Pressan


Pressan - 27.08.1992, Qupperneq 37

Pressan - 27.08.1992, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. ÁGÚST 1992 37 LÍFIÐ EFTIR VINNU „Flosi og Pops eiga klístraðan sprett í „Ó Ijúfa líf"; eru mátulega halló fyrir hlutverkið. Pops eru meira að segja farnir að æfa aftur og spila örugglega Wild Thing við geggjaða hrifningu á næstunni," segir Gunnar Hjálmarsson í gagnrýni sinni um tónlistina úr kvikmyndinni Veggfóðri. Ein með nœst- um því öllu ÝMSIR FLYTJENDUR VEGGFÓÐUR KVIKMYNDAFÉLAG ÍSLANDS ★★★ Tónlist úr kvik- myndum hefur ekki verið vinsælt útgáfuefni hér í fámenninu. Nýj- ustu bíómyndirnar eru þó flestar hlaðnar poppi svo á næstunni má búast við tónlist úr myndunum Sódómu-Reykjavík, Stuttum frakka og kannski fleiri myndum. Tónlistin úr Veggfóðri var komin á markaðinn nokkrum mánuðum áður en myndin kom í bíó og sýn- ir það markaðslega kænsku að- standenda. Máni Svavarsson er skrifaður fyrir tónlistinni og kemur vinna hans mjög vel út; hún sýnir tíðar- andann, býr til stemmur og er al- gjörlega laus við allt byrjandafum þótt þetta sé fyrsta myndin sem hann semur við. Máni hefur verið að í bílskúrum borgarinnar síðan í byrjun síðasta áratugar og náð pottþéttu valdi á þeim raftólum, hljómborðum og dóti sem hann notar. Síðustu árin hefur hann gert út dansbandið Pís of keik ásamt Júlla Kemp og Ingibjörgu Stefáns. Máni og Pís of keik eiga tíu af átján lögum plötunnar og koma mjög skemmtilega út þegar best lætur; í lögum eins og „Arás“, „Dulbúin orð“ og „Fiðrildi og ljón“. Önnur verk standa þó á hálfgerðum brauðfótum svona ein og sér og ná ekki að valda miklum usla. Máni er dálítið mjúkur í sköpun sinni en getur þó kreppt hnefann þegar með þarf, eins og í t.d. í pervertastefi Sveppa. Það stef er ekki á plöt- unni, sem er synd, því þar tekst Mána einna best upp; undirstrik- ar ótuktarskap persónunnar full- komlega. Af öðrum lögum er gáfu- mannapopp Orange Empire einna eftirminnilegast. Þeir félag- ar eru að vísu hættulega „enskir“ í stíl, en það verður spennandi að heyra meira með þeim. Tónleika- upptökur af poppi Sálarinnar, Sólarinnar og Todmobile eru ágætar og einnig „Kinky“ með Tönnunum hans afa. Þar er á ferð fínt hörkurapp og textinn er snið- inn fyrir óspjallaða gelgju landsins og lagið þegar orðið vinsælt í barnatímunum. Geiri Sæm. syng- ur „Jörð“ á ensku og gerir vel; hvernig er þetta með piltinn, fer hann ekki að verða heimsffægur? Flosi og Pops eiga klístraðan sprett í „Ó, ljúfa líf‘; eru mátulega halló fyrir hlutverkið. Pops eru meira að segja farnir að æfa aftur og spila örugglega Wild Thing við geggjaða hrifningu á næstunni. Hinir látnu Bootlegs bæta svo engu við hinn ofnotaða Pink Floyd-slagara „Another Brick in the Wall“, nema mæðulegum flutningi í handónýtum hljóm. f heild má segja að Veggfóðurs- platan sé ágætur skyndibiti eins og bíómyndin. Hún kynnir til sög- unnar Mána Svavarsson, sem vonandi fær önnur verkefni bráð- lega, því hann er upprennandi bíótónskáld með stíl og metnað atvinnumannsins. Gunnar Hjálmarsson Skápar sem geyma sjálfa sig DONALDJUDD ÖNNURHÆÐ Donald Judd er einn virtasti myndlistarmað- ur Bandaríkjanna í dag og heimsþekktur, en hvort hann er að sama skapi ást- sæll er önnur spurning. Verkin hans eru ekki eftirmyndir neins, tjá ekkert, kalla ekki á tilfinninga- ríka innlifun eða höfða til ímynd- unaraflsins. En vegna þess að þetta er einmitt það sem flestir ætlast til af myndlist verða menn oft fyrir vonbrigðum með verk hans. Judd og aðrir „mínimalist- ar“ hafa því oft vakið hörð við- brögð eða a.m.k. verið litnir hom- auga. Þær raddir hafa heyrst að þeir eigi ekki skilið fr ægðina og at- hyglina, auk þess sem frægð þeirra sé dæmi um hversu firrtur og vitlaus myndlistarheimurinn sé orðinn. Þrívíðir smíðisgripir Judds eru „bókstaflega“ það sem þeir virðast vera og hannaðir með það í huga að útiloka alla óeiginlega og tákn- ræna merkingu. Verkin vísa ekki út fyrir sig í heiminn, nema þá í önnur verk listamannsins og í verk þeirra listamanna sem hafa fengist við sama viðfangsefni í myndlist - þ.e. að skapa verk, þar sem form og inntak renna saman í eitt. Frægð Judds byggist m.a. á því, að hann var í fararbroddi þeirrar kynslóðar myndlistar- manna á sjöunda áratugnum, sem gerðu hugmyndina um „bókstaf- leg“ verk áþreifanlega og varan- lega. En hvers vegna ætti slík mynd- list að þykja eftirsóknarverð? Af tveimur ástæðum. Önnur ástæð- an er listasögulegs eðlis: Með því að forðast ytri skírskotanir er ver- ið að skerpa vitundina um hin raunsönnu viðfangsefrii myndlist- ar, þ.e.a.s. það sem myndlistin ein fær áorkað. Verkin reiða sig ekki á nein hjálparmeðul, sem eru myndlistinni sjálfri ekki eiginleg. Hin ástæðan varðar mikilvægi einingar í myndlist. „Allir eru sammála um að eining sé nauð- synleg í myndlist. En um allt ann- að eru menn ósammála," hefur Judd skrifað. Judd er Itklega þeirr- ar skoðunar að eftirlíking og tákn- ræn merking veiki einingu verks- ins. Enda má yfirleitt segja að hann forðist að flækja verkin að óþörfu. Hann forðast allt sem á ekki heima í verkinu og bætir engu við nema að vel yfirlögðu ráði. Þau eru frekar einföld að allri gerð, samanþjappaðar einingar, skýrt afmarkaðar og reglulegar. Nú gefst tækifæri á að skoða verk eftir Judd í sýningarsalnum Annarri hæð. Aðeins þrjú verk eru til sýnis, en hér fara gæði ekki eftir magni. Verkin eru í minni kantinum, tvö eru gerð úr kross- viði og eitt úr máluðu áli. Þeim sem vel þekkja til Judds ætti ekki að koma neitt á óvart í þessum verkum, en enginn ætti að vera svikinn af þessari sýningu og það er aðdáunarvert ffamtak af einka- aðila að standa að sýningu sem hlýtur að teljast á alþjóðlegum mælikvarða. Gunnar Arnason Elskhugi lafði Chatterley D.H. LAWRENCE: ELSKHUGI LAFÐICHATTERLEY ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF. 1992 ★★★★ „Ég held að líf líkam- ans sé meiri veruleiki en líf hugsunarinnar,“ segir lafði Chatterley við eigin- mann