Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 18

Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 18
BROT UR POPPSOGUNN 18 PRESSAN Fimmtudagurinn 18. mars 1993 OF STORIR FYRIR ÍSLAIVD Mistök urðu i uppsetningu í síðasta blaði á grein Gunnars Hjálmarssonar um frægðar- drauma íslenskra poppara. Seinni helminginn vantaði á greinina; akkúratþegar fjör var að færast í leikinn eftir mislukkaðar tilraunir Hljóma, sem hétu Thor's Hammer í útlandinu. En nú erkomið að Change, Pelican og öðrum meiri spámönnum. Change sigra heim- inn — ekki Árið 1973 fóru Jakob Magn- ússon, Tómas Tómasson og Þórður Ámason til London og ætluðu að reyna fyrir sér með hljómsveitina Rifsberja. Um sama leyti fóru fóstbræðurnir ús og Jóhann til Englands, svo ^ úr varð hópur íslenskra popp- ara í Lundúnum. Magnús og Jó- hann höfðu fengið samning hjá Orange-fyrirtækinu og var sagt að drífa sig út svo hlutimir gætu farið að ganga. Orange var reyndar aðallega framleiðandi hljómburðartækja — og í dag eru gamlir magnarar frá þeim vinsælir hjá enskum böndum sem vilja endurvekja glysrokkið — en plötuútgáfan var aukabú- grein hjá þeim. f fyrstu störfuðu Magnús og Jóhann undir nafninu Pá Brothers en þegar á leið smöl- uðu þeir félögum sínum í Eng- ^landi saman í band og úr varð hljómsveitin Change. Birgir Hrafnsson og Sigurður Karlsson gengu í bandið, en síðar slógust Björgvin Hall- dórsson, Jakob og Tómas í hópinn. Jón Ólafsson Skífu- kóngur — þá framkvæmda- stjóri „Joke“-umboðsskrifstof- unnar — var einnig viðloðandi bandið sem útréttari. Jakob hætti fljótlega en Tómas hélt út, enda búinn að reyna ýmislegt í enska bransanum og því vænt- anlega feginn að komast í hóp fslendinga. Tómas hafði m.a. gengið í hljómsveitina KISS, að vísu ekki þá máluðu, þótt ef- laust hefði Tómas getað rekið út úr sér tunguna eins og Gene Simmons. Á þessum tíma stóð orku- kreppan sem hæst og Orange- fyrirtækið sagði öllum hljóm- ,sveitum sínum upp nema Change og John Miles Set. Fyr- irtækið lagði nokkra fjármuni í Change og var búist við að pen- ingarnir kæmu „margfalt til baka þegar plöturnar fara að seljast í risaupplögum“ — eins og lesa má um í Morgunblaðinu 1974. Félagarnir lögðust í æfing- ar og upptökur og urðu brátt þekktir hjá breskum upptöku- og sessjónmönnum sem „The girls from Iceland“ af augljós- um ástæðum. Tónlistin var syk- ursæt sápukúlutónlist og tíðar- andinn glysgjarn svo allt leit út fyrir að piltarnir mundu meik- aða. Loksins kom út tvöfaldur smáskífupakki en viðtökur voru vondar, salan dræm og dómar frekar neikvæðir. Aftur var reynt með breiðskífu (þessari með frosna plötuspilaranum ffaman á) en allt kom fyrir ekki; Englendingar höfðu bara ekki áhuga — jafnvel þótt Change- menn klæddu sig upp í æðisleg- ustu hljómsveitargalla sem um getur. Ekki bætti úr skák að hljóm- sveitin fékk aldrei tilskilið at- vinnuleyfi til tónleikahalds og var því í hálfgerðri biðstöðu þau tæplega tvö ár sem á ævintýrinu stóð. Þegar ljóst varð hvert stefndi tímdu Orange og Jón „Joke“ ekki lengur að setja pen- inga í fýrirtækið og Change hætti síðla árs 1975. Pelican og sveittu ístrubelgirnir Á meðan „stelpurnar frá ís- landi“ skræktu fyrir daufum eyrum á Englandi tryllti Pelic- an æskuna hér heima. Sveitin var stofnuð upp úr þremur hippasveitum, Náttúru, Ice- cross og Svanfríði, og drottn- aði yfir öðrum sveitum á ball- markaðinum sumarið 1974. Drengirnir héldu til Bandaríkj- anna og komu heim með plöt- una „Uppteknir". Gengi plöt- unnar var glæsilegt; hún seldist í 11 þúsund eintökum, sem þá var met. I ferð