Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 32

Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 32
KONUR KARLANNA 32 PRESSAN Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993 Kvenlýsingar ungu skáldanna: Taugabilaðar mömmur og litlausar kærustur Af hverju eiga ungir karlhöfundar í basli með að skapa trúverðugar kvenpersónur? ElNAR MÁR GliÐMUNDSSON Þegar kontaðþví að iýsa kynlífsreynslu stúlk- unnar treysti Einar sé ekki til að leika konu og sjónarhornið var því hjá karl- manninum. ■ ' « „Hún var ekki margræð kona: tal hennar var hvers- dagslegt og hugarheimurinn takmarkaður... Hún var ánægð ef börnin voru hraust, veðrið gott og engin röskun íyrirsjáanleg á gangi hverdags- ins... Hún stjórnaði heimil- inu. Ég fór mínu ffam.“ Þessi lýsing er úr bók gull- drengsins Ólafs Jóhanns Ól- afssonar, Fyrirgefning synd- anna. Sviplítil kona, já vissu- lega. Hún er séð með augum sögumanns sem hefur afar takmarkað álit á konum og er sköpun rithöfundar sem lætur ekki sérlega vel að skapa trú- verðugar kvenpersónur. En hann er ekki einn um þann veikleika. Því hefur stundum verið haldið ffam að karlrithöfund- um láti betur en konum að skapa eftirminnilegar kven- persónur. Hvort sem okkur er það ljúft eða leitt verður að viðurkenna að flestar af litrík- ustu kvenpersónum bók- mennta okkar eru verk karl- manna. Síðustu árin hefur það hins vegar komið í hlut kvenna að skrá ævi kynsystra sinna í bókmenntasöguna (Alda íversen, Guðrún Magn- úsdóttir og ísbjörg eru með þeim svipmestu og allar verk kvenna). Það er aðeins einn ungur karlrithöfundur sem skákar konunum og það er Einar Kárason en styrkur hans felst ekki hvað síst í trú- verðugum og afar litskrúðug- um persónulýsingum og þar standa kvenpersónurnar karl- mönnunum ekki að baki. (Þetta lof á þó ekki við fyrstu skáldsögu hans eins og kemur fram hér síðar í greininni.) Aðrir ungir karlrithöfundar virðast flestir eiga í basli þegar kemur að því að skapa trú- verðugar kvenpersónur. Mömmur og systur Einars Más Munið þið eftir drengjasög- um Einars Más? Þar brölluðu ungir drengir á öllum síðum. Og öðru hvoru kom mamma sem var annað hvort „lítil ljóshærð dís sem flögr- aði eins og fiðrildi á milli veggjanna í íbúðinni“ eða hin gerðin sem var „þú veist týpan með nagla- lakkið, dáldið lík dúkkulísun- um á haframjölspökkunum, ein af þeim sem blikkar gervi- augnahárum til að undirstrika kvenlegan einfaldleikann, vaggar á háu hælunum en heldur samt alltaf jafnvægi þegar hún talar blíðlega útí loffið.“ Hlutverk þessara kvenna í sögunum fólst aðallega í því að birtast öðru hverju og kalla syni sína inn í mat. Og svo voru einhveijar unglingssyst- ur sem voru ekki lengur manneskjur heldur höfðu ummyndast í tröllvaxnar hús- mæður: „Birna er svo fim við að leggja á borð að húsmæðra- rassinn er strax byrjaður að vaxa á hana og farinn að fýlla útí grænu stretsbuxurnar.“ Kærustur Einars Kára. og Guö- mundar Andra Drengirnir í fyrstu bókum Einars Más voru of ungir til að eiga kærustur en fyrstu skáldsögur Einars Kárasonar og Guðmundar Andra Thorssonar fjölluðu um ást- fangna unga túenn. Það eru reyndar mín orð,;aðspurðir murtdu þéir.vafalaust segja að þettá væri gróf einföldun, þetta væri allt miklu dýpra. En kærusturnar eru,hér til um- fjöllunar og báðár dapurlega litlausar en vafálítið góðar stúlkur og söguhetjurnar eru ósköp skotnar í þeim. Og þetta verður allt saman pínu- lítið eins og í bókum Krist- manns Guðmundssonar, en þar eins og Steinn Steinarr sagði, gerist það að ungur maður „hittir unga og yndis- lega stúlku og þau verða ást- fangin hvort af öðru sem von- legt er. Það er mikil og fin lykt af öllum hlutum, jörðinni, stúlkunni og jafhveí himnin- um „Guðný er það fallegasta sem heimurinn hefur skap- að. v Hún gerir lífið þess virði ■ að því sé lifað,“ sagði sögu- maðurinn í Þetta eru astiar . Guðjóri, fýrstu skáldsögú Ein- ars Kárasonar og Egill í Mtn kúta angist var í svipuðum þönkum.’ Og það var mikil og fxn Ákt af stúlkunni hans: „I dag mundi ég heilsa elsk- unni minni, eða alla vegá horfa í augun á henni, finna ilminn af henni, það var ég ’viss um.“ Nokkrum árum seinna er enn ein kærastan með góða lykt: „Hann finnur lyktina, hún svífur fýrir vit honum, kemur alveg upp að honum og allt í einu er hár hennar laust úr viðjum blárrar skeljar.“ Þetta dæmi kemur úr ís- lenska draumnum sem er feiknagóð bók en enn sem fyrr á Guðmundur Andri í vandræðum með kærustuna. Allt virðist reyndar ætla að fara vel í byrjun og aðalkær- astan Helga fær þessa fallegu lýsingu: „Hún var fínleg og smá- beinótt og mér fannst eins og hún væri alltaf að tylla sér á tá í veröldinni til þess að sjá hana betur. Hún var aldrei á svip- inn eins og hún hefði séð þetta allt áður og þekkti þetta allt - hún var mjög ung.“ En það má segja að þessi efnilega stúlka veslist upp í höndum höfundar, hún er byggð úr góðu efni en það verður ekkert úr henni. I bók- inni er þó persónusköpun yfirleitt með ágætum og mikil framför frá fýrri bók þó engin persóna sé beinlínis tilþrifa- ■ mikil. > .. Ommur Guö- mundar Andra ; Mín káta arigist var byrj- ■ éndaverk og bar þes§ greinileg merki. Þar var ammæ ■ „Amma var dáfitíð gömul. Hún var lítil og mjó með fullt af hrukkum í andlitinu...“ Amman fær Í6 línur í Minni kátu angist en verður þó aldrei eftírtektarýerð per- sóna. En lítum á þessa ömmu í Islenska draumnum: „Ammánér við eldhús- borðið og horfir á hann lítil og geðstirð, áminnandi, augu snörp í fýrrvérandi andliti.“ Heilli ævi er lýst í einni setningu og það er „fyrrver- andi andlitið“ sem gerir úts- lagið. Og þarna er hæfileiki sem ber að hrósa. Við klöpp- um Guðmundi Andra því á bakið um leið og við biðjum um meira af svona. Einar Már og Hallgrímur breyta til Einar Már barst í tal hér áð- ur og vissulega var margt vel unnið í fyrstu verkum hans þó takmarkanimar væm aug- ljósar. En Einar ákvað að breyta til og varð stelpa í Rauðum dögum. Afleiðingarn- ar vom katastrófa. Tilraunir Einars til að gefa sýn í tilfinningalíf aðalpersón- unnar runnu út í sandinn, urðu skelfmg banal eins og þessi líking: „Stundum leið henni eins og hún væri stödd á veitinga- stað sem bauð upp á heitan mat en síðan reyndust allir réttimir kaldir nema ísinn.“ Þegar kom að því að lýsa kynlífsreynslu stúlkunnar treysti Einar sé ekki til að leika konu og sjónarhornið var því hjá karlmanninum: „Hann sigldi einsog skip um hafið, endalausar víðáttur þess, dúlarfhllaf afkima og haf- ið tók állt f.einu að skrep>pa saman pg gufaði upp um leið. og hún æpti upp yfir sig og nötraði öll cfg skalf.“ Þetta vaf létt duggadugg ff á Einari Má, en fyrsta kynlífs- reynsla söguhetjunnar í Hellu var engin ljúf sigling. Framan af sögu stóð Hall- grímur Helgason aldrei nærri unglingsstúBcunni, söguhetju sinni, heldur lýsti henni úr fjarlægð á hlutlausan hátt en lagði allt sitf í umhverfis- og náttúrulýsingar. Hann tók svo heldur beíúr á sig rögg og lagði í töluverða áhættu þegar hann lýsti fyrstu kynlífs- reynslu stúlkunnar í löngum kafla. Þar várð til sérlega sterk og eftirminnileg lýsing sem bar vott um mikla næmni hqfundarins. Taka konur körk um fram? 1 ' • ¥ *• 'I : • • Soffia Auður Birgisdóttir segir að deyfðarlegar kvenlýí- , irigar karlrithöfunda megi : hugsanlega rekja til.þesá að karlmenn séu venjulega- aðal- persónur í verkum þéirra. Því i mætti svara á þá leið að karl- persónur í verkum höfund- anna séu litlu svipmeiri en kvenpersónur, þeir fái ein- ungis meira rými og fleiri blaðsíður til að athafna sig. Einnig má benda á að kvenrit- höfundar okkar af yngri kyn- slóð eru ekki sérlega fimar við að skapa trúverðugar karlper- j sónur. Og sá annmarki þeirra ( er vissulega efrii í aðra grein. Kolbrún Bergþórsdóttir ElNAR KÁRASON „Guðný er það fallegasta sem heimurinn hefur skapað... HALLGRÍMUR HELGASON Fyrsta kynlrfsreynsla söguhetjunnar í Hellu var engin Ijúf sigling. ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON „Hún var ekki margræð kona: tal hennar var hversdagslegt og hugarheimurinn takmarkaður...“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.