Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Chilreu og Prima- auguet og út fer Víðir EA. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa s. 551 4349, fax. 552 5277, mataraðstoð kl. 14–17. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 14 bingó. Í kaffitím- anum eftir bingó verð- ur fyrirlestur um göm- ul tré í Reykjavík, Jóhann Pálsson fyrrum garðyrkjustjóri, flytur í máli og myndum. Hár- snyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16.30 smíðar. Bingó fellur niður í dag vegna handverkssýningar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 vefnaður og frjálst spil- að í sal. Kl. 10 helgi- stund, sr. Kristín Páls- dóttir. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðslustofan opin, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið Furu- gerði 1 óskar öllum gestum stöðvarinnar gleðilegs sumars. Í dag kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og útskurður. Kl. 14 sagan. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa, kl. 9–16.30, gönguhópur, kl. 9.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 opið hús, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Auglýstri fræðslu er aflýst í dag. Opið í Garðabergi 13– 17. Fótaaðgerðastofan s. 899 4223. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, Moggi, rabb, kaffi. leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11, kl. 13 úrskurður og brids. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10 létt ganga, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14.30 mæting hjá Gerðubergskór, kl. 16.20 syngur Gerðu- bergskórinn undir stjórn Kára Friðriks- sonar. S 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 myndvefnaður, kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bókband. Kl. 9–17 myndlistar- sýning. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlist, kl. 10 ganga, kl. 14 Gleðigjaf- arnir syngja. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, baðþjónusta, fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 bingó. Hvassaleiti 58–60. Fótaaðgerðir virka daga, hársnyrting þriðju- til föstudags. Norðurbrún 1. Kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrý dans. Kl. 13.30 sungið við flygilinn við undirleik Sigurgeirs. Dansað í kaffitímanum við lagaval Sigvalda. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir, kl. 13.30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 10–14. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, kl. 10. Aðalfundur Átthaga- félags Múlahrepps verður haldinn í Konnakoti á Hverf- isgötu sunnudaginn 25. apríl kl. 15. Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með sölukaffi og happdrætti sunnudaginn 25. apríl að Síðumúla 37. Húsið opnað kl. 14.30. Fé- lagsmenn styrkið félag- ið og mætið vel og takið með ykkur vini og kunningja. Stjórnin. Í dag er föstudagur 23. apríl, 114. dagur ársins 2004, Jónsmessa Hóla- biskups um vorið. Orð dagsins: Því að augu Drottins eru yfir hinum réttlátu og eyru hans hneigjast að bænum þeirra. En auglit Drottins er gegn þeim, sem illt gjöra. (1Pt. 3, 12.) Margrét Einarsdóttirlögmaður hélt uppi vörnum fyrir jafnrétt- islögin á fundi Lands- sambands sjálfstæð- iskvenna á þriðjudag.     Í erindi Margrétar, sembirt er á vefritinu Tík- inni, rekur hún meðal annars efni laganna og spyr hvort unnt sé að vera ósammála þeim. „Í 1. gr. segir að markmið laganna sé að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélags- ins. … 14. gr. laganna er sett til höfuðs launamun kynjanna en þar segir að konum og körlum er starfa hjá sama atvinnu- rekanda skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafn- verðmæt og sambærileg störf. Er þetta ákvæði sem hægt er að vera á móti? Það vita allir að á Íslandi er á milli 15 og 20% óútskýrður launa- munur.