sinni til Banda- ríkjanna kynntust Pelican ýms- um ffammámönnum í gegnum Shaggy Dog-hljóðverið þar sem „Uppteknir“ var gerð. Varð nú úr að erlendir aðilar skipulögðu tónleikaferð um norðurströnd- ina og Pelican hélt utan til að spila og hljóðrita nýja plötu. Tónleikarnir gengu vel og heimsfrægðin virtist á næsta ÓMAR VALDIMARSSON Umboðsmaður Pelikan „Hér gerast hlutirnir hratt og óvænt. Dag einn kom hingað maður, Freddie Scott að nafni. Hann er fyrr- um stjarna hér í landi, raunar meiriháttar stjarna, söng m.a. „Hey girl" eftir Carole King einhvern tíma uppúr 1960." leiti. Ómar Valdimarsson fór út með sveitinni sem hjálpar- hella og á Slagsíðu Morgun- blaðsins 9. mars 1975 eru birtar glefsur úr sendibréfi Ómars; „Hér gerast hlutirnir hratt og óvænt. Dag einn kom hingað maður, Freddie Scott að nafni. Hann er fýrrum stjarna hér í landi, raunar meiriháttar stjarna, söng m.a. „Hey girl“ eft- ir Carole King einhvern tíma upp úr 1960...“ Það er skemmst ffá að segja að Freddie umturnaðist af hrifningu yfir Pelicanrokkinu og staðhæfði; „I’m gonna make you a star and I mean real SUPERSTAR.“ Nokkrum dögum síðar fóru Freddie og Ómar fyrir hönd sveitarinnar til New York með nýju upptökurnar. „Þar var komið við á ýmsum afskaplega glæsilegum skrifstofum og talað við marga sveitta ístrubelgi með stóra gullhringi á litla fingri,“ skrifar Ómar. fstrubelgirnir urðu hrifhir og nú leit út fyrir að hjólin færu að snúast fyrir al- vöru. Tveimur vikum síðar er Slagsíðan með nýjustu fféttir undir fyrirsögninni „Pelican undirbúa samningagerð við bandaríska aðila“. Þar er sagt frá ýmsum girnilegum tilboð- um sem hljómsveitin fékk, m.a. upphitunarstarf með Doobie Brothers og Allman Brothers, og útgáfumöguleikum vmis- konar. Haft er eftir Ómari Valdimarssyni; „Það er sama hvar við komum — alls staðar eru alls konar menn ólmir í að gera við okkur samninga um alls kyns aðstoð, því þeir virðast hafa trú á hljómsveitinni. Sumir eru þó bara að hugsa um eigin gróða, eins og einn fyrrverandi bóndi, sem nú er trésmiður. Hann bauð okkur sjö ára samn- ing og ætlaði ekkert að gera sjálfur, hljómsveitin allt.“ Og Björgvin Gíslason bætti við: „Við sögðum honum bara að fara affur í fjósið sem fyrst!“ Útkoman úr frægðardæmi Pelican var svo önnur en búast mátti við miðað við herlegheitin í mars 1975. Hljómsveitin kom heim um sumarið samninga- laus en gaf út seinni plötuna „Litlu fluguna“ fyrir íslenska markaðinn. Vinsældimar vora í rénun og sprungur komnar í samstarfið. Pétur Kristjáns var að lokum rekinn úr eigin hljóm- sveit og átti samúð flestra. Hann stofnaði Paradís sem fljótlega varð vinsæl á sveitaböllunum en Pelican náði sér aldrei á strik Péturslaus og dó drottni sínum skömmu síðar. Hver veit nema Pelican ár- gerð 1993 meiki það loksins á gömlu Shaggy Dog-sambönd- unum? Kannski gerir Gummi Jóns gæfumuninn og tuttugu ára hrukkumyndun annarra meðlima! Enn er reynt í dag eru heimsfrægðar- draumar íslenskra hljómsveita síst minni en áður. „Heims- frægðardraumar" er kannski rangnefni — að minnsta kosti taka fáir svo stórt upp í sig og tala frekar um að „reyna að koma sér á framfæri". Síðustu árin hafa ýmsir komist á þrösk- uld frægðarinnar. Sálin hans Jóns míns var næstum því komin á samning hjá Warner Bros, en eftir að drengirnir höfðu tjáð sig um málið í 19:19 kom í ljós að fyrirtækið hafði ekki áhuga. Geiri Sæm hefur hvað eftir annað verið við það að slá í gegn sé mark takandi á blaðagreinum um áhuga er- lendra fýrirtækja á honum. Steinar hf. reyndu á tímabili fyr- ir sér í Skandinavíu, en