Pressan - 26.08.1993, Side 8

Pressan - 26.08.1993, Side 8
Sigmar Ingi Gíslason var skorinn upp í einfaldri aðgerð í marsmánuði 1992. Mánuði síðar átti hann að vera við hestaheilsu og farinn að stunda eðlilega vinnu. Vegna raða mistaka hefur hann verið óvinnufær síðan og hefur litlar sem engar bætur fengið. Hann á eins árs gamlan son og fjölskyldan hafði keypt íbúð á Akureyri sem þau gerðu upp. Vegna fjárhagserfiðleika misstu þau íbúðina og eru með skuldahala sem ekki sér fyrir endann á. Fyrir rúmu ári blasti lífið við fjölskyldunni en draumarnir hafa hrunið hver á fætur öðrum, meðal annars var óttast um líf Sigmars. Hann er 21 árs gamall, óvinnufær en var einungis úrskurðaður 10 prósent öryrki. í marsmánuði 1991 fór Sig- mar Ingi til læknis vegna orjóstsviða og í ljós kom að sýrustigið í maganum var allt of hátt. Næstu mánuðir fóru í læknaheimsóknir en ekki voru læknar á eitt sáttir unr hvort framkvæma skyldi svo- kallaða magalokuaðgerð. í iúní hætti Sigmar að vinna samkvæmt læknisráði, reyndi þó að vinna lítillega til þess að framfleyta fjölskyldunni en í september var hann orðinn óvinnufær með öllu. Þá var hann sendur til Reykjavíkur til rannsókna sem leiddu til þess að ákveðið var að gera maga- lokuaðgerð sem þó var ekki framkvæmd fyrr en í mars 1992. Með banvæna sýkingu en send- ur heim með kvef „Það var loks þann 11. mars sem ég var skorinn upp á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri,“ segir Sigmar. „Þetta er svokölluð hrein aðgerð sem þýðir að sýkingarhætta er afar lítil. Viku síðar var ég svo sendur heim, þrátt fýrir að ég kvartaði undan miklum verk í vinstra brjósholi og ætti við talsverða öndunarörðugleika að stríða. Þeir sögðu að ég væri með flensu! Þrem dögum síðar kom ég aftur til þess að útskrifast og sagði þá að verk- irnir hefðu aukist. Þeir héldu fast við að ég væri með flensu. Tveimur dögum síðar var ég hins vegar lagður inn aðffam- kominn og um nóttina lá ég með rúmlega 42,5 stiga hita á gjörgæslu. Þeir reyndu að halda í mér lífinu en vissu ekkert hvað var að. Viku síðar var tekin sneiðmynd af að- gerðarsvæðinu og á endanum var ég skorinn til þess að fjar- lægja graftarkýli í milta en í ljós kom að það þurfti að fjar- lægja allt nriltað. Enn leið vika þar til þeir uppgötvuðu að eitthvað var að í brjósholinu þótt það hefði mátt sjá við fyrri myndatöku.“ Brjóstholið fullt af greftri „Gögnin voru send suður til Bjarna Tofasonar hjarta- og lungnaskurðlæknis á Land- spítalanum og ég í sjúkraflugi síðar um daginn. Þann 11. apríl var gerð brjóstholsað- gerð, vinstra lungað skrapað að innan af uppsöfnuðum greftri og risavaxið graftarkýli, 20 sentímetrar á lengd og 15 sentímetrar í þvermál, var fjarlægt, auk þess sem brjóst- holið var allt fullt af greftri. Næsta hálfa mánuðinn lá ég á Landspítalanum og var skol- aður að innan, en var síðan sendur norður á Fjórðungs- sjúkrahúsið þar sem ég var í lyfjameðferð fram í miðjan júní. Þá var mér sagt að ég gæti farið að vinna aftur. Á þriðja degi í vinnu var ég svo að- ffamkominn af kvölum að ég var með öllu óvinnufær. Ég var illa kvalinn í brjósti, baki og hálsi, þurfti mikinn svefn vegna þrekleysis en gat hins vegar lítið sofið vegna kvala. Læknarnir sögðu að þetta myndi lagast á hálfu ári en ekkert hefur gerst enn. Að auki var ég og er enn mjög slæmur í nefi og munni en engar skýringar finnast á því. Þolið er ekkert og ég þjáist af miklu og viðvarandi minnis- leysi vegna tíðra svæfinga og lyfjameðferðar, auk þess sem ég er kominn með bijósklos í bakið og svefnleysið kvelur mig ennþá. Læknar geta ekki skýrt þessa kvilla sem komu fyrst eftir aðgerðirnar og hafa TEPPI FSLÁHU KR. $ SHARA 16' - MOTTUR | PARSL ÍDAG FRÁ K MALNING HF KYNNIR: ÚTI- 0GINNIMÁLNINGU 15-20% AFSLÁnUR AFALLRIMÁLNINGU ISA - EURI ÍÐVÍSATII ERTU AÐ BYGGJA? — VILTU BREYTA? — ÞARFTU AÐ BÆTA? SlGMAR INGIGÍSLASON Einföld og hættulrtil aðgerð leiddi af sér sjúkrasögu sem ekki sér fyrir endann á. Skurðurinn langsum yfir mag- ann er eftir hina einföldu magalokuaðgerð, sá sem liggur skáhallt er frá því að miltað var fjarlægt en skurðurinn undir brjóstinu er eftir brjóstholsaðgerðina. Litlu skurðirnir fyrir neðan eru eftir graftarskolunina sem tók hálfan mánuð.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.