Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 39 ekki fullkomin nema ég væri búin að koma í heimsókn til ykkar. Það verð- ur svolítið skrítið að koma núna í heimsókn en ég efa ekki að það verði alltaf jafn gott og skemmtilegt því ég veit að þú ert enn til staðar. Ég verð nú að segja það að þú ert mjög heppinn maður því hún móðir mín hefur eflaust tekið vel á móti þér. Mér finnst rosalega gott að hugsa til þess að nú getið þið mamma hugsað um hvort annað. Ég vil biðja þig að skila góðri kveðju til mömmu. Fólk er oft að segja mér að ég sé alveg eins og mamma og er það mesta hrós sem ég get fengið því í mínum augum var mamma algjör hetja. Hún var svo dugleg í öllu, hress, kærleiksrík og bara alveg meiriháttar. Ég get bara ekki lýst því hvað hún var yndisleg. En það eru eiginleikar sem hún hefur augljóslega fengið frá þér og ömmu. Einnig verð ég að segja að þú og við öll erum mjög heppin að eiga ömmu að í lífi okkar. Hún er búin að standa sig eins og hetja. Það sem hún er búin að þurfa að ganga í gegnum en alltaf stendur hún upprétt og horfir á björtu hliðarnar. Þú og mamma þurf- ið ekki að hafa neinar áhyggjur af ömmu því við munum annast hana eins vel og hægt er. Hún á allt það besta skilið og vona ég svo sannarlega að við getum veitt henni það. Ég mun sakna þín afar sárt, elsku afi minn, en því er ekki að neita að ég á margar góðar minningar enda áttum við ótelj- andi margar góðar stundir saman. Þú ert betri vinur en allt sem er, skemmtilegri en allir hér, traustur eins og ég hugsaði mér, það versta er að þú ert ekki hér. Þín að eilífu, dótturdóttir Ninja Ýr. Kær frændi er kvaddur í dag, Ein- ar M. Jóhannsson, föðurbróðir minn. Á slíkri kveðjustund fer hugurinn á flug og minningarnar hrannast upp. Þeim minningum sem tengdar eru Einari fylgja hlýja og kærleikur hvort sem minnst er gleðistunda eða sorg- ar. Sem betur fer voru gleðistundirn- ar miklu fleiri. Einar, frændi minn, hefur lokið göngu sinni hér á jörð og skilur eftir sig minningu um einstaklega ljúfan og góðan mann sem vildi hvers manns vanda leysa og alls staðar láta gott af sér leiða. Hann var mikið prúðmenni og hafði afar góða nærveru. Oft var hann glettinn og geislaði af honum kímnin þegar hann sagði frá eða hlýddi á skemmtilegar frásagnir. Eftiminnilegar eru margar sam- verustundir á heimili Einars og fjöl- skyldu hvort sem var á Skólavörðu- stígnum, Sólheimum eða Bleikjukvísl. Þar var greinilegt hvað þau hjón Ein- ar og Sigga voru samrýmd og sam- hent. Oftast voru þau nefnd í sömu andrá enda lífsförunautar allt frá æskuárum. Þau voru líka alltaf au- fúsugestir á heimili foreldra minna og seinna mínu heimili og minnar fjöl- skyldu. Tryggð þeirra og hlýja lýstu sér ekki síst í því hve vel þau hafa reynst móður minni eftir lát föður míns. Ánægjulegt var að fylgjast með uppvexti barna þeirra Margrétar, Kristínar og Jóhanns. Þar sameinuð- ust gott upplag og ástúðlegt uppeldi. Mikil var sorgin þegar Kristín, dóttir þeirra varð bráðkvödd fyrir tveimur árum. Síðastliðinn páskadag, mestu hátíð kristninnar – upprisuhátíðina, áttum við fjölskyldan í Melselinu því láni að fagna að hafa þau hjón hjá okkur eftir morgunmessu fram eftir degi. Ekki hvarflaði að okkur að þetta væri í síð- asta sinn sem við fengjum notið nær- veru Einars. Fyrir þessa stund erum við sérlega þakklát og mun minningin um hana lifa áfram í hugum okkar. Við Haukur, synir okkar og fjöl- skyldur þeirra vottum Siggu, börnum hennar, tengdabörnum og barna- börnum dýpstu samúð. Einnig viljum við flytja þeim innilegar samúðar- kveðjur frá Regínu, móður minni, Óttari, bróður mínum og fjölskyldu hans. Við þökkum Einari, föðurbróð- ur mínum, fyrir tryggð hans og vin- áttu öll þessi ár. Guð blessi minningu hans. Kristín G. Ísfeld.  