Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 9
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Nýjar sumarvörur
Nýjar skyrtur og blússur
úr bómull og hör
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending
af peysum
Gott verð
Sportlegir sumarjakkar
Litir: hvítt og grænt
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Námskeið fyrir konur, sem hafa þolað ofbeldi á einn eða annan hátt
verður haldið mánudaginn 26. apríl frá kl. 17.30 til 19.00 og næstu þrjú
mánudagskvöld í Kvennagarði, Laugavegi 59, 4. hæð. Byggt verður á
nýútkominni bók Lúterska heimssambandsins. Kennarar eru Vilborg
Oddsdóttir félagsráðgjafi og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Námskeiðið er ókeypis.
Innritun í síma 551 3934 og á staðnum.
Hjálparstarf kirkjunnar og Kvennakirkjan
Kvennakirkjan mótmælir
ofbeldi gegn konum
KONAN
TÍSKUVÖRUVERSLUN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10 – SÍMI 544 4035
Full búð
af nýjum vörum
Komdu og gerðu þig fína fyrir sumarið
Stærðir 34 - 56
ÁSGEIR Þór Árnason, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka hjarta-
sjúklinga, segir að nái sparnaðartil-
lögur stjórnvalda í lyfjamálum fram
að ganga muni mörg algeng hjartalyf
hækka langt yfir 100%. Hann nefnir
sem dæmi hjartalyfið Zarator, en það
muni hækka, skv. sínum útreikning-
um um 176%. „Þetta eru því ansi
miklar hækkanir sem stjórnvöld eru
að boða,“ útskýrir hann í samtali við
Morgunblaðið. Í tilkynningu, sem
samtökin hafa sent frá sér, lýsa þau
yfir þungum áhyggjum af umrædd-
um áformum. Ásgeir bendir á að það
sé ekki einfalt mál fyrir hjartasjúk-
linga að breyta yfir í ný lyf því oft hafi
það tekið nokkur ár að finna réttan
„lyfjakokkteil“ fyrir viðkomandi sjúk-
ling. „Ég var, svo dæmi sé tekið, inni
og úti á sjúkrahúsum á árunum 1992
til 1999 eða þar til loks tókst að finna
réttu lyfin fyrir minn sjúkdóm.“ Hann
segir að síðan hafi líðan sín verið stöð-
ug, en þeim árangri verði stefnt í
hættu, þurfi hann að fara yfir á ný lyf.
„Ég tek það fram að við erum ekki á
móti sparnaði og hagræðingu en við
viljum fá að taka þátt í slíkum aðgerð-
um með heilbrigðisyfirvöldum.“
Ásgeir segir að samtökin hafi átt
fund með heilbrigðisráðherra, Jóni
Kristjánssyni, fyrir nokkru vegna
þessara mála, en stuttu síðar voru
umræddar tillögur um lyfjaverð frá
stjórnvöldum gerðar opinberar.
Hann segir samtökin ósátt við það að
ekkert samráð hafi verið haft við þau
og að þau skyldu á fundinum með ráð-
herra ekki hafa verið látin vita af til-
lögunum.
Málþing á laugardag
Í tilkynningu frá Landssamtökum
hjartasjúklinga segir m.a.: „Lands-
samtök hjartasjúklinga líta á þessar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem
fjandsamlegar við heilbrigðis og
mannúðarstefnu sem boðuð hefur
verið. Heilbrigðisráðherra hefur boð-
að „analogkerfið“ í nokkurn tíma.
Samkvæmt upplýsingum samtak-
anna eru engin af viðmiðunarríkjum
Íslands að nota þetta kerfi. Markmið
heilbrigðisráðherra eru án efa að
lækka lyfjakostnað og það markmið
skilja Landssamtökin og virða. En
þetta getur ekki verið leiðin þegar lyf-
in okkar hækka um og yfir 100%.“
Síðan segir að það sé afdráttarlaus
krafa samtakanna að ákvörðunum í
þessa veru verði frestað og að fulltrú-
um sjúklinga verði boðið til viðræðna
um lyfjaverð.
Samtökin hafa vegna þessara mála
boðað til málþings í Súlnasal í
Reykjavík á laugardag. Þingið hefst
klukkan 10 árdegis og stendur til 12.
Hjartasjúklingar mótmæla
Dæmi um að lyf
hækki um 176%
Í GÆR, sumardaginn fyrsta, var í
annað sinn úthlutað styrkjum úr
sjóðnum Vildarbörn, styrktarsjóði
Icelandair og viðskiptavina félagsins.
Markmið sjóðsins er að gefa lang-
veikum börnum og börnum sem búa
við sérstakar aðstæður tækifæri til
þess að fara í draumaferð sem þau
ættu annars ekki kost á.
Að þessu sinni sóttu 80 börn og
fjölskyldur þeirra um styrk úr sjóðn-
um og hlutu 12 þeirra styrk. Í styrkn-
um felst skemmtiferð fyrir barnið og
fjölskyldu þess, og er allur kostnaður
greiddur – flug, gisting, dagpeningar
og aðgangseyrir að sérstökum við-
burði sem barnið óskar sér. Við síð-
ustu úthlutun, sem var síðastliðið
haust, völdu flest barnanna að fara til
Flórída og heimsækja Disneyland.
Sjóðurinn Vildarbörn fagnaði í
gær eins árs afmæli sínu. Hann er
fjármagnaður með þrennskonar
hætti.
Í fyrsta lagi með beinu fjár-
framlagi Icelandair. Í öðru lagi með
frjálsum framlögum félaga í Vild-
arklúbbi Icelandair sem geta gefið af
vildarpunktum sínum. Í þriðja lagi er
sjóðurinn fjármagnaður með söfnun
afgangsmyntar um borð í flugvélum
Icelandair. Starfsemi Vildarbarna
Icelandair byggist á hugmyndum og
starfi Peggy Helgason, sem hefur um
árabil unnið sem sjálfboðaliði á
barnadeildum sjúkrahúsa í Reykja-
vík og stutt fjölskyldur fjölda veikra
barna með ýmsum hætti. Hún er nú í
stjórn Vildarbarna Icelandair.
Verndari sjóðsins er Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís-
lands og formaður stjórnar hans er
Ragnhildur Geirsdóttir fram-
kvæmdastjóri hjá Icelandair. Lands-
bankinn er fjárgæsluaðili sjóðsins.
Árangur myntsöfnunarinnar um
borð í flugvélum Icelandair hefur far-
ið fram úr björtustu vonum og fleiri
börn eiga þess því kost í ár að fara í
draumaferð sína en aðstandendur
gerðu ráð fyrir, segir í fréttatilkynn-
ingu. Við afhendinguna styrkjanna í
gær fengu börnin og systkini þeirra
auk viðurkenningarskjals peysur
merktar Icelandair og flugvélamódel.
Á heimasíðu fyrir Vildarbörnin,
www.vildarborn.is , er að finna nán-
ari upplýsingar um sjóðinn.
Tólf vildar-
börn á leið í
draumaferðina
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins