Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jón Björn Benja-mínsson fæddist á Súðavík 29. júlí 1914. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 14. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Stein- unn Vigdís Bjarna- dóttir, f. 3. september 1890, d. 8. febrúar 1917, og Benjamín Valgeir Jónsson, f. 16. júní 1884, d. 30. júlí 1967. Jón Björn átti alsystur, Sigríði Guð- rúnu, f. 21. maí 1911, d. 26. nóvember 1996, og þrjú hálf- systkini samfeðra: Sigríði Guð- laugu, sem er látin, Kristmund, lát- inn, og Þórunni Friðbjörgu, f. 13. apríl 1933. Jón Björn fór í fóstur á fyrsta ári til hjónanna Jóns Valgeirs Her- mannssonar og Guðrúnar Jóhann- esdóttur, sem bjuggu í Gamla Bæ á Súðavík. Jón Björn kvæntist 20. maí 1939 Gyðu Sigrúnu Jónsdóttir, f. á Ak- ureyri 12. mars 1916, d. 18. októ- ber 1989. Foreldrar hennar voru Jón Björnsson skipstjóri og kona hans Kristín Guðjónsdóttir. Börn Jóns Björns og Gyðu urðu fimm. Þau eru: 1) Alda Dagmar, f. 2. ágúst 1939, búsett í Hveragerði, maki Jóhann Adólfsson, f. 15. mars 1931, d. 1. desember 1989. Þeirra börn: a. Margrét Gyða, f. 1961. b. Elín Harpa, f. 1962. c. Björn Brynj- ar, f. 1964. 2) Jón Sören, f. 6. janúar 1941, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Sólveigu Sjöfn Helgadóttur, f. 2. maí 1946. Þeirra börn: a. Bryndís, f. 1. febrúar 1968. b. Hjördís, f. 27. júní 1970, d. 30. maí 1999. c. Svan- dís, f. 10. júní 1974. d. Valdís, f. 25. febrúar 1976. 3) Jóhanna Björk, f. 18. maí 1947, búsett í Garðabæ, maki Pétur Jónsson, f. 15. janúar 1949. Þeirra börn: a. Bjarki, f. 12. apríl 1973. b. Brynjar, f. 12. apríl 1973. Barn Jóhönnu með fyrri manni sínum Kjartani Hannessyni, f. 8. apríl 1946, d. 19. júlí 1969, er Þórir Kjartansson, f. 21. febrúar 1969. 4) Sig- ríður Guðrún, f. 30. desember 1949, bú- sett í Hafnarfirði, maki Kristján Þ.G. Jónsson, f. 9. október 1948. Þeirra börn: a. Jón Kristinn, f. 18. nóvember 1969. b. Sverrir Þór, f. 25. júlí 1971. c. Rósa Björk, f. 23. september 1972. d. Kristján Þórir, f. 19. október 1979. e. Gyða Sigrún, f. 25. nóvember 1980. 5) Sigrún Anna, f. 27. apríl 1958, búsett í Reykjavík, maki Svein- björn Valgeir Egilsson, f. 3. febr- úar 1954. Þeirra börn: a. Jóhanna Björk, f. 27. júní 1983. b. Berglind Ýr, f. 20. ágúst 1986. c. Egill, f. 6. desember 1991. Áður átti Jón Björn soninn Kjartan Björnsson, f. 14. október 1934, kvæntur Guð- laugu Guðmundsdóttur, f. 1. apríl 1937. Þeirra börn: Þóra, Guðrún og Björn. Jón Björn var alinn upp á Súða- vík og lauk þar almennu barna- skólanámi. Fór síðan til Akureyrar þar sem hann nam húsasmíði og vann alla tíð við þá iðn, fyrst hjá Slippnum á Akureyri en 1947 flyt- ur hann suður til Reykjavíkur og var sjálfstæður atvinnurekandi við húsbyggingar í mörg ár. Seinna hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- unni á Kletti og seinustu árin sem hann vann var hann hjá Slippfélag- inu í Reykjavík. Hann hætti þar um 75 ára aldur. Síðustu 14 árin hefur hann búið í Sunnuhlíð í Kópavogi. Þar eignaðist hann góða vinkonu, Hólmfríði Eyjólfsdóttur, og studdu þau hvort annað seinni árin. Hann var í kór eldri borgara í Kópavogi og söng með þeim fram á síðasta dag. Útför Jóns Björns fer fram í Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Við fráfall föður míns er margs að minnast, hann var einstakt snyrtimenni, jákvæður og