Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 23.04.2004, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 45 DAGBÓK www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Hákon, sími 898 9396, lögg. fasteignasali. RAÐHÚS Í SELÁSI Í ÁRBÆ EÐA LINDAHVERFI KÓPAVOGI ÓSKAST Mér hefur verið falið að leita eftir 100-120 fm raðhúsi á einni hæð auk bílskúrs. Um er að ræða fjársterka aðila. Æskilegt að eignin sé í góðu ástandi. Verðhugmynd 22-25 millj. Kaupendur geta veitt ríflegan afhend- ingartíma sé þess óskað. Áhugasamir vin- samlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Íslenski söfnuðurinn í Danmörku 25 ára Í ÁR eru 40 ár liðin frá því að fyrsti íslenski presturinn var skipaður til þjónustu við Íslendinga í Danmörku og ennfremur 25 ár frá formlegri stofnun íslenska safnaðarins þar. Þessa verður minnst með hátíð- arguðsþjónustu sunnudaginn 25. apríl í Sánkti Pálskirkju í Kaup- mannahöfn þar sem söfnuðurinn kemur jafnan saman til helgihalds. Söfnuðurinn hefur boðið fyrrver- andi prestum Íslendinga í Danmörku og mökum þeirra til Kaup- mannahafnar af þessu tilefni. Herra Karl Sigurbjörnsson, bisk- up Íslands, mun predika við messuna og biskup Kaupmannahafnar, Erik Norman Svendsen, heiðrar söfn- uðinn með nærveru sinni. Kór ís- lenska safnaðarins leiðir sönginn við messuna undir stjórn Ásdísar Arn- alds og Sólrún Bragadóttir söng- kona syngur stólvers. Að guðsþjón- ustunni lokinni fer fram móttaka í hliðarskipi kirkjunnar þar sem fram verða bornar léttar veitingar og ávörp flutt. Svo skemmtilega vill til að Dómkórinn í Reykjavík er stadd- ur í Kaupmannahöfn um þessa helgi og mun gleðja viðstadda með söng í móttökunni. Þá er ógetið sendherra- hjónanna Þorsteins Pálssonar og Ingibjargar Rafnar. Núverandi prestur Íslendinga í Danmörku er sr. Þórir Jökull Þor- steinsson og formaður safn- aðarnefndar er Kristín Oddsdóttir Bonde. Allir eru hjartanlega vel- komnir til hátíðarinnar. Ensk messsa í Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 25. apríl nk. kl. 14:00 verður haldin ensk messa í Hallgrímskirkju. Prestur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Hörður Áskelsson. Guðrún Finn- bjarnardóttir mun leiða almennan safnaðarsöng. Messukaffi að athöfn lokinni. Þriðja árið í röð er boðið upp á enska messu í Hallgrímskirkju síð- asta sunnudag hvers mánaðar. Service in English SERVICE in English at the Church of Hallgrímur Sunday 25th of April at 2 pm. Holy Communion. The Third Sunday of Easter. Celebrant and Preacher: The Revd Bjarni Thor Bjarnason. Organist: Hörður Áskels- son. Leading singer:Guðrún Finn- bjarnardóttir. Refreshments after the Service. Sánkti Pálskirkja í Kaupmannahöfn. Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgara starf. Brids-að- stoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri deild- arstarf Lindakirkju og KFUM&K í húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar á aldrinum 8–12 ára velkomnir. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, er í Lágafellsskóla. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom- ur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir velkomnir. Fríkirkjan Kefas. 10–12 ára starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Færeyska sjómannaheimilið. Kvöldvaka laugardaginn kl 20.30 Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30 barnagospel fyrir krakka 4–12 ára. Kl. 10– 18 okkar vinsæli flóamarkaður opinn. Kirkja sjöunda dags aðventista: Föstudaginn 23. apríl: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykjavík. Fyrirlestur kl. 18:30. Laugardaginn 24. apríl: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Ræðumaður: Gavin Anthony. