Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 14
ERLENT 14 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐVERJAR hafa löngum verið tæknisinnaðir og á síðustu árum hafa þeir komist í hóp þeirra þjóða sem sýna um- hverfisvernd einna mestan áhuga. Því kemur vart á óvart að fyrstu talandi sorp- ílátin hafi nú verið tekin í notkun í Þýska- landi. Sorptunnurnar er að finna á mörgum helstu torgum Berlínar. Tunnurnar taka sorpinu fagnandi, þakka þeim sem því henti, syngja fyrir hann eða ávarpa við- komandi jafnvel á ensku, frönsku eða jap- önsku. Alls hafa nú 20 talandi sorptunnur verið teknar í notkun í Berlínarborg og engar tvær þeirra eru eins. Sorptunnan „Siggi sport“ hrópar „mark“ þegar úrgangurinn er látinn falla ofan í hana en hún Susi Schlau er hin klára í hópnum og þakkar fyrir sig og sorpið á þremur tungumálum en Kalle Kiez eða „Kalli úr hverfinu“ er herkillinn og segir „Hey, takk m’ar, veru- lega svalt af þér,“ þegar hann eða hún gleypir við úrganginn. Hagrætt hjá Sveinka REKSTRARÁÆTLANIR forráðamanna Jólasveinamiðstöðvarinnar í Finnlandi hafa ekki gengið eftir og nú er svo komið að nauðsynlegt er að grípa til róttækra hag- ræðingaraðgerða. Þrír aðstoðarmenn Sveinka, sem falla undir starfslýsinguna „álfar“, hafa nú misst atvinnuna og eru því aðeins tveir menn eftir í Jólasveina- skemmtigarðinum eða Santa Park sem er um 800 kílómetra norður af höfuðborginni, Helsinki. Upphaflega „rekstrarmódel“ fé- lagsins gerði ráð fyrir 120 stöðugildum þeg- ar rekstur jólasveinamiðstöðvarinnar var hafinn 1998. Áttu starfsmennirnir að fylgja gestum um skemmtigarðinn en fátt mun hafa verið um þá. Að auki hefur miðstöðin tekið við bréfum barna víða um heim sem skrifa jólasveininum. „Það er verulega leið- inlegt að við skulum hafa neyðst til að grípa til þessara hagræðingaraðgerða til að treysta rekstrargrundvöll félagsins en hér er bara ekkert að gera,“ segir Willie Rajala, fjórði forstöðumaður jólasveinagarðsins frá 1998. Varast ber Wagner TÓNLIST hefur mótandi áhrif á ökumenn og kannanir hafa sýnt fram á að líkur á slysum vaxa í réttu hlutfalli við hversu há- vær og ágeng tónlistin er. Breska RAC-stofnunin sem fæst við umferð- arrannsóknir hefur nú birt lista sinn yfir „hættulegustu“ tónlistina. Efstur trónir sjálfur Richard Wagner en „Valkyrju- reiðin“ úr óperunni „Valkyrjunni“, sem er ein fjögurra sem myndar „Niflungahring- inn“ fræga, er talin alveg stórhættuleg undir stýri. Næst kemur „Dies Irae“ úr „Requiem“ Verdis og kemur víst ekki á óvart því að „Dies Irae“ þýðir „Dagur reiðinnar“ á latínu. Nokkur nýleg lög eru einnig á listanum og í sætunum 3 til 5 eru „Firestart“ með Prodigy, „Red Alert“ með Basement Jaxx og „Insomina“ með Faith- less. Í efsta sæti á listanum yfir „öruggustu tónlistina“ er „Come Away with Me,“ með Noruh Jones og lagið „Too Lost in You“, með söngflokknum Sugababes þykir einn- ig sérlega vel fallið til að róa taugar öku- manna og stuðla að auknu öryggi í um- ferðinni. ÞETTA GERÐIST LÍKA Talandi sorptunnur BANDARÍSKA CBS-sjónvarps- stöðin