Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JACEK Kowal sem lék í marki Stjörnumanna í hand-
knattleik á leiktíðinni verður ekki í röðum félagsins
á næsta keppnistímabili, eftir því sem fram kemur í
yfirlýsingu frá Sigurði Bjarnasyni fráfarandi þjálf-
ara Stjörnunnar í gær. Kowal, sem er pólskur, hefur
dvalið hér á landi með fjölskyldu sinni frá því í lok
síðasta sumars. Ástæðan fyrir því að hann verður
ekki áfram í herbúðum Garðbæinga er að sögn Sig-
urðar sú að ekki eru til peningar í sjóðum félagsins
til þess að framlengja samninginn við markvörðinn.
Kowal hefur líkað vistin vel hér á landi og hefur
áhuga á að leika með öðru liði hér á landi gefist
kostur á því.
Í fyrrgreindri yfirlýsingu sinni staðfesti Sigurður
frétt Morgunblaðsins í gær um að hann væri hættur
þjálfun Stjörnunnar eftir eitt ár við stjórnvölinn.
Segir Sigurður að of mikill tími fari í þjálfunina og
það sé ástæðan fyrir því að hann hafi ákveðið að
hætta.
Kowal er hættur
hjá Stjörnunni
ÍSLAND sigraði Pólland, 3:1, í milliriðli Evr-
ópumóts unglingalandsliða kvenna í knattspyrnu,
undir 19 ára, en leikur liðanna fór fram í Póllandi í
gær. Íslenska liðið hefur þar með unnið báða leiki
sína og mætir Þjóðverjum í hreinum úrslitaleik um
sigur í riðlinum og sæti í átta liða úrslitum keppn-
innar á morgun.
Það verður þrautin þyngri því þýsku stúlkurnar
sigruðu þær ungversku, 9:0, í gær og höfðu áður
lagt þær pólsku að velli með sömu markatölu. Ís-
lenska liðið, sem vann Ungverjaland 4:0 fyrr í vik-
unni, þarf því að sigra á morgun en Þjóðverjum
nægir jafntefli.
Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði tvö marka Ís-
lands í gær. Hún kom Íslandi yfir strax í byrjun en
heimastúlkur jöfnuðu fimm mínútum síðar. Margrét
Lára Viðarsdóttir kom Íslandi í 2:1 fyrir hlé og
Greta Mjöll tryggði sigurinn með marki seint í
leiknum.
Greta Mjöll með
tvö gegn Póllandi
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Stjarnan – Valur 27:29
Ásgarður, Garðabæ, undanúrslit Íslands-
móts kvenna, annar leikur, fimmtudaginn
22. apríl 2004.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 3:3, 5:3, 5:5, 7:6,
7:9, 9:9, 9:11, 11:11, 12:12, 12:13, 13:13,
14:16, 15:17, 17:17, 18:20, 21:20, 21:22,
24:22, 24:24, 24:27, 27:27, 27:29.
Mörk Stjörnunnar: Hind Hannesdóttir 6,
Jóna Margrét Ragnarsdóttir 5/2, Kristín
Clausen 4/1, Rakel Dögg Bragadóttir 4/2,
Elísabet Gunnarsdóttir 3, Sólveig Lára
Kjærnested 2, Ásdís Sigurðardóttir 2,
Hekla Daðadóttir 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 23/2 (þar af
8/1 aftur til mótherja), Helga Dóra Magn-
úsdóttir 5 (þar af 2 aftur til mótherja)
Utan vallar: 12 mínútur. Þar af fékk Hekla
rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir.
Mörk Vals: Gerður B. Jóhannsdóttir 6,
Hafrún Kristjánsdóttir 6, Elfa B. Hregg-
viðsdóttir 4, Ágústa E. Björnsdóttir 4/2,
Árný Ísberg 3, Sigurlaug Rúnarsdóttir 3/1,
Kolbrún Franklín 2, Arna Grímsdóttir 1.
Varin skot: Berglind Hansdóttir 20 (þar af
8 aftur til mótherja), Erna María Eiríks-
dóttir 3/2 (þar af 1/1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Hörður Sigmarsson og Þórir
Gíslason.
Áhorfendur: Um 310.
Valur vann tvo leiki og er komið í úrslit.
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Efri deild, A-riðill:
Njarðvík – KA .......................................... 1:2
Gunnar Örn Einarsson 6. - Elmar Dan Sig-
þórsson 84., Jóhann Þórhallsson 90.
