Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 30
MINNINGAR 30 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Haraldur Blön-dal hæstaréttar- lögmaður var fædd- ur í Reykjavík 6. júlí 1946. Hann lést 14. apríl síðastliðinn. Haraldur var sonur hjónanna Kristjönu Benediktsdóttur og Lárusar H. Blöndals bókavarðar. Systkin Haralds eru: 1) Benedikt, hæstarétt- ardómari, f. 11. jan- úar 1935, d. 22. apríl 1991. Hann var kvæntur Guðrúnu Karlsdóttur, húsfreyju. 2) Halldór, forseti Alþingis, f. 24. ágúst 1938. Hann er kvæntur Kristrúnu Ey- mundsdóttur, framhaldsskóla- kennara. 3) Kristín, framhalds- skólakennari, f. 5. október 1944, d. 11. desember 1992. Hún var gift Árna Þórssyni, lækni. 4) Ragnhild- ur, bókasafnsfræðingur, f. 10. febrúar 1949. Eiginmaður hennar er Knútur Jeppesen, arkitekt. Haraldur kvæntist Sveindísi Steinunni Þórisdóttur, læknarit- ara, f. 1. desember 1944. Börn Haralds og Sveindísar eru: 1) Mar- grét, myndlistarmaður, f. 28. jan- úar 1970, barn hennar með Magn- úsi Sigurðarsyni, myndlistar- manni, er Sölvi Magnússon, f. 8. nóvember 1991. 2) Steinunn, hjúkrunarfræðingur, f. 10. apríl 1973, sambýliskona hennar er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, al- þjóðaritari. 3) Sveinn, nemandi, f. 21. mars 1981. Haraldur og Svein- dís skildu. Barn með Ingunni Sig- nefnd til að endurskoða lög og reglur um íslenska þjóðfánann 1995. Hann var formaður nefndar um framtíð Reykholts í Borgar- firði 1986–1988, formaður Rann- sóknanefndar sjóslysa 1984–1991 og 1997–2000, formaður umferð- arnefndar Reykjavíkur frá 1986– 1994 og formaður mönnunar- nefndar frá 2000. Hann var í stjórnarnefnd Borgarbókasafns 1974–1978 og í framtalsnefnd Reykjavíkur frá 1982. Haraldur sat í stjórn SUS 1973– 1979 og var varaform. 1977–1979. Hann var varaborgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík 1986– 1994 og jafnframt varamaður í ýmsum nefndum borgarinnar, m.a. hafnarstjórn. Hann var vara- maður í útvarpsráði 1983–1991, í yfirkjörstjórn Reykjavíkur frá 2001, en varamaður frá 1997. Har- aldur var leiklistargagnrýnandi DV um skeið, formaður Stúdenta- félags Reykjavíkur 1980–1981. Hann var löggiltur uppboðshald- ari listmuna og bóka frá 1976. Haraldur var formaður skák- félagsins Mjölnis 1978–79, hann var stjórnarmaður í Skáksam- bandi Íslands frá 2001, einn af stofnfélögum skákfélagsins Hróksins og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum innan skákhreyfing- arinnar. Haraldur skrifaði fjölda greina um þjóðmál í blöð, var um árabil fastur dálkahöfundur í Vísi og DV. Hann annaðist um skeið stjórnmálaskrif í Morgunblaðið. Haraldur var ritstjóri Íslendings- Ísafoldar fyrir alþingiskosningar 1971 og 1974. Hann var sæmdur gullmerki stúdentafélags Reykja- víkur 1981. Sálumessa verður sungin Har- aldi í Kristskirkju í Landakoti í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. urgeirsdóttur, f. 18. maí 1944: Þórarinn, myndlistarmaður, f. 24. október 1966. Hann er kvæntur Hönnu Hlíf Bjarna- dóttur, snyrtifræð- ingi. Barn þeirra er Marsibil, f. 2. nóvem- ber 1998. Þórarinn á Gunnar Örn, f. 17. ágúst 1991, og Unnar, f. 8. maí 1995. Haraldur lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1966 og lögfræði- prófi frá HÍ 1972. Hann var blaða- maður á Morgunblaðinu á náms- árunum og stundaði hvalskurð á sumrin. Haraldur varð héraðs- dómslögmaður 1977 og hæstarétt- arlögmaður 1982. Hann var fulltrúi hjá Tollstjóranum í Reykjavík 1972–1973, kennari við Barna- og unglingaskólann í Borgarnesi 1973–1974 og fulltrúi hjá Sementsverksmiðju ríkisins 1974–1975. Hann var fulltrúi á