Morgunblaðið - 23.04.2004, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Beini
© LE LOMBARD
SIGMUNDUR, VISSIR ÞÚ AÐ
BALDURSBRÁRNAR VAXA HARAÐAR
EF MAÐUR TALAR BLÍÐLEGA VIÐ ÞÆR
Á MEÐAN MAÐUR VÖKVAR?
HA?
EF ÞETTA HELDUR SVONA ÁFRAM ÞÁ FERÐU
BEINUSTU LEIÐ Á HAUGANA! DRUSLAN ÞÍN...
SIGUMUNDUR HEFUR
LITRÍK ORÐ UM ÞAÐ
SEM HANN ER AÐ
VINNA AÐ. NÚNA ER
HANN AÐ GERA VIÐ
MÓTORHJÓLIÐ SITT
VINUR MINN REKUR BROTASÖLU OG BÍÐUR SPENNTUR EFTIR
ÞVÍ AÐ FÁ AÐ MYLJA ÞIG Í LITLA BÚTA!
VANDAMÁL?
EFTIR HVERJU
ER ÉG AÐ
BÍÐA?
RAFALLINN NEITAR AÐ GEFA FRÁ
SÉR SVO MIKIÐ SEM NEISTA, ÞÓ
SVO AÐ ÉG HAFI MEÐHÖNDLAÐ
HJÓLIÐ MEÐ ÁSTRÍÐU. ÞAÐ KEMUR
EKKERT VRÚMM, VRÚMM!!
HJÓLIÐ MITT
ER MÁLLAUST!
ÉG ÆTLA AÐ SELJA
ÞIG OG TAKA STRÆTÓ Í
STAÐINN!
EÐA VERRA! ÉG GET
GEFIÐ ÞIG EINHVERJUM!
EINHVERJUM
SEM GLEYMIR AÐ
SMYRJA ÞIG!
EÐA DÆLIR
VATNI Í
BENSÍN-
TANKINN!
FALLEGA SAGT. ÉG SKAL TAKA
HJÓLIÐ TAKK
ÞEGAR ÉG VAR LÍTILL STRÁKUR ÞÁ DREYMDI MIG UM ÞAÐ AÐ
EIGA MÓTORHJÓL EÐA FLUGVÉL. EN PABBI ÁTTI ENGÖNGU
ROLLSA OG KAMELDÝR OG FLENGDI MIG Í HVERT SKIPTI
SEM ÉG MINNTIST Á ÞAÐ
BÍDDU NÚ HÆGUR! ÉG SAGÐI BARA SVONA.
HJÓLIÐ MITT ER EKKI TIL SÖLU NÉ GEFINS.
ÞANNIG ER ÞAÐ BARA
ÉG SAGÐI ÞETTA
BARA Í HITA
LEIKSINS
ÞÚ SAGÐIR AÐ ÞÚ MUNDIR GEFA,
ÞÚ VERÐUR AÐ GEFA!
ÞÚ LOFAÐIR OG
HEILAGI
SPÁMAÐURINN ER
EKKI HRIFINN AF
SVIKURUM
HUGLEIDDU ÞAÐ. EF ÞÚ ÁTT ERFITT MEÐ AÐ GEFA ÞAÐ ÞÁ
SKAL ÉG GEFA ÞÉR ROLLSINN MINN! ÉG Á 365 STIKKI
EKKI MÖGULEIKI
OG ACHMED
BÍLSTJÓRI FYLGIR
NEI
MEÐ EINS ÁRS
ÁBYRGÐ Á BÍLNUM OG
BÍLSTJÓRANUM
NEI
FULLUM
TANKI
AH! ÉG VERÐ AÐ
HUGSA MÁLIÐ
BENSÍN EÐA
DÍSEL
BENSÍN. EKKI VERA SVONA
HARÐUR Í VIÐSKIPTUM
ÞÁ SEGI ÉG
AFTUR NEI
OG SVO ÁTTU ÖRUGGLEGA NÓG Á
MILLI HANDANNA TIL ÞESS AÐ
KAUPA ÞÉR MÓTORHJÓL
MIKLU STÆRRA
BARA MEÐ
HRINGJUNUM
ÞÍNUM
HEYRÐU VINUR MINN. AÐ KAUPA ER LÖSTUR.