sýndi á miðvikudag ljós- myndir sem teknar voru af Díönu prinsessu fáeinum mínútum eftir bílslysið sem dró hana og ást- mann hennar til dauða í París í ágústmánuði árið 1997. Margir hafa orðið til þess að fordæma mynd- birtingu þessa. Myndirnar sem eru svart-hvítar og ógreinilegar mjög sýna franskan lækni, Frederick Maillez, sinna Díönu í flaki bif- reiðarinnar en Maillez kom á staðinn fáeinum mínútum eftir að slysið varð. Á einni myndanna virðist mega greina blóðugt höfuð prinsessunnar. Myndirnar voru sýndar í þætti um dauða Díönu prinsessu en ásamt henni fórst ástmaður hennar, Dodi Al Fayed, í slysinu. Ljósmyndirnar voru lagðar fram við rannsókn sem fram fór á til- drögum slyssins. Í þætti banda- rísku sjónvarpsstöðvarinnar voru margvíslegar samsæriskenningar reifaðar sem settar hafa verið fram í tengslum við dauða prins- essunnar. Í frétt AFP-fréttastof- unnar segir að í þættinum hafi engin ný sönnunargögn komið fram. Samkvæmt þeirri opinberu rannsókn sem fram fór í Frakk- landi má rekja slys- ið til ofsaaksturs, auk þess sem öku- maðurinn, Henri Paul, hafi verið und- ir áhrifum áfengis og lyfja. Fjórði maðurinn í bílnum, Trevor Rees Jones, lífvörður Díönu, komst einn lífs af úr slys- inu. Mohamed Al Fayed, faðir Dod- is, hefur löngum haldið því fram að Díana og sonur hans hafi verið myrt. Hann fordæmdi CBS fyrir að sýna myndirnar. „CBS er greinilega öldungis sama um þau hroðalegu áhrif sem það hefur að sýna myndir af fórnarlömbum morðingja,“ sagði í yfirlýsingu Mohameds Al Fayeds. „Það eina sem fyrir þeim vakir er að græða á þessum harmleik,“ sagði þar og. Spencer lávarður, bróðir Díönu prinsessu, fordæmdi einnig í gær þessa ákvörðun CBS. Sagði hann „viðbjóðslegt“ að sýna myndir þessar og sagði birtingu þeirra „mikið áfall“. Dicky Arbiter, fyrrverandi talsmaður konungsfjölskyld- unnar, sagði í samtali við BBC í gær að hann teldi það „sérlega ósmekklegt“ að birta ljósmynd- irnar af prinsessunni í dauða- stríðinu. Sagði hann að þetta myndi reynast sonum Díönu, þeim Harry og Vilhjálmi, sérlega erfitt. „Þeir munu þurfa að lifa við svona nokkuð um alla sína daga,“ sagði Arbiter. Talsmaður CBS varði þá ákvörðun stöðvarinnar að birta myndirnar. Í þættinum væru þær nýttar á faglegan hátt og settar í „fréttalegt samhengi“. Um mis- notkun væri því ekki að ræða. Myndirnar hefðu fréttagildi því þær sýndu hvaða meðferð Díana hefði hlotið strax eftir slysið. Þá hefðu fréttamenn CBS komist yf- ir leynileg skjöl sem tengdust rannsókn á slysinu. Að sögn BBC hafa dagblöð í Bretlandi myndir þessar í fórum sínum en þau munu hafa ákveðið að birta þær ekki. Fordæma myndir af Díönu í dauðastríðinu Bandarísk sjónvarpsstöð sýnir myndir frá því rétt eftir slysið í París 1997 Reuters Díana prinsessa af Wales. Myndin var tekin haustið 1995, tveimur ár- um áður en hún lét lífið í bílslysi. ’Það eina semfyrir þeim vakir er að græða á harmleiknum.