málflutningsskrifstofu Ágústs Fjeldsted, Benedikts Blöndals og Hákonar Árnasonar 1975–1988. Haraldur rak eigin málflutnings- stofu ásamt Ágústi Fjeldsted og Skúla Th. Fjeldsted frá 1988– 1992, en síðan einn. Hann var stundakennari í sjórétti við Stýri- mannaskólann í Reykjavík 1978– 1991. Haraldur átti sæti í ýmsum nefndum. Hann var í lagahreins- unarnefnd, sem skipuð var af Al- þingi og starfaði 1985–1990 og í Þegar ég hugsa um Harald frænda minn ljómar hann af hreysti og kát- ínu. Hann réttir fram hendurnar, brosir út að eyrum og segir: „Sæl, frænka mín.“ Ég sé af glampanum í augunum að nú fæ ég að heyra góða sögu, sagða af leiftrandi húmor og skemmtilegheitum; sem sögumaður átti Halli ekki sinn líka. Ég kynntist Haraldi föðurbróður mínum þegar hann bjó hjá foreldrum mínum fyrir norðan. Halli var í menntaskóla og ég aðeins fjögurra ára gömul og eignaðist litla systur. Við vorum hrifin af litlu mannverunni sem gerði svo sem ekki mikið til að byrja með en ég er ekki frá því að hún hafi náð að fá ýmislegt frá Halla engu að síður; hún varð að minnsta kosti stríðnari þegar fram liðu stundir en við eigum að venjast í okkar legg. Þennan vetur varð Halli minn uppáhaldsfrændi. Hann gerði líka allt sem góðir frændur gera; spilaði lönguvitleysu, setti mig á háhest og söng kankvís Ranka var rausnarkerl- ing. Árið eftir flutti Halli. Þótt ég muni ekki eftir því, man ég þeim mun betur hvað ég varð glöð þegar amma sendi mig eftir honum í sunnudags- mat. Það var sporléttur telpukrakki sem hljóp í gegnum miðbæ Akureyr- ar og upp kirkjutröppurnar til að ná í Halla frænda því engan hafði hann símann frekar en aðrir menntskæl- ingar á þessum tíma. Halli hélt áfram að heimsækja móðurforeldra mína eftir að hann flutti suður. Það lifnaði yfir Brekku- götunni þegar Halli kom. Sérstak- lega var amma í essinu sínu ef hún gat haft hann út af fyrir sig um stund. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á sagn- fræði og um sögu gátu þau setið og skeggrætt lengi dags. Þá fékk ég að hlusta ef ég lét lítið fyrir mér fara. Fyrr eða síðar hlaut talið ævinlega að berast að Þýskalandi fyrir stríð. Amma hafði gaman af því að segja Halla frá uppvaxtarárum sínum, for- eldrum sínum og fjölskyldu. Hvernig Þýskaland breyttist eftir því sem nær dró stríðinu og hvernig það var að vera á Íslandi og vita fólkið sitt í styrjöld. Halli var áhugasamur hlust- andi og yrði amma döpur, gat hann á svipstundu fengið hana til að snúa huga sínum að öðru og skemmtilegra. Einhvern veginn gátu þau ævinlega tekið upp þráðinn að nýju þar sem frá var horfið, jafnvel þótt mánuðir eða ár liðu á milli. Svo kom að því að Halli veitti ömmu minni örlitla hlutdeild í sögulegum atburði í borginni sem henni hafði þótt svo vænt um fyrir stríð. Hann hringdi í hana frá Berlín til að leyfa henni að heyra hávær fagnaðarlætin þegar múrinn féll. Þess átti hún oft eftir að minnast. Það er erfitt að trúa því að þessi frændi minn, sem með sinni sterku nærveru setti svip sinn á umhverfið hvar sem hann kom, skuli vera far- inn. Þótt vitað hafi verið um hríð hvert stefndi, er ekki hægt að búa sig undir fráfall þess sem deyr fyrir ald- ur fram. Við kveðjum góðan dreng með eft- irsjá. Ég mun sakna þess að vera „frænka mín“ og stundum „vina mín“ sem hljómaði öðruvísi og betur þegar hann sagði það. En best var þó að vera „Ranka mín“ því það sagði Halli af svo mikilli hlýju. Við systkinin og fjölskyldur okkar sendum börnum og barnabörnum Halla, systkinum og ástvinum öllum, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnhildur Blöndal. Haraldur Blöndal er látinn. En það er ógerningur að hugsa um Halla í þátíð vegna þess að í hvert sinn sem mér verður hugsað til hans stendur hann mér ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum með glampa í augunum og bros læðist fram á varirnar, líkast til vegna þess að hann hefur fundið rök- semdina, sem hefur fengið öll mótrök til að hrynja eins og spilaborg eða lagakrókinn, sem kippir stoðunum undan málflutningi mótherjans; dregið fram hálfgleymda sögulega staðreynd, sem gerir viðtekna sögu- skoðun tortryggilega; eða teflt fram eitruðu peði, sem andstæðingurinn hefur gleypt án þess að átta sig. Minningabrotin streyma fram: Halli situr í fjölskylduboði hjá for- eldrum sínum og teflir blindskák á tveimur borðum við systkinabörn sín og þau spyrja sig hvaða galdur búi að baki. Halli gefur nokkur góð ráð í bardagalist en sem betur fer hefur aldrei reynt á ágæti þeirra. Í litlu herbergi, sem ber nafnið Kreml, í Hvalstöðinni í Hvalfirði, er enn teikn- ing af Litla úlfi úr myndasögum Disneys yfir rúminu, sem Halli svaf í þegar hann vann við hvalskurð. Stóri úlfur var Halldór bróðir hans. Eða gleðin í svip Halla þegar hann sýnir myndir frá því að Garrí Kasparov heimsótti hann á sjúkrabeð á leiðinni af landi brott eftir skákhátíð Skák- sambands Íslands í mars. Maður kom aldrei að tómum kof- unum hjá Halla, hvort sem umræðu- efnið var Andrés önd eða Eyrbyggja. En hann var ekki aðeins gríðarlega fróður heldur fylgdist grannt með málefnum líðandi stundar og þekkti marga. Iðulega naut Morgunblaðið góðs af upplýsingaöflun hans og má rekja margar fréttir í blaðinu til ábendinga hans auk þess sem fjöl- margar greinar hans settu svip á þá umræðu, sem á sér stað á síðum blaðsins. Halli vann á Morgunblaðinu með laganámi og sinnti einnig stjórn- málaskrifum í blaðið um tíma. Reyndar hagaði tilviljunin því þannig að ég á það honum að þakka að ég fór að skrifa í Morgunblaðið. Fyrir rúm- um tuttugu árum kom umhyggju- samur föðurbróðir því til leiðar að ný- stúdent á leið til náms í Þýskalandi var munstraður í hlutverk fréttarit- ara og það varð ekki aftur snúið. Halli sá heiminn alltaf í sínu ljósi og þurfti aldrei að elta aðra til að mynda sér skoðanir og leita uppi hug- myndir. Troðnar slóðir voru honum lítt að skapi. Leit hans bar hann víða og varð meðal annars til þess að hann tók upp katólska trú þegar Jóhannes Páll páfi II kom til Íslands í byrjun síðasta áratugar. Í upphafi nýrrar aldar hélt hann síðan til Evrópu til klausturdvalar. Nú heldur Halli för sinni áfram á öðrum stað og við Stef- anía kveðjum með sárum söknuði og vottum börnum hans, systkinum og ástvinum dýpstu samúð okkar. Karl Blöndal. Afi var stór og mikill og mér þótti mjög vænt um hann. Þegar ég var lít- ill þá sagði hann mér sögur um Andr- és Lunda og okkur Svenna frænda. Við Svenni vorum aðalpersónurnar og lentum í ýmsum ævintýrum. Afi gaf mér skrýtnar gjafir eins og háan flókahatt, innsigli, bakpoka sem var líka kollur og á honum sat ég þegar við veiddum saman. Ég fór með hon- um í Veiðivötn og við veiddum líka í gegnum vök. Einu sinni hjálpaði hann mér að búa til brúðuhausa úr hveitilími og dagblöðum eins og mamma hans hafði gert. Hann var mikill flugeldamaður og gaf mér allt- af kassa fullan af flugeldum og sprengjum og saman kveiktum við á þrettándanum. Hann átti jeppa fullan af drasli og mér þótti gaman þegar hann keyrði mig eða sótti í skólann. Afi var mikill dýravinur og hann kunni pé-mál. Afi var afi Halli minn og pabbi mömmu, Steinu, Svenna og Tóta og ég sakna hans mjög. Sölvi Magnússon. Við frændur Haraldur Blöndal vorum á svipuðum aldri en þó var sá áramunur, sem oft