SVO ERU ALLS KONAR SÝKLAR Á
PENINGASEÐLUM... OJ BARA!
GERUM FREKAR
VÖRUSKIPTI. ÞAÐ ER
MIKLU EINFALDARA OG
RÍKIÐ VEIT EKKERT
EN EF ÉG GEF
ÞÉR KAMELDÝR Í
KAUPBÆTI?
ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ GEFA ÞVÍ VATN
ALLT OF
HÆGFÆR Í
FRÍINU
ÉG HEF VERIÐ Á ALLS KYNS RÁÐSTEFNUM UM ALLAN HEIM
EN ÉG HEF ALDREI LENT Á EINS NÍSKUM MANNI OG ÞÉR
ÞÚ GERIR MIG
LEIÐAN
SVO ER HJÓLIÐ
BILAÐ OG
VARHLUTIRNIR
SUKKU ÖRUGGLEGA
MEÐ TITANIC
EÐA
SANTA-
MARIA. ÉG
MAN ÞAÐ
EKKI...
SKÁL!
HVAÐ UM ÞAÐ! ÉG GERI ÞÉR LOKATILBOÐ! ÉG
Á 140 KONUR, VELDU ÞÉR BARA TÍU OG VIÐ
TÖLUM EKKI UM ÞETTA MEIR
?
HEY!... HUGSAÐU ÞÉR! 10 KONUR HEIMA HJÁ ÞÉR SEM
GAGNRÝNA SPAGETTÍIÐ ÞITT. HUGSAÐU ÞÉR BARA
OG? EINS OG 10
TENGDAMÖMMUR
framhald ...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MARGUR undrast að Grindvíkingar
skyldu ekki heiðra móður séra Odds
Gíslasonar, klerksins sem var fræg-
astur Grindvíkinga á sinni tíð og
Oddsviti er kenndur við. Eins og
mörgum mun kunnugt kom út bók
fyrir allnokkrum árum um Odd í
Rósuhúsi. Það var Rósuhús í
Reykjavík, kennt við móður klerks-
ins fræga. Sögufélagið, virðulegt fé-
lag með þáverandi menntamálaráð-
herra í stjórn og sagnfræðinga í bak
og fyrir sem útgáfustjóra, gaf út
myndskreytt rit um séra Odd, eins
og fyrr er sagt. Þar birtist, mörgum
til mikillar furðu, ljósmynd af hefð-
arkonu, sem sögð var vera móðir
séra Odds. Sú furðulega frétt fylgdi
myndinni að hún væri komin frá ætt-
ingjum séra Odds í Ameríku. Þeir
reyndust þó til í flokki þeirra sem
keyptu bókina hjá Sögufélaginu, sem
ekki gleyptu flugu þessa.Við athug-
un og samanburð kom í ljós að sams
konar mynd birtist í ævisögu Svein-
björns Sveinbjörnssonar tónskálds.
Þar var þessi sama kona sögð vera
móðir tónskáldsins, Kirstín Svein-
björnsson dómstjórafrú, eiginkona
Þórðar dómstjóra Sveinbjörnssonar
í Nesi, síðar búsett lengi í Túngötu í
Reykjavík. Athygli Sögufélags-
manna var vakin á þessum mistök-
um. Hafi Sögufélagsmenn vakið at-
hygli áskrifenda og kaupenda
bókarinnar og leiðrétt missögn eru
þeir beðnir afsökunar á pistli þess-
um. Að öðrum kosti skulda þeir les-
endum skýringar í ritum Sögu-
félagsins. Hvað sem þessu líður voru
konur þessar báðar hinar merkustu
og stóðu fyrir sínu. Vonandi logar
enn á Oddsvita þótt hann væri eitt
sinn nefndur Oddviti í Ríkisútvarp-
inu.
