Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 27

Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 27
Fimmtudagurinn 18.mars 1993 NÆTUR- & LISTALIF t. 4 PRESSAN 27 Vercíli lftulh a léttvíni á LA Café Matsölu- og skemmtistaður- inn LA Café ætlar að verða íyrst- ur matsölustaða á Islandi til að bjóða upp á léttvín á þolanlegu verði. „Við erum að gera þetta til að fólk geti blandað saman góð- um mat og góðu víni; keypt uppáhaldsvínið sitt án þess að þurfa að borga tvisvar sinnum meira fyrir það en sjálfan mat- inn,“ segir Jósteinn Kristjánsson, eigandi LA Cáféi Hvernig œtlið þið að verð- leggja vínið? „Við ætlum að hafa fasta álagningu á hverri flösku; eitt þúsund krónur, í stað prósentu- álagningar. Með því móti verður vart meira en 30% álagning á léttvíninu. Flestir veitingastaðir leggja 100 til 200% á matarvín." Auk þess að brjóta ísinn í verðlagningu víns um helgina ætlar LA Café að taka upp nýjan og fjölbreyttari matseðil. „Ég fer ekkert ofan af því að staðirnir sem við keppum við að gæðum eru Perlan og Holtið, en við bjóð- um 50% ódýrari mat en þeir staðir. Ég stend og fell með þeim orðum.“ . LA Café er þriggja ára um þessar mundir og staðurinn er svoh'tið sérstakur í veitingahúsa- flórunni. Sérstaða hans felst í því að enda þótt hann leggi upp úr því að vera eðalmatsölustaður er einnig hægt að tjútta þar fram eftir öllu. Hann nýtur og mikilla vinsælda sem slíkur, því vart hef- ur liðið það föstudags- eða laug- ardagskvöld í tvö ár að ekki sé komin röð fyrir utan staðinn fyr- ir miðnættí. Verurnar sem þangað sækja e skemmtan sína eru í eldri kantin- um, — foreldrar á fertugsaldri eiga vart á hættu að hitta þar af- kvæmi sín í ölvímu. Meðlimir skákhreyfingarinnar stunda staðinn af kostgæfni sem og heimsmeistararnir í brids. Þá má geta þess að Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, snæðir þar endrum og sinnum. Jeanette Weideman beraði sig heldur betur á Dansbarnum um helgina fyrir framan fjölda hungr aðra karlmanna. Hún er ein fjöl- margra fatafella sem komið haf þarfram að undanförnu. DJÖRF FATAFELLA fsdrottningin hefði átt að kæla karlmennina. Jósteinn Kristjánsson, eigandi LA Café. Rauðvínið Chateau Batailley, sem hann heldur á vinstra megin, kostar rúmar 2.600 krónur í ríkinu en er selt á 3.500 krónur á LA Café. Það mundi kosta á milli 5.500 og 6.000 krónur á öðrum veitingastöðum. Hvítvínið BV dry Sauvignon Blanc, sem Jósteinn heldur á hægra megin, kostar 1.400 krónur í ríkinu og 2.400 á LA Café. Það er um þús- undkalli dýrara á öðrum veitingastöðum. Kampavínið færsömu meðferð á LA Café, á það eru aðeins lagðar eitt þúsund krónur. FOSTUPAGUR 1 9. MARS • Tveir logar frá Vest- mannaeyjum skemmta og skemmta ekki á Rauða Ijón- inu. • Vinir Dóra troða upp í Firðinum í kvöld með djass og blús en skipta síðan yfir í rokk síðar um kvöldið. Það var mikið fjör með Sálinni í Firðinum um síðustu helgi. Hafnfirðingar: Endurtakið leikinn en látið Tequilað í friði! • Haraldur Reynisson trúbador heldur uppi heiðri Feita dvergsins. • Sálin hans Jóns míns verður með lokadansleikinn á Tveimur vinum í kvöld. Þeir segja að þetta sé í síðasta sinn sem þeir koma saman. Ef fjörið verðurjafnmikið og ætíð þegar þeir koma saman í síðasta sinn