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11:00. Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón- usta kl. 11. Ræðum. Styrmir G. Ólafsson. Safnaðarheimili aðventista Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðs- þjónusta kl. 11:00. Ræðum. Maxwell Ditta. Aðventkirkjan Brekastíg 17, Vestmanna- eyjum: Biblíufræðsla kl. 10:00. Safnaðarstarf LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upp- lýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mót- taka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar. Vitjana- beiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trún- aði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir utan skrifstofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. KVENNAATHVARF: Athvarf og þjónusta fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi. Alltaf opið, 561 1205. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA LESANDINN er í suður og hefur lífsbaráttuna með hindrunarsögn í spaða. Austur gefur; NS á hættu. Norður ♠96 ♥ÁK1052 ♦ÁD765 ♣8 Suður ♠ÁK85432 ♥D83 ♦4 ♣106 Vestur Norður Austur Suður -- -- Pass 3 spaðar 5 lauf 5 spaðar Dobl Pass Pass Pass Vestur svarar í sömu mynt og tælir makker til að reyna fimm spaða, sem austur doblar. Út kemur laufás og meira lauf í öðrum slag. Þú trompar í borði og austur sýnir tvílit. Þegar þú spilar næst trompi heim, stingur austur upp tíu og vestur hendir laufi í kónginn þinn. Það mátti búast við því. Er til vinn- ingsleið? Kannski – ef hægt er að byggja upp þriggja spila endastöðu þar sem þú átt heima Á85 í trompi og austur DG7. Það er skil- yrði að vera í borði og spila þaðan rauðu spili. Ef austur stingur hátt, þá dúkkar þú og færð tvo síð- ustu slagina á Á8 með svíningu. Norður ♠96 ♥ÁK1052 ♦ÁD765 ♣8 Vestur Austur ♠-- ♠DG107 ♥G4 ♥976 ♦G92 ♦K1083 ♣ÁKDG7543 ♣92 Suður ♠ÁK85432 ♥D83 ♦4 ♣106 Það þarf góða legu í rauðu litunum til að ná þessu markmiði. Þú tekur tígulás og stingur tígul. Spilar hjarta á ás og trompar tígul. Svo hjarta- drottningu og yfirtekur með kóng (gosinn verður að vera annar í vestur) og trompar enn tígul. Ferð svo loks inn í borð á hjartatíu, spilar „ein- hverju“ og leggur upp með tilþrifum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 25. apríl verður áttræður Þorgrímur Jónsson, málmsteypumeist- ari, Rauðalæk 19, Reykja- vík. Af því tilefni hafa hann og eiginkona hans, Guðný M. Árnadóttir, opið hús í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, 4. hæð, laugardaginn 24. apríl kl. 17. 70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 23. apr- íl, er sjötugur Hilmar Frið- rik Guðjónsson, Efstalandi 24, Reykjavík. Hann tekur á móti ættingjum og vinum á morgun, laugardaginn 24. apríl, frá kl. 14.30 til 18 í sal Lögreglufélags Reykjavík- ur í Brautarholti 30. 70 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 25. apríl verður sjötug Elsa Auð- björg Unnarsdóttir, Lýsu- bergi 5, Þorlákshöfn. Hún og eiginmaður hennar, Stef- án Valdimarsson, taka á móti gestum í Ráðhúskaffi laugardaginn 24. apríl kl. 17–20. 50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 23. apr- íl, verður fimmtugur Þór- arinn Th. Ólafsson, Tún- götu 14, Eyrarbakka. Hann er að heiman á afmælisdag- inn. 50 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 26. apríl verður 50 ára Jose Rivera Vidal. Hann og kona hans, Laila Margrét Arnþórs- dóttir, bjóða af því tilefni fjölskyldu og vinum að sam- gleðjast með þeim í Borg- artúni 22, laugardaginn 24. apríl kl. 17–20. ÚR HULDULJÓÐUM Smávinir fagrir, foldar skart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans alls staðar fyllir þarfir manns. Vissi ég áður voruð þér, vallarstjörnur um breiða grund, fegurstu leiðarljósin mér, lék ég að yður marga stund. Nú hef ég sjóinn séð um hríð og sílalætin smá og tíð. Munurinn raunar enginn er, því allt um lífið vitni ber. - - - Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT 1. d4 Rf6 2. Bg5 e6 3. e4 h6 4. Bxf6 Dxf6 5. Rc3 Bb4 6. Dd2 c5 7. a3 Bxc3 8. bxc3 d6 9. Bb5+ Bd7 10. a4 0-0 11. Re2 a6 12. Bxd7 Rxd7 13. 