Pressan - 26.08.1993, Síða 24
24 PRESSAN
SIGARETTUR OG KAKO
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
m /, ,
Sigurður A. Magnússon
rithöfundur
Sígarettumunnstykkið og
Sigurður eru eitt, það er að
segja þegar hann reykir. Og
það kemur ekki til af góðu
enda ríkir á milli hans og
munnstykkisins mikil hat-
ursást.
„í raun og veru hata ég
þetta munnstykki því það
gerir mér kleift að reykja
jaíhvel þótt ég sé stöðugt að
reyna að hætta. Ég rakst á
það fyrir 13 árum í tóbaks-
verslun í Þýskalandi en þá
var ég að því kominn að
kafha úr tóbaksreykingum.
I þessu skrítna verkfæri er
filter sem dregur úr því
tjörumagni sem maður
sogar ofan í lungun og hef-
ur því með öllu komið í veg
fyrir að ég frelsaðist.“
Enn af Björk
Falsað fax, stórtónleik-
aroglélegurdómur
Eins og alþjóö veit er Björk Guð-
mundsdóttir um þessar mundir að
leggja aö fótum sér hiö vestræna
samfélag með breiöskífunni „Debut". í
síðustu PRESSU var sagt frá því aö ís-
lendingar gætu hringt í ákveðið síma-
númer hjá sjónvarpsstööinni MTV og
greitt myndbandi Bjarkar viö lagiö
„Human Behavior" atkvæöi sitt. Til-
kynning um þetta barst fjölmiölum
landsins á faxi sem undirritaö var af
„Einari Erni, Bogomil Font og hinum
Sykurmolunum." Hinir undirrituðu
höfðu hins vegar ekki hugmynd um
faxiö og brugöust illa viö þessari mis-
notkun á nöfnum sínum og hafa aö
undanförnu veriö aö reyna aö komast
aö uppruna faxins. Einhverjir telja lík-
legt aö faxiö sé ættaö frá Stöð 2 í
tengslum viö markaðssetningu á MTV
á komandi hausti. Einar Örn vissi ekk-
ert um málið en sagöi þaö „verulega
vont mál þegar Ríkissjónvarpið tekur
myndbréf meö vélritaðri undirritun
minni sem gefnum hlut. Ég læröi aö
skrifa sex ára og ætti því að geta skrif-
að undir þaö sem ég sendi frá mér."
Á meðan þessu fer fram er Björk
hinsvegar byrjuð aö halda tónleika
meö sjö manna sveit sinni. Hún spil-
aöi t London Forum fyrir viku og hitaöi
upp fyrir U2 á Wembley sl. laugardag.
Annaö kvöld hitar hún aftur upp fyrir
U2 á tónleikum í Dublin. í september
eru tvennir tónleikar bókaöir hjá Björk í
Englandi og er þegar uppselt á þá. Allt
útlit er nú fyrir aö Björk komi hingað í
lok september og haldi tvenna tón-
leika í Óperunni ásamt undirleikurun-
um sjö. Ný smáskífa meö laginu „Ven-
us as a boy“ kom út á mánudaginn og
þar er m.a. að finna endurhljóðblönd-
un sem Mick Hucknall söngvari
Simply Red geröi af laginu.
En þótt Björk njóti mikillar hylli meö-
al evrópskra gagnrýnenda eru starfs-
bræöur þeirra í Bandaríkjunum á allt
öðru máli. Þegar hefur PRESSAN sagt
frá lélegum dómi í bandaríska tímarit-
inu Entertainment og t nýjasta hefti
Rolling Stone, útbreiddasta tónlistar-
ttmarits heims, fær „Debut" hræöi-
lega dóma, aöeins eina og hálfa
stjörnu sem er þaö minnsta sem blað-
iö gefur í þvt tölublaöi. Gagnrýnandinn
Tom Graves segir plötuna „algjör von-
brigöi" og kennir útsetjaranum Nellee
Hooper um aö hafa „eyðilagt tónlistar-
gáfur Bjarkar meö ómerkilegum raf-
magnsbrögöum." Þrátt fyrir lélega
dóma er plata Bjarkar nú í 81. sæti
Billboard-listans í Bandaríkjunum og á
uppleið, eftir aö hafa komiö inn 1143.
sæti fyrir fjórum vikum. „Debut“ hefur
selst t um 220 þúsund eintökum T
Bandaríkjunum og í u.þ.b. 70 þúsund
eintökum 1 Englandi.
