Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 31

Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 31
Fimmtudagurinn 18. mars 1993 11. tb. 4. árg. HAFA SKAL mJKjPJ JET £* fijf yi fl zsr I —-'7 a.-í, —Ti AJ m Hf B B msmm ^ÉSP^ ■ B an SEM BETUR HLJOMAR Draugagangur kveðinn niður á Litla-Hrauni DRAUKMN VAR EKKI FRAMUBINN HELDUR FANGI SEM TAUD VA AD HEFfll STR ARIÐ1954 Ætlaði að flýja en komst ekki lengra en niður í kjallara, þar sem hann faldi sig í 39 ár. Stokkseyri, 18. mars. „í fyrstu var ég viss um að þetta væri draugur. Það var ekki íyrr en við höfðum spjallað saman um stund að ég tók eftir því að hann drakk kaffi. Þá áttaði ég mig á að draugar þurfa ekki að nærast og enn síður þurfa þeir kaffi til að halda sér vakandi,“ segir Jane Wilkinson, breskur miðill sem fenginn var til að kveða niður draug á Lida-Hrauni. Draugurinn reyndist ekki vera framliðinn heldur sprelllifandi. Daníel Hinriksson var dæmdur til fímm mánaða fengelsisvistar árið 1954. Eftir að hafa afplánað tvo mán- uði hvarf Daníel sporlaust og var talið að hann hefði strokið. Þrátt fyrir mikla leit fannst hann ekki. Almennt var álitið að hann hefði flúið land. Nú er hins vegar komið í ljós að Daníel flúði aldrei úr fangelsinu held- ur faldi sig þar í kjallaranum og hafð- ist við í þvottahúsinu um nætur. Eng- inn varð var við hann fyrstu áratugina en hin síðari ár hafa fangar og fanga- verðir orðið varir við umgang í kjall- aranum og sumir jafnvel talið sig hafa séð mannsmynd þar á sveimi. „Svo virðist sem hann hafi orðið kærulausari með aldrinum," segir Grétar Agnarsson fangavörður, en hann hefur rætt við Daníel eftir að hann náðist. Óvíst er hver verða örlög Daníels þar sem dómstólar þurfa að meta hvort það telst strok að fela sig í kjall- ara fangelsis. Ef það verður niður- staða þeirra verður Daníel líklega dæmdur til fimm mánaða fangelsis til viðbótar og skiptir þá engu þótt hann hafi setið um 39 árum lengur inni en hann var upphaflega dæmdur til. Listi GULU PRESS- UNNAR yfír ríkustu íslendingana EIRISTÆÐ MÓÐ- IR í BREIÐ- HOLTIRÍKUST ÍSLENDINGA Skuldar aðeins eina greiðslu af Daihatsuinum sínum og er þremur mánuð- um á eftir með hússjóðinn Reykiavík, 18. mars.__ .Xblaðsíðu 36 í GULU PRESS- UNNI í dag er listi yfir fjörutíu rík- ustu íslendingana. Nýrri aðferð er beitt að þessu sinni. Heildarskuldir hvers um sig eru dregnar frá eignum hans. Niðurstaðan er nokkuð óvænt. Enginn fslendingur reyndist í raun eiga nokkurn skapaðan hlut og sá ríkasti skuldar tæpar 250 þúsund Sighvatur Björgvinsson birtist á miðilsfundi Reykjavík, 18. mars. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra birtist óvænt á miðilsfundi Þórhalls Guð- mundssonar hjá Sálarrannsókn- arfélaginu á mánudagskvöld og reyndi að skýra stefnu sína í heil- brigðismálum. Hann hætti ekki fyrr en áhorfendum tókst að vekja Þórhall og hurfu þá bæði rödd Sighvats og mynd. „Þetta var óhugnanleg lífs- reynsla,“ segir Þórhallur. „Þetta var allt öðru vísi en þegar ffamliðnir tala í gegnum mig. Mér líður ennþá hálf- partinn eins og ég sé Sighvatur og það er alls ekki þægilegt.“ „Við erum búin að fá nóg af þess- um ráðherrum,“ segir Unnur Er- lingsdóttir, einn gestanna á fundin- um. „Þeir eru í sjónvarpinu, útvarp- inu, blöðunum og alls staðar vilja þeir vera í aðalhlutverki. Mér finnst hins vegar fyrir neðan allar hellur þegar þeir troða sér fram fýrir hina framliðnu á miðilsfúndum." Hildur Njálsdóttir, 36 ára einstæð móðir í Breiðholti, er ríkust núlif- andi fslendinga með nettóeign upp á 243.765 krónur í mínus. krónur. „Það bendir margt til þess að hver íslendingur um sig hafi ákveðið að fara færeysku leiðina hvað svo sem stjórnvöld ætla sér,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar. „Guð, auðvitað kom þetta mér á óvart,“ sagði Hildur Njálsdóttir þeg- ar henni var sagt að hún væri ríkust íslendinga. „Ég mun svo sannarlega ganga hnarrreist um göturnar eftir þetta. Ég hélt ég væri einhver bölv- aður aumingi." Miðaldra maður í Garðabæ Stefnir pizzukokki fyrir Hæstarétt fyrir að láta sardínur á pizzuna sína Hafnarfirði, 11. mars. Hinrik Rúnarsson, mið- aldra maður úr Garðabæ, ætlar ekki að láta deigan síga í deilu sinni við Pálmar Ingvarsson pizzukokk. Eftir að héraðsdómur Reykja- ness sýknaði Pálmar af | kæru um að hafa vísvitandi látið sardínur á pizzu Hin- riks hefur Hinrik ákveðið að áfrýja málinu til Hæsta- réttar. „Ég læt engan setja sardínur á pizzuna mína og komast upp með það,“ segir Hinrik. Hann segist fara með málið fyrir Mannréttindadómstólinn í Haag ef Hæstiréttur tekur kröfúr hans ekki til greina. „Málsmeðferðin í Hafnarfirði var hneyksli. Ég spurði dómarann hvort hann æti sardínur og hann játti því. Hvernig á hann þá að geta séð mína hlið málsins? Mér finnst sardínur ógeðslegar.“ Hinrik Rúnarsson segist ekki trúa því að allir fimm dómarar Hæstaréttar éti sardínur. Konráð segist hafa reykt úti á svölum frá því honum var bannað að reykja inni snemma siðastliðið haust. „Þetta hefur vanist ágætlega þótt það hafi stundum verið helvíti hart í verstu veðrunum í vetur." 45 ára karlmaður í mál við húsfélag Var á húsfundi bannaö að reykja úti á svölum „Mér er bannað að reykja í vinnunni, ég má ekkireykja á badmintonæfingum, konan bannaði mér að reykja heima og því segi ég hingað og ekki lengra, " segir Konráð Frið- bertsson úrsmiður. Reykjávík, 18. mars, Konráð Friðbertsson úrsmið- ur hefúr farið í mál við húsfélag- ið í stórhýsi við Sólheima efitir að honum var bannað að reykja úti á svölum á húsfundi þar fyrir skömmu. „Ég get ekki séð hvað nágrönnunt mínum kemur við hvað ég geri úti á svölum,“ segir Konráð. Hann segist neyddur til að reykja á svölunum eftir að konan bannaði honum að reykja inni hjá sér. Konráð segir að sér hafi líka verið bannað að reykja í vinnunni, á badmintonæfingum og um daginn hafi maður meira að segja fundið að því að hann reykti á leið niður eina af skíðabrekkunum í Bláfjöllum. „Það fáránlegasta er að sumir af þessum nágrönnum eru sífellt að grilla einhverjar sinar og fitutægjur á útigrillunum á svölunum sínum,“ segir Konráð og segir lyktina stund- um óbærilega. „Samkvæmt húsreglum er bann- að að hengja út þvott á svalir húss- ins. Það er gert af sjónmengunar- ástæðum. Sömu ástæður liggja að baki reykingabanninu," segir Hreinn Viðarsson, formaður húsfé- lagsins. „Það er ekki lyktin eða reyk- urinn sem við finnum að. Við kær- um okkur einfaldlega ekki um að vera oftar spurð að því hvort við bú- um í blokkinni þar sem kallinn er úti á svölum að reykja.“ Áhugi banda- rískra sjónvarps- stöðva á Gray- son-málinu DÓMARAR í HÆSTARÉTTI FÁ NÝJAR SKIKKJUR Eðlileg endurnýjun, - segir rétturinn. Hé- gómi og bruðl, - seg- ir ráðuneytið. Reykjavik, 18. mars. Nýju skikkjurnar eru hannaðar að breskri fyrirmynd. Hæstiréttur hefur látið hanna nýjar skikkjur á dómar- ana. Skikkjurnar er hannaðar og saumaðar á Bretlandi að breskri fyrirmynd. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR hef- ur dómsmálaráðuneytið gert athugasemdir við þessi kaup. Sömu heimildir , segja að dómararnir hafi réttlæt kaupin með þeirri athygli sem Grayson- málið eða ’svokallað ' barnsránsmál ?i:’ hefur vakið er- lendis.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.