Pressan - 26.08.1993, Page 12

Pressan - 26.08.1993, Page 12
F R E TT I R 72 PRESSAN Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993 Þórhildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson hafa um órabil rekið ólöglega heimagistingu MED QLÖGLEGAN REKSTUR SAMHLIBA ÞINGMENNSKU Reksturínn brýtur gegn lögum, en umsögn eldvarnareftirlits, heilbrigðiseftiríits og vinnueftirlits og samþykki borgarráðs þarf til rekst- urs gistiheimila. Enginn þessara aðila hefur fjallað um gistiheimili Þórhildar og Arnars. Ferðaskrífstofur vísa viðskiptavinum á gisti- heimili sem þær vita að eru ólögleg. Þórhildur Þorleifsdóttir: „lfissi ekki að þyifli leyfi“ „Það heftir nú verið þannig að það hefur ekki þurft leyfi, þetta er allt annað en gistiheim- ili. Ég spurði um það á síniun tíma hjá ferðaskrifstofú og var þá tjáð að ekki þyrfti leyfi fyrir heimagistingu. Ég hef ekki heyrt það f)Tr að það þyrfti leyfi fyrir heimagistingu,“ sagði Þór- hildur Þorleifsdóttir um rekst- urinn að Óðinsgötu 9. En nú þarf leyfi hjá embœtti lögreglustjóra. „Þá ert þú að segja mér frétt- ir. Eins og ég sagði hef ég spurst fýrir um þetta og ég hef ekki vitað annað en að þetta væri allt í lagi. Þú ert að segja mér fréttir ef svo er ekki og þá þarf ég að láta kanna það. Hvemig stendur á þvi að ferðaskrilstof- umar gera ekki neitt í þessu? Em þær að taka þátt í því að fólk sé með kolólöglegan rekst- ur?“ Þú hefur sem sagt ekki ajlaö þérleyfis? „Nei, það hef ég ekki gert. Mér hefur ekki einu sinni verið kumiugt lun að það þyrfti.“ Þið rekið þctta í ágin nafiii? „Það er fyrst núna sem þarf að starffækja þetta með skipu- lagðara móti með nýjum lög- um sem taka gildi um næstu áramót. Mér þætti gaman að sjá hvað margir sem era með heimagistingu hafa leyfi lög- reglustjóra.“ Á ekki rekstraraðili og þing- kona að þekkja lögin? „Heldur þú að þingmenn kunni öll lög utanað? Ég býst nú ekki við að það séu til laga- bálkar mn heimagistingu.“ Hjónin Þórhildur Þor- leifsdóttir leikstjóri og fyrr- verandi þingmaður og Arn- ar Jónsson leikari hafa rekið ólöglega heimagistingu að heimili sínu Óðinsgötu 9 til fjölda ára. Þau eru á meðal margra aðila sem rekið hafa slíka heimagistingu án þess að hafa aflað sér til þess til- skilinna leyfa embættis lög- reglustjóra, en hagsmunaað- ilar í ferðaþjónustu hafa miklar áhyggjur af því að lít- ið sem ekkert eftirlit sé haff með heimagistingu í at- vinnuskyni. Uppgefið verð bendir til þess að á háanna- tíma sé veltan af heimagist- ingunni að Óðinsgötu 9 yfir 1 milljón á mánuði. Þingkona með ólög- legan rekstur PRESSAN hefur sann- reynt að Þórhildur Þorleifs- dóttir og Arnar Jónsson hafa boðið upp á heimagistingu að Óðinsgötu 9 til fjölda ára, fyrst í stað með aðeins tvö herbergi. Undanfarin ár hef- ur reksturinn hins vegar ver- ið í allstórum stíl; húsnæðið var stækkað og í dag er boð- ið upp á allt að 12 herbergi. Þennan leyfislausa rekstur hefur Þórhildur því haft undir höndum á sama tíma og hún var þingmaður Kvennalistans 1987 til 1991. Á gistiheimilinu að Óð- insgötu fengust þær upplýs- ingar að þar væri allt full- bókað til loka ágústmánað- ar. Tveggja manna herbergi kosti 4.200 krónur á dag, en eins manns herbergi 3.000 krónur og í báðum tilfellum væri morgunmatur reiknað- ur inn í verðið. Miðað við 80 til 100 pró- sent nýtingu á herbergjun- um fjóra mánuði ársins má áætla innkomnar tekjur 1 til 1,3 milljónir á mánuði eða 4 til 5 milljónir króna yfir tímabilið. Á móti þessum tölum koma síðan tilfallandi kostnaðarliðir. Stærsti slíki kostnaðarliðurinn mun vera eins konar umboðsþóknun til þeirra ferðaskrifstofa sem vísa fólki á heimagistinguna, líkast til 30 prósent. Það eru Ferðaskrifstofa íslands og Samvinnuferðir-Landsýn sem kaupa gistiþjónustu hjónanna. Enginn lögaðili á bak við heimagistinguna Þau hjónin eru ekki á skrá Tollstjóraembættisins yfir aðila með virðisaukaskatts- númer. Það stafar af því að virðisaukaskattur er ekki innheimtur af gistingu, en maturinn er hins vegar