Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HLÍÐASKÓLI hefur hlotið viður-
kenningu og 200 þúsund króna
styrk frá Hagsmunafélagi um efl-
ingu verk- og tæknimenntunar
framúrskarandi árangur nemenda
10. bekkjar í samræmdum prófum
í stærðfræði sl. þrjú ár. Skólinn
náði hæstri samanlagðri með-
aleinkunn í stærðfræði á sam-
ræmdum prófum 10. bekkjar árin
2001–2003.
Áður hafði Hagsmunafélagið
veitt Landakotsskóla viðurkenn-
ingu og 300 þúsund króna styrk
fyrir hæstu meðaleinkunn á sam-
ræmdum prófum í stærðfræði 2003
og Grunnskólanum á Hellu 200
þúsund króna styrk fyrir mestu
hækkun á meðaleinkunn á sam-
ræmdum prófum í stærðfræði milli
7. og 10.bekkjar. Þá viðurkenningu
hlaut skólinn fyrir árganginn sem
útskrifaðist úr skólanum 2003.
Styrkjunum mega skólarnir ráð-
stafa að vild til að byggja upp
kennslu í raungreinum.
Að Hagsmunafélagi um eflingu
verk- og tæknimenntunar standa
Háskólinn á Akureyri, Háskóli Ís-
lands, Samtök iðnaðarins, Tækni-
háskóli Íslands, Tæknifræðinga-
félag Íslands og Verkfræðinga-
félag Íslands.
Að sögn Inga Boga Bogasonar,
menntafulltrúa Samtaka iðnaðar-
ins, er þetta þriðja árið sem félagið
veitir verðlaun af þessu tagi. Hann
segir þá skóla og samtök sem
standa að félaginu telja mikilvægt
að fjölga raungreinamenntuðu
fólki í landinu. „Við lítum svo á að
til þess að koma þessari viðhorfs-
breytingu til raungreinamennt-
unar á sé farsælt að beina kastljós-
inu að þeim sem eru að standa sig
vel í stærðfræði í 10.bekk. Þetta er
um það leyti sem unga fólkið tekur
ákvörðun um hvað það ætlar að
taka sér fyrir hendur í lífinu.“
Viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur á samræmdum stærðfræðiprófum
Hlíðaskóli hæstur í þrjú ár
Morgunblaðið/Sverrir
Viðurkenningin afhent: Ingi Bogi Bogason, Bjarni Bessason, prófessor og formaður Hagsmunafélagsins, Kristrún
Guðmundsdóttir skólastjóri með viðurkenninguna, Bjarki Brynjarsson, forseti tæknideildar THÍ, Guðrún Ólafs-
dóttir, varaformaður Verkfræðingafélagsins, og Logi Kristjánsson framkvæmdastjóri.
LÖGREGLAN í Hafnarfirði stöðv-
aði 20 ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur í fyrrakvöld og fram á aðfaranótt
sumardagsins fyrsta. Einn úr hópn-
um var ölvaður að sögn varðstjóra.
Ekki var þó um ofsaakstur að ræða í
umræddum tilvikum.
Lögreglan í Keflavík stöðvaði hins
vegar ökumann á Reykjanesbraut í
gærmorgun á móts við Voga á 127
km/klst. þar sem leyfilegur há-
markshraði er 70 km/klst.
Hann á von á ökuleyfissviptingu.
20 óku of hratt
CURTIS Olafson, nautgripabóndi í
Norður-Dakota í Bandaríkjunum,
vill kynbæta íslenska nautgripi
með bandarískum fósturvísum.
Hann segir að séu þeir fluttir
frosnir á milli landa og þeim síðan
komið fyrir í íslenskum kúm á ein-
angruðu svæði, eins og til dæmis í
Hrísey, sé nánast engin sjúkdóma-
hætta fyrir hendi. Þannig sé mögu-
leiki á að rækta góðan stofn sem
komi sér vel fyrir íslenska naut-
gripabændur og neytendur.
Þetta kemur fram í viðtali við
Curtis Olafson í blaðinu Lögbergi-
Heimskringlu, sem kemur út í
Winnipeg í Kanada í dag, föstudag.
Hann segir að það sé alltaf gott að
reyna að kynbæta stofna, hvar sem
þeir eru, til að auka gæði fram-
leiðslunnar og svara þannig kröfum
markaðarins.
Curtis Olafson er ættaður úr
Eyjafirði. Hann býr þar sem afi
hans og amma settust að þegar þau
fluttu frá Íslandi 1883 en síðan hef-
ur fjölskyldan stundað naut-
griparækt. Curtis hefur ræktað
svonefndan Simmental-stofn í rúm-
lega 12 ár og segir að það sé besti
stofninn í Bandaríkjunum til fram-
leiðslu nautakjöts, en ársgamlir séu
gripirnir um 540 kg þungir að
meðaltali.
Spennandi verkefni
og engin sjúkdómahætta
Að sögn Curtis hefur hann hug-
leitt þetta um hríð en ekki rætt
málið enn við íslenska ráðamenn.
,,Ég held að þetta geti orðið mjög
spennandi verkefni,“ segir hann við
blaðið. Mikilvægt sé að tryggja að
engin sjúkdómahætta sé á ferðum,
og það sé best gert með því að gera
þessa tilraun á einangruðu svæði
eins og í Hrísey, ,,Aðalatriðið er að
tryggja að allar breytingar vegna
svona rannsóknar séu jákvæðar
fyrir nautgriparækt á Íslandi.“
Morgunblaðið/Steinþór
Curtis Olafson, nautgripabóndi í Norður-Dakota í Bandaríkjunum, beitir
vísindalegum aðferðum við að vega og meta gildi gripa sinna.