sinn eftir að hafa haft vel heppnaðar samfarir við veiðivörð- inn ástmann sinn. Frá getulausum eiginmanni sínum fær hún svarið: „Líf líkamans er bara líf dýranna." En maðurinn er eitt af dýrun- um, kynhvötin ein af frumhvöt- unum og henni ber ekki að afneita því sá sem afneitar eðli sínu svíkur það sem mestu skiptir segir Lawr- ence í þessari ögrandi predikunar- bók. Ög ég nefni hana predikun- arbók því mér virðist að þetta al- ræmda verk Lawrence sé einmitt eins konar trúarrit og stefnuyfir- lýsing manns sem upphefur og Framhald og meira afgagnrýni á siðu 39. „Frægð Judds byggist m.a. á því, að hann var í fararbroddi þeirrar kynslóðar myndlistarmanna á sjöunda áratugnum, sem gerðu hug- myndina um „bókstafleg" verk áþreifanlega og varanlega," segir Gunnar Árnason í umfjöllun sinni um sýningu Judds. 18.00 Fjörkálfar. 18.30 Kobbi og klíkan. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Auðlegð og ástríður 1:168. Púff. 19.30 ★ Sókn í stöðutákn. Breskt grín. 20.00 Fréttir. 20.35 Blóm dagsins. Klóelfting. Gott í te. 20.40 ★★★ Til bjargar jörðinni. Fjallað um eyðingu og urðun sorps. 21.35 ★★ Upp, upp mín sál. Hvítt fólk, blökkumenn, ástir og fullt af vandamálum í Suðurríkjunum. 22.25 ★★ Úrfrændgarði. Norðurrúnturinn. 23.00 Fréttir. 18.00 Sómi kafteinn. 18.30 Ævintýri í óbyggðum. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Magni mús. Teiknimyndaflokkur. 19.25 ★ Sækjast sér um líkir. 20.00 Fréttir. 20.35 Blóm dagsins. Hrafnafífa. 20.40 ★★ Leiðin til Avonlea. Konur fíla þetta vel. Minnir þær á þegar þær voru stelpur. 21.30 ★★ Matlock. Leysir vandann. 22.20 ★★ Fórnarlamb. Fyrri hluti Small Sacrifices. Amerísk. Hjónakornin Farrah Fawcett og Ryan O'Neal hafa vonandi bætt hjónalífið með þessari mynd. Óhugn- aður. Myndin er ekki við hæfi Bjarna LAUGARDAGUR 14.00 íslenska knattspyrnan. Lokabarátta Samskipadeildar- innar. 16.00 Iþróttaþátturinn. Logi Bergmann Eiðsson einn á ferð. 18.00 Múmínálfarnir. Hugljúft. 18.25 Bangsi besta skinn. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Draumasteinninn. Lokaþáttur. 19.20 H Kóngur í ríki sínu. Lokaþáttur. Vhei. 19.52 Happó. 20.00 Fréttir. 20.35 Lottó. 20.40 Blóm dagsins. Gullkollur. Nú ekki Glókollur! 20.45 í syngjandi sveiflu. Gestur Einar ræðir við Geirmund Valtýsson from Sheep-river-hook. Tveir góðir saman. 21.10 ★ Hveráaðráða? 21.35 ★★ Við njósnararnir. Spies like us. Amerísk, 1985. Chevy Chase getur verið óborganlegur, Dan Aykroyd einnig. Þeir eru seinheppnir sem fyrri dag- inn og nú sem njósnarar. Þokkalegt grín, sérstaklega gott við þynnku. 23.15 Fórnarlömb. Seinni hluti. Nú ræðst hver drap hvern. 17.50 Sunnudagshugvekja. 18.00 Ævintýri úr konungsgarði. 18.30 Fyrsta ástin. Sænskur myndaflokkur um tvo smá- drengi, — annar þeirra verður skotinn í heyrnarlausri stúlku. Svíar kunna svonalagað. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 BernskubrekTomma og Jenna. 19.30 H Vistaskipti. Þreytt. 20.00 Fréttir. 