sé að aukast, þ.e. sé algengara nú en áður. Hins vegar sýnist mér að ofbeldisverknaðir séu að verða grófari í eðli sínu en oft áður.“ Að gefnu tilefni er bent á, að þumlarnir eru ekki einkunn blaðamanns fyrir svör viðmælenda, heldurdraga saman inni- hald svaranna.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.