‘ EFTIR hrun Sovétríkjanna hefur styttunum í Rússlandi heldur farið fækkandi en rúss- neskir myndhöggvarar vilja þó gjarnan bæta úr því. Einn þeirra, Zurab Tsereteli, stend- ur hér við nýjasta sköpunar- verk sitt, Vladímír Pútín Rúss- landsforseta, og eins og sjá má er hann í hefðbundnum búningi júdókappa. Hefur Pútín iðkað þá íþrótt lengi. AP Nýir tímar – nýjar styttur ER hægt að treysta því að pólskir tannlæknar kunni til verka? Að þessu spurði Daninn Tommy Han- sen sig nýverið eftir að hann sá auglýsingu á Netinu um ódýrar tannviðgerðir í Póllandi. Það telst auðvitað enn til tíðinda að menn ferðist á milli landa til að fara til tannlæknis en slíkt verður þó æ algengara enda kostar heim- sókn til tannlæknisins í gömlu Austantjaldslöndunum ekki nema brot af því sem hún kostar í Vest- ur-Evrópu. Það getur Tommy Hansen staðfest. Og fréttaskýrendur spá því að enn frekari þróun verði í þessa átt eftir 1. maí nk. þegar tíu ríki, sem flest tilheyrðu áður Austurblokk- inni, ganga í Evrópusambandið. Landamærahömlur falla niður Við stækkun ESB falla flestar landamærahömlur niður. Margir hafa óttast að þetta myndi hafa í för með sér að íbúar inngönguríkj- anna í austri nýttu sér tækifærið og flyttu til hinna ríkari landa sam- bandsins í leit að betra lífi en kannski verður ekki óalgengara, að íbúar Vestur-Evrópu bregði sér austur yfir til að sækja sér ódýra þjónustu. Tommy Hansen hefur í öllu falli engar áhyggjur af því lengur að pólskir tannlæknar kunni ekki til verka. Ein heimsókn á tannlækna- stofu Zbigniew Hahs í borginni Szczecin norðvestast í Póllandi (sem til 1945 var þýzka borgin Stettin) var nóg til að róa taugar hans. Þar fær hann þjónustu sem ekki er hægt að kvarta undan – tækjabúnaður og kunnátta jafnast fyllilega á við það sem finnst á tannlæknastofum í Danmörku – en Hansen þarf ekki að borga nema brotabrot af því sem hann þyrfti að borga heima fyrir. Þegar hann lét setja brú í góm- inn nýverið hjá Hahs þurfti hann ekki að borga nema 540 evrur, tæplega fimmtíu þúsund ísl. kr., en hefði þurft að borga fimmfalda þá upphæð hjá tannlækni í Kaup- mannahöfn. Martin Behling, 33 ára gamall Þjóðverji, tekur í sama streng. „Evrópa er að sameinast. Ég sagði við sjálfan mig: þú getur alveg eins farið til tannlæknis í Póllandi,“ segir Behling sem á heima á eynni Rügen í Eystrasalti. Þjónustan of dýr fyrir Pólverja Flestir viðskiptavina Hahs koma reyndar erlendis frá því þótt þjón- ustan kosti aðeins brot af því sem hún kostar í löndum Vestur-Evr- ópu þá er hún samt of dýr fyrir venjulega Pólverja. Útlendingarn- ir koma fyrst og fremst til að láta gera hjá sér meiriháttar tannvið- gerðir, ferðalagið er varla þess virði ella, en Hahs-tannlæknastof- an nýtur þess að frá Szczecin (nán- ar tiltekið ferjubænum Swinoujsc- ie/Swinemünde) er ferjutenging til Danmerkur og Svíþjóðar og þaðan er ekki nema rúmlega klukku- stundar akstur þaðan til milljóna- borgarinnar Berlínar. Til Póllands í tannviðgerð Szczecin. AFP. Reuters MARADONA er dýrlingur í sumra augum og hér er einn aðdáenda hans að tilbiðja mynd af „San Diego“ og biðja honum blessunar í sjúkleikanum. Heilagur Diego
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.