verður hangið í loftræstikerfinu. • Hermann Ingi á Fógetan- um. • KK-band, Sálin hans Jóns míns, Pís of keik, Jet Black Joe, SSSól, Stjórnin og Steini og Davíð koma öll fram á Hótel (slandi til styrkt- ar (þróttasambandi fatlaðra. Það er fallega gert af þeim. Stjórnin leikur svo fyrir dansi og Sálin hans Jóns míns fer á Tvo vini. LAUGARDAGUR 20. MARS Popp FIMMTUPAGUR 1 8. MARS • Bone China er ung, fersk og efnileg hljómsveit sem debúteraði á Hressó sem upphitunarhljómsveit í febrúar við góðan orðstír. Tónlist þeirra er kraftmikil og tilfinningaþrungin og ekki síst grípandi. Piltarnir fimm; Reginn, Einar Már, Sigurður, Ingimundur og Davíð, minna um margt á vini sína úr Jet Black Joe. Hver veit nema þeir geymi einhvern jafnkyn- þokkafullan fyr og Pál Rósin- krans? • Bjarni Ara, Sverrir Storm- sker og Diddi fiðla skemmta í fyrsta sinn saman á LA Café; staðnum með ódýra vínið, í kvöld og endurtaka leikinn jafnvel næstu fimmtudags- kvöld. Ókeypis inn. • Haraldur Reynisson trúbador nær fólki einstaka sinnum upp á stóla á Fóget- anum. • Tómas R. Einarsson og tríó hans leika fyrir gesti Café Romance í minningu Guð- mundar Ingólfssonar. • Boltarnir eru hljómsveit sem hefur Rolling Stones að fyrirmynd og eru Jack Dani- els-neytendur. Þeir trylla allt og alla á Gauk á Stöng í kvöld. Helgi Björns fílar sig sem Mick Jagger og tung- unni verður flaggað í heila stöng. flækja Grafarvogssálirnar á Feita dvergnum. • Karaoke kvennafótbolta- liðanna verður haldið á Tveimur vinum í kvöld. (fyrra sigraði stúlkan sem söng tvö lög í síðustu júróvisjón- keppni. Þær vekja alltént at- hygli stúlkurnar. • Björgvin Halldórsson og Söngvaspéið fyrir alla á Hót- el Sögu. Þau Halli, Laddi, Hjálmar og Lolla standa sig vel að vanda. • Geirmundur Valtýsson verður (syngjandi sveiflu á Hótel (slandi með öllum sín- um mönnum og konum. • Tveir logar verða sem einn á Rauða Ijóninu. • Hermann Ingi áfram á Fógetanum. SUNNUPAGUR 21 . MARS • James blues band leikur blús af bestu gerð fyrir Hressó-gesti. Magnús Jó- hannesson, Arnold Ludvig, Björn Thoroddsen og James Olsen mynda þessa alþjóð- legu sveit. • Sigtryggur dyravörður er hljómsveit sem fáir vita ein- hver deili á. Hún verður á Tveimur vinum. • Haraldur Reynisson hefur haft yfirdrifið nóg að gera um helgina. Hann hóf helgina á Fógetanum, var í miðið á Feita dvergnum og er aftur kominn á Fógetann. • Karl Möller og Linda Wal- ker á Óperudjasshátíðinni á Café Romance. • Orgill hefur bæði hneyksl- að og hrifið. Hún heldur því vonandi áfram svo lengi sem hún lifir. Sveitaböll FOSTUPAGUR 1 9. MARS • Hlégaður, Mosfellsbæ hefur helgina með hinum glaðbeittu og eggjandi Bog- omil Font og Milljónamær- ingunum á sólarballi vegna tilvonandi vorkomu. Allir mæti í stuttbuxum, hawaii- skyrtum og bíkiníi. Stræt- óferðir verða frá Lækjartorgi kl. 11.00 og 12.00 og síðan til baka eftir ball. Stoppað á bensínstöðvunum við Kringlu og Ártúnshöfða. • Sjallinn, ísafirði fær Rúnar Þór og hljómsveit til að gamna sér og öðrum. • Hótel Selfoss hefur með sér (rann Paul Malone. • Þotan, Keflavík: Strákar: Nektardansmær! LAUGARPAGU R 20. MARS • Hlégarð- ur, Mosfells- bæ:Núer að- alkvöldið með Bogomil Font og Millj- ónamæring- unum, því Sjónvarpið verður á svæðinu. Ekki