Morgunblaðið - 23.04.2004, Side 43

Morgunblaðið - 23.04.2004, Side 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 43 SÆLUVIKA Skagfirðinga hefst um komandi helgi og verður boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá. Þetta er ein elsta menningarhátíð á land- inu og nær saga hennar allt aftur til ársins 1874 þegar svonefndar sýslu- nefndarvikur hófu göngu sína. Því má segja að Sæluvikan sé 130 ára að þessu sinni. Listahátíð barnanna, dansleikir, myndlistarsýningar, fræðslukvöld og íþróttamót eru meðal viðburða sem fram fara um allan fjörð frá laug- ardeginum 24. apríl til 2. maí, að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitarfélaginu Skagafirði. Börn á leikskólum og í fyrstu bekkjum grunnskóla sýna myndlist, leikþætti, brúðuleikhús og flytja söng. Þá verður Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks föstudags- kvöldið 30. apríl, Skari skrípó skemmtir og kvöldið eftir í Miðgarði syngja Karlakórinn Heimir, Rökk- urkórinn, Karlakór Akureyrar, Geysir og söngflokkurinn Veirurnar. Dansleikir verða til staðar sem fyrr. Hljómsveit Geirmundur verður með forsæludansleik í íþróttahúsinu á Sauðárkróki 25. apríl og Hljómar koma í fyrsta sinn fram í Miðgarði 1. maí, að kóraveislunni lokinni. Leikfélag Sauðárkróks sýnir í Bif- röst leikritið Síldin kemur og síldin fer, eftir þær systur Iðunni og Krist- ínu Steinsdætur. Þröstur Guðbjarts- son leikstýrir og á þriðja tug leikara kemur fram í sýningunni. Nemendur úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, ásamt nemendum frá dönsk- um og finnskum menntaskólum flytja verkið Í völvunnar spor sem byggt er á Norrænni goðafræði. Handrit verksins er eftir Geirlaug Magnússon. Dagskrá um Drangey Elías B. Halldórsson verður með myndlistarsýningu í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Þá verður dagskrá sem helguð er Drangey sem Drangeyj- arfélagið stendur fyrir. Þar verða m.a. sagðar sögur, sýndar ljósmynd- ir og stuttmynd og flutt fræðslu- erindi, allt um Drangey. Kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju er fastur liður í Sæluviku og þetta árið er ræðumað- ur Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi. Spurningarkeppni milli vinnu- staða stendur yfir í Skagafirði og mun henni ljúka í Sæluviku. Körfuboltafélagið Molduxar stendur fyrir öldungamóti í körfu- bolta fyrir karla og konur 30 ára og eldri dagana 23.–24. apríl og sömu daga standa hestamenn fyrir dag- skránni Tekið til kostanna í Reiðhöll- inni Svaðastöðum. Ýmislegt fleira verður í boði, s.s. bíósýningar, opinn dagur á skotsvæði Skotfélagsins Ós- mann, opinn dagur í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og margt fleira. Nánari upplýsingar er að finna á finna á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, www.skagafjordur.is Sæluvika Skagfirðinga 130 ár frá því að sýslunefndarvika fór fram í fyrsta sinn KRABBAMEINSFÉLAG Hafnar- fjarðar afhenti Líknardeildinni í Kópavogi og Sankti Jósefsspítal- anum þar í bæ hvoru sinn DVD-spil- arann ásamt fjölda DVD-mynddiska með blönduðu efni. Jón Auðunn Jónsson afhenti gjafirnar og Þórunn Lárusdóttir, frá Líknardeildinni, og Birna Steingrímsdóttir, Sankti Jós- efsspítalanum, veittu þeim viðtöku. Gáfu DVD-spilara og -myndir „SAMFYLKINGIN harmar þá nið- urstöðu háskólaráðs Háskólans á Akureyri að taka upp fjöldatak- markanir við skólann. Ábyrgðin liggur hinsvegar hjá stjórnvöldum sem hafa svelt háskóla landsins til þess að mæta fjárhagsvanda sínum með harkalegum fjöldatakmörkun- um líkt og nú er raunin hjá HA enda útiloka fjárveitingar til hans að fleiri nemendur verði innritaðir,“ segir m.a. í yfirlýsingu sem borist hefur frá þingflokki Samfylkingar- innar. Í yfirlýsingunni segir einnig: „Fjöldatakmarkanir við opinberu háskólana eru áfall fyrir háskóla- menntun á Íslandi og hrein aðför að jafnrétti til náms. Með þeim á sér stað gagnger stefnubreyting í mál- efnum opinberu háskólanna. Þjóð- skólar á háskólastigi eru ekki leng- ur opnir þeim sem þangað sækja. Það er háð pólitískum geðþótta ráð- herra menntamála og ríkisstjórnar hvað margir fá aðgang að þjóðskól- unum ár hvert. Þetta eru tímamót. Þjóðskólarnir á háskólastigi hafa hingað til verið opnir þeim sem þangað sækja og hafa til þess til- skilda menntun. Nú eru fjöldatak- markanir staðfestar og hafa áður komið fram sem eitt fyrsta meg- inverkefni nýs ráðherra mennta- mála líkt og fram hefur komið í máli hennar um fjöldatakmarkanir við Háskóla Íslands. Staðan sem Há- skóli Íslands glímir við er einnig slæm og hann glímir alvarlegan fjárskort sem þýðir að annaðhvort þarf hann að vísa frá 900 umsækj- endum um nám við skólann eða taka upp harkalegar fjöldatak- markanir. Við þessu bregðast stjórnvöld með þögn og sinnuleysi. Háskólastigið býr við allt of lág fjárframlög og skortur á skýrri stefnumörkun bætir ekki stöðuna. Samkvæmt nýjustu skýrslu OECD frá árinu 2003 kemur fram að op- inber fjárframlög til háskólastigs- ins á Íslandi voru einungis um 0,8% af landsframleiðslu á meðan hin Norðurlöndin vörðu á bilinu 1,2%- 1,7% til háskólastigsins sem er allt að tvöfalt hærra.“ Samfylkingin segir stjórnvöld svelta háskóla FRÖNSK messa verður sungin í Kristkirkju laugardaginn 24. apríl kl. 18, í tilefni af komu þriggja franskra herskipa „Jeanne d’Arc“ „Georges Leygues“ og „Primauguet“. Kór skipverja syngur og eftir messu er öllum boðið í kaffi í safn- aðarheimilinu. Frönsk messa í Kristkirkju Afmælisveisla í Baðhúsinu á morgun Baðhúsið verður 10 ára á morgun, laugardaginn 24. apríl. Af því tilefni býður Baðhúsið upp á af- mælisveislu fyrir almenning á morg- un kl. 10–13. Boðið verður upp á: Thalgo andlitsmaski frítt með öllum Thalgo andlitskremum, frítt er í ljós, og axlarnudd, o.fl. Þá eru léttar veit- ingar, förðunarráðgjf og húðráðgjöf. Suðræn sveifla verður kl. 10 og BodyBalance kl: 10.30 og 11.30 (aðr- ir tímar falla niður). Frítt í barna- gæslu. Einnig verður boðið upp á ýmis tilboð. Nafnfræðifélagið heldur fræðslu- fund á morgun, laugardaginn 24. apríl, kl. 13.30 í stofu 106 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Guðrún Bjarkadóttir íslenskunemi flytur er- indi sem hún nefnir: Mannanöfn í Vestmannaeyjum 1801–1900. Fjallað verður um nafngiftir barna í Vestmannaeyjasókn á tímabilinu 1801–1900, samkvæmt skráningu í prestþjónustubækur. Sérstaklega verður litið á algengustu nöfnin á tímabilinu. Fleirnafnasiðurinn verð- ur skoðaður og millinöfn, þ.e. ættar- nöfn