PÉTUR PÉTURSSON þulur,
Garðastræti 9,
101 Reykjavík.
Síðbúin leiðrétting
Frá Pétri Péturssyni þul:
Þetta er ljósmynd af Kirstínu
Sveinbjörnsson dómstjórafrú í Nesi
við Seltjörn, síðar við Túngötu í
Reykjavík. Hún var móðir Svein-
björns Sveinbjörnssonar tónskálds.
Bókin var gefin út árið 1982. Tími
leiðréttingar kominn.
ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi að
segja að kjörtímabil forseta Íslands
er fjögur ár í senn. Í raun er það
þannig að sitjandi forsetar hafa setið
í embætti eins lengi og þeir hafa
sjálfir kosið. Forsetakosningar ættu
því að vera óþarfar nema í því tilviki
að sitjandi forseti tilkynni að hann
gefi ekki kost á sér áfram. Að áliti
Sambands sveitarfélaga kostar
framkvæmd forsetakosninga um 100
miljónir króna af almannafé. Það er
auðvitað alvarlegt mál ef ýmiss kon-
ar aðilar geta stundað lýðskrum með
því að fara í forsetaframboð þó að
fyrir liggi að framboðið ekki sé ekki
aðeins með öllu vonlaust heldur jafn-
vel gersamlega fráleitt. Ef sitjandi
forseti gefur kost á sér áfram er það
hrein firra að í nafni lýðræðis sé í lagi
að kjósa um forseta á fjögurra ára
fresti og breyta kosningunni í spaug-
stofu með fáránlegum framboðum.
Framboð til stjórnmálaþátttöku er
réttur og sjálfsagður vettvangur fyr-
ir þá sem vilja bjarga heimsfriðnum
og mannkyninu af þyrnum stráðum
vegi syndarinnar. Guð láti gott á vita.
Það er alltaf gaman að segja er-
lendum ferðamönnum að við Íslend-
ingar „trúum“ á álfa, huldufólk, tröll,
drauga og jafnvel sjálfan jólasvein-
inn. En ef það þarf að bæta því við að
jólasveinninn sé jafnan í framboði til
forseta þá er nóg komið.
Fljótt á litið mætti halda að breyta
þyrfti ákvæðum stjórnarskrárinnar
um kjörgengi til embættis forseta Ís-
lands. Þegar betur er að gáð nægir
líklega að setja málefnalegar tak-
markanir í núverandi lög um fram-
boð og kjör forseta Íslands þannig að
frambjóðendur uppfylli lágmarks-
kröfur. Í íslenskri löggjöf eru iðulega
almenn hæfisskilyrði sem frambjóð-
endur og umsækjendur um leyfi eða
stöður þurfa að uppfylla. Þar sem
forsetaembættið er fyrst og fremst
virðingarstaða, þá er sjálfsagt að lög
áskilji mestar kröfur varðandi kjör-
gengi til forsetaembættisins, sér-
staklega á sviði siðferðis. Forseta-
frambjóðendur ættu að hafa alveg
flekklausan feril, óflekkað mannorð,
aldrei hafa orðið gjaldþrota, aldrei
hafa hlotið refsidóm, ekki valdið al-
mennu hneyksli eða gerst sekir um
athæfi sem ætla má að rýri álit
þeirra eða sé ósamboðið manni í
embætti forseta lýðveldisins.
Í annan stað hlýtur að þurfa að
setja nánari reglur um fjármál fram-
boða. Varða ætti sektum að greiða
kjósendum fyrir undirritun með-
mæla eða loforðs um hvað þeir kjósi.
Ennfremur er nauðsynlegt að fram-
bjóðendur sýni fram á að fé það sem
þeir hafa úr að spila til kosningabar-
áttunnar sé heiðarlega fengið.
Greinarhöfundar telur það skyldu
háttvirtra alþingismanna að hafa
þessi mál í lagi þannig að þjóðin hafi
ekki óþarfa kostnað og hneisu af.
VIGGÓ JÖRGENSSON,
Hólmgarði 18,
108 Reykjavík.
Breyta þarf löggjöf
um forsetaframboð
Frá Viggó Jörgenssyni löggiltum
fasteignasala og laganema við HÍ: