Pressan - 26.08.1993, Side 9

Pressan - 26.08.1993, Side 9
Fimmtudagurinn 19. ágúst 1993 F R E TT I R PRESSAN 9 FJÖLSKYLDAN Sigmar Gíslason, Vala Magnúsdóttir og sonurinn Kristján Logi. Lrfið brosti við ungu fjölskyldunni þar til draumarnir breyttust skyndilega í martröð. útilokað mig írá vinnu síðan.“ Sýkingin blómstraði en ekkert var gert „Hann fór í einfalda, svo- kallaða hreina, aðgerð sem er í lágum sýkingaflokki," segir Vala MagnúsdÖttir, sambýlls- kona Sigmars. „Samt fékk hann sýkingu sem hefði getað leitt hann til dauða og hún fékk að blómstra fýrir framan nefið á læknunum án þess að þeir gerðu neitt. Þeir úrskurð- uðu hann bara með kvef. Á endanum lá hann náttúrulega við dauðans dyr og þrátt fýrir að hann kvartaði sífellt yfir verk í brjóstinu var ekkert gert fýrr en allt of seint. Hann var ekki einu sinni myndaður fýrr en hann kom sjálfúr á spítal- ann með 42,5 stiga hita. Eftir mánuð á gjörgæslu var bara sagt því miður, þú varst óheppinn! Hann er orðinn eins og aflóga gamalmenni að innan. Verstur er þó þáttur Tryggingarstofnunar sem hef- ur klúðrað öllu. Hann er 21 árs og getur ekkert gert. Hann fær engar bætur og ffamtíðin er hreint ekki glæsileg.“ Óvinnufær og bótalaus lang- tímum saman „Strax um sumarið 1991 varð ég að hætta að vinna samkvæmt læknisráði en vann öðru hvoru fram á haustið til þess að reyna að framfleyta fjölskyldunni,“ seg- ir Sigmar. „í september var ég orðinn alveg óvinnufær og fékk bætur frá hinu ágæta Fé- lagi málmiðnaðarmanna, auk sjúkradagpeninga frá Trygg- ingastofnun, 18.900 krónur á mánuði, en um áramótin missti ég bæturnar frá verka- lýðsfélaginu. Fyrstu þrjá mán- uði ársins 1992 höfðum við engar tekjur nema sjúkradag- peningana, 18.900 krónur og fæðingarorlof upp á 56 þús- und krónur vegna Kristins Loga Sigmarssonar. sem fæddist 2. desember 1991. Frá 1. apríl til 1. október 1992, eða í hálft ár, höfðum við engar tekjur nema þessar tæplega 19 þúsund krónur í sjúkradag- peninga.“ Um sumarið voru þau í stöðugum símhringingum til þess að kanna hvemig á mál- unum yrði tekið, enda fjár- hagurinn kominn í rúst. 1 þrjá mánuði fengu þau aðeins loð- in og óljós svör, ekkert gerðist svo þau fóm suður. Á endan- um var þeim sagt að Trygg- ingastofnun hefði öll gögn nema skýrslu frá Bjarna Torfasyni sem framkvæmdi brjóstholsaðgerðina. „Trygg- ingastofnun sagði að málið lægi ljóst fýrir og ég þyrfti ekki að fara í tryggingamat. Ég fór því aftur norður en 10 dögum síðar var hringt í mig og mér tilkynnt að ég þyrfti að mæta í tryggingamat eftir allt saman. Ferðakostnaður okkar lenti vitanlega á mér. Teknar vom þrjár ljósmyndir af mér, lækn- ir talaði við mig og dæmdi mig 75 prósent öryrkja tíma- bundið. Mér létti stórlega þar sem þeir sögðu að málið fengi nú skjóta meðferð og við fór- um affur norður.“ Úrskurður án læknisskoðunar „I október fékk ég loks greiddar örorkubætur, réikn- aðar aftur í tímann. Hins veg- ar voru sjúkradagpeningar sem ég hafði fengið fram að því dregnar frá, svo greiðslan nam um 200 þúsund krón- um. Tryggingastofnun sagði mér þá að ég fengi skaðabætur í næsta mánuði en þann mán- uðinn féllu örorkubæturnar niður. Það var hins vegar ekki fýrr en í desember sem ég var dæmdur 10 prósent öryrki til frambúðar og málinu þar með lokað. Sá fáránlegi úr- skurður var kveðinn upp eftir fýrra mati, án læknisskoðun- ar. Ég er óvinnufær en ör- orkuúrskurðurinn er eins og ég hafi