Pressan - 26.08.1993, Page 33

Pressan - 26.08.1993, Page 33
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993 KONUR KARLANNA PRESSAN 33 Þóra Kristín Asgeirsdóttir blaðamaður: „Móðir - mella - meyja“ íslenskar bókmenntir búa yfir mjög eftirtektar- veröum kvenpersónum í gegnum bókmenntasög- una. Ég veit þó ekki aö hvaöa leyti þær eru upp- byggilegar fyrir konur til frekari sköpunar, þær eru einfaldlega of múlbundn- ar í gagnrýndu, skil- greindu kvenhlutverki þess tíma er þær eru skrifaðar. kannski ekki „nægilega kynvilltar" í þeim skilningi aö þær dansa eftir nótum um- hverfisins. Annars fá þær harmsöguleg endalok eða eru vængstýföar. Þetta á jafnt við um bækur eftir karla og konur þó aö hjá konum megi greina undir- meövitaöa tilraun til aö brjótast undan okinu. Þaö hefur verið hlutverk kvenna aö klóra upp þessar skilgreiningar og endurmeta sköpunarmátt sinn með tiltækum ráð- um. Yngri karlrithöfundar hafa fariö ólíkar leiöir í sínum skrifum og konur skipaö þar ólíkan sess. Þar má nefna félagslega raunsæið eftir 1970 sem otaöi konunni fram meö kreppta hnefa og tilheyr- andi sálmasöng úr vinstri- mennsku þess tíma, en Dóra í Hjartað býr enn í helli sínum er dæmi u m sterka Iróníska kvenpersónu sem sendir slíkar einfald- anir út í hafs- auga. Upp- vaxtasögur drengja voru vinsælar fram á níunda ára- tuginn og þar voru konur í bakgrunni frem- ur litlausar. Eft- ir því sem nær dregur samtim- anum eru skáldin sjálf- lægari og egóiö er æ sterkari rödd gegnum sögurnar. Og þaö setur mynd sína á allar aukapersónur, konur jafnt sem karla. Eftir því sem skáld þroskast og styrkjast setja þau stærra spurninga- merki viö bæöi ytri og innri veruleika í verkum sínum. Þaö á við um okk- ar bestu og stærstu höf- unda svo sem Halldór Laxness og Guðberg Bergsson en þeir hafa ort sig inn í framtíöina meö bæöi karl- og kvenkyns- persónum. Kannski er þaö ööru fremur bókmenntaum- ræðan sem vekur upp spurningar um þaö hvort menningin hérna sé ööru fremur hommasamfélag þar sem konum er mein- aöur aögangur, þaö sann- aöi síðasti umræöuþáttur um bókmenntir I sjónvarp- inu. Yngri skáld í Ijóöa- gerö viröast mörg hver heldur skammt á veg komin. Þau skrifa konur inn í hlutverkin: móöir - mella - meyja og þeir sem eru ekki valhoppandi á eftir jafnöldrum sínum útum borg og bý, búnir aö styrkja sig á brennivíni, hvíla „langsoltnir í faömi margnotaöra kvenna“ líkt og segir í einu Ijóöi eftir skáld af yngri kynslóðinni. Þá farnast kvenkynsles- endum stundum öfugt viö Ijóömælandann og þær hætta aö hvíla langsoltn- ar í faömi margnotaðra orða og hugleiöa afhverju nítjándu aldar hugsunar- háttur eigi ennþá upp á pallboröið hjá ungum rjóö- um skáldmennum í lok „Meðgöngutími og magavöxtur“ Til aö meta hvernig ís- lenskum rithöfundum tekst upp í kvenlýsingum finnst mér best aö íhuga hvaöa kvenpersónur ís- lenskra bókmennta lifa í huga mínum. Eftir hvaöa kvenpersónum man ég best, hverjar koma mér viö? { mínum huga skipa heiöursess þær Salka Valka og Snæfríöur ís- landssól svo ekki sé minnst á margar kvenlýs- ingar íslendingasagna. Samanburð við þær þola fáar síöari tíma persónur. En þar sem spurt er sér- staklega um samtímahöf- unda verö ég aö viður- kenna aö nær allar þær kvenpersónur sem mér finnst aö komi mér viö eru úr bókum kvenrithöf- unda. Ég get nefnt Ellu úr Hringsól Álfrúnar Gunn- laugsdóttur, Öldu úr Tímaþjófi Steinunnar Sig- urðardóttur, ísbjörgu úr samnefndri skáldsögu og Guörúnu Magnúsdóttur úr Stúlkunni í skóginum og síöast en ekki síst hina frábæru Tötru úr bókum Málfríðar Einarsdóttur. Þaö er heldur fátæklegt um að litast þegar litiö er til karlrithöfunda, satt best aö segja. Ástæöan kannski fyrst og fremst aö þeirra aðalpersónur eru yfirleitt af karlkyni. Viö fyrstu umhugsun man ég bara eftir leiöinlegum systrum (Riddarar hring- stigans), Rósum (í bókum Þórarins Eldjárns), tauga- veikluöum mæörum (Tröllakirkja) og fremur lit- lausum kærustum (Mín káta angist, Þetta eru asnar Guöjón). Nokkrir samtímahöfundar af karl- kyni hafa þó haft kvenper- sónur I aðalhlutverkum, svo sem Guðbergur í Svaninum og Hallgrímur Helgason í Hellu. í síöar- nefndu bókinni var þaö einmitt sú persónulýsing sem var veikasti hlekkur verksins aö mínu mati en margt annað feikna vel gert til aö mynda sér- stæöar náttúrulýsingar og stíll. Litla stúlkan í Svanin- um er hins vegar ágæt stelpa en þegar Guöberg- ur fer aö lýsa óléttu bóndastúlkunnar bregst honum heldur bogalistin þar sem meögöngutími og magavöxtur persón- unnar gengur engan veg- inn upp. Ég vil enda á aö geta einnar aukapersónu úr skáldverki frá síðasta ári sem var dregin sérstak- lega sterkum dráttum en þaö er þýska frúin í skáld- sögu Einars Kárasonar, Heimskra manna ráö. Lýsingin á henni og henn- ar stutta en átakanlega saga er þaö sem ég man best úr þessari fremur sundurlausu sögu. Snobbhill hestanna Hestaíþróttin er líklega sú undarlegasta en jafnframt sú metnaðarfyllsta sem stunduð er hér á landi. Með þessari þjóðaríþrótt íslendinga hafa þróast slíkar hefðir að annað eins þekkist varla á byggðu bóli. Snobbið er með ólíkind- um og í Víðidalnum er fátt sem minnir á hrossaskít og illa lyktandi skeppnur. Hest- arnir eru skrúbbaðir hátt og lágt, enda skiptir öllu máli að vera á flottari hesti en ná- granninn. Þá skiptir ekki minnstu að geta ættgreint bykkjuna, helst til Freysgoða- gæðingsins hins forna. Hest- arnir sjálfir eru þó smámál við hliðina á hesthúsunum, sem frekar ættu að nefnast hestahallir. Þar er reyndar ekki hestamönnum inn bjóð- andi, því fínast þykir að hafa teppalagt í hólf og gólf, full- komna baðaðstöðu með sturtu og gufubaði, að ógleymdu fullkomnu eldhúsi og koniaksstofu. Gallinn utan um reiðfólkið þarf líka að vera fullkominn og líkist oft á tíð- um ballfötum. Hvergi er til sparað. Ættir skipta miklu máli í verðlagningu hesta enda hafa verið skrifuð heilu tonnin af bókum um frænd- semi þessara skepna. Það er líka vissara að hafa allt slíkt á hreinu því dæmi eru um mann sem keypti sér gæðing á 300 þúsund og seldi hann tveimur mánuðum síðar á 6 milljónir eftir að hafa ætt- bókafært hann og sigrað á einu móti. Annar hrossabóndi var stöðvaður í því að gelda hest sinn og nokkrum misser- um síðar voru honum boðnar 9 milljónir fyrir gripinn. Ekki tók hann boðinu þar sem út- lendingar áttu í hlut. Greyið maðurinn svaf ekki í marga mánuði á eftir þegar ljóst var að á túninu hlupu milljóna- tugir. Nágranninn sem stöðv- aði geldinguna hefur fengið það ríkulega borgað því gull- molinn hefur flekað merar hans svo hastalega að á þriðja tug eftirlíkinga hlaupa nú í túninu. Annars er það ótrú- legur skepnuskapur að gelda nær alla hesta sem fæðast en það er önnur saga. 1 útreiðar- túrunum kemur svo masok- isminn í ljós, því þar vaða menn drullu í kulda og trekk, láta henda sér af baki eða láta skepnuna traðka á tám sín- um. Harðsperrur og sárindi þykja best í ölæðinu. Það þótti þó ekki þeim óvana sem missti rasshúðina í einu ferðalaginu. Hann keypti sér dömubindi og hélt sína leið.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.