“ Margrét segir að það eina í lögunum sem orka kunni tvímælis sé reglan um jákvæða mismunun. Bendir hún þó á að margir misskilji þetta ákvæði og áréttar að samkvæmt lögunum skuli ekki taka kvenkyns umsækjanda fram yfir karl nema hún sé að minnsta kosti jafnhæf eða hæfari.     Það eru ekki góð rökað segja að það þurfi ekki jafnréttislög af því að jafnréttið sé verndað í stjórnarskránni,“ heldur Margrét áfram. „Þjóð- félag okkar er miklu flóknara en að stefnu- yfirlýsingar í stjórn- arskránni dugi til að vernda þessa mikilvægu hagsmuni. Það þarf að útfæra verndun þessara mikilvægu mannréttinda nánar í almennum lands- lögum. Bara nákvæmlega á sama hátt og það þarf að útfæra verndun ann- arra þeirra mikilvægu mannréttinda sem eru vernduð í stjórn- arskránni. Það dytti t.d. engum í hug að segja að við þyrftum ekki lög um persónuvernd eða lög sem takmarka heimildir lögreglunnar gagnvart borgurunum af því að við hefðum ákvæði til vernd- unar friðhelgi einkalífs í stjórnarskránni. Það er bara ekki nóg. Það er því miður stað- reynd, þrátt fyrir að margt hafi lagast, að konum er enn þann dag í dag mismunað á grund- velli kynferðis síns. Það er því miður ennþá of mikið um það að konum séu greidd lægri laun, eingöngu af því að þær eru konur og að gengið sé framhjá mjög hæfum konum við stöðuráðn- ingar eða stöðuhækkanir og minna hæfur karl- maður ráðinn í þeirra stað. Í þessu felast brot á grundvallarmannrétt- indum kvenna og það þarf í lögum að banna þessa háttsemi og veita konum raunhæf úrræði til að halda þá ábyrga fyrir lögum sem brjóta á þeim með slíkum hætti.“ STAKSTEINAR Jafnréttislögin eru nauðsynleg! Víkverji skrifar... Það var eitthvað að þegar Vík-verji opnaði augun í gærmorg- un, pínulítið rykaður í kollinum eft- ir pressuballið. Það tók svolitla stund að átta sig á því hvað var ekki eins og það átti að vera. Úti var glampandi sól og varla ský á himni. Gluggaveður, hugsaði Vík- verji með sér. Svo leit hann á hita- mælinn. Hann sýndi tæplega tíu stig. Hm, það hlýtur að vera fjandi hvasst, hugsaði Víkverji og leit enn út um gluggann. Þar bærðust trén ekki einu sinni og fuglarnir sungu án þess að þurfa að ríghalda sér í greinarnar. Ókei, þetta er draumur, hugsaði Víkverji og fór aftur upp í rúm. Fimm mínútum síðar hringdi síminn, Víkverji talaði við raun- verulega manneskju og sannfærðist um að hann væri vakandi – og að það væri í raun og veru gott veður á sumardaginn fyrsta. x x x Ekki var um annað að ræða en aðgera það bezta úr þessari óvæntu stöðu. Víkverji dreif sig nið- ur í bæ með börnin og þar var „út- lend“ stemmning, fólk gekk um léttklætt, borðaði ís, fór í leiki og sat úti á kaffihúsunum. Víkverji var enn ekki alveg viss um að þetta væri ekki einhvers konar Palli var einn í heiminum-ástand, þ.e. draumur sem hann myndi vakna upp af fljótlega. Svo hitti hann pró- fessor við Háskólann, sem benti honum á að þetta væru sennilega gróðurhúsaáhrifin. Guði sé lof fyrir gróðurhúsaáhrifin, hugsaði Víkverji og ákvað að geyma þangað til hinn daginn að hafa áhyggjur af hækk- andi sjávarstöðu, ofsafengnari veðrabrigðum og því öllu saman. Víkverji keypti gangstéttarkrítog sápukúlubauka handa krökkunum og eyddi síðdeginu heima í garði, las blöðin, hamraði á fartölvuna og drakk kaldan bjór, á meðan krakkarnir ærsluðust í garðinum í – já haldið ykkur nú fast – stuttermabolum og sand- ölum. Hverfið iðaði af lífi, fólk þusti hjá á reiðhjólum, línu- skautum og hjólabrettum og allir bara á bolnum! Hitamælirinn sýndi fjórtán stig og lóan söng í næsta garði. Tæplega sjö ára dama hætti skyndilega að leika sér og sagði við föður sinn: „Pabbi, þetta er bezti dagur lífs míns. Það hefur alltaf verið rigning og rok á sumardag- inn fyrsta þangað til núna.