glaðvær maður, alltaf stutt í húmorinn. Vinnusamur var hann með afbrigð- um og afskaplega umhugað um að skila sinni vinnu eins góðri og mögulegt var. Foreldrar mínir byrjuðu búskap á Akureyri en flytjast suður 1947 og búa síðan í Reykjavík þar sem þau byggðu fallegt hús í Karfavogi 13, sem var alltaf athvarf fjölskyld- unnar upp frá því. Mjög gestkvæmt var hjá þeim fyrstu árin, þar sem fjölskyldan að norðan þurfti oft að koma suður ýmissa erinda og alltaf var gist í Karfavoginum. Man ég oft eftir hverju rúmi setnu og dýn- um á gólfum, þar sem þeim varð við komið, en allir voru velkomnir og oft mjög glatt á hjalla. Seinni árin þegar fór að hægjast um, börnin að hverfa að heiman og ekki eins mikið vinnuálag keyptu þau sér góðan bíl og fóru að ferðast um landið og þótti það mjög gam- an. Fór ég í ófáar ferðir með þeim og var frábært að sjá hvað þau nutu þess. Sérstaklega man ég ferð sem við fórum í Landmannalaugar og Eldgjá. Þau voru alltaf að minn- ast þeirrar ferðar og vitna í hana. Svo er ljúft að minnast ferðar sem við pabbi fórum til Skotlands fyrir þremur árum. Með okkur voru vinir hans, Indriði og Selma, og skemmtum við okkur mjög vel saman, ferðuðumst mikið um há- lönd Skotlands. Þetta var frábær ferð og þakka ég þeim öllum hjart- anlega fyrir að leyfa mér að vera með. Faðir minn var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda, bóngóður og greiðvikinn við mig og mína fjöl- skyldu. Afabörnin minnast hans með hlý- hug og miklu þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem þau áttu hjá afa og ömmu í Karfavoginum. Eftir að mamma deyr fer pabbi í Sunnuhlíð í Kópavogi og á heimili þar eftir það. Þar byrjar nýr kapítuli í lífi hans, hann eignast þar nýja vini, sér- staklega góða vinkonu, Hólmfríði Eyjólfsdóttur. Þessi hópur hélt vel saman, fór í utanlandsferðir og naut lífsins. Einnig var hann í kór eldri borgara í Kópavogi, en honum hefur alltaf þótt mjög gaman að syngja og þarna naut hann sín sér- lega vel, allar kóræfingarnar og ekki síst að syngja opinberlega á hinum ýmsu stöðum á landinu. Þessi félagsskapur fyllti líf hans hamingju á síðustu árum hans. Hafi allt þetta fólk, auk dætra hans sem gerðu honum kleift að komast á æf- ingar, þökk fyrir. Ég sendi elsku vinkonu hans Hólmfríði og systkinum mínum samúðarkveðju mína. Alda Dagmar, börn og barnabörn. Lífið er eins og bók sem opnast þegar við fæðumst og lokast þegar við deyjum. Í dag kveð ég kæran tengdaföður minn Jón Björn sem hefur lokað sinni bók eftir nær 90 ár, en hann hefði orðið níræður 29. júlí næstkomandi. Jón Björn missti móður sína ungur og fór því í fóstur aðeins þriggja ára. Á unglingsaldri var Jón Björn farinn að sækja sjó og sjá um sig sjálfur að mestu leyti. Jón B. var mjög duglegur maður, lærði húsasmíði og vann líka sem húsasmíðameistari með sveina. Ég kynntist Jóni Birni 1963 þegar ég kom í Karfavog 13 með syni hans. Mér fannst húsið sem Jón teiknaði sjálfur og byggði yfir fjölskyldu sína í Karfavogi mjög fallegt og þarna uppi í risi byrjuðum við okk- ar búskap ég og sonur hans. Jón Björn var mikill fjölskyldumaður og var hann svo lánsamur að geta fagnað gullbrúðkaupi 20. maí 1989, með konu sinni Gyðu Sigrúnu Jóns- dóttur f. 12. mars 1916, d. 18. okt. 1989. En stuttu eftir það lést Gyða eftir erfið veikindi. Eftir lát Gyðu keypti Jón sér notalega íbúð í Sunnuhlíð í