Pressan


Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 30

Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 30
K A L l_ A R FOTU M 30 PRESSAN Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993 Kreppueinkennin: 20 karlmenn sem skera sig úr kfœMit Guðmundur Karl allrahandamaður. Hefur svo sterkan karakter a& öll föt verða flott á honum. Friörik Weissappel, búðareigandi og barþjónn. Alltaf smart. Kemur skemmtilega á óvart með jreytilegum stíl og klæðaburði. Klippina og allt við næfi. Af því hann á svo ágæta DÚð. Eyþór Arnalds, tónlistarmaður. Er flott týpa og frumlegur. Selur ímynd sína vel. Hárið á honum er fallegt, sellóið fer honum vel. Hann vekur hvarvetna eftirtekt. Baltasar Kormákur, leikari. Ólafur Schrqm, formaður HSI. Sjarmerandi og alltaf flottur. Ekki þræll jakkafatanna. Hefur stíl - sinn eigin. Paö er sama hverniq hann er alltaf er hann flottur, nvort sem hann er með blautt hárið eða þurrt, greitt eða reitt. . Simbi, hórgreiðslumeistarí. Er skemmtUega frumlegur. Það er enginn eins og hann. Gengur í dýrum merkjum eins og Versace og Paul Smith og blandar fatnaðinum vel saman. Skemmtilega flambogant. Birgir Bieltvedt, framkvæmdastjórí Dominos pizza. Alltaf karlmannlegur. Brýtur iakka- fötin upp á skemmtilegan nátt. Sfundum eins og hugsandi aðals- maður í klæðaburði. Daníel Ágúst Haraldsson og Björn Jörundur Friöbjörnsson tónlistarmenn. Sjón, skóld og ritstjóri „núllsins". Varð áberandi týpa löngu áður en hæfileikar hans komu í Ijós. Oðruvísi. Með afgerandi stíl. leikari og tónlistarmaour. Yfirþyrmandi persónuleikinn leyfir honum allt. Blandar saman rokki og róli og jakkafötum. Þeir eiga fleira sameiginlegt en að vera ástfangnir af ráðherradætrum. Þeir eru óhræddir við að klæða sig öðruvísi en aðrir. Oftast smartir en stundum ivíð karla- legir miðað við aldur. Loks er komin upp ný kynslóð karlmanna sem skipar listann yfir best klæddu karlmenn landins. Á topp tíu að þessu sinni eru hvorki Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra né Sigurður Gísli Pálmason í Hagkaup. En þeir prýddu fýrsta og annað sæti best klædda listans í PRESSUNNI fyrir rúmu ári. Hins vegar er þar að finna tvo menn tengda þeim og öllu yngri, þá Daníel Ágúst Haraldsson söngv- ara hljómsveitarinnar Nýdanskrar og tengdason Friðriks og Birgi Bi- eltvedt framkvæmdastjóra Dom- inos pizza og mág Sigurðar Gísla Pálmasonar. Ekki er það vegna þess að fjármálaráðherrann og Hagkaupserfinginn séu orðnir svo lúnir heldur eru tímarnir aðrir. Það ku vera kreppa. Það er gömul saga og ný að end- umýting eigi sér stað á krepputím- um. Undir kreppuálagi kvikna nýj- ar hugmyndir. Menn hlaupa ekki lengur til og kaupa sér jakkaföt merkt milljónahönnuðum heldur nýta það sem fyrir er og raða gömlu fötunum sínum upp á nýtt, og bæta jafnvel einhverju smá- vægilegu við. Oft smekklegu. í dag þykir sá í raun hlægilegur sem stát- ar af því að hafa keypt sér fokdýran fatnað. Einn viðmælenda okkar orðaði tímabilið sem nú fer í hönd: „tímabil hinnar hagsýnu húsmóð- ur.“ Kreppugúruin taka við af vel- megunargúrúunum. Fyrsta sætið í ár yfir þá best klæddu skipar tónlistarmaðurinn Eyþór Amalds. Dómnefndarkon- urnar voru meira og minna allar sammála um það að hann væri gúrúið. Hann væri hugmyndarík- ur, huggulegur og smekklegur ffam í fingurgóma. Móeiður Júní- usdóttir væri áþreifanlegasta dæmið um það. Einhver hafði á orði að hún hefði ekkert á móti því að vera sellóið hans, svo áköfum en jafnframt mjúkum höndum færi hann um það. En það er allt önnur saga. Mönnunum í merkjunum fer fækkandi á listunum, eða þeir eru ekki lengur þar eingöngu merkj- anna vegna. Listinn yfir þá best kjæddu er gjörbreyttur. Þar er eng- an Viktor Urbancic bílasala, engan Sigurstein Másson fréttamann, engan Jón Ólafsson í Skífunni, engan Magnús L. Sveinsson borg- arfulltrúa, engan Sævar Jónsson knattspyrnumann og engan Ólaf Ragnarsson útgefanda að finna. Listinn yfir þá verst klæddu var ekki eins uppstokkaður; Davíð Oddsson er þar enn, en hefur að vísu fallið um nokkur sæti ffá því í fýrra, úr því fýrsta í áttunda sem er góðs viti. Friðrik Þór Friðriksson er þar enn sem og hinn umdeildi Helgi Bjömsson, og Hrafit Gunn- laugsson, jafn áberandi og hann var á árinu, fer hvergi. En oft er það svo að munað er eftir þeim sem hafa hvað mest baðað sig í sviðsljósinu á árinu, eða þar sem almenningur hefur haft aðgang að þeim. Ef til vill er það einmitt þess vegna sem Ólafiir Sclrram náði at- hygli dómnefndarkvenna. Og er nú í öðru sæti yfir þá best klæddu. Auk formannstitilsins i HSl á ár- inu gleyma því sjálfsagt fáir þegar hann reyndi að þröngva sér inn í Kvenfélag Bessastaðahrepps. Þeir sem duttu út af verst klædda list- anum eru hins vegar Bjöm Emils- son upptökustjóri, Jón Ólafsson tónlistarmaður, Ásmundur Stef- ánsson fýrrum forseti ASÍ og Eið- ur Guðnason fyrrum umhverfis- ráðherra. I staðinn eru komnir inn menn eins og Össur Skarphéðins- son sem fór ekki lítið fýrir á árinu, Susarinn Guðlaugur Þór Þórðar- son, leikarinn Baltasar Kormákur og síðast en ekki síst þeir Her- mann Gunnarsson, Stefán Hilm- arsson og Bubbi Morthens. Þó að endurnýting sé af hinu góða, þá var engin að tala um ofnotkun á fatnaði. Það er hinn persónulegi stíll sem máli skiptir. Það sem til þarf er hugmyndaflug, útsjónar- semi, smekkur og stíll, svo fátt eitt sétalið.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.