notuð sem skírnarnöfn. Loks verður litið á kvennanöfn mynduð af karlmannsnöfnum með kvenkyns viðskeyti. Landnámshænsnasýning í Laug- ardal. Á morgun, laugardaginn 24. apríl verður landnámshænsnasýning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Gestir velja fallegustu hænu og hana sýningar og fræðsla verður um hænur og aðbúnað þeirra. Handunnir skartgripir úr hænsnafjörðum. Mímir-símenntun heldur nám- skeiðið „Vorverkin í garðinum“ á morgun, laugardaginn 24. apríl kl. 10–16. Leiðbeinendur eru garð- yrkjufræðingarnir Guðríður Helga- dóttir og Kristinn H. Þorsteinsson. Fjallað verður um helstu atriði sem varða umhirðu garðs að vori. Boðið verður upp á súpu og brauð í hádeg- inu. Námskeiðið fer fram bæði í skólanum á Grensásvegi 16 og einn- ig verður farið út í vettvangskönnun. Skráning og upplýsingar eru hjá Mími–símenntun í síma eða á heima- síðunni www.mimir.is. VG fundar um aðgengismál í Reykjavík. Á morgun, laugardaginn 24. apríl verður umræðufundur á vegum Vinstri-grænna um aðgeng- ismál í Reykjavík.Fundurinn er haldinn í húsnæði flokksins, Hafnar- stræti 20 (3.hæð), og hefst kl. 13. Framsögumenn eru: Arnþór Helga- son framkvæmdastjóri Öryrkja- bandalags Íslands, Björk Vilhelms- dóttir borgarfulltrúi og formaður fasteignastofu og Guðmundur Magnússon leikari. Vottar Jehóva halda tveggja daga mót um helgina í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Mótið verður sett á morgun, laugardaginn 24. apr- íl kl. 9.45. Einkunnarorð mótsins eru „Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni“. Aðalræða mótsins verður flutt kl. 13.30 á sunnudag og nefnist hún: „Á nafn hvers ættu þjóðirnar að vona?“ Á MORGUN Á AÐALFUNDI Félags íslenskra gullsmiða sem haldinn var fyrir skömmu var kosin ný stjórn. Í henni eiga sæti Ása Gunnlaugsdóttir for- maður (Aurum), Anna María Svein- björnsdóttir varaformaður (Anna María Design), Leifur Jónsson gjaldkeri (Skartís), Sólborg S. Sig- urðardóttir ritari (Gull og silfur) og Þorbergur Halldórsson meðstjórn- andi (Brilliant). Félagið fagnar síðar á þessu ári 80 ára afmæli sínu. Á afmælisárinu verður ýmislegt gert til að minnast þeirra tímamóta en félagið er meðal elstu starfandi fagfélaga á landinu, segir í fréttatilkynningu. Ný stjórn hjá gullsmiðum FRÁ og með 30. júní næstkomandi verður notkun timburs með viðarvörn sem inniheldur ólífræn arsensam- bönd, svonefnda „græna viðarvörn,“ óheimil almenningi. Þetta er ekki síst gert til þess að koma í veg fyrir að börn komist í snertingu við timbur með hættulegri viðarvörn í umhverfi sínu, til dæmis á leiksvæðum. Í ljósi þessa banns á sölu gagnvar- ins timburs bendir Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar, á nýlega norræna skýrslu um hættuleg efni, svonefnda „Reach“ skýrslu, en þar er áhersla lögð á ábyrgð framleið- enda hættulegra efna. Þannig mælast hin norrænu samtök sem gefa út skýrsluna til þess að lögum um fram- leiðslu og sölu hættulegra efna verði breytt. Þannig verði framleiðendum gert að sýna fram á að efni sem þeir framleiða séu ekki hættuleg heilsu- fari manna og umhverfi, að öðrum kosti megi þeir hvorki framleiða né selja viðkomandi efni. Í dag er þessu öfugt farið, þar sem stjórnvöldum er ætlað að sýna