Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 12
F R E TT I R
72 PRESSAN
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
Þórhildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson hafa um órabil rekið ólöglega heimagistingu
MED QLÖGLEGAN REKSTUR
SAMHLIBA ÞINGMENNSKU
Reksturínn brýtur gegn lögum, en umsögn eldvarnareftirlits, heilbrigðiseftiríits og vinnueftirlits og samþykki borgarráðs þarf til rekst-
urs gistiheimila. Enginn þessara aðila hefur fjallað um gistiheimili Þórhildar og Arnars. Ferðaskrífstofur vísa viðskiptavinum á gisti-
heimili sem þær vita að eru ólögleg.
Þórhildur Þorleifsdóttir:
„lfissi ekki að þyifli leyfi“
„Það heftir nú verið þannig
að það hefur ekki þurft leyfi,
þetta er allt annað en gistiheim-
ili. Ég spurði um það á síniun
tíma hjá ferðaskrifstofú og var
þá tjáð að ekki þyrfti leyfi fyrir
heimagistingu. Ég hef ekki
heyrt það f)Tr að það þyrfti leyfi
fyrir heimagistingu,“ sagði Þór-
hildur Þorleifsdóttir um rekst-
urinn að Óðinsgötu 9.
En nú þarf leyfi hjá embœtti
lögreglustjóra.
„Þá ert þú að segja mér frétt-
ir. Eins og ég sagði hef ég spurst
fýrir um þetta og ég hef ekki
vitað annað en að þetta væri
allt í lagi. Þú ert að segja mér
fréttir ef svo er ekki og þá þarf
ég að láta kanna það. Hvemig
stendur á þvi að ferðaskrilstof-
umar gera ekki neitt í þessu?
Em þær að taka þátt í því að
fólk sé með kolólöglegan rekst-
ur?“
Þú hefur sem sagt ekki ajlaö
þérleyfis?
„Nei, það hef ég ekki gert.
Mér hefur ekki einu sinni verið
kumiugt lun að það þyrfti.“
Þið rekið þctta í ágin nafiii?
„Það er fyrst núna sem þarf
að starffækja þetta með skipu-
lagðara móti með nýjum lög-
um sem taka gildi um næstu
áramót. Mér þætti gaman að
sjá hvað margir sem era með
heimagistingu hafa leyfi lög-
reglustjóra.“
Á ekki rekstraraðili og þing-
kona að þekkja lögin?
„Heldur þú að þingmenn
kunni öll lög utanað? Ég býst
nú ekki við að það séu til laga-
bálkar mn heimagistingu.“
Hjónin Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstjóri og fyrr-
verandi þingmaður og Arn-
ar Jónsson leikari hafa rekið
ólöglega heimagistingu að
heimili sínu Óðinsgötu 9 til
fjölda ára. Þau eru á meðal
margra aðila sem rekið hafa
slíka heimagistingu án þess
að hafa aflað sér til þess til-
skilinna leyfa embættis lög-
reglustjóra, en hagsmunaað-
ilar í ferðaþjónustu hafa
miklar áhyggjur af því að lít-
ið sem ekkert eftirlit sé haff
með heimagistingu í at-
vinnuskyni. Uppgefið verð
bendir til þess að á háanna-
tíma sé veltan af heimagist-
ingunni að Óðinsgötu 9 yfir
1 milljón á mánuði.
Þingkona með ólög-
legan rekstur
PRESSAN hefur sann-
reynt að Þórhildur Þorleifs-
dóttir og Arnar Jónsson hafa
boðið upp á heimagistingu
að Óðinsgötu 9 til fjölda ára,
fyrst í stað með aðeins tvö
herbergi. Undanfarin ár hef-
ur reksturinn hins vegar ver-
ið í allstórum stíl; húsnæðið
var stækkað og í dag er boð-
ið upp á allt að 12 herbergi.
Þennan leyfislausa rekstur
hefur Þórhildur því haft
undir höndum á sama tíma
og hún var þingmaður
Kvennalistans 1987 til 1991.
Á gistiheimilinu að Óð-
insgötu fengust þær upplýs-
ingar að þar væri allt full-
bókað til loka ágústmánað-
ar. Tveggja manna herbergi
kosti 4.200 krónur á dag, en
eins manns herbergi 3.000
krónur og í báðum tilfellum
væri morgunmatur reiknað-
ur inn í verðið.
Miðað við 80 til 100 pró-
sent nýtingu á herbergjun-
um fjóra mánuði ársins má
áætla innkomnar tekjur 1 til
1,3 milljónir á mánuði eða 4
til 5 milljónir króna yfir
tímabilið. Á móti þessum
tölum koma síðan tilfallandi
kostnaðarliðir. Stærsti slíki
kostnaðarliðurinn mun vera
eins konar umboðsþóknun
til þeirra ferðaskrifstofa sem
vísa fólki á heimagistinguna,
líkast til 30 prósent. Það eru
Ferðaskrifstofa íslands og
Samvinnuferðir-Landsýn
sem kaupa gistiþjónustu
hjónanna.
Enginn lögaðili á bak
við heimagistinguna
Þau hjónin eru ekki á skrá
Tollstjóraembættisins yfir
aðila með virðisaukaskatts-
númer. Það stafar af því að
virðisaukaskattur er ekki
innheimtur af gistingu, en
maturinn er hins vegar virð-
isaukaskattsskyldur. Virðis-
aukinn er hins vegar ekki
skilaskyldur nema hann
nemi hið minnsta 196 þús-
undum króna á 12 mánaða
tímabili.