ræður miklu milli þeirra, sem eru eldri og yngri, auk þess sem hann átti systur, Kristínu, sem var jafngömul mér. Á yngri ár- um dugði slíkt oft til þess, að aldurs- bilið varð ennþá meira en ella hefði orðið. Og þegar hugsað er um ald- urinn var Haraldur kallaður alltof snemma frá okkur eins Kristín, systir hans, og Benedikt, bróðir þeirra, svo að ég minnist ekki á Kristjönu, móð- ur þeirra systkina. Hitt er víst, að minning þeirra allra lifir sterkt, vegna þess hve ljúf þau voru og skildu eftir sig sterk spor góð- mennsku og frændrækni. Í áranna rás hittumst við Haraldur oft á förnum vegi og var alltaf vel til vina og þótt hann hefði ásamt Þor- steini Davíðssyni fengið landsfund Sjálfstæðisflokksins til að samþykkja fremur neikvæða tillögu um rafræn- ar kosningar og ætla mætti af fram- takinu, að Haraldur væri fremur and- vígur hinni rafrænu þróun í mannlegum samskiptum, áttum við oft orðastað fyrir tilstyrk þeirrar tækni hin síðari ár. Haraldur var á þeim vettvangi ekki síður en öðrum næmur á það, sem var skýrt og rök- rétt. Hann lét hvorki ný málefni né tækni fipa sig í leitinni að hinni réttu niðurstöðu. Síðustu tölvusamskiptin fóru á milli okkar um síðustu áramót, þegar hann sendi mér athugasemd vegna einhvers, sem ég hafði skrifað á vef- síðu mína, og sagði að gefnu tilefni um mann, sem ég nefndi til sögunnar: „Hitt man ég, að hann ráðgaðist eitt sinn við mig um „Engeyjarætt“, og varð hálf kindarlegur þegar ég spurði hann af hverju hann sleppti öllum konum úr einu ætt landsins, sem talin væri frá konu og hefði átt fjórar dæt- ur en engan son!“ Ég kveð góðan frænda minn með söknuði og veit, að fleirum en mér þykir miður, að eiga ekki oftar von á skörpum og hugmyndaríkum ábend- ingum hans, sem byggðust á fágæt- um næmleika og réttlætiskennd. Blessuð sé minning Haralds Blön- dals og styrkur veitist afkomendum hans, systkinum og ástvinum öllum. Björn Bjarnason. Ég vil trúa því að þeir sem deyja séu ekki horfnir. Þeir eru aðeins komnir á undan. Jafnframt vil ég trúa því að skilnaðarstundin sé dagur samfunda í himnasal. Haustið kom fljótt í lífi Haraldar eða Halla eins og ég kallaði hann jafnan. Það er sagt að dauðann skilj- um við þá fyrst er hann leggur hönd sína á einhvern sem við unnum. Ég var í sveit að sumarlagi í Grímsneshreppi hjá góðu fólki á sveitarbæ er hét Ásgarður þegar haft var samband við mig og mér tilkynnt að systir mín Sveindís Þórisdóttir (uppeldissystir) og Halli væru að fara að ganga í hjónaband sem var ákveð- ið þann 16. ágúst, 1969. Fyrir mig þýddi þetta að dvöl mín á sveitar- heimilinu var stytt um þrjár vikur. Í minningunni var þetta skrýtin tilfinn- ing að stóra systir væri að fara að gifta sig. Ég var spenntur og mjög stoltur af komandi brúðhjónum. Þegar frumburður þeirra fæddist, hún elskulega Margrét frænka mín, fannst mér ég eiga hlut í henni. Það var skrýtin tilfinning, þegar systir mín, hún Svenný, bað mig að leggja lófa minn að henni og finna fyrir hreyfingu hennar í móðurkviði. Í framhaldi eignuðust þau tvö börn til viðbótar, Steinunni og Svein, nafna minn. Á einhvern hátt fannst mér ég eiga hlut í þeim, líkt og með frænku mína, hana Möggu. Halli var áhugasamur um velferð og einkahagi barna sinna og vina og þeim góður. Hann var glaðvær og einlægur. Honum lá hátt rómur, það var eftir honum tekið þar sem hann var í hópi. Nú þegar hann er allur, sakna ég hláturs hans og kveð góðan dreng með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Sorgin er mikil hjá öllum sem hann þekkti. Fjölskylda mín sendir öllum ástvinum ásamt börnum hans, Möggu, Svenna, Steinu og