virð- isaukaskattsskyldur. Virðis- aukinn er hins vegar ekki skilaskyldur nema hann nemi hið minnsta 196 þús- undum króna á 12 mánaða tímabili. Samkvæmt skattskrá var lagt á Arnar tryggingagjald í staðgreiðslu, sem lagt er á launagreiðendur og verk- taka, 873 krónur. Það bendir til uppgefinna brúttólauna vegna atvinnureksturs upp á 14 þúsund krónur. Þá var lagt á þau kirkjugarðsgjald sem bendir til aðstöðu- gjaldsstofns upp á 8 til 10 þúsund krónur. Samkvæmt útsvari þeirra var Arnar með að meðaltali 191 þúsund krónur á mánuði í laun í fyrra og Þórhildur um 134 þúsund. Eftirgrennslan blaðsins leiddi í ljós að heimagistingin að Öðins- götu 9 er í nafni hjónanna, en ekki einhvers lögaðila. Heimagistinguna að Óð- insgötu 9 er sem fyrr segir ekki að finna á þeirri skrá embættis lögreglustjóra, sem nær til þeirra aðila sem hafa aflað sér tilskilinna leyfa. Samkvæmt upplýsingum embættisins er skýrt kveðið á um það í lögum um veit- inga- og gististaði að enginn megi stunda slíkan rekstur nema hafa til þess leyfi frá lögreglustjóra. Slíkt leyfi fá- ist ekki nema að undan- genginni jákvæðri umsögn frá eldvarnareftirliti, heil- brigðiseftirliti og vinnueftir- liti og með samþykkt borg- arráðs. Nú mun vera á skrá embættisins 41 aðili sem afl- að hefur sér leyfis til reksturs heimagistingar. Heimagist- ingin að Óðinsgötu 9 er ekki þar á meðal. Engin tilraun hefur enn verið gerð til að áætla hversu margir bjóða upp á heimagistingu án leyf- is, en ástæða þykir til að ætla að þeir aðilar séu ófáir. Ferðaskrifstofur vita af ólöglegum rekstri Leyfislausir aðilar koma sér með ýmsu móti á fram- færi og einhverjir þeirra eru á skrá hjá ferðaskrifstofum. Heimagisting Arnars og Þórhildar er þannig sem fyrr segir á skrá hjá Ferðaskrif- stofu íslands og Samvinnu- ferðum-Landsýn. PRESSAN hafði samband við Kristján Gunnarsson fjármálastjóra S-L og eftir að hafa kynnt sér málið greindi hann frá afstöðu ferðaskrifstofunnar. „Þessir aðilar hafa ekki þetta leyfi eftir því sem ég fæ best séð. En það er sjálfstætt gæðamat skrifstofanna sem ræður því hvaða aðilar eru teknir inn. Við höfum litið svo á að það sé ekki okkar að fylgjast með því hverjir eru með leyfi og hverjir ekki. Við höfum fengið kvartanir yfir húsum sem hafa leyfi, en varðandi þennan sérstaka aðila þá hafa margir lýst yfir ánægju sinni með gisting- una þar og beðið um gist- ingu þar aftur. Við biðjum okkar viðskiptavini að fylla út sérstakt eyðublað í þessu sambandi, til að fylgjast með gæðunum og það dugar okkur. Þessir aðilar hafa komið vel út,“ sagði Krist- ján. Hrafnhildur Pálsdóttir fjármálastjóri Ferðaskrif- stofu íslands tók í sama streng, en taldi ólíklegt ann- að en að leyfi væri einhvers staðar að finna. PálmiJónasson ÞðRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR og ARNAR JÓNSSON hafa rekið ólöglega heimagistingu til fjölda ára. ÓÐINSGATA 9 Heimagisting þeirra hjóna er rekin á heimili þeirra þar sem þau le'igja allt að 12 herbergi í senn. Ema Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa: Umfang ólöglegra gistiheimila gífurlegt Hafa um árabil beðið lögregluembættið um rannsókn Að sögn Emu Hauksdótt- ur, framkvæmdastjóra Sam- bands veitinga- og gistihúsa, er alls óvíst hversu mörg gistiheimili og heimagistingar eru reknar án tilskilinna leyfa. „Það heflir komið fyrir að við höfum farið yfir skrá yfir leyfishafa og sent lögreglu- stjóra lista yfir þá sem bjóða upp á gistingu, en era ekki í skránni. Þetta er ekki einka- mál þeirra sem bjóða upp á gistingu, það verða allir að hafá leyfi. Það er orðið nokk- uð langt síðan við sendum lögreglustjóra slíkan lista, en um árabil höfum við verið að biðja embættið um að kanna umfangið á þessu sviði, her- bergjafjölda, notkun og fleira í þeim dúr. Við vitum að umfangið er orðið gífurlegt í heimagistingunni, en enginn veit neitt um herbergjafjöld- ann og fjölda gistinátta.“ Erna vildi ekki tjá sig um einstök tilvik þar sem tilskilin leyfi skorti.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.