slasast lítillega á fingri! Þá fékk ég einnig loks skaða- bæturnar sem hljóðuðu upp á 233 þúsund krónur og koma úr svokölluðum Karvelssjóði. Mér finnst verst hvernig Tryggingastofnun hefur togað okkur ffarn og til baka á asna- eyrunum. Líkamlegt tjón, andlegt og fjárhagslegt er nóg þótt svona framkoma bætist ekki við. Bjöm Önundarson, yfirtryggingalæknir sagði til dæmis við mig að ef ég væri svona óþolinmóður að bíða SlGMAR INGIGÍSLASON Liggur á Landsprtalanum eftir brjóstholsaðgerð. Vinstra fungað var skrapað af uppsöfnuð- um greftri og risavaxið graftarkýli, 20 sentímetrar á lengd og 15 sentímetrar í þvermál, var fjarlægt, auk þess sem brjóstholið var allt fuilt af greftri. Slöngurnar sem sjást á myndinni var hann með í hálfan mánuð til þess að skola afganginn í burtu. Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir: Árlega berast 40 alvarleg mál Sigmar Gíslason krafðist rannsóknar á meintum læknamistökum fyrir hálfu ári. Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að aldrei séu gefnar upplýsingar um einstök mál, þau taki mislangan tíma og erfiö mál geti jafnvel tekiö meira en eitt ár. „Almennt ganga svona mál þannig að viðkomandi kemur til okkar og kvartar. Við óskum eftir skýrslu um málið, jafnvel á mörgum stöðum og förum vandlega yfir skýrslurnar. Síðan er oft- ast óskað eftir sérfræðiáliti hjá óháðum aðila, oft tveim- ur, og málið erjafnvel senttil útlanda. Þegar niðurstöður berast gefum við viðkomandi svar eða leitum umsagnar læknaráðs. Svona ferli getur því tekið langan tíma ef mál- iö er alvarlegt. Það eru um 200 mál sem koma til kasta landlæknis en þau eru vitanlega ekki öll al- varleg og fara þvf ekki öll í gegnum þetta ferli. Mörgum málum er hægt að svara mjög fljótt en það eru um 40 mál sem eru nokkuð alvar- legs eölis." Landlæknisembættið veitir engar bætur og því veröur sjúklingurinn sjálfur að fara meö níðurstöðurnar, semja um bætur eða fara með mál- iö til dómstóla. Landlæknis- embættiö getur hins vegar veitt viðkomandi heilbrigðis- starfsmanni áminningu eða jafnvel lagt til sviptingu á læknisleyfi ef um mjög gróft eða endurtekin brot er aö ræða. eftir matinu, skyldi ég bara fara að vinna! Þessi örorkuúr- skurður þeirra var út í hött og við fórum fram á að trygg- ingamatið yrði tekið til endur- skoðunar. Þeir hafa verið að skoða málið frá því í mars en segjast gefa svar fljótlega,“ seg- ir Sigmar en á þriðjudaginn var loksins hringt og hann beðinn að koma í rannsókn degi síðar. „Það er líka athygl- isvert að tryggingafélagið met- ur þetta sem mistök á spítal- anum en ekki slys og því fæ ég engar tryggingar hjá þeim þótt ég væri tryggður upp í topp. Hins vegar lítur spítalinn á þetta sem slys en ekki mistök og því hef ég ekki fengið neitt frá þeim heldur." Misstu íbúðina og fjárhagurinn I rúst „Lífið blasti við okkur áður en þessar hörmungar dundu yfir,“ segir Sigmar. „Ég var að vinna sem nemi í stálskipa- smíði hjá Slippstöðinni á Ak- ureyri og Vala vann sem flokksstjóri í Kjama hjá Akur- eyrarbæ. Fyrsta barn okkar var að koma í heiminn og við vorum búin að kaupa gamalt hús og gera það upp. Vegna tekjumissis gátum við ekki staðið í skilum og töpuðum íbúðinni. Við neyddumst til þess að taka mjög lélegu til- boði með talsvert í húsbréfúm sem við þurftum að selja deg- inum síðar. Bara afföllin af þeim vom hálf milljón króna. Ég hef ekkert getað unnið og Vala heíúr langtímum saman verið frá vinnu vegna veikinda minna. Það hrundi allt saman og Ijárhagurinn er í rúst. Nú búum við í leiguíbúð í Reykja- vík, ég get ekkert unnið en Vala er núna í tveimur vinn- um. Það eina sem ég fæ er frá lífeyrissjóðnum en það dugir ekki einu sinni fýrir leigunni. Við náum þó að framfleyta okkur á hennar launum en getum ekki borgað skuldirnar neitt niður. Þetta hefúr breytt lífi mínu algerlega og þetta hefúr verið hræðilega erfiður tími. Tví- tugsafmælisdeginum eyddi ég uppdópaður á gjörgæslu og man ekki eftir neinu. Það var ekki einu sinni hægt að færa mér blómvönd. Þessi veikindi hafa ekki síður reynt á andlega og um tíma var ég búinn að gera það upp við mig að þetta væri mitt síðasta. Ofan á óvissu varðandi líkamlega heilsu og efasemdir um að ég muni nokkurn tíma ná mér, bætast fjárhagsáhyggjurnar sem að miklu leyti eru vegná óljósra svara og rangra upp- lýsinga um heilsu mína, og leiðir til að vinna bót á henni. Vissulega hefur þetta reynt mikið á samband okkar Völu en það hefúr haldið hingað til. Ég vona að svo verði áff am og málið fái farsæla lausn.“ Meint læknamis- tök rannsökuð „Auðvitað lít ég á þetta sem mistök. Ég fór inn á spítala í einfalda aðgerð en þurfti að fara í fleiri aðgerðir í kjölfarið og niðurstaðan er þessi. Ég átti að vera kominn til vinnu þremur tfl sex vikum efúr að- gerð en nú, einu og hálfú ári síðar, er ég enn óvinnufær,“ segir Sigmar Ingi Gíslason. Hann sendi landlæknisemb- ættinu bréf í mars á þessu ári þar sem hann fór fram á rann- sókn á meintum læknamis- tökum, allt frá því að hann gekkst undir aðgerðina á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri þann U. mars. Pálmi Jónasson Jón Sæmundur Sigurjónsson, formaður íryggingaróðs Saga Sigmans ep bæði löng og erfið Læknar fljótari ab senda reikning en sérfræðiálit „Mér finnst þetta nokkuð langur tími,“ segir Jón Sæ- mundur Sigurjónsson for- maöur Tryggingaráðs, en Sig- mar fór fram á að örorkumat upp á 10 prósent yrði endur- skoðað. „Sigmar sendi inn kvörtun T mars en hans mál var búið að ganga mjög lengi þar sem hann hefur verið að bíða eftir hinum og þessum ákvörðunum af því að hans mál var afar flókiö og svo hefur hann verið að fá endur- tekin veikindi. Saga hans er orðin mjög löng og erfiö og svo bætist inn t þetta aö hann fékk greitt úr sjúkra- tryggingasjóði, samkvæmt Karvelslögunum svokölluðu. Tilfellið er að sú úygging gef- ur ITtið og útilokar frekari bætur. Lagasetningin er meingölluö en breytingatillög- urnar sem lagðar voru fram í vor náðu ekki fram að ganga vegna tímaskorts. Spurningin hjá læknunum var hvort Sigmar væri heill sinna meina sem hann er al- deilis ekki samþykkur. Þar stangast á hans álit, sem veit nú sennilega best um eigin líöan, og álit læknanna sem sögðu að eftir svona sjúkrasögu væri venjan sú að sjúklingurinn næöi bata eftir svo og svo langan tTma. Hann sætti sig ekki við það mat og þvT var fariö fram á endurskoöun. Þegar beðið er um endur- skoðað örorkumat leitum viö til utanaðkomandi sérfræö- inga sem taka öll gögn til sín og stilla upp nýju mati. Það eru allviðamikil gögn komin saman um mál Sigmars Inga en þeim ber að skila þess- um gögnum til Tryggingaráös eftir einhvern tiltekinn tíma, en þau hafa ekki borist enn. Oft er svolítiö erfitt aö fá læknana til að skila þeirri vinnu sem þeir eru beðnir um. Þeir eru fijótari að senda reikninginn."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.