Þórarni, innilegustu samúðarkveðju. Mannsandinn líður ekki undir lok, minning um góðan dreng lifir í hjarta og minni. Líkt og sólin sem virðist ganga undir, en alltaf heldur áfram að lýsa. Sveinn Guðmundsson. Þegar ég hugsa um Harald Blön- dal finnst mér ég sjá kankvíslegt brosið. Haraldur var þeirrar náttúru að þegar maður hitti hann vatt hann sér þegar í stað í umræður um það sem honum var efst í huga hverju sinni. Ímyndunaraflið var frjótt, en maður hafði oft á tilfinningunni, að það sem hann ræddi af svo miklum ákafa hefði komið í hug hans á næsta andartaki á undan. Eins og þruma úr heiðskíru lofti hringdi Haraldur í mann og spurði: „Hvernig var það aftur með …“ Umræðuefnið gat svo orðið hvort sem var, löngu liðnir menn eða atburðir líðandi stundar. Haraldur var hæfileikaríkur mað- ur og hefði getað náð lengra á mörg- um sviðum. Stjórnmál og sagnfræði, skák og skáldskapur; allt lék þetta í höndunum á honum þegar best lét. Hann þekkti alla sem máli skiptu, hvort sem um var að ræða miklu eldri menn eða yngri, skoðanabræður eða andstæðinga. Á landsfundum Sjálf- stæðisflokksins eru á annað þúsund manns og oft er Íþróttahöllin eins og fuglabjarg þótt menn standi í pontu og haldi ræður. Margir eru frammi á gangi að fá sér kaffi og spjalla. En þegar Haraldur steig í ræðustól og tók til máls datt allt í dúnalogn og menn þyrptust í salinn. Enginn vildi missa af gullkornum úr hans ræðu. Ég hef þekkt Harald frá því að ég man eftir mér. Á mínum fyrstu árum var hann heimagangur á heimili for- eldra minna og fór með í sunnudags- bíltúra sem þá tíðkuðust. Eftir því sem hann stálpaðist fóru að heyrast af honum sögur af ýmsu tagi. Faðir hans, Lárus Blöndal bókavörður, var mikill kommi og um tíma hneigðist Haraldur til vinstri. Hann leiðrétti það þó jafnan, að hann hefði á æsku- árum farið í Keflavíkurgöngu til þess að mótmæla hersetunni. Hann hefði farið í Hvalfjarðargöngu. Ekki stóð þetta tímabil lengi, en síðar sagði hann eitthvað á þá leið, að öll íhalds- börn yrðu einhvern tíma að verða vinstrisinnuð. Þau gætu þá sagt við börnin sín sem lentu í því sama: „Ég þekki þetta af eigin raun, það eldist af.“ Haraldur átti auðvelt með að skrifa og eftir hann liggur fjöldi greina í blöðum, einkum um stjórnmál og dægurmálefni. Hann skrifaði um tíma Svarthöfða í DV ásamt öðrum. Á þeim árum, fyrir um tveimur áratug- um, vöktu þessar greinar oft mikla athygli. Aldrei kannaðist hann við að hafa skrifað einstakar greinar, en ef maður hrósaði einhverjum skrifum Svarthöfða kom stundum fram breitt bros og hann sagði: „Já, fannst þér það gott.“ Yfirleitt sagðist hann skrifa þessar greinar á innan við hálf- tíma, „en láttu ritstjórann ekki frétta af því“. Haraldur var þekktur í bænum sem gleðimaður og grallari, en hann átti sér alvarlegri hlið. Hann var af- bragðs lögfræðingur. Því kynntist ég þegar ég vann í Sjóvá-Almennum tryggingum, en hann veitti lögfræði- lega ráðgjöf í tjónamálum. Hann var fljótur að setja sig inn í mál og átti auðvelt með að greina meginatriði. Oft sá hann snjallar málsvarnir sem ekki blöstu við öðrum. En hann vildi alltaf ná sanngjarnri niðurstöðu og samúð hans var með lítilmagnanum. Það var gaman að vinna með honum þegar hann var í ham. Haraldur var listrænn maður. Hann spilaði ágætlega á píanó, þó að ekki flíkaði hann því mikið. Hann dundaði líka stundum við að setja saman stökur og kvæði. Fyrir um tveimur mánuðum sendi hann mér tvö kvæði tengd laxveiðum. Annað birtist í Veiðimanninum sem er um það bil að koma út. Úr hinu eru þess- ar línur: HARALDUR BLÖNDAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.