0-0 Hfd8 14. Hab1 b6 15. f4 De7 16. Rg3 Df8 17. f5 e5 18. Rh5 f6 19. Hf3 Df7 20. Hh3 Kh8 Staðan kom upp í frönsku deildakeppn- inni sem lauk fyrir skömmu. Christophe Claverie (2.339) hafði hvítt gegn Olivier Ruest. 21. Rxg7! og svartur gafst upp enda fátt um fína drætti bæði eftir 21. – Dxg7 22. Hxh6+ Kg8 23. Hg6 og 21. – Kxg7 22. Dxh6+. Hin vinsæla klúbbakeppni Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélags- ins Hellis hefst kl. 20 í kvöld í húsakynnum fyrrnefnda félagsins. Allir skák- áhugamenn sem geta mynd- að fjögurra manna lið eru hvattir til að taka þátt í keppninni. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert ástrík/ur, listræn/n og hefur mikla þörf fyrir ör- yggi. Þú átt viðburðaríkt og skemmtilegt ár í vændum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er einhver spenna í þér og hætt við að þú látir það bitna á fólkinu í kringum þig. Reyndu að stilla þig því annars er hætt við að þú leggir steina í þína eigin götu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert staðráðin/n í að hafa þitt fram í vinnunni. Þig gæti líka langað til að kaupa þér eitthvað nýtt. Reyndu að sýna fyrirhyggju. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tilraunir þínar til að hafa áhrif á aðra mæta harðri mót- spyrnu. Reyndu að sýna þol- inmæði og hafa hægt um þig. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þótt þú viljir sjá breytingar í vinnunni er þetta ekki rétti dagurinn til að ýta á eftir þeim. Það er hætt við að áhrifamiklir aðilar leggist gegn hugmyndum þínum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ekki reyna að telja vin þinn á þitt mál í dag. Hlustaðu held- ur á viðhorf hans/hennar þannig að þið getið leitað leiða til að vinna saman að sameig- inlegum markmiðum ykkar. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ert staðráðin/n í að ná settu marki í vinnunni í dag. Þú ert viss um að þú hafir rétt fyrir þér en þarft þó að gæta þess að stíga ekki á tærnar á yfirmanni þínum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú vilt halda um stjórn- artaumana í samskiptum þín- um við aðra í dag og telja þá á þitt band. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þetta muni skila þér þeim árangri sem þú sæk- ist eftir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það hefur ekkert upp á sig að reyna að sannfæra fólk um skoðanir þínar í heimspeki, trúmálum og stjórnmálum í dag. Það er eins og fólk heyri ekki nema það sem það vill heyra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er hætt við að þú lendir í óvæginni valdabaráttu í dag. Reyndu að forðast það. Það mun skila þér bestum árangri að draga þig í hlé. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur mikla orku og ættir því að nota tækifærið til að koma sem mestu í verk. Þetta á sérstaklega við um lík- amlega áreynslu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ekki reyna að ráðskast með börn eða unglinga í dag. Rifj- aðu heldur upp hvernig þér leið þegar þú varst barn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er hætt við valdabaráttu innan fjölskyldunnar í dag. Reyndu að halda þig utan við þetta því það mun ekki skila þér neinum árangri. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.