20.35 Sjö borgir. Sigmar B. skreppur til Helsingfors. Sigmar er víðförull og lífgar borgirnar við. 21.10 ★ Gangur lífsins. Væmið. 22.00 M-hátíð á Suðurlandi. Svolítið þreytt fyrirbæri. 23.30 Timburfólk Pueblo de madera. Spænsk/mexíkósk. Um timburfólk sem fær timburmenni á fullorðinsárunum þegar basl og fátækt tekur við. i^TTFll :■ 'Hl'J— 17.00 Samskipadeildin. íslandsmótið í fótbolta. 18.00 Smásögur. Kynningarkvöld á undirfatnaði hjá hópi kvenna. Karlar horfiði, svo þið vitið hvað á að gefa konunum íjólagjöf. ■RKnXEnXTOBM 17.00 Konur í íþróttum. Konur sem komast til metorða inn- an íþróttahreyfingarinnareins og Ellertína Schram? 17.30 Háðfuglar. ComicStrip, breskt. Hví eru öngvir háðfisk- artil? 18.00 List 20. aldarinnar. Forstjóri Metropolitian Museum kynnir meðal annars Pablo Picasso, Matisse og O'Keeffe. Aldrei er góð vísa of oft kveðin. VIÐ MÆLUM MEÐ ... Að hver íslenskur leikari leiki að minnsta kosti þrjú aðalhlutverk í hverri mynd, eins og Richard Pryor. Þá er möguleiki á því að kvikmynda- iðnaðurinn standi undirsér. ... Að Warren Beatty og Dustin Hoffman fari í leikbann. ... Að Woody Allen skipti um aðalleik- konu í myndunum sínum en haldi áfram að leika sjálfan sig. ... Að Gestur Einar og Geirmundur Valtýs- son fari í eina kveðjusöngferð hring- inn í kringum landið. 16.45 Nágrannar. 17.30 í draumalandi. 17.50 Æskudraumar. 18.40 Feldur. 19.19 19.19. 20.15 Fótboltaliðsstýran. Gamlir þættir byrja upp á nýtt. Og hvað með það? 21.10 Hesturinn, skaparans meistaramynd. Snjallir knapar á glæstum hestum í Fáksheimilinu. 22.00 ★★ Virðingarvottur. Vestige of Honour. Amerísk, 1990. Stríðshetjan Don Scott fær bakþanka 17 árum eftir Víetnamstríðið og bjargar 213 Víetnömum. 23.30 ★★ Ódæði. Unspeakable Acts. Amerísk. Afar sorglegt um hjón sem komast að því að börn þeirra hafa ver- ið misnotuð á barnaheimili einu, þó ekki af Woody Allen. Jill Clayburgh og Brad Davis leika sorgmæddu hjónin. 16.45 Nágrannar. 17.30 Krakkavísa. E 17.50 Á ferð með New Kids on the Block. 18.15 Trýni og Gosi. 18.30 Erie Indiana. 19.19 19.19. 20.15 HKæri Jón. 20.45 ★★ Lovejoy. Fornmunasalar eru sjarmerandi stétt. 21.40 Samskipadeildin. Sextánda umferð, Valur og Þór og KA og UBK. 21.50 ★ Dýrðardagar. Glory days. Amerísk, 1988. Miðaldra auðjöfur með æskudrauma: ameríska æskudrauma. Hann skráir sig í háskóla og langar að verða ruðn- ingsstjarna, sennilega kominn á þverslaufuna. 23.25 0 Glímugengið. American Angels. Léleg mynd um ægifagrar konur sem hafa atvinnu af fjölbragða- glímu. Konur í fjölbragðaglímu er í sjálfu sér er áhugavert efni. 01.00 ★★ Um aldur og ævi. Always. Amerísk, 1985. Væmin vella með alls óþekktum leikurum og fjallar um hjónabandið sem er að verða útdautt.E L A U G A R D A GUR 09.00 Morgunstund 10.00 Hrossabrestur. 10.30 Krakkavísa. 10.50 Brakúla greifi. 11.15 Ein afstrákunum. 11.35 Mánaskífan. 12.00 Landkönnun National Geographic. 