Gunnar Hjálmarsson
POPP
Blúsað á Púlsinum
GUNNAR
HJÁLMARSSON
VINIR DORA
MÉR LÍÐUR VEL
★★
Kannski er líf meðalíslend-
ingsins ekki svo ósvipað lífi
svörtu þrælanna á ökrunum í
denn. Þrælarnir fundu blú-
sinn í stritinu þegar svipu-
höggin dundu á þeim og í
seinni tíð hafa íslendingar
fundið blúsinn þegar svipu-
högg verðhækkana, skatt-
píningar og nauðaráskriftar
að Police Academy 1 -5 hafa
pínt þá í skammdeginu. Blú-
sinn er tónlist endurtekning-
arinnar. Það er hægt að ganga
að því vísu að hljómarnir
verði aldrei fleiri en þrír í
hverju lagi. Blúsinn er líka
tónlist sem tjáir tilfmningar,
og þá oftast blús-tilfmninguna
ffægu: „Ég vaknaði í morgun
og hún var farin.“
Af þeim íslendingum sem
hafa tileinkað sér blúsinn hef-
ur Halldór Bragason verið
einna iðnastur við kolann.
Hann hefur komið sér upp
ýmsum blússamböndum sem
hafa komið því til leiðar að
ýmsir frægir blúsarar hafa
heimsótt klakann og tekið lag-
ið með Vinunum. Á Púlsin-
um/Plúsinum, þar sem Dóri
er oftast á ferðinni, er ágæt
upptökuaðstaða og því vel til
fundið að gefa út tón-
leikaupptökur, enda nær blú-
sinn hæstu flugi í beinu sam-
bandi við sveitta og blúsaða
áhorfendur. Hér eru þrettán
tónleikaupptökur frá tveggja
ára tímabili og greinilegt að
gestir hafa oftast verið með á
nótunum.
Menn koma og fara í Vina-
bandi Dóra en þó eru það Ás-
geir Óskarsson og Haraldur
Þorsteinsson sem oftast sjá
um að spila grunninn af sta-
bílum vana og kunnáttu. Gít-
arhetjan Guðmundur Péturs-
son er heldur aldrei langt
undan og er hér að vanda
óspar á fmgrafimina. Helsta
tromp plötunnar er þó er-
lendu gestaspilararnir sjö, allt
grjóthart blúskunnáttufólk,
sumt með áratugalanga þekk-
ingu og æfingu. Það er Hall-
dór sjálfur sem syngur fyrsta
lag plötunnar, titilllagið sjálff.
„Mér líður vel“ er ekki ósvip-
að rokkblúsi KK-bandsins.
Frekar hratt stuðlag sem reyn-
ir að vera dónalegt — Dóri
syngur: „Þú ert úti allar næt-
ur/ kemur aldrei heim/ reykir
þitt hass/ lætur ríða þér í rass.“
Lagið er þó of þunnt til að
klámið geti fræðilega leitt til
almennra vinsælda. Titillagið
er eina lagið eftir Dóra hér,
þótt erfitt sé reyndar að tala
um „ffumsamin“
blúslög — stefnan
er einfaldlega orð-
in of mikil klisja.
Hin lögin tólf
eru slagarar, sum
reyndar samin af
erlendu gestun-
um. Billy Boy
Arnold er
skemmtilegur
söngvari og
munnhörpuleik-
ari. Hann á tvö
lög á plötunni og
er framlag hans
með því allra
besta hér. Söng-
konurnar Deitra
Farr og Shirley
King láta heyra í
sér. Þeim er auð-
fýrTr.Tbuiiand! „Það er ekki sjálfgefið að spila blúsinn vel. Fátt er
það T ^bandið ^e^n^eSra en ^a spilaður blús, en Vinir Dóra eru
hamast á hljóm- með hefðina það mikið á hreinu að engin feilspor
meðan þærtjá sig eru stiSin ^er- Tónlistarstefnan sjálferþó ofein-
á útopnu. chic- strengingsleg og einhœftil að sá sem þetta ritar
netop^ PeTkins geti hlustað með mikilli ánœgju áþennan disk.“
hafa verið tíðir
gestir hér og gera
á plötunni það
sem við er að bú-
ast af þeim, vel fluttan gamal-
dags blús. Jimmy Dawkins og
Tommy McDracken eru yngri
í blúshettunni og þar af leið-
andi gætir nokkurra rokk- og
jafnvel soul-áhrifa í lögum
þeirra.
Það er ekki sjálfgefið að
spila blúsinn vel. Fátt er leið-
inlegra en illa spilaður blús, en
Vinir Dóra eru með hefðina
það mikið á hreinu að engin
feilspor eru stigin hér. Frum-
legheit í blúsi er jafnfráleitt
fyrirbæri og angurværð í
dauðarokki. Því ættu þeir sem
vilja helst heyra það sem þeir
hafa heyrt hundrað sinnum
áður — og þeir eru í yfirgnæf-
andi meirihluta — að hópast
að blúsbrunni Dóra, því inni-
haldið er fjári kunnuglegt.
POPP
FIMMTUDAGURINN
1 9. ÁGÚST
• Eftirlýst er nú hér með
lýst eftir. Meðlimir hennar
eru ungir, fjórir karlmenn
og ein kona sem ber
nafnið Jóna de Groot - sú
er dökkhærð með sítt
hár. Ætlunin var að leika
á Tveimur vinum í kvöld.
Vinsamlegast hafið gott
samband.