Samkvæmt skattskrá var
lagt á Arnar tryggingagjald í
staðgreiðslu, sem lagt er á
launagreiðendur og verk-
taka, 873 krónur. Það bendir
til uppgefinna brúttólauna
vegna atvinnureksturs upp á
14 þúsund krónur. Þá var
lagt á þau kirkjugarðsgjald
sem bendir til aðstöðu-
gjaldsstofns upp á 8 til 10
þúsund krónur. Samkvæmt
útsvari þeirra var Arnar með
að meðaltali 191 þúsund
krónur á mánuði í laun í
fyrra og Þórhildur um 134
þúsund. Eftirgrennslan
blaðsins leiddi í ljós að
heimagistingin að Öðins-
götu 9 er í nafni hjónanna,
en ekki einhvers lögaðila.
Heimagistinguna að Óð-
insgötu 9 er sem fyrr segir
ekki að finna á þeirri skrá
embættis lögreglustjóra, sem
nær til þeirra aðila sem hafa
aflað sér tilskilinna leyfa.
Samkvæmt upplýsingum
embættisins er skýrt kveðið
á um það í lögum um veit-
inga- og gististaði að enginn
megi stunda slíkan rekstur
nema hafa til þess leyfi frá
lögreglustjóra. Slíkt leyfi fá-
ist ekki nema að undan-
genginni jákvæðri umsögn
frá eldvarnareftirliti, heil-
brigðiseftirliti og vinnueftir-
liti og með samþykkt borg-
arráðs. Nú mun vera á skrá
embættisins 41 aðili sem afl-
að hefur sér leyfis til reksturs
heimagistingar. Heimagist-
ingin að Óðinsgötu 9 er ekki
þar á meðal. Engin tilraun
hefur enn verið gerð til að
áætla hversu margir bjóða
upp á heimagistingu án leyf-
is, en ástæða þykir til að ætla
að þeir aðilar séu ófáir.
Ferðaskrifstofur vita
af ólöglegum rekstri
Leyfislausir aðilar koma
sér með ýmsu móti á fram-
færi og einhverjir þeirra eru
á skrá hjá ferðaskrifstofum.
Heimagisting Arnars og
Þórhildar er þannig sem fyrr
segir á skrá hjá Ferðaskrif-
stofu íslands og Samvinnu-
ferðum-Landsýn. PRESSAN
hafði samband við Kristján
Gunnarsson fjármálastjóra
S-L og eftir að hafa kynnt
sér málið greindi hann frá
afstöðu ferðaskrifstofunnar.
„Þessir aðilar hafa ekki
þetta leyfi eftir því sem ég fæ
best séð. En það er sjálfstætt
gæðamat skrifstofanna sem
ræður því hvaða aðilar eru
teknir inn. Við höfum litið
svo á að það sé ekki okkar að
fylgjast með því hverjir eru
með leyfi og hverjir ekki.
Við höfum fengið kvartanir
yfir húsum sem hafa leyfi,
en varðandi þennan sérstaka
aðila þá hafa margir lýst yfir
ánægju sinni með gisting-
una þar og beðið um gist-
ingu þar aftur. Við biðjum
okkar viðskiptavini að fylla
út sérstakt eyðublað í þessu
sambandi, til að fylgjast með
gæðunum og það dugar
okkur. Þessir aðilar hafa
komið vel út,“ sagði Krist-
ján.
Hrafnhildur Pálsdóttir
fjármálastjóri Ferðaskrif-
stofu íslands tók í sama
streng, en taldi ólíklegt ann-
að en að leyfi væri einhvers
staðar að finna.
PálmiJónasson
ÞðRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR og ARNAR JÓNSSON hafa rekið ólöglega heimagistingu til fjölda ára.
ÓÐINSGATA 9 Heimagisting þeirra hjóna er rekin á heimili þeirra þar sem þau le'igja allt að 12 herbergi í senn.
Ema Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa:
Umfang ólöglegra
gistiheimila gífurlegt
Hafa um árabil beðið lögregluembættið um rannsókn
Að sögn Emu Hauksdótt-
ur, framkvæmdastjóra Sam-
bands veitinga- og gistihúsa,
er alls óvíst hversu mörg
gistiheimili og heimagistingar
eru reknar án tilskilinna leyfa.
„Það heflir komið fyrir að
við höfum farið yfir skrá yfir
leyfishafa og sent lögreglu-
stjóra lista yfir þá sem bjóða
upp á gistingu, en era ekki í
skránni. Þetta er ekki einka-
mál þeirra sem bjóða upp á
gistingu, það verða allir að
hafá leyfi. Það er orðið nokk-
uð langt síðan við sendum
lögreglustjóra slíkan lista, en
um árabil höfum við verið að
biðja embættið um að kanna
umfangið á þessu sviði, her-
bergjafjölda, notkun og fleira
í þeim dúr. Við vitum að
umfangið er orðið gífurlegt í
heimagistingunni, en enginn
veit neitt um herbergjafjöld-
ann og fjölda gistinátta.“
Erna vildi ekki tjá sig um
einstök tilvik þar sem tilskilin
leyfi skorti.