Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 22
KARLAKÓR Hreppamanna heldur
tónleika á Flúðum kl. 21 annað
kvöld, laugardagskvöld. Kórinn
heldur einnig tónleika í Langholts-
kirkju kl. 20 á þriðjudagskvöld.
Einsöngvari með kórnum er Ólaf-
ur Kjartan Sigurðarson. Stjórnandi
er Edit Molnár en undirleikari Mikl-
ós Dalmay. Efnisskráin er fjölbreytt
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur Kjartan Sigurðarson sem rakarinn í Sevilla.
úrval innlendra og erlendra laga.
Karlakór Hreppamanna hefur
starfað í sjö ár og eru söngfélagar nú
44, búsettir víðsvegar í uppsveitum
Árnessýslu. Stjórnandi og undirleik-
ari hafa verið þau sömu frá upphafi
og hefur kórinn vaxið og dafnað und-
ir öruggri handleiðslu þeirra, segir í
kynningu.
Hreppamenn
syngja á Flúðum
Á SKÁLDASTEFNU forlaga
Eddu útgáfu á Degi bókarinnar í
kvöld koma saman um 25 rithöf-
undar og ljóðskáld sem öll eru al-
menningi vel kunn fyrir verk sín.
Stefnan verður á Hótel Borg og
hefst kl. 20.
Einnig verður myndasýning úr
ritinu Íslensk spendýr sem kemur
út hjá Vöku-Helgafelli í maí. Að
sögn Kristjáns B. Jónassonar þró-
unarstjóra hjá Eddu er það ekki
oft sem teflt er fram á einu kvöldi
slíkum fjölda ástsælla rithöfunda
bæði gróinna stórskálda og yngri
höfunda. „Þannig lesa úr verkum
sínum jafnt skáld á borð við
Þorstein frá Hamri sem höfundar
sem hafið hafa á loft íslensku
spennusagnabylgjuna, þeir Viktor
Arnar Ingólfsson og Ævar Örn
Jósepsson að ógleymdum Arnaldi
Indriðasyni. Ævisagnaritararnir
Guðjón Friðriksson og Silja Að-
alsteinsdóttir lesa úr vinsælum
bókum sínum. Þeir Andri Snær
Magnason og Hallgrímur Helga-
son lesa úr sögunum LoveStar og
Höfundur Íslands sem nýverið
komu út í kilju og Steinunn Sig-
urðardóttir og Einar Kárason úr
bókum sem eru væntanlegar á
næstunni.
Von er á heildarsafni ljóða
Steinunnar og Einar Kárason hef-
ur steypt saman bókunum
Heimskra manna ráð og Kvika-
silfur í eina endurskoðaða gerð
sem ber nafnið Killiansfólkið.
Ari Trausti Guðmundsson les úr
ljóðabókinni Í leiðinni sem kom út
nýverið og væntanleg er í kilju
bókin Hrapandi jörð eftir Úlfar
Þormóðsson sem hann les úr. Það
sem er einnig spennandi við
Skáldastefnuna er að margir
þeirra sem koma fram gefa út ný
verk seinna á árinu og vera má að
þeir lesi úr þeim. Má þar nefna
Þórarin Eldjárn, Stefán Mána,
Gerði Kristnýju, Úlfar Þormóðs-
son, Birnu Önnu Björnsdóttur og
Vilborgu Davíðsdóttur.“
Að sögn Kristjáns innsigla síðan
vinsælir höfundar á borð við Pétur
Gunnarsson, Guðmund Andra
Thorsson, Guðrúnu Helgadóttur,
Kristínu Marju Baldursdóttur og
Einar Má Guðmundsson þessa
miklu skáldastefnu, en þess má
geta að Einar Már Guðmudsson er
nú sá íslenski rithöfundur sem víð-
ast hefur farið með verk sín á
seinni árum, en útgáfuréttur
Engla alheimsins hefur nú verið
seldur til 22 landa.
Sigurskáldið í ljóðakeppni Eddu
útgáfu og Fréttablaðsins verður
krýnt í kvöld og les sigurljóðið.
Skáldastefna
á Hótel Borg
Einar Már
Guðmundsson
Gyrðir
Elíasson
Arnaldur
Indriðason
Steinunn
Sigurðardóttir
LISTIR
22 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
umfjöllunar um listamanninn og verk
hans í erlendum fjölmiðlum.
Heimsóknir sem þessar og kynni
við hina ólíku, erlendu gesti er mikil
lyftistöng fyrir safnið og mun án efa
nýtast starfsemi þess í framtíðinni.“
Soffía segir að Listasafn Reykja-
víkur hafi aldrei fyrr ráðist í eins
FROST Activity, metaðsóknarsýning
Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu, rennur sitt skeið á enda á sunnu-
dag, en þá hefur hún staðið yfir í þrjá
mánuði og viku betur. Á þessu tíma-
bili hafa tæpleg 39.000 manns séð
þessa sýningu á verkum Ólafs Elías-
sonar.
„Sýningin hefur ekki síður hreyft
við yngri kynslóð þjóðarinnar. Frá
því sýningin var opnuð hafa skipu-
lagðar heimsóknir skólahópa í safnið
aukist jafnt og þétt frá degi til dags.
Upp á síðkastið hefur starfsfólk
fræðsludeildar safnsins tekið á móti
allt að tólf aðskildum skólahópum á
dag og boðið þeim leiðsögn við hæfi
en hóparnir standa saman af leik-
skólabörnum til háskólastúdenta. Nú
hafa 320 hópar skólafólks eða um
9.000 nemendur séð Frost Activity og
notið leiðsagnar fagfólks við afar já-
kvæðar og góðar undirtektir nem-
enda sem kennara. Til samanburðar
má geta þess að Listasafn Reykjavík-
ur tekur að meðaltali á móti 345 hóp-
um skólafólks í öll þrjú hús safnsins á
ári,“ segir Soffía Karlsdóttir kynn-
ingarstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Í tengslum við sýninguna hefur
Listasafn Reykjavíkur einnig staðið
fyrir reglubundinni sunnudags-
leiðsögn einu sinni til tvisvar á dag.
Auk þess fjölbreyttum viðburðum s.s.
listasmiðjum, fyrirlestrum, lista-
mannsspjalli, fjölskylduleikjum og
fjölskyldunámskeiðum. Á sýning-
artímabilinu kom einnig út sýning-
arskrá sem Gunnar J. Árnason ritaði
sem er minnisvarði um sýninguna um
ókomna tíð.
Aldrei meiri athygli erlendis
Soffía segir að sjaldan eða aldrei
hafi sýningar Listasafns Reykjavíkur
hlotið jafnmikla athygli utanlands og
Frost Activity en hún hefur laðað að
sér fjölda erlendra ferðamanna,
blaðamanna, listaverkasafnara og
gagnrýnenda. „Afrakstur þessara
heimsókna hefur í senn skilað góðri
kynningu fyrir safnið, höfuðborgina,
ferðaþjónustuna og lista- og menn-
ingarlífið í landinu auk lofsamlegrar
stórhuga verkefni og umrædda sýn-
ingu Ólafs Elíassonar. „Útkoman
færir heim sanninn að samtímalist á
erindi við alla og þjóðin vill sjá og
upplifa myndlist þeirra myndlist-
armanna sem hlotið hafa viðurkenn-
ingu á alþjóðavísu. Framtakið er
Listasafni Reykjavíkur hvatning til
að stuðla enn frekar að kynningu á al-
þjóðlegri samtímalist eins og hún
gerist best hverju sinni og sinna um
leið einu meginhlutverki sínu – að
vera uppeldis- og menntastofnun
myndlistar fyrir æskuna í landinu.“
Hafnarhúsið er opið daglega frá kl.
10–17.
Metaðsóknarsýningu Ólafs Elíassonar í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu lýkur um helgina
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Elíasson spjallar við gesti á sýningu sinni, Frostvirkni eða Frost Activity, í Hafnarhúsinu.
„Samtímalist á
erindi við alla“
Neskirkja við Hagatorg kl.
20.30 Pamela De Sensi þver-
flautuleikari og Steingrímur Þór-
hallsson orgelleikari spila tónlist
eftir J.S. Bach.
Á dagskrá verða meðal annars
þrjár sónötur og einnig Passa-
caglia í c-moll. De Sensi hefur
komið víða fram sem einleikari en
starfar nú sem kennari á Selfossi.
Steingrímur er mjög virkur í tón-
listarlífi nú um stundir og hefur
hann hlotið góða dóma fyrir ein-
leikstónleika sína.
Hann starfar sem organisti við
Neskirkju.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Föstudagur
Iðnó kl. 13–16 Bókaþing –
2004. Sigurður Svavarsson,
formaður Félags íslenskra
bókaútgefenda, setur þingið.
Rúnar Helgi Vignisson rithöf-
undur flytur erindið Þýð-
inguna eða lífið? Bókin á skján-
um. Pallborðsumræður með
þátttöku Sigurðar Valgeirs-
sonar, Rúnars Gunnarssonar
deildarstjórs IDD. Rúv, Magn-
úsar Ragnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Skjás 1, og full-
trúa frá Stöð 2. Hefur
spennusagan engin landa-
mæri? Niccolò Ammaniti og
Katrín Jakobsdóttir bók-
menntafræðingur skiptast á
skoðunum. Hnignar bóklestri?
Þorbjörn Broddason gerir
grein fyrir niðurstöðum á
könnun á fjölmiðla- og frí-
stundavenjum íslenskra ung-
menna. Pallborð: Þorbjörn
Broddason prófessor, Baldur
Sigurðsson dósent við Kenn-
araháskóla Íslands og Guð-
björg Sveinsdóttir rekstrar-
fulltrúi skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar.
Amtsbókasafnið á Akureyri
kl. 16–18 Upplestur 9. bekk-
inga.
Bókasafn Grindavíkur,
Kvenfélagshúsið Grindavík
kl. 17 Þórarinn Eldjárn, rithöf-
undur, les úr eigin verkum.
Barnakórinn og nemendur úr
Grunnskólanum og Tónlistar-
skólanum skemmta með upp-
lestri, tónlist og söng.
Vika
bókarinnar
Á NORÐURBRYGGJU í Kaup-
mannahöfn verður opnunarhátíð
sýningar Smekkleysu, Humars eða
frægðar, í dag, föstudag og laug-
ardag.
Hljómsveitirnar Steintryggur,
Ghostigital og Slowblow koma fram.
Margrét Sara Guðjónsdóttir flytur
dansverk, Dómkórinn flytur nokkur
lög, skáldin Sjón og Bragi Ólafsson
lesa upp, Curver sér um
Smekkleysumix og Úlfhildur Dags-
dóttir flytur erindi um íslenska
þjóðarímynd í tónlistarmyndbönd-
um Sykurmolanna, Bjarkar, Sigur
Rósar, Múm og Mínuss.
Ljósmyndir eftir Björgu Sveins-
dóttur og Stefán Karlsson af
Smekkleysuhljómsveitum skipa
veglegan sess á sýningunni, en þar
er einnig margt muna úr fórum
Sykurmolanna og fleiri. Í tengslum
við sýninguna verða sýndar kvik-
myndirnar Rokk í Reykjavík eftir
Friðrik Þór Friðriksson, Ferill Syk-
urmolanna eftir Jóhann Sigfússon,
SSL-25 eftir Óskar Jónasson, HAM
lifandi dauðir eftir Markel og Glys-
girni og Lost weekend eftir Dag
Kára.
Jafnframt verður úrval íslenskra
tónlistarmyndbanda á sýningunni
sem mun standa til 27. júlí.
Á vefsvæði Norðurbryggju,
www.bryggen.dk, er að finna nánari
upplýsingar.
Norræni menningarsjóðurinn,
Flugleiðir, menntamálaráðuneytið,
Reykjavík loftbrú og Norður-
bryggja styrkja sýninguna.
Humar eða frægð á Norðurbryggju