Kópavogi og undi hag sínum vel þar. Jón var mjög fé- lagslyndur og eignaðist fljótt mjög góða vinkonu sem heitir Hólmfríð- ur, og hafa þau ferðast saman til útlanda, sungið í kór og verið virk í félagslífinu í Sunnuhlíð. Mig langar að þakka Hólmfríði fyrir elskusemi við tengdaföður minn í fjórtán ár, um leið og ég sendi henni samúðar- kveðjur. Þegar ég hugsa um ævi tengdaföður míns, þá veit ég að þau voru erfið fyrstu árin hans, en með dugnaði hans og bjartsýni breytti hann því. Ég vil þakka Jóni Birni alla hans hlýju og ræktarsemi sem hann hefur ætíð sýnt mér, dætrum mínum og barnabörnum. Og alla þá aðstoð sem hann veitti okkur þegar við byrjuðum okkar búskap í Karfavogi og síðan þegar við byggðum okkur raðhús í Fossvogi, þá var Jón mættur og það munaði okkur miklu öll vinnan hans þar. Ég vil að lokum senda Hólmfríði, börnum hans og fjölskyldum sam- úðarkveðjur. Við höfum öll misst mikið, en áratuga minningar ylja, þegar góður maður kveður. Ég kveð kæran tengdaföður með þakk- læti og virðingu. Sólveig S. Helgadóttir. Afi okkar Jón Björn Benjamíns- son eða Bjössi afi, eins og við strák- arnir kölluðum hann, var húsa- smíðameistari af gamla skólanum. Eftir hann liggja mörg meistara- verkin sem við strákarnir höfum alltaf dáðst að. Okkur er þó efst í huga hvernig honum tókst alltaf að halda í góða skapið – þrátt fyrir erfið veikindi á efri árum. Afi okkar hafði einstaka kímnigáfu og alltaf svör á reiðum höndum enda var hann ávallt hrókur alls fagnaðar. Bjössi afi átti afar auðvelt með að gera allar samverustundir skemmtilegar með hnyttnu gríni sem hann átti alltaf nóg af. Afi gaf aldrei til kynna ef honum leið ekki vel og því kann vel að vera að okk- ur hafi aldrei tekist að kynnast honum til hlítar. En hann kunni svo sannarlega að njóta lífsins og það þrátt fyrir þungbæran missi þegar Gyða amma okkar dó. Afi stundaði söng af miklu kappi og mætti ótrauður á æfingar – jafn- vel þótt stundum þyrfti að styðja hann þar sem jafnvægið var orðið takmarkað. Hann hafði ekki mikið ferðast utan Íslands fyrr en á seinni árum en það er til marks um óbilandi lífsþrótt afa að hann fór margar ferðir til útlanda á síðari árum með vinum sínum í Sunnu- hlíðinni og Fríðu vinkonu sinni og hafði mjög gaman af. Hann sýndi okkur margsinnis að það eru ófáar leiðir til að njóta efri áranna þrátt fyrir veikindi – og jafnvel þótt margur vinurinn yfirgefi þennan heim. Jákvæðni og lífsgleði afa fyllti öll herbergi af bjartsýni og gleði hvar sem hann kom. Allt fram á síðasta dag hafði hann gaman af að virða fyrir sér og taka út smíða- verk samtíðarmanna sinna og þeirra sem yngri voru. Hann fylgd- ist glöggt með úr stofuglugganum sínum hvernig hverfin í kringum hann byggðust upp enda var hann sífellt að velta fyrir sér þeim fram- kvæmdum sem fyrir augu bar. Mestu afrek Bjössa afa og Gyðu ömmu eru þó sex frábær börn þeirra sem hafa eignast og alið upp fjöldann allan af börnum, barna- og barna-barnabörnum sem nú minn- ast afa og ömmu með stolti en sorg í hjarta. Við kveðjum Bjössa afa með sárum söknuði en munum ávallt varðveita gleðina sem hann gaf okkur gegnum árin og góða skapið sem við tókum í arf frá hon- um. Þórir Kjartansson, Bjarki Pétursson Young, Brynjar Pétursson Young. JÓN BJÖRN BENJAMÍNSSON  Fleiri minningargreinar um Jón Björn Benjamínsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Einar M. Jó-hannsson fædd- ist í Reykjavík 2. mars 1928. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi 13. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristín Guðnadóttir, f. 22. apríl 1891, d. 8. júní 1942, og Jó- hann Kr. Ólafsson, tré- og brúarsmiður, f. 24. október 1883, d. 22. júní 1967. Al- systkini Einars voru sjö: Guðmundur, f. 18. febrúar 1912, Guðni, f. 24. september 1912, María, f. 6. febrúar 1915, Guðmunda, f. 18. september 1920, Ólafur, f. 13. desember 1922, Margrét Ragna, f. 8. ágúst 1929, og Hrefna, f. 31. október 1932, og er nú Margrét Ragna ein á lífi. Eina hálfsystur átti Einar, samfeðra, Kristrúnu, f. 1907. Einar kvæntist 24. nóvember 1951 eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði G. Jóhannsdóttur lyfja- tækni og eignuðust þau þrjú börn. Þau eru: 1) Margrét, lækn- ir í Svíþjóð, f. 4. janúar 1952, og er hennar maður Bogi Ásgeirs- son læknir. Þeirra börn eru Elín Arna og Einar Kári. 2) Kristín, f. 3. apríl 1955, d. 22. febrúar 2002. Hennar maður var Gísli Marteinsson, fv. forstjóri Lífeyr- issjóðs Austurlands. Þeirra börn eru Gísli Þór, Ninja Ýr og Myrra Ösp. 3) Jóhann, markaðsfræð- ingur, f. 15. mars 1965, og er hans kona Hrafnhildur H. Þor- gerðardóttir bókasafnsfræðing- ur. Þeirra börn eru Karitas Mjöll og Einar Magnús. Einar varð stúd- ent frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1949, stundaði nám í fiskiðnfræði við University of Wash- ington í Seattle 1949–1951, en varð að hverfa frá námi sökum veikinda. Hann stundaði kennslustörf næstu vetur og ýmiss kon- ar fiskvinnslustörf á sumrin þar til hann hóf störf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga haustið 1955 og varð yfirmaður gæðaeftirlits sjávarafurða. Árið 1972 réðst hann til Sölusambands ísl. fisk- framleiðenda og sett á stofn og stýrði í 11 ár gæðaeftirlitsdeild í þeirri stofnun. Frá 1983 til 1998 var hans starfsvettvangur hjá ríkinu. Hann var skipaður fisk- matsstjóri í tvö ár, kom á fót námskeiðahaldi fyrir verkstjóra og annað starfsfólk í fiskvinnslu, vann að reglugerðarsmíð og framkvæmd lagasetninga á veg- um sjávarútvegsráðuneytisins o.fl. Hann sat í staðlaskrárnefnd frá 1967 til 1994 og var með- limur í vinnuhópum, þar sem fulltrúar frá hinum ólíkustu þjóðum áttu sæti. Á vegum Þró- unarsamvinnustofnunar Íslands hélt hann þrjú kennslunámskeið í fiskvinnslu á Grænhöfðaeyjum á árunum 1988–1990. Einar gekk í Frímúrararegl- una 1989. Útför Einars verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku afi minn, ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okk- ur. Maður veit aldrei hvað morgun- dagurinn ber í skauti sér. Ég var rosalega sár þegar ég komst af því að þú værir ekki lengur mjög ánægður með þinn sess í lífinu. Þú ert svo ynd- islegur að ég get ekki lýst því með berum orðum. Þú varst alveg stór- merkilegur maður. Þú brást mér aldrei, aldrei. Alltaf brosandi og svo rosalega hlýr og einlægur. Ekki má gleyma húmornum þínum. Ég held að ég hafi aldrei komið í heimsókn til þín án þess að fara að hlæja að þér. Þú varst alltaf með eitthvert grín og glens. Ég gleymi því ekki þegar við fjöl- skyldan vorum á leiðinni til þín og ömmu frá Neskaupstað fyrir mörgum árum, þá sagði mamma að við yrðum að vera rosalega þæg og góð þegar að við kæmum til ykkar því þú værir veikur. Ég var svo hrædd því ég hélt að ég væri að