Vill kynbæta ís-
lenska nautgripi
Winnipeg. Morgunblaðið.
SJÖ bílainnbrot í Móahverfi í Njarð-
vík voru tilkynnt lögreglunni í Kefla-
vík í gærmorgun. Talið er að brotist
hafi verið inn í bifreiðirnar í fyrri-
nótt. Gramsað var í þeim og stolið
hljómflutningstækjum og geisladisk-
um.
Lögreglan segir innbrotin óvenju-
mörg fyrir þetta hverfi. Málið er í
rannsókn en enginn hefur verið
handtekinn.
Brotist inn í sjö
bíla í Njarðvík
LÖGREGLAN á Hvolsvelli stöðvaði
erlendan ferðamann á bílaleigubíl á
148 km hraða austan við Skóga í
gær.
Ökumaðurinn hlaut 50 þúsund
króna sekt en borgaði á staðnum og
fékk 25% afslátt. Eftir að hafa reitt
fram 37.500 krónur hélt hann sína
leið að sögn lögregluvarðstjóra.
Tekinn á 148 km
OLÍUFÉLAGIÐ hf. opnar í vikunni
fjórar nýjar sjálfsafgreiðslubensín-
stöðvar undir vörumerkinu EGO, en
þar er áhersla lögð á að veita elds-
neyti á lágu verði auk þess að bjóða
viðskipavinum virðisaukandi ávinn-
ing í formi afsláttarmiða og tilboða á
vörum og þjónustu.
Fyrsta bensínstöðin verður opnuð í
dag í Vatnagörðum og verður margt
um að vera á stöðinni í tilefni af því.
Hundrað fyrstu viðskiptavinirnir fá
gjafir, þáttastjórnendur Lögreglu-
máls á FM957 bjóða öllum að mæla
egóið, EGO herinn verður á svæðinu
og SMS leikur í gangi þar sem við-
skiptavinir eiga þess kost á að vinna
utanlandsferðir, miða á tónleika með
Pink, bíómiða, máltíðir á veitingahús-
um og boli. Á morgun verða opnaðar
tvær stöðvar, í Fellsmúla og á Sala-
vegi. 30. apríl nk. verður síðan opnuð
stöð við Smáralind. Fyrst um sinn
verður 95 oktana bensín selt á kr.
97,50 líterinn.
Sambærilegt verð
og ávinningur
Stefna EGO er, að sögn talsmanna,
að bjóða verð sambærilegt við það
sem lægst gerist á hverju markaðs-
svæði fyrir sig. Þá sé áhersla lögð á að
veita viðskiptavinum ávinning; ekki
einungis í formi lágs eldsneytisverðs
heldur einnig að koma viðskiptavin-
um á óvart með nýjungum og virð-
isaukandi uppákomum. Til að mynda
gildi kvittunin sem viðskiptavinurinn
fær fyrst um sinn sem lukkumiði þar
sem hægt er að vinna til margskonar
verðlauna, en einnig gildi hann sem
afsláttarmiði í kvikmyndahús.
Stefnt er að því að opna sjö til tíu
EGO stöðvar á árinu, flestar á höf-
uðborgarsvæðinu. Bæði er verið að
setja upp nýjar stöðvar og endurnýja
og bæta eldri stöðvar Olíufélagsins
með nýjum stíl.
EGO opnar fjórar nýjar sjálfsafgreiðslubensínstöðvar
Áhersla á virðisaukandi
ávinning viðskiptavina
EGO-stöðin við Vatnagarða. Brátt bætast þrjár í viðbót í hópinn.
♦♦♦
♦♦♦
AÐALFUNDUR Skólafélags
Landbúnaðarháskólans á Hvann-
eyri hefur sent frá sér harðorða
ályktun í tilefni þess að í fyrirhug-
aðum Landbúnaðarháskóla mun
fulltrúi nemenda ekki eiga sæti í
háskólaráði.
Vísað er til greinargerðar með
frumvarpi til laga um Landbúnað-
arháskóla Íslands, þar sem segir
m.a. að í stað fulltrúa nemenda og
kennara komi tilnefning frá Sam-
tökum atvinnulífsins.
Í ályktuninni segir m.a. að sú
ráðstöfun, að ætla nemendum ekki
fulltrúa í háskólaráð, sé „svívirðileg
móðgun við þá lýðræðishugsun sem
hefur hingað til einkennt háskóla í
landinu og jafnframt víðast hvar í
heiminum“.
Möguleikar nemenda
stórlega skertir
„Sú ætlan að skipa hvorki full-
trúa nemenda né kennara í háskóla-
ráð mun birtast í því að ráðið getur
ekki fjallað um málefni sem snúa
beint að innra starfi stofnunarinnar
því þekkingu á því mun skorta.
Eins er með þessari ráðstöfun stór-
lega skertir þeir möguleikar nem-
enda að leita réttar síns ef þeir geta
aldrei skotið málum sínum til há-
skólaráðs nema þá aðeins með því
að leita á náðir annarra fulltrúa.
Síðan má benda á að hér er vísvit-
andi verið að brjóta gegn lögum um
háskóla nr. 136/1997,“ segir í álykt-
uninni m.a.
Mótmæla skipan í skóla-
ráð Landbúnaðarháskóla