Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STÓRSLYS Í N-KÓREU
Óttast er, að allt að 3.000 manns
hafi farist eða slasast er tvær elds-
neytislestir rákust saman á lest-
arstöð í borginni Ryongchon í Norð-
ur-Kóreu í gær. Hafa suður-
kóreskar fréttastofur eftir vitnum
og heimildum í Kína, að lestarstöðin
og næsta nágrenni hennar hafi jafn-
ast við jörðu í sprengingunni. Átti
slysið sér stað um miðjan dag í gær
að staðartíma en níu klukkustundum
áður hafði Kim Jong-Il, leiðtogi
N-Kóreu, farið um stöðina á leið
heim frá Kína.
Nýnemum fjölgar
Reiknað er með umtalsverðri
fjölgun nýnema í framhaldsskól-
unum í haust en árgangurinn er
stærri en verið hefur undanfarin ár
eða hátt í 400 fleiri en næsti árgang-
ur á undan.
Þá hefur hlutfall þeirra af hverj-
um árgangi sem sækja um nám í
framhaldsskólunum hækkað jafnt
og þétt á undanförnum árum og er
líklegt að það hlutfall muni halda
áfram að hækka.
Vaxtahækkun vofir yfir
Anne Krueger, starfandi yfirmað-
ur IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
hvatti í gær ríkisstjórnir til að sýna
aukið aðhald og búa sig þannig undir
vaxtahækkanir, sem búast mætti
við. IMF spáir því, að hagvöxtur í
heiminum verði 4,6% á þessu ári, sá
mesti frá 2000, og 4,4% á því næsta.
Engin veiði á Hryggnum
Karfaveiðar á Reykjaneshrygg
fara illa af stað og er engin veiði hjá
íslensku skipunum sem eru á mið-
unum. „Við höfum ekki fundið neinn
karfa. Þetta er bara eitt stórt núll
með gati,“ sagði Guðmundur Jóns-
son, skipstjóri á Vilhelm Þorsteins-
syni EA, fjölveiðiskipi Samherja.
Myndbirting fordæmd
Margir hafa orðið til að fordæma
CBS-sjónvarpsstöðina bandarísku
fyrir að birta myndir, sem teknar
voru fáeinum mínútum eftir bíl-
slysið, sem varð Díönu prinsessu og
ástmanni hennar að bana í París
1997. Eru þær svart-hvítar og
ógreinilegar en á þeim má þó sjá
blóðugt höfuð prinsessunnar. BBC,
breska ríkisútvarpið, sagði, að blöð í
Bretlandi hefðu þessar myndir undir
höndum en hefðu ákveðið að birta
þær ekki.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Brids 43
Viðskipti 12/13 Dagbók 44/45
Erlent 14/15 Kirkjustarf 45
Landið 16 Þjónusta 45
Daglegt líf 18/19 Íþróttir 46/47
Listir 20/23 Leikhús 48
Umræðan 24/27 Fólk 49/53
Forystugrein 28 Bíó 49/53
Minningar 30/38 Ljósvakamiðlar 54
Bréf 42 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Á SUNNUDAGINN
Nýr heilsupíramídi frá
Harvard
Sófistar samtímans
Ljósmyndarinn Brooks Walker
Ballerínur í Borgarleikhúsinu
Íslenskir hönnuðir í París
Sumartískan
Krosssaumur Bergþórs
Pálssonar
Litla stúlkan með
eldspýturnar
Sunnudagur 25.04.04
BROOKS WALKER FERÐAST UM ALLAN HEIM OG TEKUR LJÓSMYNDIR SEM BIRTAST Í ÞEKKTUM ALÞJÓÐLEGUM TÍMARITUM
HEILSUPÍRAMÍDI
ÞORBJÖRG
NÆRINGARÞERAPISTI
SJÓMÖNNUM ber saman um að
nú sé óvenjumikil ýsugengd við
landið. Afli frystitogarans Arnars
Hu 1 í síðasta túr rennir stoðum
undir þetta því ekki er ólíklegt að
þá hafi áhöfnin sett Íslandsmet í
ýsuafla í einni veiðiferð. Skipið
aflaði 500 tonna af ýsu upp úr sjó
á 34 dögum, ásamt öðrum afla.
Guðjón Guðjónsson skipstjóri
sagði að ýsufiskiríið hefði verið
mjög gott eða allt að 18 tonnum á
togtíma af hreinni ýsu. Guðjón
vildi taka það fram að eftirlits-
maður frá Fiskistofu hafi verið
um borð allan túrinn þannig að
ekki þurfi að efast um að allur
afli var nýttur „Eins og alltaf um
borð í Arnari,“ bætti hann svo
við.
Heildaraflinn í túrnum var tæp
900 tonn en mest fékkst af ýsunni
á Eldeyjarbankanum. Aflaverð-
mæti túrsins er rétt tæpar 100
milljónir króna.
„Maður skilur ekki af hverju
þeir auka ekki ýsukvótann strax
frekar en að geyma það fram á
næsta kvótaár. Það ber öllum
saman um að það er mikið af ýsu
á ferðinni allt í kringum landið“,
sagði Guðjón. „Það bar bara einn
skugga á túrinn – páskaeggin
gleymdust í landi,“ bætti hann svo
glottandi við.
500 tonn af ýsu í veiðiferð
Skipverjar eru að vonum ánægðir með góðan túr. Talið frá vinstri: Erling
Arnar stýrimaður, Guðjón skipstjóri og skipverjarnir Slavko og Sigurjón.
Skagaströnd. Morgunblaðið.
JÓN Steinar Gunn-
laugsson, lagaprófessor
við Háskólann í Reykja-
vík, heldur því fram að
álit kærunefndar jafn-
réttismála um skipun
hæstaréttardómara sé
marklaust. Þetta kom
fram í máli hans á fundi
Varðar, fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, sl. miðviku-
dag, þar sem fjallað var
um jafnréttismál.
Nefndin skautar
fram hjá ákvæði
Jón Steinar benti á að
kærunefndin hefði feng-
ið til úrlausnar hvort konunni, sem
kærði skipunina í dómaraembættið,
hefði verið mismunað vegna kynferð-
is. Í lögunum um jafna stöðu og jafn-
an rétt karla og kvenna sé kveðið á
um að atvinnurekendum sé óheimilt
að mismuna umsækjendum um starf
á grundvelli kynferðis. Í 3. málsgrein
24. greinar laganna sé sett regla um
þetta úrlausnarefni, þar sem segir að
ef leiddar séu líkur að beinni eða
óbeinni mismunun
vegna kynferðis við
ráðningu í starf, þá
verði atvinnurekand-
inn að sýna fram á að
aðrar ástæður en kyn-
ferði hafi legið til
grundvallar ákvörðun
hans.
„Þegar nefndin
fjallar um þetta er það
nauðsynleg forsenda
niðurstöðu hennar að
líkur teljist hafa verið
leiddar að því að um
beina eða óbeina mis-
munun hafi verið að
ræða. Nefndin kemst
að niðurstöðu sinni en
skautar algjörlega framhjá þessu
ákvæði,“ sagði hann.
Vitnaði Jón Steinar í niðurstöðu
kærunefndarinnar þar sem umrætt
lagaákvæði er tekið upp en síðan segi
nefndin: „Þykir kærða [dómsmála-
ráðherra] ekki hafa tekist á málefna-
legan hátt að sýna fram á að aðrar
ástæður en kynferði hafi legið til
grundvallar ákvörðun hans.“
„Þetta er ekki hægt að gera,“ sagði
Jón Steinar. „Það verður fyrst að
færa rök að því að líkur liggi fyrir í
málinu um að um mismunun vegna
kynferðis hafi verið að ræða. Ef eng-
ar slíkar líkur eru leiddar, þá lýkur
málinu þar með. Þetta gerir að mínu
mati álitsgerðina marklausa. Nefndin
sleppir því að afgreiða alveg nauðsyn-
lega forsendu þess að hægt sé að
fjalla um málið á þessum grundvelli,“
sagði hann.
Engar líkur leiddar að því að um
mismunun hafi verið að ræða
Jón Steinar tók einnig fram að það
væri alveg augljóst að engar líkur
væru á því að um mismunun vegna
kynferðis hefði verið að ræða í þessu
máli.
„Ástæðan er sú að þarna sóttu
fleiri umsækjendur af báðum kynjum
um embættið. Rökstuðningur ráð-
herrans fyrir skipuninni snertir ekki
kynferði og varð til þess, að sá sem
skipaður var í embættið var líka tek-
inn fram fyrir aðra karlumsækjend-
ur. Það er alveg augljóst að það
standa engar líkur til þess að kynferði
eigi einhvern hlut að máli við þessar
aðstæður,“ sagði hann.
Jón Steinar Gunnlaugsson lagaprófessor
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Álitsgerð kærunefndar
jafnréttismála marklaus
LÖGREGLAN í Reykjavík færði tíu
manns á lögreglustöð í fyrrinótt
vegna fíkniefnabrota í fjórum að-
skildum málum þar sem kókaín, am-
fetamín og kannabis kom við sögu. Í
þremur tilvikum komust málin upp
við umferðareftirlit og vegna líkams-
árásar í því fjórða. Í fyrsta málinu
klukkan hálfeitt eftir miðnætti voru
fjórir handteknir og fannst eitthvað
af ætluðu kókaíni á einum úr hópnum
og ætlað hass og amfetamín á öðrum.
Þá voru tveir menn fluttir á lög-
reglustöð vegna líkamsárásarmáls
og fundust þá ætluð fíkniefni á öðr-
um þeirra, en ekki var vitað um
magn eða tegund. Þá voru tveir
handteknir og fannst ætlað hass á
öðrum og að lokum klukkan 6:30 í
gærmorgun var par handtekið og
fundust þá 8 grömm af amfetamíni
og 1 gramm af kannabis á piltinum.
Fjögur fíkni-
efnamál á
einni nóttu
♦♦♦