þar hef- ur lítið markvisst gerst þótt nokkrar plötur hafi komið út. í dag er staðan einna hag- stæðust hjá keflvísku strákun- um í Deep Jimi and the Zep Creams. Þeir hafa gefið út tvær litlar plötur hjá Atco-samsteyp- unni í Bandaríkjunum og fyrsta breiðskífan, „Funky Dinosaur“, ætti að vera að koma út um þessar mundir. Litlu plöturnar fengu misjafna dóma og gerðu engar rósir en Deep Jimi-félagar eru samt bjartsýnir. Þór gítar- leikari segist t.d. munu verða fyrir vonbrigðum ef stóra platan selst ekki í það minnsta í 200.000 eintökum. Helgi Bjömsson og félagar í SSSól eru að reyna fyrir sér á Bretlandi og njóta aðstoðar menningarfulltrúans, Jakobs Magnússonar, eins og fleiri sem sækja á þann markað. Reyndar væri hægt að skrifa heilmikla grein um ffægðarbrölt Jakobs í CHANGE Félagarnir lögðust í æfing- ar og upptökur í London og urðu brátt þekktir hjá breskum upptöku- og sess- jónmönnum sem„The girls from lceland" afaugljósum ástæðum. gegnum árin, en það bíður betri tíma. Sólin hefur þegar fengið samning hjá rokkfyrirtækinu Diva, sem hefur gefið út plötur rokksveitanna Daisy Chainsaw og Sunscream. Þessi bönd eru þokkalega vinsæl og hafa bæði komist á samning hjá stærri fyr- irtækjum í seinni tíð. Sólin rær á ný mið í tónlistarsköpun sinni fyrir Englandsmarkað — spilar þyngra rokk — og verður gam- an að sjá hvernig gengur. Hljómsveitin Nýdönsk er einnig með hluti í gangi á Bret- landi og tók m.a. upp „Himna- sendinguna“ sína þar í fyrra. Allt er þó mjög óráðið um fram- haldið, en sveitin kallar sig „Kind“ á útlensku. Það hjálpar þeim eflaust eitthvað að nú eru bolir framleiddir af tískufyrir- tækinu Kind í hátísku meðal rokkara í Bandaríkjunum. Rokksveitin HAM reyndi á sínum tíma að ota sínum tota í útlöndum líkt og fleiri „Smekk- leysu“-sveitir. Platan þeirra „Buffalo Virgin“ fékk ágæta dóma á Englandi þar sem hún var gefin út, en síðustu þrjú árin hafa þeir HAM-piltar gert lítið annað en að æfa, skipta um gít- arleikara og spila hér heima. f sumar ætla þeir hins vegar að reyna fyrir sér í New York og nágrenni þar sem jarðvegurinn hefur verið undirbúinn síðustu árin. Fleiri sveitir ganga fyrir bens- íni frægðardraumsins; Jet Black Joe, Kolrössurnar, og nánast allar sveitir sem eitthvað er spunnið í eru með áform og fyrirætlanir um í það minnsta að fara út og spila, og gefa út efni ef vel gengur. Svona er þetta og verður eflaust áfram um ókomna tíð, enda leikur einn fyrir flesta sem eitthvað reyna á sig að ná íslenska rokk- toppnum — hver á sínu sviði. Kannski væri ráð að flytja inn hundrað þúsund rokkáhuga- menn til að bæta ástandið? Rithöfundar og þjóðfélagsumræðan Skáld frammi fyrir dómurum Sami púkinn klippti aftan afgrein Kolbrúnar Berg- þórsdóttur um skáldin og meiðyrðamálin þeirra. Þætti Þorgeirs Þorgeirs- - sonar og Einars Braga vantaði og birtast þeir hérmeð. Einar Bragi og Varið íand Snemma árs 1974 skrifaði Einar Bragi rithöfundur stutta grein í Þjóðviljann sem hann nefndi Vatergeit-víxillinn. Þar hæddist hann að því framtaki nokkurra íhaldsmanna að efna til undirskriftasöfnunar fyrir áframhaldandi veru hers hér á landi. Miðað við pólitískar " greinar er þessi ekki með þeim svæsnari, en þeir sem stóðu fyr- ir undirskriftasöfnuninni voru á öðru máli og sóttu Einar Braga til saka. Ummælin sem þóttu svo meiðandi voru, auk yfir- skriftar greinarinnar, þessi: „Upp er risinn hópur hug- prúðra dáta, sem grátbiðja þjóðina að hefja minningaár ell- efu alda búsetu í landinu á því að undirrita beiðni um erlenda hersetu á íslandi.. Eftir að Einari Braga hafði verið birt stefna skrifaði hann aðra grein í Þjóðviljann. Hún nefhdist Fasistatilburðir og þar sagði hann meðal annars: „Persónulega læt ég mér í léttu rúmi liggja þann skauf- halabálk sem VL-menn hafa sent fógetanum. Hitt er alvar- legra að hér er um að ræða ósvífhustu árás á tjáningarffelsi landsmanna sem ég þekki dæmi um.