Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 10
F R ETT I R
10
PRBSSAN
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
Helmingaskiptaregla Ármannsfells og Gylfa og Gunnars ó byggingum aldraðra
Hafa fengið milljarða
verk án útboða
Byggingar Réttarhoitssamtakanna við Hæðargarð. í fyrstu fengu flrmannsfell og Samtök aldraðra lóðina en þegar Samtökin gáfust upp fór lóðarrétturinn ásamt verktakanum yfir á ný samtök. í nýja úthlutunarbréfinu var vandlega tekið fram að
flrmansfell „skal“ hanna og byggja.
Nýleg skýrsla á vegum Fé-
lagsmálaráðuneytisins um
byggingarkostnað vegna
íbúða aldraðra hefur afhjúpað
eitt augljósasta leyndarmál
Reykjavíkurborgar; nefnilega
helmingaskiptareglu tveggja
byggingafyrirtækja þegar
kemur að íbúðabyggingum
fyrir aldraða.
Af skýrslunni og ummæl-
um manna í kjölfar hennar
má ráða að það fyrirkomulag
hefur tíðkast um margra ára
skeið að Byggingafélag Gylfa
og Gunnars sf., hefur byggt
allar íbúðir fyrir Félag eldri
borgara (FEB) og Ármannsfell
hf. hefur byggt allar íbúðir fyr-
ir Samtök aldraðra (SA). For-
ráðamenn þessara félaga segja
að þeir hafi verið látnir skilja
að leyfisveiting fýrir bygging-
unum héldist í hendur við
það að viðkomandi verktakar
byggðu. Þetta kom til dæmis
fram i samtali við Magnús
Magnússon fyrrverandi ráð-
herra, en hann gegndi for-
mennsku um skeið hjá SA.
„Mér finnst þegar þetta er
skoðað að þetta sé ekki eðli-
legur framgangsmáti,“ sagði
Magnús þegar hann var beð-
inn að leggja mat á viðskiptin.
I ljósi alls þessa vekja við-
brögð borgaryfirvalda athygli.
„Það er einmitt það sem ég
skil ekki, af hverju forráða-
menn Reykjavíkurborgar hafa
svona mikið fýrir því að neita
þessu,“ sagði maður sem mik-
ið hefúr starfað fýrir aldraða.
Sami maður benti á að borgin
hefði haft mikið með það að
gera þegar þessu kerfi hefði
verið komið á í upphafi, og
fýrir því hefðu verið margvís-
legar forsendur. Taldi hann
nær að benda á þær en neita
tilvist kerfisins.
Ef lóðaúthlutunarbréf til
FEB og SA eru skoðuð kemur
berlega í ljós að samtökin eru
tvinnuð kirfilega saman við
verktakann. Eitt þessara bréfa
hefur verið gert opinbert en
það er leyfisveiting vegna
byggingaréttar við Hæðargarð
og Réttarholtsveg ffá 25. októ-
ber 1989, undirritað af Davíð
Oddssyni, þáverandi borgar-
stjóra. Þar er orðalagið með
þeim hætti að það er eins og
borgin skipi Sjáífseignarstofn-
uninni Réttarholti að eiga við-
skipti við Ármannsfell. Þar er
orðið „skal“ notað nokkrum
sinnum, eins og kemur ffam í
þessari tilvitnun: „Athygli er
vakin á því, að hönnun
mannvirkja á svæðinu skal
unnin á vegum Ármannsfells
hf...“ Þetta bréf var fært til
bókar á fundi borgarráðs fýrir
skömmu, síðan af Sigrúnu
Magnúsdóttur borgarfulltrúa
Framsóknarmanna sem telur
þetta staðfesta það að borgar-
yfirvöld hygli Armannsfelli.
I Tímanum í síðustu viku
svarar Markús Örn Antons-
son borgarstjóri þessum ásök-
unum og frétt blaðsins þar
um. Þar ítrekar hann þá við-
urkenndu skoðun borgaryfir-
valda að félagasamtök aldr-
aðra velji sjálf verktaka til að
byggja íbúðir á sínum vegum.
