Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 17

Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 17
S K I L A BOÐ Fimmtudagurinn 18.mars 1993 PRESSAN 1 7 B A R I R Einner sérlegur ókostur islenskra bara og skemmtistaða, sem virðist seint ætla að hverfa. Hérerrættum raðir fyrir utan dýrðina. Raðirnar eru sérlega hvimleiðar á veturna, en hins vegar er ekki hægtað neita því að á björtum sumar- nóttum getur verið ágætis stemmning i þeim. Á veturna eru þær aftur ámóti afar þreytandi og jafnvel heilsu- spillandi. Og alltafskulu það vera sömu staðir og drykkju- maður PRESSUNNAR sækir einna helst til að svala fýsn- um sínum, sem lengstar hafa raðirnar. En hvað er til ráða? Hugsa mætti sér að í reglugerð væri kveðið á um upp- hituð biðraðaskýli, líkt og ku gerast á nyrðri Japanseyjum. Eða þá að i þjónustu allra bara skuli vera hjörð sankti-Bernharðshunda með ylvolgt áfengi handa köldum og þreyttum bíðendum. Jafnvel væri ekki úr vegi að í stað þess að unglingarnir i eftir- litinu telji út úr kof anum verði hlutverk þeirra að beina gestum á nálæga en fámenna bari.Því má nefnilega ekki gleyma að fyrir utan suma vínveitingastaði er aldrei biðröð, en áfengi að fá á ótrúlegustu timum. Gera menn sér grein fyrir því að jafnvel aumustu gistiheimili bjóða gestum sínum nú aðgang að„mínibörum"?Nóttin á sumum þeirra er ódýrari en aðgangseyririnn að Bubba Morthens og Kúbumönnun- um kulvísu var hér um árið. Og svo má vitaskuld ekki gleyma „gourmef'-stöðum á borð við Bravó í Kópavogi og Kabarett iAusturstræti (eða Fjarkanum eins og sannir Reykjavíkursælkerar þekkja hann). Þessi musteri matargerðarlistarinn- ar eru nefnilega með vínveitinga- leyfi, sem eru fullbrúkleg þótt ekki séunemahálf. Og hvað er dásamlegra en að gleypa í sig ostborgara, franskar, sósu og salat og sturta því niður með rauð- brennsa á borð við Chateau Plonk '92? MYNDLIST Að koma auga áþað sem blasir við ADRIAN SCHIESS SÝNINGARSALURINN ÖNNURHÆÐ LAUGAVEGI 37 í sýningarsalnum Annarri hæð sýnir ungur Svisslendingur, Adrian Schiess, sem vakið hefur nokkra eft- irtekt undanfarið. Pétur Arason og samstarfsmaður hans, myndlistar- maðurinn Ingólfur Arnarsson, hafa umsjón með salnum. Þess er skemmst að minnast að Pétri Ara- syni voru veitt menningarverðlaun Dagblaðsins nýlega, m.a. vegna þess að hann hefur unnið töluvert að því að fá erlenda listamenn og verk þeirra hingað til lands. Hingað til hafa allir gestir sýningarsalarins ver- ið erlendir. Tveir þeirra, Banda- ríkjamennimir Donald Judd og Dan Flavin, em heimsþekktir og gamlir í hettunni. Þeir teljast til upprunalegs hóps bandarískra listamanna sem fengu á sig nafngiftina mínimalistar, sem stundum er nefnd naumhyggja á íslensku. Það er óbrigðult einkenni á míni- malistum að þeir vilja ekki við nafh- giftina kannast. Schiess kveðst óspurður ekki vera mínimalisti, sem vekur upp spurningu um hvort hann eigi ekki eitthvað sameiginlegt með þeim Judd og Flavin. Við fýrstu sýn virðist það ekki fjarri lagi. Á gólfinu er allstór þilplata (300 x 110 cm), sprautuð með rauðu sanser- uðu bílalakki, sem liggur á tveimur spýtukubbum. Nokkur pappírsrifr- ildi, brot úr stærri örk, með vatns- litaklessum eru límd á veggina. Það sem enn lifír af hugmynd okkar af mínimalisma er orðið svo útþynnt (og var það kannski alla tíð, ef Judd hefur rétt fyrir sér) að það nær yfir allt sem er fábrotið, innihaldslaust og rétthyrnt. Gæti þessi lýsing ekki átt við plötuna á gólfinu? Er míni- malismi mikil fyrirhöfn út af engu? Ástæða þess að verkum þessara manna er lýst sem tómum, eða „naumum“, er kannski sprottin af því að við gerum ósjálfráða kröfu til þess að myndlist sé af einhverju, eða um eitthvað, hvort sem það er ytri veruleiki, reynsla listamannsins, ímyndanir hans eða hugsanir. Það sama á við um allflesta abstraktlist, þar sem við horfum inn í tilbúinn heim forma og lita, sem túlkar reynslu og tilfinningar listamanns- ins fyrir formum og litum í um- hverfi sínu. Hin „dæmigerðu“ míni- malísku verk eru frábrugðin að því leyti að þau reyna að útiloka ytri skírskotun til hugarheims lista- mannsins og reynslu hans, en ein- blína þess í stað á þá reynslu sem skapast innan veggja sýningarsalar- ins. Þetta er myndlist sem reynir frekar að veita okkur reynsluna en segja okkur frá henni. Þess vegna er stundum sagt að hún sé bókstafleg. Hún byggist ekki á líkingum og ímyndunum, heldur því sem er til staðar í hlutnum sjálfum og til stað- ar í sambandi áhorfandans við verkið og umhverfi þess. Þrír þeirra sem sýnt hafa, Gunter Umberg, Dan Flavin og nú Adrian Schiess, eru sérstaklega uppteknir af lit og ljósi. Það er sameiginlegt ein- kenni á verkum þeirra að áhrif um- hverfisins á skynjun okkar á verk- unum skiptir ekki síður máli en það sem gerist innan þeirra. Schiess not- færir sér t.d. vísvitandi það sem yfir- leitt er talið neikvætt þegar við horf- um á myndir, þ.e.a.s. speglun á yfir- borði myndar. Þess vegna er verkið hágljáandi og sanserað, einmitt til að auka speglunina. Það er erfitt að henda reiður á litnum á yfirborði plötunnar því hann tekur sífelldum breytingum eftir því hvað speglast í henni, þ.e.a.s. útlit plötunnar ræðst að töluverðu leyti af umhverfinu og birtunni. Enda eru bæði speglun og litur, þegar öllu er á botninn hvolft, endurkast ljóss af yfirborði hlutar. Er þá speglunin á yfirborði verksins hluti af „innihaldi" eða „viðfangi" þess? Ég hætti mér ekld út í ffekari flækjur. Myndlist af þessu tagi er ekki naum, eða tóm, nema að því leyti sem skynjun okkar á umhverfinu yfirleitt er tóm. En þótt listamenn- irnir séu að reyna að gera sýnilegt það sem við skynjum hvort sem er, þá er hvorki einfalt né auðvelt að gera listina spennandi og lifandi. Hún er fólgin í því að gera hið aug- ljósa nýstárlegt, jafnvel furðulegt, og gefa okkur með því tilfinningu fýrir því að við séum að uppgötva nýjar hliðar á heiminum. Sú reynsla sem er komin á starf- semi sýningarsalarins sýnir að þar eru að öllu jöfnu verk í háum gæða- flokki á alþjóðlegan mælikvarða. Það er því rík ástæða til að hvetja myndlistaráhugafólk til að fylgjast með starfsemi salarins, því það er eitt að fýlgjast með í listatímaritun- um en annað að sjá hlutina á staðn- um._______________________________ Gunnar H. Árnason Litli staðurinn með stóra nafnið... Grand heitir nýjasti barinn í bæn- um, sem þó stendur á gömlum merg. Hann er til húsa á Klapparstíg þar sem N1 bar, líklega minnsti barinn í bænum, var áður. Ásdís Bjarnadóttir er einn fjögurra eigenda staðarins. Hún hefur örðið: „Þetta verður hefðbundinn pöbb með léttar veitingar. Við ætlum að skapa kaffihúsastemmningu í sumar og nota til þess bakgarðinn.“ Innréttingarnar eru orðnar hefð- bundnari en áður og búið að henda út hlébarðaskinninu bæði af stólum, hurðum og borðum. Tónlistin er af geisladiskum og ekki er búið að taka efri hæðina í notkun. Því tekur Grand enn sem komið er UMFRAM- RAFMAGN Landsvirkjun býður þeim rafmagnskaupendum í atvinnurekstri sem uppfylla ákveðin skilyrði forgangsrafmagn til kaups með einnar krónu afslætti á kWst frá og með 1. janúar 1993 í samræmi við samþykkt stjórnar fyrirtækisins frá október 1992. Afslátturinn nemur um 35 - 40% af heildsöluverði Landsvirkjunar og er hann aðeins veittur af aukinni rafmagnsnotkun kaupenda. Með þessu móti vill Landsvirkjun gefa iðnfyrirtækjum og öðrum atvinnurekstri kost á ódýrara rafmagni en áður til að efla starfsemi sína. Þau fyrirtæki sem telja sig geta notfært sér umframrafmagn á þessum kjörum eru hvött til að snúa sér til rafveitunnar á sfnu orkuveitusvæði og gera við hana sérstakan samning um kaupin. E mmmm Tvenn hjón reka Grand;litla staðinn með stóra nafnið. Þau Ásdís Bjarna- dóttir og Ingvar Stefánsson (úr Múla- kaffi) og Sigurður Hjaltested og Sig- ríður Guðsteinsdóttir. ekki nema 45 manns í sæti. Þegar efri hæðin kemst í gagnið munu rúmast þar sjötíu til áttatíu manns. En hvers konar fólk sótti staðinn um síðustu helgi? „Hingað kom fremur vel klætt fólk á aldrinum 25 til 40 ára, enda eru dyraverðirnir mjög strangir á aldurs- takmarkinu. Við vorum mjög ánægð með aðsóknina." Skrifetofuherbergi á leigu Nýinnréttaðar, bjartar og rúmgóðar skrifstofur (parket) með aðgangi að fundarherbergi, kaffistofu, símkerfi, faxi snyrtingu og sturtu. Upplýsingar í síma: 985-35566

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.