Fleiri minningargreinar um Ein- ar M. Jóhannsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Bjarni Ásgeirs-son fæddist á Ak- ureyri 7. október 1960. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 8. apríl síðastliðinn. Bjarni var sonur hjónanna Ásgeirs Rafns Bjarnasonar, bifreið- arstjóra frá Akur- eyri, f. 22.11. 1940, og Önnu Steinsdótt- ur frá Auðnum í Ólafsfirði, f. 4.12. 1941. Systkini Bjarna eru: 1) Har- aldur Jón, bifreiðarstjóri, f. 27.1. 1962, sambýliskona hans er Þóra Ösp Magnúsdóttir og eiga þau þrjú börn en fyrir átti Þóra eina dóttur. 2) Ásgeir, forstjóri, f. 21.11. 1963, sambýliskona hans er Margrét Lillý Árnadóttir og eiga þau tvo syni. 3) Ingþór, framkvæmdastjóri, f. 17.3. 1967, eiginkona hans er Ingibjörg Hauksdóttir og eiga þau þrjú börn. 4) Steinn Árni, framkvæmdastjóri, f. 30.3. 1968, eigin- kona hans er Kristín Lilja Svansdóttir og eiga þau tvo syni. 5) Anna Sigríður, sölu- maður, f. 7.11. 1972, eiginmaður hennar er Bjarni Björnsson og eiga þau tvær dætur. Bjarni vann hjá Mjólkursamlagi Ak- ureyrar frá árinu 1975–1986. Þá flutt- ist hann til Reykja- víkur ásamt foreldrum sínum og systur. Hann hóf þá störf hjá Mjólkursamsölu Reykjavíkur. Hann gegndi þar m.a. starfi trún- aðarmanns og sat í samninga- nefnd Eflingar. Hann lét af störf- um árið 2001 vegna veikinda sinna. Útför Bjarna fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Það er svo erfitt að finna orð þeg- ar foreldrar kveðja barnið sitt í hinsta sinn. Ævi þín varð ekki löng, en hún var erfið og ströng. Þú varst hetjan sem aldrei kvartaðir og tókst öllu með æðruleysi. Elsku Bjarni okkar, við þökkum þér samfylgdina og biðjum góðan guð að gæta þín. Sofðu engill, senn er nóttin nærri, svanirnir fela höfuð undir væng. Dagurinn hefur gefið okkur gjafir, gefur nóttin sína mjúku sæng. Sofðu engill, augun leggðu aftur, álfarnir geyma fögru gullin þín. Dagurinn hefur kveðjuorðin kallað, hvíslar nóttin næturljóðin sín. Sofðu, engill, finndu fagra drauma, fuglar í laufi lokað hafa brá. Dagurinn bakvið fjöllin hefur farið, friðarnóttin felur okkur þá. Sofðu, engill, engu skaltu kvíða, andar golan yfir mýrarsef. Dagurinn var svo vorbjartur og fagur, vefur nóttin drauma þinna stef. Sofðu, engill, sólbjartur á vanga, svífur máni yfir höfin breið. Dagurinn gaf þér visku, kjark og vonir, verndar nóttin þig á langri leið. (Friðrik Erlingsson.) Mamma og pabbi. Dagurinn í dag er skrítinn dagur. Nú kveð ég minn ástkæra bróður Bjarna í hinsta sinn. Þegar ég hugsa til baka og fer yfir æfi hans frá því ég man eftir mér koma margar minningar upp í hugann. Bjarni var meðlimur í Bílaklúbb Akureyrar og unni hann öllu því sem við kom bíl- um og öðrum farartækjum. Ósjald- an tók hann mig með á torfæru, kvartmílu, ískross eða hvað þetta nú heitir allt. Oftar