Fylkir – Þór .............................................. 4:0
Ólafur Stígsson 2, Ólafur Páll Snorrason,
sjálfsmark.
Víkingur R. – Haukar ............................. 5:1
Grétar Sigurðarson, Vilhjálmur R. Vil-
hjálmsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Daní-
el Hjaltason, Steinþór Gíslason - Sævar
Eyjólfsson (víti).
Lokastaðan:
KA 7 5 1 1 17:5 16
KR 7 5 1 1 19:9 16
Fylkir 7 5 0 2 18:12 15
Víkingur R. 7 3 2 2 13:9 11
Þór 7 3 0 4 8:14 9
Grindavík 7 3 0 4 11:19 9
Haukar 7 1 0 6 13:21 3
Njarðvík 7 1 0 6 9:19 3
Efri deild, B-riðill:
Valur – Fram............................................ 2:1
Kristinn Lárusson, Sigurbjörn Hreiðars-
son (víti) - Andri Fannar Óttarsson.
Þróttur R. – FH........................................ 1:2
Hallur Hallsson 41. - Atli Viðar Björnsson
10., Atli Guðnason 87.
Lokastaðan:
Keflavík 7 5 2 0 23:11 17
ÍA 7 5 1 1 17:10 16
Valur 7 4 0 3 14:9 12
FH 7 4 0 3 17:15 12
Þróttur R. 7 3 1 3 13:12 10
Fram 7 2 2 3 15:13 8
ÍBV 7 1 2 4 15:16 5
Stjarnan 7 0 0 7 5:33 0
Deildabikar kvenna
Efri deild:
FH – KR .................................................... 1:3
Elín Svavarsdóttir 86. - Hólmfríður Magn-
úsdóttir 19., 38., Júliana Einarsdóttir 77.
Staðan:
Valur 4 3 1 0 16:4 10
KR 3 2 0 1 5:4 6
ÍBV 3 2 0 1 6:7 6
Breiðablik 3 1 2 0 13:7 5
Stjarnan 4 1 1 2 9:10 4
FH 5 0 0 5 3:20 0
Evrópukeppni U19 kvenna
Milliriðill í Póllandi:
Pólland – Ísland ....................................... 1:3
Greta Mjöll Samúelsdóttir 3., 75., Margrét
Lára Viðarsdóttir 30.
Þýskaland – Ungverjaland..................... 9:0
Staðan:
Þýskaland 2 2 0 0 18:0 6
Ísland 2 2 0 0 7:1 6
Pólland 2 0 0 2 1:12 0
Ungverjaland 2 0 0 2 0:13 0
UEFA-bikarinn
Undanúrslit, fyrri leikir:
Newcastle – Marseille.............................. 0:0
Villarreal – Valencia................................. 0:0
Svíþjóð
Örgryte – AIK .......................................... 1:1
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
16-liða úrslit, leikir númer tvö:
Detroit – Milwaukee ............................ 88:92
Staðan er 1:1.
Miami – New Orleans .......................... 93:63
Miami er yfir, 2:0.
Minnesota – Denver............................. 95:81
Minnesota er yfir, 2:0.
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni
Neðri deild karla, C-riðill:
Tungubakkar: Huginn – KS......................19
Neðri deild karla, A-riðill:
Egilshöll: Fjölnir – ÍH ..........................20.30
Í KVÖLD
FÓLK
Leikur Newcastle og Marseille varfjörugur þrátt fyrir markaleysið
og bæði lið fengu góð færi. Didier
Drogba átti þrumuskot í innanverða
stöngina á marki Newcastle og Fabi-
an Barthez, markvörður Marseille,
bjargaði sínum mönnum þegar hann
varði glæsilega frá Shola Ameobi úr
dauðafæri.
Í lið Newcastle vantaði Craig
Bellamy, Kieron Dyer og Jermaine
Jenas og Bobby Robson, knatt-
spyrnustjóri, sagði að engar líkur
væru á að þeir yrðu tilbúnir fyrir síð-
ari leikinn.
„Þetta var mjög góður leikur, í
hæsta gæðaflokki, og þar sem varnir
beggja spiluðu afar vel þurftu sókn-
armennirnir að hafa mikið fyrir þeim
færum sem þeir sköpuðu sér. Úrslit-
in eru sanngjörn og fyrst svona fór
var mikilvægt að við fengum ekki á
okkur mark. Ég tel að við séum lík-
legir til að skora í Marseille og eigum
því ágæta möguleika í síðari leikn-
um,“ sagði Robson.
