Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 23
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
OFFITA www.heilsuvernd.is
Boðin verða upp um 160 verk,
þar á meðal fjöldi verka gömlu
meistaranna. Þá verða einnig boðin upp
verk eftir Ólaf Elíasson, Georg Guðna,
Helga Þorgils, Pétur Gaut, Braga
Ásgeirsson og Kristján Davíðsson.
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið á sunnudagskvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14 – 16,
í dag kl. 10.00 – 18.00, á morgun kl. 10.00 – 17.00 og á sunnudag kl. 12.00 – 17.00.
Sími 551 0400
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
... á næsta sölusta› e›a lotto.is
og flú átt möguleika á a› vinna
heimsreisu
fyrir tvo
Taktu Lottó
í áskrift
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
2
0
0
6
DREGI‹ Í
LOK
APRÍL
ALÞJÓÐADAGUR bókarinnar og
höfundarréttar, 23. apríl, er haldinn
hátíðlegur víða um heim að frum-
kvæði UNESCO, menningarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna. Dagurinn
er helgaður bókinni og þeim sem
vinna við bækur með einum eða öðr-
um hætti. Á hverju ári fær Bóka-
samband Íslands rithöfund til þess
að semja ávarp af tilefninu. Að þessu
sinni var Linda Vilhjálmsdóttir feng-
in til starfans og er ávarp hennar eft-
irfarandi:
„Ég hef heimsótt nokkrar þjóðir
síðustu misserin sem allar nota ann-
að letur en það sem ég á að venjast. Í
fyrrasumar var ég með grikkjum á
eynni Ródos, um haustið hitti ég
araba í Líbanon og Sýrlandi og núna
um daginn var ég að lesa ljóð fyrir
kínverja í Kúnming sem er höf-
uðborgin í Yunnanhéraði. Ég gat
stautað mig fram úr grískunni ef ég
þurfti að rata eftir korti og í Damask-
us lagði ég það á mig að læra arab-
ísku tölutáknin svo ég gæti prúttað í
súkkinu. En ég skildi alltaf minna og
minna eftir því sem austar dró og í
Kína skildi ég alls ekki neitt. Sama
lögmálið gilti um þá kúnst að ná sam-
bandi við heimamenn. Það gekk
þokkalega á Ródos og í Beirút, síður í
Damaskus, enn verr í Palmýru úti í
eyðimörkinni og alls ekki í Kúnming í
Kína. Það var meira að segja von-
laust að reyna að fá sitt fram með
bendingum og fingramáli í Kúnming
því kínverjarnir þar botnuðu ekki
baun í okkar vestræna pati.
Einhvers staðar á þessu randi átt-
aði ég mig á því að ég veit ósköp fátt
og reyndar finnst mér ég vita minna
og minna eftir því sem árin líða og
það virðist alltaf vera fleira og fleira
sem ég veit ég alls ekkert um. Þó að
ég hafi lært landafræði og mann-
kynssögu í skóla, fylgst með fréttum
síðustu áratugina og vafrað um netið
var eina fastmótaða hugmynd mín
um Kína sú að þar væri gríðarleg en
um leið gífurlega skipulögð mann-
mergð á sveimi um stórborg-
arstrætin. Sú götumynd passar
kannski við breiðustu göturnar í Pek-
ing eða Sjanghæ á góðum degi en
fólkið í Kúnming fór ekki um í flokk-
um og götulífið þar var fjöl-
breytilegra en víðast hvar. Á um það
bil korteri gekk maður úr austrænni
ævintýraborg inn í ameríska moll-
borg og þaðan yfir í kínverskt þorp.
Ég stóð þar af leiðandi í sömu spor-
um og í Líbanon og Sýrlandi – ég
vissi minna en ekkert um land og
þjóð vegna þess að það litla sem ég
taldi mig vita kom ekki heim og sam-
an við það sem ég sá og heyrði þegar
á staðinn var komið.
Tungumálið hlýtur alltaf að vera
augljósasta hindrun þess að fólk af
ólíkum uppruna skilji hvert annað.
En þar kemur auðvitað fleira til.
Lega landsins, landkostirnir, veð-
urfarið, sagan, menningin, trúar-
brögðin, stjórnarfarið, siðirnir og
venjurnar móta okkur manneskj-
urnar og skipta okkur í þjóðir. Síðan
erum við auðvitað mismunandi skyld
– líffræðilega. Þegar ég fór til Kína
var mér til dæmis ráðlagt að taka
með mér pakkað blóð í poka til að
hægt yrði að bjarga lífi mínu fljótt og
örugglega ef á þyrfti að halda. Það er
sem sagt ansi margt á yfirborðinu
sem greinir okkur mennina að. Ef við
hins vegar kjósum að snúa hinni hlið-
inni á þessum sama peningi upp
komumst við oftast nær að því að það
sem sameinar okkur er miklu meira
og merkilegra en það sem sundrar
okkur. Hlutskipti manns er nefnilega
alltaf það sama – hann fæðist, hann
lifir, hann deyr. Það er umfram allt
óttinn, skilningsleysið og fordóm-
arnir sem stía okkur í sundur.