en ekki endaði ég sem aðstoðarmanneskja í sjoppunni með vinkonum hans og fékk ég hraun- eða æðibita að launum. Alltaf man ég þegar hann batt snjóþotuna mína aftan í snjósleðann sinn og fór með mig hring í hverfinu, og þegar ég fékk að fara með honum á Willys jeppanum blæjulausum niður í Odd- eyrarskóla fyrir bílasýningu á 17. júní. Eftir að við fluttum suður og ég komst á unglingsárin hefði ég haldið að bilið milli okkar myndi breikka, en svo var nú ekki. Hann varð að geta fylgst með systur sinni og útvegaði mér vinnu með skól- anum í ísgerðinni þar sem hann vann í mörg ár. Við unnum þar sam- an í tvö sumur. Það var rosalega skemmtilegur tími. Þegar ég loksins fékk bílpróf lánaði hann mér oft bíl- inn sinn til þess að fara á rúntinn með stelpunum, og þegar ég varð eldri og við stelpurnar vorum farnar að fara út á lífið var hann boðinn og búinn til þess að skutla okkur út um allt og alltaf var hann jafn rólegur þótt hann þyrfti að bíða eftir okkur. Ferðaþrá Bjarna var alla tíð rosa- lega mikil og held ég að við systk- inin höfum öll farið með honum til útlanda. Ég var svo lánsöm að fara með honum til Túnis og á sú ferð á eftir að lifa lengi í minni mínu. Ósjaldan vitnuðum við í þessa ferð, t.d. ferðina inn í Sahara þegar við keyrðum í marga klukkutíma og ekkert að sjá nema ólífutré, ólífutré, ólífutré og svo sofnaði maður bara, eða úlfaldareiðina í eyðimörkinni sjálfri (hann tók sig vel út á úlfald- anum), og þegar við fórum á berba- kaffihúsið og honum voru boðnir fleiri tugir úlfalda og eitthvað fleira í mig. Mikið gat hann hlegið þegar hann sá fyrir sér gróðastarfsemi á úlfaldaferðum um Sprengisand ef hann tæki nú tilboðinu. Ha, ha, ha. Einn af kostum Bjarna var að hann átti mjög auðvelt með að kynn- ast fólki. Ég held að í flestum af hans ferðum hafi hann náð að mynda einhver tengsl við einhvern í ferðinni, og þegar heim var komið átti hann til að kalla alla saman á myndakvöld eða eitthvað annað. Þegar Bjarni (Björnsson) maður- inn minn kom inn í okkar líf tók Bjarni bróðir honum með opnum örmum. Með þeim mynduðust fljótt góð tengsl og iðulega kölluðu þeir hvor annan nafna. Þótt þeir væru ekki sammála um allt þá var svo gaman að hlusta á þá takast á í orð- um. Þeir voru ekki sammála í póli- tíkinni, og Bjarni (B) hélt með Val en Bjarni bróðir með KA (það er ekki góð blanda), Bjarni (B) hélt með Arsenal en hann með Liver- pool, en Bjarni (B) fylgdist sem bet- ur fer ekki með formúlunni eins og Bjarni bróðir en þrátt fyrir þetta ósamræmi þá voru þeir mestu mát- ar. Eftir að dóttir okkar Kristín Birta og síðar Birgitta Líf fæddust tók við gott dekurtímabil hjá Bjarna, hann hafði svo gaman af því að halda á henni og þegar Kristín Birta var bara pínulítil dekraði hann hana, sérstaklega í gjöfum. Alltaf hitti hann naglann á höfuðið hvað gjafir varðaði handa krökkunum í fjöl- skyldunni, það var eins og hann læsi hugsanir barnanna. Ein jólin gaf hann til dæmis Kristínu Birtu skíða- græjur. Eftir að veikindi Bjarna fóru að segja meira til sín þá, eins og áður hefur komið fram, var útþrá hans alltaf mikil. Síðasta ferðin sem hann fór í var með Halla bróður okkar til Ítalíu á Formúla 1 kapp- akstur. Og var sú ferð skemmtileg en jafnframt mjög erfið fyrir Bjarna. Eftir að hann kom heim fór heilsa hans versnandi og ofan á allt var hann farinn að fara í nýrnavél þrisvar í viku á Landspítalanum, sem varð til þess að hann átti erf- iðara með að ferðast. En nú er hann kominn í gott ferðalag og getur heimsótt hvaða land eða hvaða heim sem er. Elsku Bjarni minn, nú kveð ég þig í hinsta sinn með söknuð í hjarta en minningarnar um óeigingjarnt líf þitt og þrautseigju lifa með okkur öllum sem kynntumst þér. Takk fyr- ir allt og allt. Þín alltaf systir Anna Sigríður. Í dag kveðjum við góðan dreng, bróður, mág og frænda okkar, Bjarna Ásgeirsson. Bjarni, þú varst allt of ungur til að deyja en sjúkdómurinn sem þú barðist við nánast alla ævi tók sinn toll og nú er þrautagangan á enda. Oft var þetta mjög erfitt en nú ert þú búinn að fá hvíldina þína, elsku Bjarni. Þrátt fyrir alvarlegan sjúkdóm þá fórst þú inn í lífið af sömu lífsgleði og flestir aðrir og lést veikindin ekki aftra þér við að stunda áhugamál þín og störf, svo oft þótti okkur hin- um nóg um. Þú barmaðir þér aldrei og það var aldrei neitt að hjá þér. Í raun og veru gerðum við okkur ekki grein fyrir hversu veikur þú varst orðinn fyrr en við fórum saman í sumarfrí til Portúgals árið 1997. Óneitanlega var okkur öllum mjög brugðið. Bílar og ferðalög voru helstu áhugamál þín. Þú varst lengi virkur meðlimur í bílaklúbbi Akureyrar og eru myndirnar ófáar sem þú átt af alls kyns bílum. Oft lagðir þú mikið á þig til að komast á bílasýningar, kappakstra og aðra viðburði tengd- um þeim. Þú hafðir mikla útþrá og varst aldrei jafn kátur og spenntur eins og þegar til stóð að bregða sér út fyrir landsteinanna. Skemmst er að minnast utanlandsferðarinnar sem þú ætlaðir að fara í sumar og pant- aðir þér öllum að óvörum. Það er ekki hægt að neita því að þá fór mikill skjálfti um okkur öll. Síðustu árin voru veikindi þín orð- in þess eðlis að þú hættir að geta tekið þátt í daglega lífinu á vinnu- markaðinum. Aldrei féll þér þó verk úr hendi heldur fannstu þér alltaf nóg að gera. Þú eyddir heilu og hálfu dögunum í bílskúrnum heima hjá þér og smíðaðir. Kappið var oft mikið og sneiddir þú framan af ein- um fingrinum við þessa iðju en hélst svo áfram þegar að var gert eins og ekkert hefði í skorist. Þú gerðir allt til að sýna þeim sem stóðu þér næst hvaða þýðingu þeir höfðu fyrir þig. Ákafinn við að gleðja aðra kom þarna vel fram því oftast varst þú að smíða gjafir handa þínum nánustu. Okkur er mjög minnisstætt þegar þú kallaðir okkur niður í bílskúr eitt kvöldið og gafst okkur burstabæ í nýja garðinn okkar. Þetta var engin smásmíði, mjög vandað og greinilegt að mikill tími hafði farið í þetta. Burstabær- inn hefur nú fengið sinn stað í garð- inum og stendur þar sem minnis- varði um þig. Kæri Bjarni. Þú hefur kennt okk- ur svo ótalmargt um þrautseigju og lífsvilja. Þú tókst ávallt þátt í allri sorg og gleði fjölskyldunnar sama hvernig stóð á hjá þér. Það eru okk- ur forréttindi að hafa fengið að fylgja þér í gegnum lífið. Að lokum viljum við fyrir hönd fjölskyldunnar senda sérstakar þakkir til Sólveigar sem reyndist okkur eins og klettur við sjúkrabeð þinn. Eins viljum við þakka öllu starfsfólki á blóðskilunardeild Landspítalans, svo og samstarfs- fólki og vinum á deild 14-G á Land- spítalanum fyrir frábæra umönnun og stuðning á erfiðum tímum. Kveðja. Steinn