„Það er gott að ná markalausu
jafntefli á útivelli en við fengum fjög-
ur góð marktækifæri sem við nýttum
ekki. Við verðum því að bæta um
betur á heimavelli. Skot eins og
Drogba átti hafna í netinu í níu skipti
af tíu svo heppnin var ekki á okkar
bandi. Fólkið í Marseille bíður
spennt eftir því að komast í úrslita-
leik í Evrópupkeppni og það gefur
okkur aukakraft,“ sagði Jose Anigo,
þjálfari Marseille.
Villarreal sterkari aðilinn
Villarreal var sterkari aðilinn
lengi vel í spænska uppgjörinu gegn
toppliði Valencia. Það var hinsvegar
Valencia sem komst næst því að
skora þegar Ruben Baraja átti
hörkuskalla í þverslá um miðjan síð-
ari hálfleik. Valencia sótti síðan stíft
undir lokin og hélt þá uppi skothríð
að marki heimamanna. Amedeo
Carboni, varnarmaðurinn reyndi hjá
Valencia, verður í leikbanni í seinni
leik liðanna vegna gulra spjalda.
Erum líklegir til að
skora í Marseille
EKKERT mark var skorað í fyrri undanúrslitaleikjum UEFA-
bikarsins í knattspyrnu sem fram fóru í gærkvöld. Newcastle og
Marseille skildu jöfn á St. James Park í Newcastle og sama nið-
urstaða varð í viðureign spænsku liðanna Villarreal og Valencia.
Staða Marseille og Valencia er því vænlegri fyrir síðari leiki félag-
anna sem fram fara á heimavöllum þeirra eftir tvær vikur.
HEIÐAR Davíð Bragason lék
fyrsta hringinn á Opna spænska at-
vinnumannamótinu á Kanaríeyjum í
gær á 78 höggum, eða 8 höggum yf-
ir pari. Hann er meðal öftustu
manna, í 143.-149. sæti af 155 kepp-
endum. Hann byrjaði illa og fékk 7
högg á 2. holu og eftir sjö fyrstu
holurnar var hann á sex höggum yf-
ir pari. David Park frá Wales lék
best í gær á 64 höggum, eða 6 högg-
um undir pari.
Þetta er fyrsta mót Heiðars á
Evrópsku mótaröðinni en hann öðl-
aðist keppnisrétt á mótinu þegar
hann sigraði á Opna spænska
áhugamannamótinu í mars síðast-
liðnum. Hann verður að leika mun
betur ætli hann sér að komst í gegn-
um niðurskurðinn í dag, en reiknað
er með að 70 efstu komist áfram og
leiki tvo síðustu keppnisdagana.
Heiðar lék fyrstu holuna á einu
höggi yfir pari, en lék aðra holu vall-
arins, sem er par fjórir, á sjö högg-
um. Hann fékk svo skolla á sjöttu og
sjöundu holu. Hann var sex höggum
yfir þegar hann kom á 17. holuna
(par 5) sem hann lék á 7 höggum, en
endaði síðan daginn á pari.
Heiðar á 8 höggum
yfir pari á Spáni
BIKARMEISTARAR ÍA í knattspyrnu komu mjög á óvart þegar
þeir gerðu jafntefli við þýska liðið Bochum, 1:1, í æfingaleik í
Þýskalandi í gær. Grétar Rafn Steinsson kom ÍA yfir með fallegu
skallamarki eftir sendingu Hjálms Dórs Hjálmssonar á 16. mínútu
en Vahid Hashemian jafnaði fyrir Bochum 18 mínútum fyrir leiks-
lok. Bochum, sem er í sjötta sæti í þýsku 1.deildinni og á góða
möguleika á Evrópusæti, tefldi fram sínu sterkasta liði í fyrri hálf-
leik en skipti flestum af þeim bestu af velli í þeim síðari. Skaga-
menn skiptu ennfremur megninu af byrjunarliði sínu af velli í síð-
ari hálfleik.
Þórður Guðjónsson gat ekki leikið með Bochum vegna meiðsla en
hann var mjög hrifinn af leik ÍA. „Skagamenn léku mjög vel og
skynsamlega og það var gaman að sjá til þeirra. Þeir hefðu getað
skorað þrjú mörk í fyrri hálfleik, Stefán átti hættulegan skalla og
auk þess var mark dæmt af honum vegna rangstöðu sem var mjög
tæp. Bochum stjórnaði leiknum en fékk ekki mikið af færum,“
sagði Þórður við Morgunblaðið.
