Pressan - 26.08.1993, Page 39
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
HÖFUÐ HERÐAR HNÉ OG T Æ R . . .
PRESSAN 39
Þættir úr sögu kvenna
HveníiMindin oxlirnar oo öhhlornir
Líkamsdýrkun hefur löng-
um verið iðkuð af kappi. Hafa
sumir líkamspartar verið
meira áberandi en aðrir á viss-
um skeiðum sögunnar. Um
og upp úr 1930 og allan fjórða
áratuginn voru það öðru
ffemur ökklamir sem kveiktu
kynferðislegar kenndir meðal
karlmanna. Pilsin voru síð.
Eina sem augað gat hugsan-
lega gælt við voru ökklarnir.
Örfáar konur lögðu fæð á
hjónabandið eða höfðu yfir-
höfðuð enga skoðun á því.
Hefðin var enn sterk. En í
rauninni var tímasóun að
ganga í hjónaband á fjórða
áratugnum. Hið rómantíska
hjúskaparvottorð jafngilti
undirritun þjónustusamnings.
Áratug síðar komu axlirnar
í ljós. Loks var hægt að snerta
bert holdið. Lungamjúk kven-
ímyndin grét af viðkvæmni í
gegnum lífið. Glansímyndin
var allsráðandi. Þetta var tími
Heddu Hopper og Evu Peron.
Hefðirnar og hug-
myndaflugið
Brjóstadýrkunin hófst fýrir
alvöru um og upp úr 1950,
enda kjólatískan flegnari en
nokkru sinni. Að sama skapi
Hillary Clinton hefur góðan húmor.
fór umfang kvennanna
minnkandi, samanber Audrey
Hepburn. Varimar þykknuðu
og nefið varð uppbrett. Af
eldri heimskonum þótti flest-
um mest koma til mannffæð-
ingsins Margretar Mead og
leikkonunnar Bettie Davis.
Kyntákn áratugarins voru
hins vegar óneitanlega Elisa-
bet Taylor og Marlyn
Monroe. Engum sögum fór af
uppreisn konunnar eða
brostnum hjónaböndum,
nema ef til vill hjá Elisabet Ta-
ylor og hinum Hollywood-
Íeikurunum.
Eftir 1960 fór loks að draga
til tíðinda í málefnum kvenna.
Hefðirnar stóðust ekki hug-
myndaflugið. Álíka erfitt var
orðið að halda meydómnum
og fýrir giftar konur að gerast
„bara“ húsmæður eins og áð-
ur hafði verið að eiga í alvar-
legum ástarsamböndum fýrir
hjónaband og vinna utan
heimilis eftir að hafa skrifað
undir „vinnukonusáttmál-
ann.“ . Naflinn var sá líkams-
hluti sem þótti
mest kynæsandi
enda nýr í tugum
fýrir karlmönnun-
um. Uppreisnar-
seggur áratugars-
ins var leikkonan
Jane Fonda en
Goldie Hawn við-
hélt ljóskuímynd-
inni.
Þegar líða tók á
áttunda áratuginn
færðist naflinn of-
ar, eða alla leið
upp að höfðinu.
Þó náði heilinn og
innihald hans ekki
að vera kynþokka-
fyllsti líkamspart-
ur áratugarins,
heldur beindist
kynþokkakastljós-
ið að hárinu. Setn-
ing sem lýsir upp-
reisnaráratugnum
hvað best er effir-
farandi: „Á kvöld-
in þegar ég lá við
hlið eiginmanns
míns eftir að hafa rif-
ist heiftarlega við hann óskaði
ég þess oft að ég hefði haft
hugrekki til þess að lemja
hann í hausinn með steikar-
pönnunni." Enn vantaði upp
á hugrekkið.
Harðkúlurassinn og
Hillary
Um og upp úr 1980 var far-
ið að spá því að konur myndu
hreinlega enda uppi sem karl-
menn. Ekkert þótti baráttu-
mönnum og -konum fyrir
kvenréttindum eins óhugnan-
legt. Konum varð ljóst að þær
vildu ekki glata sínum kven-
legu einkennum þrátt fýrir að
vilja ffelsi til þess að lifa sínu
lífi, eftir sínu eigin höfði. Það
var þá sem kvenfrelsishreyf-
ingar urðu sterkari baráttu-
vettvangur kvenna en kven-
réttindahreyfingar. Töffari
áratugarins er án efa Margrét
Thatcher fýrrum forsætisráð-
herra Bretlands en hún hefur
oft verið nefnd karlkonan.
Burtséð frá því urðu brjóstin á
ný heitasti líkamsparturinn.
Harðkúlurassinn er hins
vegar táknrænn fyrir tíunda
ártuginn, eða ártuginn sem
mannkynið var meðvitað um
heilsuna. Töffarar áratugarins
eru hin fimmtuga lífsseiga fýr-
irsæta Lauern Hutton sem
geislar af heilbrigði og leik-
konan Susan Sharadon, auk
Hillary Clinton forsetafrúar.
Ætli eftirfarandi brandari lýsi
ekki áratugnum hvað best,
þótt enn séu eftir af honum
heil sjö ár: Forsetahjónin Bill
og Hillary Clinton voru i öku-
ferð um smábæ nokkurn í
Bandaríkjunum. Bíllinn var
að verða bensínlaus svo þau
ákváðu að stoppa á næstu
bensínstöð. Út kemur af-
greiðslumaður sem Hillary
kinkar kolli til. Bensínaf-
greiðslumaðurinn fýllir bílinn.
Síðan halda forsetahjónin
áffam för sinni. Eftir skamma
stund opnar Hillary huga sinn
og segir við Bill. „Ég átti nokk-
ur stefnumót við bensínaf-
greiðslumanninn sem af-
greiddi okkur áðan áður en ég
hitti þig.“ Þá ræskir Bill sig og
segir stoltur. „Ef þú hefðir
gifst honum værir þú stökk í
þessum smábæ í stað þess að
vera forsetafrú Bandaríkj-
anna.“ Hillary hins vegar
hristir höfuðið og svarar um
hæl. „Nei, ef ég hefði gifst
honum væri hann forseti
Bandaríkjanna, ekkj þú.“
1940: Axlirnar
1980: Brjóstin aftur
1960: Naflinn
1930: Ökklarnir
2000: Heilinn?
1970: Háriö
TAEKWON - DO
Sjálfsvarnaríþrótt
1. Eykur sjálfstraust
2. Eykur sjálfsaga
3. Sjálfsvörn
4. Líkamlegur sveigjanleiki
5. Fyrir bæöi kynin
6. Sálfræðilegt jafnvægi
Ný námskeið að hefjast í íþróttahúsi ÍR,
Túngötu v/ Landakot.
Börn 8 -12 ára: mánudaginn
30. ágúst kl. 19:00 - 20:00.
Byrjendur: mánudaginn
30. ágúst kl. 20:00 - 21:00.
Foreldrar athugið!
Sérstök námskeiö fyrir börn 8 -12 ára.
Þjáifari Michael Jörgensen 4. dan.
Upplýsingar í sima 670208
Framhaldshópur: mánudaginn
30. ágúst kl. 21:00 - 22:00
*
2*. Htúvr X tótíi 'JWtti
MLÍftðmf&h