er þó verra að mæta bæði kvöldin í bík- inií eða stuttbuxum. Sömu strætóferðir og á föstudag- inn. • Sjallinn, ísafirði: Rúnar Þór og hljómsveit radda fyrir Vestfirðinga. • Sjallinn, Akureyri verður með dansleik fyrir alla með hljómsveitinni Bergmáli. • Hótel Akranes: Orri Harð- ar og Valgerður halda uppi fjöri á pöbbakvöldi á Skagan- um. • Hótel Selfoss: (rinn Paul Malone spilar fyrir matargesti og svo tekur hljómsveit Ingu Eydal við. • Þotan, Keflavík með hljómsveitina Karnival á Arg- entínukvöldi. Gömlufélagarnir Magnús Eiríksson og Pálmi unnarsson stóðu sig afar vel er þeir léku og sungu saman farhráan blús á Óperudjass- hátíðinni síðastliðið sunnu- dags- og mánudagskvöld. Það er mál manna að þeir félagar hafi þarna haldið einhverja skemmtilegustu tónleikana til þessa. • Nýdönsk er llkleg til að ná upp sömu stemmningu og Sálin hans Jóns míns í Firðin- um. Allir af Stór-Hafnarfjarð- arsvæðinu hvattirtil að sletta úrklaufunum. • Haraldur Reynisson trúbador heldur áfram að MIKIÐ E Enn eru sjö kvöld eftir af Óperudjasshátíðinni sem nú stendur yfir á Café Óperu og Café Romance í minningu Guðmundar Ingólfssonar, eins besta djasspíanista sem ísland hefur alið. Þegar hafa fjölmargir listamenn komið ffarn og afar margir einnig hlýtt á. f kvöld kemur ffam Tómas R. Ein- arsson, en svo spilar Karl Möller ásamt Lindu Walker á sunnudags- þriðjudagkvöld. Mánudaginn mars spilar tríó Hilmars Jensson ar en nýr kvartett Stefáns S Stefánssonar leikur á mið- vikudags- og fimmtudags- kvöld. Lokakvöld Óperudjassins er sunnudagskvöldið 28. mars og verð ur þá svokallaður Gala-djass. Þá munu allir þeir sem lögðu sitt af mörkum á hátíðinni koma fram, ásamt ýmsum öðrum sólistum og söngvurum. Sambýlingarnir Eyþór Arnalds og Móeiður Júníusdóttir eru meðal þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn við gerð myndarinnar Stuttur Frakki, sem frumsýnd verður 1. apríl næstkom- andi. Eyþór samdi alla tónlist í myndinni og Móeiður syngur titillag- ið, auk þess sem báðum bregður fyrir í myndinni; henni í móttökunni á Hótel Borg og honum á tónleikum með hljóm- sveitinni Todmobile. Eyþór hefur samið tónlist bæði fyrir sjón- Eyþór Arnalds samdi tón- listina í myndinni og Mó- eiður Júníusdóttir syngur titillagið, „Komdu til mín". varp og leikhús en fæst nú í fýrsta sinn við kvik- myndina og er að eigin sögn ánægður með út- komuna. Auk þess út- setti hann titillag mynd- arinnar „Komdu tíl mín“ sem sungið er af Móeiði, en það á sér nokkuð langa sögu. „Shady Ow- ens og Hljómar sungu þetta lag á sínum tíma við texta Þorsteins Egg- ertssonar og héldu flestir að lagið, „An þín“, væri þeirra. Sannleikurinn er sá að lagið er eftir Hol- land og Dozier og Diana Ross og The Supremes sungu það fyrst um miðjan sjöunda ára- tuginn. Ég leitaði rót- anna og færði nútímalegri með upprunalegu útgáf una til Úiðsjónar.“ Eyþór og hafa verið að semja að undanförnu og búin að setja saman tíu lög, sem þau ætla þó að halda fýr- ir sig til að byrja með. „Við höfum fyrst og fremst verið að semja fyrir guð og okkur sjálf og ætlum að leyfa lögun- um að þroskast á næstu vikum. Þá er aldrei að vita hvað verður af þeim.“ Sjó um fónlisHna í Mm Frahhð

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.