Árni, Kristín, Svanur Rafn og Bjarki Rúnar. Það er sama hversu langan tíma við fáum til að búa okkur undir frá- fall ástvinar, við erum aldrei tilbúin þegar kallið kemur. Sorgin og áfallið slær mann út og fær mann til að hugsa um hver tilgangurinn með þessu jarðlífi er og þá sérstaklega hvernig maður lifir lífinu. Hann Bjarni bróðir minn fékk loksins sína hvíld eftir langvinn veikindi. Á sinni ævi sýndi hann með æðruleysi sínu hvernig á að lifa lífinu og það lifandi. Alltaf var hann brosandi, til í allt og sérstaklega ef ferðalög voru rædd, hann hafði mikla útþrá og ferðalög erlendis voru hans ær og kýr. Þegar hugsað er til baka og farið yfir hvað Bjarni hefur upplifað þá er það efni í margar bækur og jafnvel bíómynd- ir, líkami hans bar þess merki að ýmislegt hefur komið upp á og ekki var hægt að segja að heppnin hafi alltaf verið með honum í för. Þrátt fyrir allt þetta var hann jákvæður og kátur með eindæmum. Honum fannst hann aldrei hafa verið veikur, aldrei var kvartað og alltaf reis hann upp tvíefldur, sama hversu stórt áfallið var. Til marks um það að ekkert amaði að honum hafði Bjarni verið nýbúinn að panta sér far til sólarlanda í sumar og nú átti að njóta þess þrátt fyrir áhyggjur foreldra og okkar systkina. Mikill er missirinn fyrir foreldra okkar sem sinnt hafa honum af mikilli elju og ástúð því þrátt fyrir sinn aldur þá var hann alltaf barnið þeirra. Systir okkar missti mikið því alltaf var sambandið þeirra á milli mjög náið og bera myndirnar í herberginu hans þess vitni. Með söknuð í hjarta kveðjum við góðan og hetjulegan bróður og frænda. Ingþór, Inga og börn. Látinn er langt um aldur fram, vinnufélagi okkar Bjarni Ásgeirs- son, sem barðist við erfiðan sjúk- dóm, sykursýki, allt sitt líf. Bjarni fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann fór ungur að starfa hjá Mjólkursamlagi KEA. Árið 1986 flyst hann með foreldrum sínum suður og hefur sama ár störf hjá ís- gerð MS, þar sem að hann starfaði í nokkur ár. Bjarni starfaði síðan við akstur fólksflutningabíla í tvö ár, en kom síðan til MS aftur og vann þá við pökkun. Haustið 2001 hætti hann störfum vegna heilsubrests. Ég undirritaður hóf störf hjá Mjólkursamsölunni í janúar 1995 og unnum við saman í tæp sjö ár. Bjarni var félagslyndur maður, hann fylgdist vel með því sem var á döfinni hverju sinni, mundi eftir af- mælum og öðrum merkisviðburðum hjá vinnufélögum sínum og stóð þá fyrir því að setja af stað lista til að safna peningum til að gleðja við- komandi. Við störfuðum saman í kjarabar- áttunni þótt aldursmunur væri nokkur og dáðist ég oft að baráttu- þreki hans. Þegar öll sund virtust lokuð, hélt hann ótrauður áfram, þótt líkamlegt þrek hans héldist ekki í hendur við það andlega bar- áttuþrek sem hann bjó yfir. Ég vil fyrir hönd okkar sam- starfsfólks hans hjá Mjólkursamsöl- unni, votta foreldrum og systkinum hans okkar dýpstu samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Eysteinn Bjarnason. Hinsta kveðja til Badda frænda sem lék sér alltaf við mig og elskaði mig svo mikið. Augun þín og augun mín, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Vatnsenda-Rósa.) Kristín Birta. BJARNI ÁSGEIRSSON  Fleiri minningargreinar um Bjarna Ásgeirsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.