Fyrir nokkrum árum sagði mað-
urinn minn mér frá fróðlegri grein
sem hann hafði lesið í frönsku blaði.
Þar var því haldið fram að fyrsta orð-
ið hafi verið „sjáðu!“ eða „sko!“ eða
einhver álíka upphrópun. Ástæða
þess að mannfólkið fór að tjá sig með
orðum var í greininni sögð vera
sprottin af þeirri þörf okkar að deila
reynslunni með öðrum. Að upplifunin
ein og sér hafi ekkert sköpulag í
huga okkar og verði ekki að raun-
veruleika fyrr en við höfum breytt
áhrifunum í orð og reynslu sem við
getum deilt með öðrum. Þessi mann-
legi eiginleiki gerir það að verkum að
hver persóna er sérstök af því við
skynjum öll hlutina á ólíkan hátt en
um leið tengir þessi hæfileiki okkur
saman því málið gerir okkur kleift að
skilja hvert annað. Málið er forsenda
samfélags mannanna.
Málfræðingnum, manninum mín-
um, fannst þetta merkilegt og ekki
síður mér sem var einmitt að upp-
götva þetta með reynsluna og raun-
veruleikann á sama tíma. Við hjónin
höfðum hreiðrað um okkur í gömlu
húsi í fallegum dali í Frakklandi og
vorum ekki alls kostar sammála um
það hvernig við vildum verja þessum
sumarfrísdögum. Ég vildi helst liggja
í sólbaði og lakka á mér neglurnar í
góða veðrinu en hann vildi vera á sí-
felldum þvælingi upp um fjöll og firn-
indi. Hann fór þess vegna einn á hjól-
inu upp fjallvegina eldsnemma á
morgnana og kom svo í garðinn til
mín upp úr hádegi og sagði mér sög-
ur af ferðum sínum. Þannig urðu
þessir leiðangrar honum sjálfum til
meiri ánægju en ella og mér til
mikillar skemmtunar. Þegar ég fór
að rifja upp minningarnar úr þessu
fríi fannst mér eins og ég hefði verið
með honum þegar hann hleypti
hænunum óvart inn í kirkjuna og var
heillengi að koma þeim aftur út og
líka þegar hann datt af hjólinu á heið-
inni og hitti aumingja þrífætta hund-
inn sem reyndi að elta hann heim.
Austur í Kína sperrtu menn eyrun
þegar ég las ljóðin mín upp á íslensku
og þegar ungi háskólaneminn sem
las með mér var búinn að koma kín-
versku þýðingunni til skila hrópuðu
sumir í salnum til mín eitthvað sem
hljómaði eins og hvatningaróp. Ég
hef aldrei fengið önnur eins viðbrögð
og mér leið eins og fótboltahetjunum
hlýtur að líða þegar þær hafa skorað
flott mark. Þeir vissu ekkert um Ís-
land og íslendinga nema það eitt að
héðan er Björk. Samt skildu þeir
mig. Sjálf hafði ég nokkuð góðar for-
sendur til að setja mig í spor kín-
versku skáldanna sem ég heyrði í,
meðal annars vegna þess að fyrir
nokkrum árum las ég bókina Villtir
svanir, en þar er saga þriggja kyn-
slóða kínverskra kvenna sögð af
konu sem er á svipuðum aldri og ég.
Sum kínversku ljóðin sögðu margra
áratuga sögu í örfáum lágværum
orðum.
ég er stöðugt að spá
í afleiðingar orða minna
ég er alltaf hræddur
um að hafa talað af mér
ég hef sífelldar áhyggjur af því
að þolinmæði þeirra sé á þrotum
strætið er eins og heiður himinn
ég tipla um á tungubroddinum
eins og hermaður á sprengju-
svæði
Eftir ferðina um Líbanon og Sýr-
land las ég bók sem heitir Frá Beirút
til Jerúsalem. Hún er eftir banda-
ríska blaðamanninn og rithöfundinn
Thomas Friedman sem bjó í þessum
borgum frá 1979–87. Einhverju sinni
þegar svartsýnin hafði heltekið Tom
spurði hann sálfræðiprófessor við
Ameríska háskólann í Beirút hvort
það þyrfti ekki að gera útpælda sál-
fræðilega byltingu í Líbanon til að
binda enda á borgarastríðið. Það
verður friður í Líbanon, sagði pró-
fessorinn, þegar líbanar fara að elska
börnin sín meira en þeir hata hver
annan. Svo einfalt er það!
Sérðu það sem ég sé? spyr dreng-
urinn stúlkuna í upphafi Grasaferðar
Jónasar Hallgrímssonar – og um það
snúast sögurnar. Að leyfa öðrum að
sjá það sem við sjáum. Að færa okkur
nær hvert öðru.
Sérðu það sem ég sé…
Linda Vilhjálmsdóttir: „Tungumálið hlýtur alltaf að vera augljósasta hindr-
un þess að fólk af ólíkum uppruna skilji hvert annað.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Eftir Lindu
Vilhjálmsdóttur
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930