Telur hann að annað sé
hreinn „uppspuni" og reynd-
ar gagnrýnir Markús harðlega
skýrslu félagsmálaráðuneytis-
ins sem hann segir hafa tekið
undir þennan uppspuna. 1
ljósi þessara viðbragða borgar-
stjóra eru forvitnileg ummæli
sem forráðamenn Réttarholts
hafa látið hafa eftir sér í einka-
samtölum um að þeir hafi
mjög fljótlega verið látnir
skilja að það væri vilji borgar-
innar að Ármannsfell byggði
þarna.
PRESSAN fékk afrit af
fimm öðrum svona lóðaút-
hlutunarbréfum útgefnum af
borgarastjóra og þar er hvergi
þetta ákveðna orðalag. f öllum
bréfunum er hins vegar skýrt
tekið ffam að lóðunum er út-
hlutað til Félags eldri borgara
og Byggingafélags Gylfa og
Gunnars sf. og Samtaka aldr-
aðra og Ármannsfells hf.
Völd Ármanns I
Verktakasam-
bandinu
„Auðvitað er þetta algert
siðleysi,“ sagði maður nákom-
inn Verktakasambandi fs-
lands en margir hafa undrast
það að sambandið hefur
aldrei tjáð sig um þessi mál
þrátt fyrir að hafa vanalega
barist harðri baráttu fyrir
opnum útboðum. Heimildir
eru fyrir því að þar skipti
miklu máli að Ármann Örn
Armannsson, forstjóri og að-
aleigandi Ármannsfells, hefur
verið varaformaður Verktaka-
sambandsins um skeið og
mjög valdamikil þar.
Á vegum Meistarasam-
bands húsasmiða, sem er inn-
an Verktakasambandsins, hef-
ur verið orðuð umkvörtun
vegna þessa máls en að öðru
leyti hefur Verktakasamband-
ið þagað opinberlega. Þetta
mál hefur hins vegar verið
rætt við ýmis tækifæri í við-
ræðum stjómar Verktakasam-
bandsins og borgaryfirvalda.
Einn fýrrverandi stjórnarmað-
ur sagðist muna eftir fundi
með Davíð Oddssyni á ámn-
um 1986 eða 1987 þar sem
imprað var á þessu. Davíð
mun hafa tekið undir þetta í
fýrstu en síðan bent á að þessi
tvö fyrirtæki hefðu bara sýnt
þessum málaflokki langmest-
an áhuga.
En það er margt annað sem
stuðlar að þessari þögn: „Ég
vil ekki fara að tjá mig um
þetta óréttlæti opinberlega því
þá hætti ég einfaldlega að fá
lóðir hjá borginni,“ sagði um-
svifamikil verktaki sem byggt
hefur fyrir aldraða á frjálsum
markaði.
Sigurður Sigurjónsson hjá
Byggðaverki í Hafnarfirði seg-
ist hins vegar lengi hafa gagn-
rýnt þessi vinnubrögð um leið
og hann gagnrýndi Verktaka-
sambandið fyrir að láta þetta
viðgangast. Hann sagði í sam-
tali við blaðamann að hann
hefði kynnst þessu af eigin
raun þegar Byggðaverk hefði
verið með framkvæmdir við
íbúðir aldraðra við Lindar-
götu. „Þar fengum við að
skilja að við fengjum ekki
verkið áfram eftir að hafa
steypt grunninn. Það voru
engin útboð heldur áttum við
að þegja og vera ekki að rífa
kjaft,“ sagði Sigurður. Hann
sagði að Ármannsfell hefði
síðan fengið verkið og ffam-
haldsverk án útboða. Þess ber
að geta að við Lindargötu var
það borgin sem byggði íbúð-
imar en ekki aldraðir og þessu
tiltekna dæmi var mótmælt á
sínum tíma af Verktakasam-
bandinu.
Allar markaðs-
aöstæður huns-
aðar
En Sigurður gagnrýndi
einnig skýrslu starfshóps fé-
lagsmálaráðuneytisins. Hann
sagði í hana vanta tölur sem
auðvelt hefði verið að fá og
hefðu sýnt að þetta kerfi stuðl-
aði að dýrari byggingum fýrir
aldraða í Reykjavík. Vísaði
hann til skýrslu ffá árinu 1988