12.55 Bílasport. E 13.25 Visasport. E 13.55 ★ Keppt um kornskurð. Race Against Harvest. Amer- isk, 1986. Bændur og gjaldþrot ná út fyrir ísland. Myndin fjallar um alvöru storm sem eyðileggur upp- skeru og gerir bóndann gjaldþrota, ekki síst vegna offjárfestingar hans í vélabúnaði. Hafiði heyrt þenn- an áður? 15.25 ★ Jólaleyfið. Some girls. Amerísk, 1989. Þeir hefðu get- að beðið með þessa svona fram í nóvember. Um mann sem fer til Kanada og kynnist kyndugri fjöl- skyldu. Ætli það sé ekki vegna þess að hún heldur jól í ágúst, 16.50 Létt og Ijúffengt. Matreiðsluþáttur. 17.00 Glys. 17.50 Samskipadeildin. ÍBV-Fram, Víkingur-ÍA og FH-KR. 18.00 Nýmeti. 18.40 ★★ Addams-fjölskyldan. 19.19.19.19. 20.00 ★ Falin myndavél. 20.30 O Ishtar. Amerísk, 1987. Einhver misheppnaðasta stór- mynd allra tíma með þeim Warren Beatty, Dustin Hoffman og Isabellu Adjani. Vonandi fer hún betur á sjónvarpsskjánum en hvíta tjaldinu. 22.15 Bandarísku tónlistarverðlaunin 1992. American Music Awards 1992. INXS, M.C. Hammer, GUNS N'ROSES og fleiri góðar grúppur koma fram. Mikið um væmnar þakkarræður. 00.50 ★ Sjafnaryndi Two Moon Junction. Amerísk, 1988. Losti og líkamsvessar með kynþokkafullu leikkon- unni Sherilyn Fenn, sem lék í Tvídröngum. Fín fyrir svefninn. E S U N N U D A G U R 09.00 Kærleiksbirnir. 09.20 össi og Ylfa. 09.45 Dvergurinn Davíð. 10.10 Prins Valíant. 10.35 Maríanna fyrsta. 11.00 Lögregluhundurinn Kellý. 11.25 Kalli kanína. 11.30 í dýraleit. 12.00 Eðaltónar. 12.30 Hvað snýr upp? Wich Way is Up? Amerisk 1977. Ri- chard Pryor leikur þrjú aðalhlutverk í þessari mynd. Geri aðrir betur. E 14.05 'Anthony Quinn. Heimildamynd um manninn sem lék meðal annars Grikkjann Zorba. Myndskeið og viðtöl við Quinn. 15.20 ★★★★Vinstri fóturinn. My Left Foot. Bresk, 1989. E Einstök mynd um einstakan mann. Hinn kynþokka- fulli Daniel Day-Lewis fer á kostum í túlkun sinni á fatlaða rithöfundinum Christy Brown, enda fékk hann Óskarinn að launum. Hann er þó alls ekki kyn- þokkafullur í þessari mynd. 17.00 Listamannaskálinn. Meðal annars um Evelyn Glennie, sem náð hefur ótrúlegum árangri sem slagverksleikari. 18.00 ★★★ Petrov-málið. Fjórði þáttur. Petrov þessi var sovéskur diplómati sem leitaði hælis í Ástrallu. Það varð kveikjan að njósnamáli sem kom illa við kaunin á þekktum stjórnmálamönnum. Gaman, gaman. 18.50 Gerð myndarinnar Alien 3. 19.19 19.19. 20.00 ★ Klassapíur. Leiðinlegar amerískar kerlingar. 20.25 ★★ Root fer á flakk. Breskur gamanmyndaflokkur um furðufugl sem er sjálfskipaður útvörður breskrar menningar, sendiherra án sendiráðs. 21.20 ★★ Arsenio Hall. Meðal gesta MC Hammer og Ther- esa Russel, eða svarta ekkjan. 22.05 Minnismerkið. To heal a Nation. Amerisk. Hermaður frá Víetnam er níðingur í augum samborgara sinna. Það furða sig fáir á því. 23.40 Bágt á Buder. Biues forBuder. Burt Reynolds, sem á að heita kyntröll, fer með léttspennandi hlutverk í þess- um blús. E ★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt © Ömurlegt E Endursýnt efni

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.