• Draumalandið frá
Akranesi tekur púlsinn í
Gaukshreiðrinu, öðru
nafni Gauki á stöng.
• Guðmundur Rúnar er,
auk þess að sýna list
sína, að spila á Fógetan-
um í kvöld. Hann er að
auki Hafnfirðingur.
FOSTU DAGUR I N N
20. ÁGÚST
• Todmobile eru komnir
í bæinn. Þeir leika á
Tveimur vinum. Og eru
enn í fullu fjöri þrátt fyrir
sögusagnir um að þau
séu í dauðateygjunum.
Þess má geta að sveitin
verður í heimsókn hjá
Górillunni að morgni
föstudagsins.
• Sín er tríó sem leikur
fyrir gesti Rauða Ijónsins.
Herma fregnir að Árni Ijón
ætli hvað ur hverju að
koma Neshyrningum á
óvart með einhverju
óvæntu uppátæki.
• Langbrók hefur fengið
til liðs við sig tvær Abba-
dísir, holdgervinga Anni-
frid og Agnethu, (ef þið
hafið lokuð augun). Sam-
an munu þau leika úrval
þekktra laga sænsku
sveitarinnar Abba í bland
við hressilega rokktónlist
á Plúsinum.
• Upplyfting reynir að
gera sitt til að taka Dans-
barinn taki. Lengi lifir í
gömlum glæðum.
• Undir tunglinu er hin
þokkalegasta stormsveit.
Hún verður í kvöld og
meira að segja annað
kvöld einnig á Gauki á
Stöng.
• Bjössi greifi verður
vígreifur á Fógetanum.
LAUGAR DAG U R I N N
21 . ÁGÚST
• Jójó leikur væntanlega
jójó tónlist á Tveimur vin-
um.
• Langbrók og Abba-
dísirnar aftur á Plúsinum.
Nöfn fólksins sem kemur
við sögu eru Alli, Ofur-
baldur, Alfreð og Halli,
auk Kandísstúlknanna
Ásdísar og Önnu Kar-
enar.
• Sín leikur fyrir trimmara
og aðra Seltirninga á
Rauða Ijóninu.
• Upplyfting vonandi á
hærra plani á Dansbarn-
um.
• Undir tunglinu tekur
að sér æðri tónlist á
Gauki á Stöng.
• Gleðigjafarnir taka
völdin á Hótel Sögu eftir
Geirmundarsveiflu þar
um síðustu helgi.
• Bjössi greifi sómir sér
vel sem trúbadúr á Fóget-
anum.
SUNNUDAGURINN
22.ÁGÚST
• Rokkabillyband
Reykjavíkur er ógleym-
anleg grúbba. Að minnsta
kosti minningarnar tengd-
ar henni. Hún spilar bestu
rokklögin á Gauki á
stöng. Sem og á sunnu-
dags- og mánudagskvöld.
• Haraldur Reynisson
heldur áfram þar sem frá
var horfið á Fógetanum,
með framsóknarmönnun-
um.
SVEITABÖLL
FOSTUDAGU R I N N
20. ÁGÚST
• Sjallinn, Akureyri Dóri
og vinir hans ætla að
kynna hversu vel þeim
líður. Þeir gera það
reyndar einnig í kvöld,
fimmtudagskvöld.
• H „29“, Akureyri er
gamall staður með nýtt
nafn. Sniglabandið fer þar
á taugum.
• Sindrabær, Höfn í
Hornafirði SSSól í ævin-
týraferð um Austurland.
• Sjallinn, Akureyri
Nýdanskir monta sig af
metaðsókn á Akureyri fyrr
á árinu. Svokallað Mega-
X monitorkerfi er komið í
hendur þeirra, því er eins
gott að gæta að geðheils-
unni.
LAUGARDAGURINN
21 . ÁGÚST
• Njálsbúð, Vestur
Landeyjum Todmobile
leikur þar í fyrsta sinn í
sumar. Ævintýrin gerast
enn.
• Bíókaffi, Siglufirði
Vinir Dóra flagga Clio
verðlaununum í firðinum.
Á morgun verða þeir svo
á Húsavík, á mánudag á
Vopnafirði, þriðjudag a
Seyðisfirði og svo mætti
áfram telja.
• Hreðavatnsskáli hefur
verið einn aðaldjamm-
staðurinn í sumar. Þang-
að streymdu sveinarnir í
leit að meyjum. Snigla-
bandið, Steinn Agnar Pét-
ursson (Mambó-kóngur-
inn) sem sér um rekstur-
inn á skálanum og gogo-
píur á lokadansleiknum.
• Egiisbúð, Neskaup-
stað þar verða SSSól
væntanlega að undirbúa
sig og æfa fyrir stórtón-
leikana 10. september.
• Ydalir, Aðaldal þeir
Jónsi, Gossi, Seppi,
Bangsi og Olsi úr Ný-
dönskum hyggja á nýtt
aðsóknarmet. „Allt annað
er áfall,“ var haft eftir
Seppa Hjöll.