fram á hættu af efnum sem eru á markaði. Þá fyrst megi grípa til aðgerða til að vernda fólk og umhverfi. Græn viðarvörn bönn- uð frá og með 30. júní Varað við „grænni viðarvörn“ Íslandsmótið í tvímenningi Á síðasta ársþingi BSÍ voru sam- þykktar allmiklar breytingar á fyr- irkomulagi mótsins. Spilarar vinna sér rétt til þátttöku í úrslitunum skv. kvóta svæðasambandanna og ár- angri svæðanna í úrslitum síðasta árs. Mótið er nú tvískipt. Spilaðar eru 3 lotur hipp-hopp barometer, 3 spil x 10 umf. Raðað í hópa eftir stigum. 1. lota föstudagur kl. 15.00–19.00 2. lota föstudagur kl. 20.00–24.00 3. lota laugardagur kl. 11.00–15.00 24 efstu pör halda áfram, baro- meter 4 spil x 23 umf. með carryover. Pör taka með sér 15% af skori úr fyrri hluta móts. Spilað með skermum. 1.–10. umf. laugardagur kl. 17.00–23.30 11.–23. umf. sunnudagur kl. 11.00–18.30 Spilað er í Síðumúla 37. Formenn svæðasambanda eru minntir á að skila staðfestum kepp- endalista í síðasta lagi þriðjudaginn 27. apríl kl. 17.00. Núverandi Íslandsmeistarar eru bræðurnir Anton og Sigurbjörn Haraldssynir. Bridsfélag Selfoss og nágrennis Annað kvöldið í Íslandsbanka- mótinu var spilað 15. apríl sl. Að þessu sinni mættu 15 pör til leiks. Þessi pör skoruðu mest: Guðjón Einarsson – Ólafur Steinason 58,1 Anton Hartmannss. – Pétur Hartm. 57,9 Þröstur Árnason – Ríkharður Sverriss. 57,1 Helgi Herm. – Vilhjálmur Þ. Pálsson 54,8 Staða efstu para í mótinu að af- loknum 2 kvöldum er þessi: Þröstur Árnason – Ríkharður Sverrisson/ Brynjólfur Gestsson 61,7 Helgi Herm. – Vilhjálmur Þ. Pálsson 55,7 Anton Hartmannss. – Pétur Hartm. 53,8 Björn Snorras. – Kristján M. Gunnarss. 53,7 Nánar má finna um gang mála á heimasíðu félagsins www.bridge.is/ fel/selfoss. Þriðja og síðasta umferðin í Ís- landsbankamótinu verður spiluð fimmtudaginn 29. apríl, sem verður jafnframt síðasta spilakvöld vetrar- ins hjá félaginu. Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 18 pör til keppni föstu- daginn 16. apríl og lokastaðan í N/S varð þessi: Sigurður Pálss. - Hannes Ingibergss. 251 Sigrún Pálsd. - Sigrún Steinsd. 228 Eyst. Einarss. - Magnús Halldórss. 222 A/V: Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 277 Jóhann Lútherss. - Ólafur Ingvarss. 263 Halla Ólafsd. - Jón Lárusson 244 Sami parafjöldi mætti sl. þriðju- dag en þá urðu úrslitin þessi í N/S: Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 277 Bragi Björnss. - Ólafur Ingvarss. 244 Alfreð Kristjánss. - Birgir Sigurðss. 243 A/V: Eysteinn Einarss. - Magnús Halldórss. 230 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 230 Helga Helgad. - Sigrún Pétursd. 223 Frá félagi eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 20. apríl var spilað á tíu borðum og var meðalskor 216. Úrslit urðu þessi: N/S Bragi Björnsson – Albert Þorsteinsson 288 Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 258 Nanna Eiríksd. – Guðný Hálfdánard. 247 Kristján Ólafss. – Friðrik Hermannss. 215 A/V Stefán Ólafsson – Ólafur Gíslason 237 Þorvarður S. Guðm. –Kristján Þorlákss. 230 Ingimundur Jónsson – Helgi Einarss. 224 Sófus Berthels. – Haukur Guðmundss. 222 Einar Sveinsson – Anton Jónsson 222 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.