Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 27 Styrkjum börn frá efnalitlum heimilum á Íslandi óháð búsetu til dvalar í sumarbúðum eða til þátttöku í leikjanámskeiðum. Fjárgæsluaðili er Íslandsbanki Garðabæ og liggja gíróseðlar frammi í öllum útibúum bankans. Söfnunarsíminn er 901 5050, með innhringingu gjaldfærast 500 krónur á reikning þess sem hringir. Bankareikningur verkefnisins er 0546-26-6609 kt: 660903-2590 Verndari söfnunarinnar er Árni Johnsen fyrrv. alþingismaður. Með kveðju, Árni Johnsen og Fjölskylduhjálp Íslands Hlúum að íslenskum börnum S kr ým ir h ö n n u n 2 0 0 4 Dönsk-íslensk orðabók er viðamesta og glæsilegasta orðabók um grannmálin í norðri sem gefin hefur verið út á Íslandi. Hún er einkar aðgengileg og handhæg öllu skólafólki og þörf handbók á heimilum og vinnustöðum. Bókin hefur verið ófáanleg um tíma en kemur nú í annarri útgáfu, talsvert aukin og endurbætt. Rúmlega 1000 blaðsíður Liðlega 46000 uppflettiorð Fjölmörg orð af sérsviðum, valin í samvinnu við sérfræðinga Núgildandi dönsk stafsetning Beygingar og önnur málfræðiatriði í samráði við Danska málnefnd Vandaður frágangur og læsilegt letur Eiguleg gjöf! edda.is Loksins fáanleg afturer óvistvæn og háð framboði og verð-lagi á takmarkaðri auðlind. Rafgrein-ing vatns er aftur á móti sjálfbær að-ferð til að framleiða vetni, efrafmagnið kemur frá endurnýjanleg-um orkulindum, eins og jarðvarma eða vatnsföllum. Sá hængur hefur verið á þessari aðferð, að hún hefur verið dýrari en vinnslan úr jarðefna- eldsneyti. Nú er olíuverð hins vegar komið upp í um 35 USD/tunnu og ætla má, að jafnaðarverð olíunnar þurfi aðeins að hækka um 15 % til við- bótar til að rafgreining úr vatni með rafmagni úr íslenzkum orkulindum geti orðið arðsöm. Íslenzkt orkukerfi Jarðhiti hentar einkar vel til fram- leiðslu vetnis. Framleiða má vetni úr gufunni með rafstraumi og þarf þá minna rafmagn en ella. Ennfremur dugar ótryggð orka til vetnisfram- leiðslu, sem er ódýrari en forgangs- orka. Nú fara árlega um 435 kt (þús- und tonn) af eldsneyti á íslenzka bíla og skip. Til að knýja þessa farkosti með vetni þyrfti 81 kt og til að fram- leiða það þyrfti um 4300 GWh af raf- orku eða virkjun að uppsettu afli á borð við Kárahnjúkavirkjun. Þetta er aðeins um fimmtungur þeirrar raforku, sem talið er að fram- leiða megi á íslenzkum háhitasvæð- um, og slík orkuvinnsla mundi falla vel að íslenzkri orkustefnu og orku- kerfi. Ef vetni yrði einnig notað til að knýja þotuhreyfla, yrði nánast öll orkunotkun landsmanna af vistvæn- um toga, og yrðu Íslendingar senni- lega fyrstir iðnvæddra þjóða til að ná því marki. Í þessu sambandi má geta þess, að hlutfall vistvænnar orkunotkunar í ESB (Evrópusambandinu) er aðeins 7%. Þar á bæ setja menn markið á 15% árið 2020 og þurfa að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 200 milljónir tonna árið 2012 vegna Kyoto-samkomulagsins, en það þykir harla vonlaust, nema með því að fresta lokun kjarnorkuvera. Samgöngur á landi Samgöngutæki á landi nota tæplega helming alls eldsneytis á Íslandi. Í þetta fer verulegur og vaxandi gjald- eyrir og eldsneytisbruna fylgir um- talsverð mengun. Þróunin, sem hér hefur verið lýst, mun þó draga úr þessu vandamáli hérlendis þegar á fyrsta fjórðungi þessarar aldar. Í þessu ljósi er óskiljanlegt, að borgaryfirvöld Reykjavíkur (R-list- inn) skuli nú gæla við þá hugmynd að rífa upp götur borgarinnar til að koma þar fyrir járnbrautarsporum fyrir léttlest. Hún er sett til höfuðs einkabílnum, sem þó hefur unnið sér hefð hérlendis sem langþægilegasta samgöngutækið. Hérlendis eru engir innviðir fyrir sporbundin samgöngu- tæki og þyrfti að þróa þá frá grunni. Tap léttlestafyrirtækis gæti numið 4 milljörðum króna á hverju ári, og bíl- eigendum yrði sendur reikningurinn. Tapið á „Strætó“ mundi vart minnka við nýja samkeppni. Nær væri að auka öryggi gatnakerfisins. ’Tap léttlestafyrir-tækis gæti numið 4 milljörðum króna á hverju ári.‘ Höfundur er rafmagnsverk- fræðingur. ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.