Alen Marcina, Kanadamaðurinn sem er til reynslu hjá ÍA, lék
sinn fyrsta leik með liðinu. „Hann er snöggur og skemmtilegur
sóknarmaður og var óheppinn að skora ekki mark í seinni hálfleik.
Mér sýnist að hann geti nýst Skagaliðinu mjög vel,“ sagði Þórður.
Skagamenn gerðu
jafntefli við Bochum HÖRÐUSTU stuðningsmennenska knattspyrnuliðsins Norwich
City fögnuðu úrvalsdeildarsæti í
fyrrakvöld meðan þeir fylgdust með
varaliði félagsins í leik á heimavelli. Á
meðan vann Crystal Palace sigur á
Sunderland í 1. deildinni og þar með
átti Sunderland ekki lengur mögu-
leika á að skáka Norwich, sem er
komið í efstu deild á ný eftir níu ára
fjarveru. Nigel Worthington, knatt-
spyrnustjóri Norwich, sagði í gær að
aðaltakmark félagsins yrði að halda
sæti sínu næsta vetur.
FORRÁÐAMENN Charlton Athle-
tic fagna árangri Norwich af fjár-
hagslegum ástæðum. Charlton seldi
Mathias Svensson til Norwich í vetur
fyrir 6,5 milljónir króna, en með því
ákvæði að Norwich skyldi greiða 32,5
milljónir til viðbótar ef félagið ynni
sér sæti í úrvalsdeild.
RON Atkinson, fyrrum knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
Aston Villa og fleiri liða, hefur sagt af
sér sem sérfræðingur í lýsingum
ITV-sjónvarpsstöðvarinnar og dag-
blaðið Guardian hefur sagt honum
upp sem dálkahöfundi. Ástæðan er sú
að Atkinson lét út úr sér ósæmileg
orð um Marcel Desailly, fyrirliða
Chelsea, eftir útsendingu á leik liðs-
ins við Mónakó á þriðjudag, en Atk-
inson hélt að búið væri að loka fyrir
útsendinguna.
SJÓNVARPSÁHORFENDUR í
Austurlöndum nær heyrðu til Atkin-
sons en orðbragð hans flokkast undir
kynþáttafordóma. Atkinson hefur
beðið Desailly afsökunar, sem og alla
aðra sem hann kynni að hafa móðgað.
„Þetta var alfarið mín sök, ég var að
tala við sjálfan mig og áttaði mig ekki
á þessu fyrr en mér var sagt frá því
daginn eftir,“ sagði Atkinson, sem
kvaðst vilja hitta Desailly og biðja
hann afsökunar augliti til auglits.
VALUR, FH, Fylkir og Víkingur
tryggðu sér í gær fjögur síðustu
sætin í átta liða úrslitum deildabik-
ars karla í knattspyrnu. Þar leika
saman KA - FH, KR - Valur, Kefla-
vík - Víkingur og ÍA - Fylkir en
leikið er í næstu viku. Sjö úrvals-
deildarlið komust áfram, öll nema
Fram, ÍBV og Grindavík, og Valur
er eina lið 1. deildar sem er eftir í
keppninni.
Atli Guðnason, 19 ára sóknar-
maður, tryggði FH sigur á Þrótti
R. Hann skoraði sigurmark Hafn-
arfjarðarliðsins, 2:1, á gervigrasinu
í Laugardal þegar þrjár mínútur
voru til leiksloka en jafntefli hefði
nægt Þrótturum til að komast
áfram.
Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði
Vals, kom sínum mönnum í átta liða
úrslitin á kostnað Fram. Hann
skoraði sigurmark Vals, 2:1, úr
vítaspyrnu í viðureign liðanna í Eg-
ilshöllinni í gær.
Jóhann Þórhallsson skoraði sig-
urmark KA gegn Njarðvík, 2:1, á
lokamínútunni þegar liðin áttust við
á grasvelli í Njarðvík í gær. KA
tryggði sér efsta sætið í A-riðli með
sigrinum.
Ólafur Stígsson skoraði tvö
mörk fyrir Hauka sem unnu auð-
veldan sigur á Þór, 4:0, í Egilshöll-
inni. Víkingur varð síðasta liðið inn
í 8-liða úrslitin, komst uppfyrir Þór
með því að vinna Hauka, 5:1.
Valur og
sjö úr úr-
valsdeild