“ Pabb- inn ætlaði að fara að samsinna því, þegar sú stutta bætti við: „Nema þegar snjóaði.“ x x x Það kórónaði auðvitað góðansumardag þegar betri helm- ingur Víkverja hringdi frá Spáni, þar sem hann heldur sig þessa dagana: Það var rigning í Barce- lona. Morgunblaðið/Sverrir Skyrgerð UM daginn las ég í Morg- unblaðinu að fyrirhuguð væri skyrgerð í Kanada. Höfðu skyrmenn frá Ís- landi farið vestur og Kan- adamaður ætlaði til Ís- lands, auðvitað á kostnað langpíndra skattgreið- enda á Íslandi. Það er hreinasti óþarfi að bregða sér landa í mill- um til að læra að búa til gott skyr. Ég hef framleitt og borðað ágætis skyr hér vestra í mörg ár, eða síðan Elín Tómasdóttir úr Vík kenndi mér framleiðsluna. (Elín er gift Gunnari Jón- assyni, þau búa nú í Flór- ída). Til þess að búa til skyr, sem jafnast á við það bezta úr Borgarnesi, þarf maður plastsíu og und- anrennujógurt. Setja skal síuna yfir skál, hella jóg- urtinni í síuna, setja inn í ísskáp yfir nótt og að morgni er komið bezta skyr og talsvert af góðri mysu. Meira þarf ekki til, engin þörf fyrir erlendar heimsóknir, kokkteilboð og ríkisstyrki eins og allt- af þegar selja á þó ekki sé nema læri af lambi eða ull- artrefil. Mér þætti vænt um ef lesendur, sem eiga ætt- ingja erlendis, sem langar í gott skyr, sendu þeim þessa uppskrift. Geir Magnússon, 4052 Lisburn Road, Mechanicsburg, PA 17055. Fyrirspurn – Í ríki ljóssins BÓKAÚTGÁFAN Reyk- holt sem var á Langholts- vegi gaf út bækurnar Galdrameistarann, Ísfólkið og Í ríki ljóssins. Úr bóka- flokknum Í ríki ljóssins hafa verið þýddar 13 bækur en eftir á að þýða 7 bækur, en alls eru bækurnar 20. Hvers vegna var hætt að þýða bækurnar hennar Margit Sandemo, Í ríki ljóssins? Vonast eftir svari. J.M.G. Birkiaska við frjókornaofnæmi ÞORGEIR hafði samband við Velvakanda og vildi hann koma á framfæri að við frjókornaofnæmi væri gott að taka inn 6 hylki af birkiöskju á dag. Segir hann að það gagnist fólki mjög vel. Frábær grein MIG langar til að koma á framfæri hjartans þakklæti fyrir frábæra grein Guð- laugar Helgadóttur, hjúkr- unarkonu, Hrörnun í augn- botnum, sem birtist þriðjudaginn 17. febrúar í Daglegu lífi, Morgun- blaðinu. Það er ómetanlegt fyrir aðstandendur að fá að vita þetta. Aðstandandi. Dýrahald Kettlingar fást gefins TVEIR kettlingar, högnar, fást gefins. Þeir eru 8 vikna, kassavanir. Upplýs- ingar í síma 899 2241, 698 1811 og 565 0143. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 dökk, 4 sveia, 7 kven- mannsnafn, 8 trylltur, 9 guð, 11 skip, 13 stafn á skipi, 14 huldumaður, 15 brún, 17 landsvæði, 20 ástæður, 22 gleðjast, 23 mergð, 24 skartgrip- urinn, 25 sefur. LÓÐRÉTT 1 kvenvarg, 2 erfið, 3 hreint, 4 í fjósi, 5 sam- tala, 6 ákveð, 10 góla, 12 mathák, 13 augnalok, 15 ójafnan, 16 krók, 18 ber, 19 með tölu, 20 fornafn, 21 málmur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fársjúkur, 8 leiði, 9 gadds, 10 gái, 11 tugga, 13 renna, 15 músar, 18 sigur, 21 ólm, 22 gjall, 23 ellin, 24 flugeldur. Lóðrétt: 2 áning, 3 seiga, 4 úrgir, 5 undin, 6 glit, 7 aska, 12 góa, 14 efi, 15 megn, 16 stall, 17 róleg, 18 smell, 19 guldu, 20 rann. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.