“ Þetta mál vakti gífurlega at- hygli á sínum tíma, en Einar Bragi tapaði því og var dæmdur til að greiða skaðabætur, sem hann að sjálfsögðu neitaði að inna af hendi. Þorgeir Þorgeirsson ogfoggan Flosi Ólafsson sagði eitt sinn á prenti hér í PRESS- UNNI: „... mest öfunda ég þó helvítið hann Þorgeir Þorgeirs- son fyrir að skrifa betri texta en aðrir menn og vera þar að auki að skrifa um eitthvað sem máli skiptir, nefhilega hrófatildur ís- lenskrar réttvísi." Þann sjöunda desember 1983 birti Þorgeir Þorgeirsson í Morgunblaðinu opið bréf til dómsmálaráðherra þar sem hann mótmælti hrottaskap lög- reglumanna gegn hinum al- menna borgara. Þorgeir er ör- ugglega ein beittasti penni landsins og auk þess manna launhæðnastur eins og Jón Helgason dómsmálaráðherra fékk að reyna þegar Þorgeir beindi eitruðu ávarpi til hans: „Undanfarna daga hef ég verið að skoða myndir af þér í blöð- unum og mér sýnist á þér svo heiðríkur og drengilegur svipur með þvílfkri festu að ég hef um það vísa von að slíkum svip gæti hæglega slegið inn í sálina. Jafn- vel þó hann væri upphaflega bara hugsaður fyrir ljósmyndar- ann.“ Grein Þorgeirs var feikilega vel skrifuð, rökföst og svo hvöss að yfirvöld hljóta að hafa kveinkað sér undan hverju orði. Þorgeir sakaði yfirmenn lög- reglu um að „...hafa brenglaða réttlætisvitund og misnota að- stöðu sína til að lofa hrottum og illmennum að þægja sínu brenglaða tilfinningalífi“. Lög- regluna nefndi Þorgeir ýmist „einkennisklædd villidýr“ eða „óargadýr". Fyrir þessa grein var Þorgeir lögsóttur. Hann sótti fast að fá að verja sig sjálfur, en þeim til- mælum hans var neitað, enda kannski vitað að vörn hans yrði hin vaskasta, sem leiðir hugann að því hvort Þorgeir hefði ekki verið efni í fr ábæran lögfr æðing. En Þorgeir var sem sagt dæmd- ur í tukthús af Hæstarétti. Hann átti þó sterkasta leikinn þegar hann vísaði máli sínu til Evr- ópudómstólsins, sem komst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið 10. grein Mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi þegar það dæmdi Þorgeir sekan. Eftir basl sitt við íslenskt rétt- arkerfi gaf Þorgeir út greinasafn sem hann gaf nafnið Að gefnu tilefni. Yfirskrift þess voru orð Halldórs Laxness: „En ef rit- höfundur vill koma í veg fyrir EINAR BRAGI Hann skrifaði um undir- skriftasöfnun Varins lands og var stefnt fyrir þessi um- mæli:„Upp er risinn hópur hugprúðra dáta, sem grát- biðja þjóðina að hefja minningaár ellefu alda bú- setu í landinu á því að und- irrita beiðni um erlenda hersetu á Islandi." að menn fari sjálfum sér og öðr- um að voða þá hlýtur hann að krítisera þá eftir því sem hann getur.“ í ffamantöldum málum voru skáldin dæmd sek, en enginn vafi leikur á því að þau voru Þ0RGEIR Þ0RGEIRSS0N Hann sakaði yfirmenn lög- reglu um að„...hafa brenglaða réttlætisvitund og misnota aðstöðu sína til að lofa hrottum og illmenn- um að þægja sínu brengl- aða tilfinningalífi". hinir mórölsku sigurvegarar og kannski sanna þessi dæmi ein- mitt að íslendingar búa við rétt- arfar sem getur sakfellt menn fyrir það eitt að opinbera sann- færingu sína. I flestum löndum flokkast slíkt athæfi dómsvalds undir mannréttindabrot.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.