missa þig og ég grét næstum því alla leiðina. En þegar ég sá þig svo í garðinum þá gat ég ekki annað en hlaupið og hoppað í fangið til þín og faðmað þig og kysst þig. Þú varst gáfaðasti maður sem ég þekkti. Þegar ég frétti að þú værir kominn með Alzheimer þá grét ég svo mikið því ég var svo hrædd um að í eitthvert skiptið sem ég mundi koma til þín þá mundiru ekki muna hver ég væri. Mér fannst svo leiðinlegt hvað þessi sjúkdómur fór illa í þig. En samt sem áður varstu alltaf gáfaðasti og merkilegasti maður sem ég þekkti. Ef það var eitthvað sem þú gast ekki munað þá var það heldur ekki þess virði að muna eftir því. Þú varst alltaf að fræða mig um hina og þessa hluti. Þú varst með allt á hreinu og vissir allt, alla vega að mínu mati. Ég var og er svo stolt af því að vera dótturdóttir þín. Það er ekki amalegt að vera komin af svo yndislegum, gáf- uðum og duglegum manneskjum. Það fer ekki fram hjá neinum hverjir ólu móður mína upp. Þú og amma eruð al- gjör himnasending. Þið eruð/voruð alltaf svo hress og kát. Tala nú ekki um hvað þið eruð dugleg að gera eitt- hvað saman. Það geislaði af ykkur hamingjan og kærleikur. Þið voruð fyrirmyndar hjón. Það sem þið eruð búin að gera góða hluti fyrir mig og Myrru Ösp. Án ykkar sæi ég lífið ekki jafn björtum augum og ég geri. Þið stóðuð og standið alltaf við bakið á okkur. Alltaf vilduð þið hjálpa okkur. Mér þótti svo vænt um það þegar þið komuð með mér á Laugarvatn í fyrra- sumar til að hjálpa mér með plöntu- safnið sem ég var að gera fyrir skól- ann. Þú sem labbaðir með mér út um allt með skóflu og fötu til að hjálpa mér að tína plönturnar, þá fræddirðu mig nú aldeilis um náttúruna. Alltaf þótti mér alveg rosalega gaman að vera með ykkur. Eftir að mamma dó hefur lífið verið frekar mikið erfitt og stundum fannst mér eins og ég ætti hvergi heima en alltaf þegar að mér leið illa og varð að fara eitthvað þá kom ég alltaf til ykk- ar ömmu. Alltaf þegar að ég kom þá varstu með bros á vör og faðmaðir mig svo fast og innilega að ég gleymdi því oft að mér hefði liðið illa. Það var alltaf svo bjart yfir þér. Einnig sá/sé ég mömmu svo oft í þér og ömmu og það er alveg rosalega góð tilfinning. Að vera nálægt ykkur er eins og að vera nálægt mömmu. Ég fór aldrei svöng frá ykkur ömmu. Þið voruð alltaf dugleg að passa upp á það að ég fengi nóg að borða, sérstaklega þú. Ég gleymi því ekki þegar ég var lítil og var búin að þakka fyrir matinn þá vildir þú alltaf að ég kæmi til þín svo þú gætir potað í magann á mér til að finna einhverjar holur fyrir meiri mat. Núna þegar ég er að skrifa þessa grein þá er ég að horfa á mynd af þér frá því að við vorum á Grikklandi. Það var nú alveg meiriháttar gaman. Að hafa þig og ömmu með var alveg stór- kostlegt. Þá kenndirðu mér einmitt að stökkva af stökkbrettinu. Ég hefði nú aldrei þorað það ef þú hefðir ekki haft trú á mér. Alltaf hafðirðu trú á mér, alveg sama hvað. Þú kenndir mér svo margt, elsku afi minn, og enn og aftur verð ég að segja að þú varst alveg stórmerkilegur maður. Einu sinni sagði ég við mömmu að mér þætti þú vera með fallegustu hendur sem ég hefði séð og mamma vildi endilega að ég segði þér það en aldrei gerði ég það og mér þykir það svolítið leiðinlegt. Sunnudagarnir voru dagarnir okk- ar, mínir, þínir og ömmu. Helgin var EINAR M. JÓHANNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.